Tíminn - 24.12.1964, Side 17

Tíminn - 24.12.1964, Side 17
FIMMTUDAGUR 24. desember 1964 TÍMINN YFIR ALDA HAF Sigurður Ólason. Bókaútgáfan Hildur. Ég hef ætíð lesið með athygli, þætti þá, sem Sigurður Ólason hef ur ritað í þlöð og tímarit um þjóð leg eða söguleg efni. Ber það einkum til, að Sigurður er skemmtilega ritfær, þegar bezt lætur, og hann leitast við að sýna nýjar hliðar á söguefni sínu, reng- ir jafnvel á stundum söguskoð- un, sem hefur löngu unnið sér hefð. Hann er líka duglegur leit- andi og oft fundvís á nýjar heim- ildir, sem hann gerir sér mikið úr. Sigurður hefur nú sett nokkra þ-’-tti sína saman í bók og nefnir íir ald<a haf — greinar um sögu- leg og þjóðleg fræði.“ Hann birtir meira að segja ýmsar myndir með af gripum og sögustöðum, og er fengur að því. Bókin er vönd- uð vel. Ef til vill mætti segja, að nafn bókarinnar sé heldur upphaf ið og yfirlætismikið heiti á greina- safni af þessu tagi, þar sem höf- undur veltir fyrir sér hlutunum á alþýðlegan hátt. Sigurður segir í formála,_ að margir þessara þátta hafi áður birzt í blöðum og tímaritum, en síðar hafi hann aukið við þá flesta og jafnvel umskrifað þá. Ennfrem ur séu í bókinni nokkrar nýjar greinar. Hann varar menn líka við því að líta á greinar þessar sem sagnfræði, heldur fremur sem fróð leikssamtíning eða létt lesefni fyr- ir þá, sem ánægju hafa af sögu- legum fróðleik. Fyrsti þátturinn í bókinni heit- ir Hellisbúinn í Hnappadalshraun um. Er það rætt fram og aftur um Aron Hjörleifsson, kunnan kappa frá Sturlungaöld, en tilefni greinarinnar er raunar það, að í nýfundnum hellum í Gullborgar- hrauni vestur í Hnappadal eru grjóthleðslur, sem vel mega vera frá 13. öld, og rennir Sigurður stoðum undir það í þætti þessum, að þarna hafi Aron verið að verki eða einhverjir hjálparmenn hans. Er gaman að þessum hugleiðing- um, og ekki ólíklega til getið, að eitt hæli Arons sé þarna fundið, þó að mörg sé holan í Hnappa- dalshraunum, og röksemdir Sig- urðar ekki ótvíræðar. Annar þáttur heitir Óhrjáleg af- drif íslandsjarls. Er þar sagt frá Auðuni hestakorni Hugleikssyni, sem á að hafa verið íslandsjarl. Er þessi málaþáttur allforvitnileg- ur, þó að margt sé þar myrkri hul- ið. Næst víkur Sigurður að Grundar stólnum, sem frægur er í Þjóð- minjasafni að skrauti og fegurð. Er saga þessa grips, svo og fólks- ins sem átti hann, einkum þeirra systkina Þórunnar og Ara-lög- manns sögð skemmtilega. Dómsmorð á Öxarárþingi heitir næsti kafli, og er þar fjallað um mál Þórdisar Halldórsdóttur frá Sólheimum í Sæmundarhlíð, en það er hið sama mál og skáldsaga Jóns Björnssonar, Jómfrú Þórdís, snýst um. Er gaman að hafa þenn- an þátt til hliðsjónar við söguna. Þá kernur þáttur um erfða- hyllinguna í Kópavogi. Par bregð ur Sigurður á þann leik að færa að því ýmsar líkur, að sá atburð- ur sé allmjög rangfærður í sög- unni, og hermannahótun konungs- fulltrúa