Tíminn - 24.12.1964, Síða 15

Tíminn - 24.12.1964, Síða 15
F5iHVtTUDAGUR 24. desember 1964 TÍMINN 15 Kl Maríuerlan sem verpir í Dómkirkjuturninum er að lík- um sá fugl, sem á virðulegasta hreiðurstað á íslandi. Hún verpir á hverju sumri inni á bita undir turnþakinu. Staður- inn virðist fullkomlega örugg- ur. Efsti hluti turnsins hefur ekkert að geyma nema þetta fuglshreiður og möndlana, sem snúa vísum klukkunnar. Þeir liggja í kross yfir gólfið, en strengirnir sem hreyfa þá eru felldir inn í stokk, sem liggur að gangverkinu, neðst í turn- inum. Klukkunni ber ekki saman við sjálfa sig, hún sýnir eitt í austur og annað í vestur, og skífurnar sem snúa suður og norður greinir einnig á um tímann. Sumum kann að virð- ast þetta ljóður á einni klukku. en öðrum kostur, að minnsta kosti eins konar vísbending. Skylt er að geta þess, að lítið ber á milli. Þar fyrir neðan eru sjáif ar kirkjuklukkurnar, sem kalla til tíða. Þær eru tvær, önnur frá 1777, og þar er mynd Friðriks konungs VII af Guðs Náð steypt í eirinn, prófíll nettmennis með hárkollu og rykkilín um hálsinn. Þetta eru litlar klukkur. Kirkjuvörður inn opnar' lúgur á turnveggj- unum svo Reykvíkingar heyri þegar hann hringir, en dóm- kirkjuvörðurinn er sjálfur hringjari og hefur einnig með- hjálparastarfið m_eð höndum. . Hann heitir Ólafur Guð- mundsson, ungur maður frá Drumboddsstöðum í Bisk- upstungum. Stöðu sinni sem dómkirkjuvörður hefur hann gengt í hálft fjórða ár, áður var hann verzlunarmaður. Við spurðum Ólaf hvort hann hefði kannski verið með- hjálpari i Tungunum, en svo Klukkur Dómkirkjunnar. — Ég var ekki einu sinni kirkjurækinn, sagði hann. Aðspurður hvort hann væri það nú af praktískum ástæð- um svaraði hann stutt og lag- gott, að starfið byði sér að vera kirkjurækinn. — É_g sá betta starf auglýst, sagði Ólafur, og var svo hepp- inn að fá það. Heppinn segi ég vegna þess, að mér líkar þetta að mörgu leyti vel, en ekki veit ég hvort ég verð jafn gam all í hettunni og fyrirrennari minn, kirkjuvörður skömmu á undan mér. Hann gegndi i fjörutíu ár. — Hvað heyrir undir kirkju vörðinn? — Að sjá um daglegan rekstur kirkjunnar, hreinsa kirkjuna og gæta þess að allt sé í röð og reglu, þegar at- höfn byrjar. Ég þvæ og ryk- suga, útvega, hringi og með- hjálpa. Það er verkahringur inn. — Er þetta mikil vinna? — Þetta er nægjanlega mik- il vinna þótt hún sé ekki ströng dags daglega. Ég hef í nóg að horfa þá daga, sem nú fara í hönd. Þá verð ég gestur heima hér mér. Sama er á páskunum og þegar ferm- ingar standa yfir. Og nú komum við að þvi, sem hlýtur að vera umdeilan- legt varðandi framkvæmd á starfsemi hinnar virðulegu Dómkirkju, en það er raf- magnshringingin. Hún er vissu- iega þægileg fyrir kirkjuvörð og hringjara, sem þarf aðeins að styðja á hnapp og þá taka klukkurnar að hringja. Varð- andi klukknahljóminn gerir þetta kannski engan mun, og auk þess má telja víst, að einhverjar góðar manneskjur séu hreytknar af því, að hafa innleitt rafmagnshringingu í Dómkirkjuna. Hins vegar má gera ráð fyrir, að einhverjum finnist nokkur munur á þeirri vitneskju, að klukka sé hreyfð af hendi, sem tekur í streng- inn, og hinni, að hreyfingin gerist með 220 volta riðstraum. Ólafur GuSmundsson, kirkjuvörður, skreytir jólatréð. Þetta er semsé spurning um ekta eða óekta hringingu, eða hvort ný aðferð jafngildi hinni fyrri. Öldum saman hefur starf hringjara verið sérstakt, og með vissri áherzlu í vitund manna. Má minna á, að ein frægasta sögupersóna heims- bókmenntanna hafði það með höndum. Undirritaður hlust- aði einu sinni á klukknahring- ingu í Pisa, og horfði á hringj- arann