og framganga íslendinga sé að miklu leyti hugarburður og tilbúningur síðari tíma. Tínir Sig- urður ýmislegt til, en það er ekki allt sannfærandi. Þáttur þessi er þó mjög ítarlegur og að honum töluverður fengur. Væri raun- ar nauðsyn, að saga Kópavogsfund ar væri rannsökuð og skrifuð af sagnfræðingi. Heimildir um fund- inn eru á reiki, allmjög dreifðar og ber ekki ætíð saman. Þarna þyrfti góð rannsókn að koma til, því að hér er um merkilegan at- burð þjóðarsögunnar að ræða. Bræðratungumál heitir næsti þáttur. Þar er fjallað um fólk það, sem kemur fram í sögu Kiljans, þau Árna Magnússon, Magn- ús í Bræðratungu og Þórdísi konu hans —- Snæfríði íslands- sól. Þá kemur þáttur, sem heitir Undarlegur arfleiðslugjörningur, og er þar átt við erfðaskrá Árna Magnússonar. Þar er drepið á sitt hvað, sem er harla forvitnilegt um það, hvernig erfðaskrá Árna hefur orðið til, og hníga ýmis rök að því, að þar sé ekki allt skráð með fullum vilja hans og vitund. Sunnefumálin eru fræg og hafa löngum þótt forvitnileg, og þau lætur Sigurður að sjálfsögðu ekki fram hjá sér fara. Þarfur og skemmtilegur þáttur er um skírnarfont Thorvaldsens í Dómkirkjunni, og er sannarlega gaman að kynnast þeirri sögu, sem virðist rituð af góðri nákvæmni. Loks er svo þátturinn Leyndar- dómur eirkatlanna í Rauðamels- hrauni, þessir eirkatlar fundust fyrir nokkrum árum, og þeir hafa hreyft við ímyndunarafli Sigurðar sem vænta mátti. Leiðir hann nú að því allmiklar líkur, að grip- ir þessir séu úr búi þeirra frægu mæðgina, Sigríðar Hákonardóttur og Odds lögmanns Sigurðssonar, og hafi þeim verið borgið í heila undan eignatöku þeirra manna, sem lögðu Odd í einelti. Auðséð er, að Sigurður hefur mikið yndi af sögugrúski, er at- hugull vel og fundvís, en hefur þó mest gaman af að vefja og tengja saman þræði. Tekst honum þetta oft vel, þótt augljóst sé, að ímynd- unaraflið hljóti stundum að hlaupa með slíjran mann í gönur. Hið versta er ef til vill það, að Sigurði hættir til að mynda sér 17 Síðara bindi Rém- verjasögu Durants Slgurður Ólason. skoðun um ákveðin tengsl fyrir fram og beitir sér síðan fast að því að renna stoðum undir þetta. Við þetta er hann að sjálfsögðu kænn eins og góðum málfærsl- manni ber. En þetta getur venð hættulegt, og menn verða ætíð að gjalda varhug við slíkum tilraun- um, einkum er í hlut á maður, sem er ritfær og glöggur, svo að allt er sem trúlegast á yfirborði. En Sigurður varar menn ein- mitt við þessu í upphafi eins og áður segir. Hann hefur ritað skemmtilega þætti og grafið margt úr gleymsku. Hann vekur áhuga lesandans fyrir sögu og leiðir hann sjálfan til athugunar og hug- leiðinga. Það er líka hættulegt að einblína um of á söguna, eins og fræðimenn hafa ritað hana og telja hana óhagganlega. Bók Sig- urðar béndir mönnum einimitt á hvernig saga skuli lesin — með íhygli og sjálfstæðu mati. -AK. Fyrir skömmu er út komið síð- ara bindi af Rómaveldi eftir Will Durant á vegum Bókaútgáfu Menn- ingarsjóðs í þýðingu Jónasar Kristjánssonar, magisters. Fyrra j bindið kom út í fyrra og hlaut þá i hina beztu dóma og afbragðsvið- tökur. Vakti þýðingin sérstaka at- hygli. Mannkynssaga Will Durant er viðurkennt ágætisverk. Þetta síðara bindi af sögu Rómaveldis er öllu stærra en hið fyrra, enda fylgir því ítarleg nafnaskrá. Fyrsti þáttur þessa bindis fjall- ar um síðari keisaraaldir og fyrsti kafli hans um rómverska list, ann- ar kallast Munaðaröldin, og er um óhófslíf þjóðarinnar á þessutn tíma. Þriðji kaflinn heitir róm- versk lög, og hinn fjórði Heimspek ingar á keisarastóli, hinn fimmti Mannlíf og menntir á ánnarri öld. Annar þáttur bindisins nefnist HeimsrMð, og er fyrsti kafli hans um Ítalíu, annar um Grikkland hið rómverska, þriðji um endur- reisn hellenismans, fjórði um Róm og Gyðingaland. Þriðji hlutinn heitir Árdegi krist indómsins, og er þar rætt í all- mörgum köflum kenningar Krists og sögð baráttusaga hinna fyrstu kristnu manna. Loks lýkur bindinu með hruni keisararíkisins. Margt ágætra mynda er í ritinu, sem er á fimimta hundrað blaðsíður, einnig kort af Rómaveldi. Útgáfan öll er mjög vönduð og stórmyndarleg. Munu margir von- ast til þess, að Menningarsjóður j hætti ekki útgáfu sögu Durants : við svo búið. Mestan hug munu ímenn nú hafa á því að fá á ís- ■ • ■ ■ ' S"'1 -. * *• Messur um jólln Jónas Kristjánsson lenzku þau bindi, sem fjalla um Grikki. I ÆVINTÝRI Framhald af bls. 19. : Arnar Jónsson (Ejbæk stúdent), Pétur Einarsson (Herlöv stúdent) | og Karl Sigurðsson (Pétur i bóndi). Undirleik á píanó annast 1 til skiptis á sýningum Guðrún j Kristinsdóttir og Máni Sigurjóns- I son. Leiktjöld hefur Steinþór Sig- urðsson gert. Leikskrá kemur nú út í afmæl- isbúningi, hún verður sextíu ára á jólum í ár, kom fyrst út á jól- unum 1904, þegar jólaleikritið var John Storm, sem enska sagna- skáldið Hall Caine samdi upp úr samnefndri skáldsögu sinni sér- staklega fyrir Leikfélag Reykja- víkur í þakklætisskyni fyrir góðar viðtökur er hann fékk í íslands- heimsókn þá fyrir nokkru. Kópavogskirkja. Aðfangadagur aftansöngur kl. 11. —Jóladagur messa kl. 2. — 2. jóladagur messa kl. 2. Nýjahælið kl. 3.30 sr. Gunn- ar Árnason. Langholtsprestakall. Aðfanga- dagur aftansöngur kl. 6, sr. Árelí- us Níelsson. — Jóladagur barna- guðþjónusta kl. 10.30, Árelíus Níelsson — Hátíðarmessa kl. 2, sr. Sigurður Haukur Guðjónsson. — 2. jóladagur messa kl. 2 ,sr. Sigurður Haukur Guðjónsson, skímarmessa kl. 3.30, sr. Árelíus Níelsson, 3. jóladag, jólagleði fyr- ir eldra fólk, kl. 2. Bústaðarprestakall. — Að- fangadagur, aftansöngur í Réttar- holtsskóla kl. 6. Jóladagur, guð- þjónusta kl. 2, 2. jóladagur, bama samkoma í Réttarholtsskóla kl. 10.30. Bamasamkoma í Félags- heimili Fáks kl. 11, sr Ólafur Skúlason. Laugameskirkja. — Aðfanga- dagskvöld, aftansöngur