taka til hendinni, og hvílík einbeitni, öryggi og ábyrgðartilfinning, sem við blasti í atferli þess manns. En nóg um það. — Við Ólaf- ur kirkjuvörður ræddum hring- ingarmálið af fyllsta hlutleysi. Sjálft kirkjuloftið hefur nú verið tæmt af bókum og skjól- um Hins 'íslenzka bókmennta- félags. Þar á að innrétta fél- agsheimili Dómkirkjusafnað- arins, sagði kirkjuvörður. En hilluförin á veggjunum minna á það, sem áður var á þessu lofti. Þau minna á starf Matt- híasar Þórðarsonar, og þarna leynist enn einn og annar hlutur, sem Matthias hafði hjá sér. Á þessu gamla kirkjulofti var áður Stiftbókasafnið og Forngripasafnið. Nú er það annarlega tómt, líkt og strokk- ur sem búið er að rífa inn- an úr. — Mér varð undarlega inn- anbrjósts, þegar ég kom hér fyrst og skoðaði safnið, mér fannst ég hverfa frá nútíðinni. —BÓ. „KOMIN ERU JÓLIN" Framhald af 13. síðu. „Hvert fátækt hreysi höll nú er, því guð er sjálfur gestur hér“. En samt er enn ekki komið hið allra helgasta í musteri jólanna. Við verðum að reyna að kom- ast þangað. Til þess var raunar allt erfiðið og undirbúningurinn. Og nú mætti búast við að það væri kirkjan. En þótt hún geti áreiðan- lega hjálpað til að ná inn í hið allra helgasta, þá tilheyrir hún að eins hinu heilaga, er ekki annað en þrep á leiðinni. En allt, sem enn er nefnt eru aðeins ytri hlut- ir hins áþreifanlega. En hið allra helgasta gjörist og mótast í okk- ar eigin hjarta. „Hjarta vort að helgidómi hann vill gjöra og búa þar,“ Syngjum við í fyrsta aðventu- sálminum. Allt, sem gerist í for- garð: jólanna, allt, sem gerist i hinum heilaga með sálmum, söng- um orðum og ljósum getur verið einskis virði, ef það snertir ekki tilfinningar okkar, gerir okkur ekki ofurlítið göfgari og betri, gef ur okkur hjartafrið. Þá fyrst eign umst við raunverulega jólagleði. Og þá getur eitt augnablik helgað af himinsins náð orðið að ævi- langri og ævarandi jólabirtu, sem gefur öllum komandi dögum eitt- hvað af ljósi og varma. Þannig gerist undur jólanna í helgidómi mannlegs hjarta. En því getur enginn lýst með orðum, tæpast með tónum. Það er eins og að hafa komið til Kirkjuhvols í ævintýrum goðsagnanna og verða aldrei samur og áður alla stund. Kannski getur aðeins barnið, barnslundin komizt inn í þetta allra helgasta jólanna. Var það ekki einmitt það, sem jólabarnið sjálft átti við, þegar það sagði: „Nema þið snúið við og verðið eins og börn, komizt þið alls ekki inn í himnaríki“. Síðasta guðsþjónustan fyrir jól var í gamla daga kölluð jólabæn. Væri ekki ágætt að muna, að án hennar verða jólin aðeins í forgarðinum eða hinu heilaga. Koman í hið allra helgasta með hjartafriði og himnadýrð er dð- eins bænheyrsla náðargjöf, sem ég vona og bið að sem flestum veit- ist á komandi jólum. Þar og aðeins þar verða jólin í sannleika: Gleðileg jól. Og ómar frá bernskujólum fylgja þér, hvar sem þú ferð: Ég skal alltaf reyna að lifa líkt og hann. Lýsa hverri sálu og hryggja ei nokkurn mann.“ Árelíus Níelsson. r\ /i/^NNrr^x r^n SKARTGRIPIR trúlofunarhrlngar Hverfisgötu 16 Simi 21355 Verzlunarmannafélag Reykjavíkur JOLATRÉSSKEMMTUN verður haldin í Lídó laugardaginn 2. janúar 1965, og hefst kl. 3 s.d. Sala aðgöngumiða hefst í skrifstofu V.R., Vonar- stræti 4, þriðjudaginn 29. des. Tekið á móti pönt- unum í síma 15-2-93. Trygglngar á vörum I flutnlngi SXIPATRYGGINGAR Trygglngar á elgum skipverja Ahafnaslysatrygglngar Abyrgðartrygglngar Veiiafæratrygglngar Aflatrygglngar henfar ylur Helmlstrygglng TRYGGINGAFELAGIÐ HEIMIRS LINOARGATA 9 REYKJAVlZ SlMI 21260 SlMNEFNIiSUðEIY

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.