kl. 6. Jóla- dagur, messa kl. 2.30 e.h., 2 jóla- dagur, messa kl. 2 eh., sunnudag- ur 3. í jóluim. Bamaguðþjónusta kl. 10.15, sr. Garðar Svavarsson. Grensásprestakall. — Aðfanga- dagur, aftansöngur kl. 6. Jóladag- ur, hátíðamessa kl. 2, séra Felix Ólafsson. Kirkja Óháðasafnaðarins. — Að fangadagur, aftansöngur kl. 6. Jóladagur, hátíðarmessa kl. 3 e.h„ sr. Emil Björnsson. Hafnarfjarðarkirkja. — Að- fangadagur, aftansöngur kl. 6. Jóladagur, messa kl. 2. Þriðjudag- inn 29. des., jólasöngvar kl. 8.30, kirkjukór Hafnarfjarðarkirkju og 'kirkjukór FrMrkjusafnaðarins syngja. Bessastaðakirkja. — Jóladagur, messa kl. 4. Kálfatjarnarkirkja. — Jóladag- ur, messa kl. 11.00. Sólvangur. — 2. jóladag, messa kl. 1.00, sr. Garðar Þorsteinsson. Barnaskóli Garðahrepps. — Að fangadagskvöld, aftansöngur kl. 6, sr. Bragi Friðriksson. Iláteigsprestakall. í hátíðarsal Sjómannaskólans. — Aðfangadag ur, aftansöngur kl. 6, sr. Arngrím- ur Jónsson. Jóladag, messa kl. 2 sr. Jón Þorvarðsson, 2. jóladag messa kl. 11, sr. Arngrímur Jóns son, sunnudaginn 27. des., barna guðþjónusta kl. 11, sr. Jón Þor varðsson. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Að- fangadagur, aftansöngur kl. 6. Jóladag messa kl. 2, 2. jóladagur barnaguðþjónusta kl. 2, sr. Krist- inn Stefánsson. Fríkirkjan í Reykjavík. Að- fangadagur, aftansöngur kl. 6. Jóladagur, messa kl. 2, 2. jóla- dag, bamaguðþj'ónusta kl. 2, sr. Þorsteinn Björnsson. Dómkirkjan. Aðfangadagur aft- ansöngur kl. 6, sr. Óskar J. Þor- láksson Miðnæturmessa kl. 23.30, biskupinn hr. Sigurbjörn Einars- son. Jóladagur, messa kl. 11, sr. Jón Auðuns. Dönsk messa kl. 2, sr. Bjarni Jónsson, messa kl. 5, sr. Óskar J. Þorláksson, 2. jóladag, messa kl. 11, sr. Óskar J. Þorláks- son, 3. jóladag, sunnudagur messa kl. 11, sr. Jón Auðuns. Guðþjónusta í Dómkirkjunni á jólanótt 1964, kl. 23.30, biskup- inn prédikar og þjónar fyrir alt- ari ásamt sr. Óskari J. Þorláks- syni og Ingólfi Ástmarssyni. Guð- fræðinemar syngja undir stjóm dr. Róberts A. Ottóssonar. Jóla sðngvar sr. Hjalti Guðmundsson, við orgelið dr. Páll ísólfsson. Ljós berar, Rúnar Valur Sigurðsson og skátaflokkur hans, organleikur hefst kl.23.10. dr. Páll ísólfsson leikur jólalög þar til guðþjónusta hefst kl. 23.20. Aðventkirkjan. Aðfangadagur, aftansöngur kl. 6. Jóladagur, guð- þjónusta kl. 5., séra Júlíus Guð- mundsson. Reynivallaprestakall. Messað að Reynivölluim á jóladag kl. 2 e. h. messað að Saurbæ, 2. jóladag, kl. 2. sr. Kristján Bjamason. Elliheimilið. Aðfangadagur, aft ansöngur kl. 6. Heimilisprestur- inn. Jóladag, messa kl. 10 ár- degis, sr. Magnús Runólfsson, 2. jóladag, messa kl. 10 árdegis sr. Hjalti Guðmundsson, sunnudagur, 3. jóladag, messa kl. 11 árdegis útvarpsmessa. Heimilispresturinn prédikar, sr Hjalti Guðmundsson annast altarisþjónustu og kirkju- kór Grensássóknar annast söng, undir stjórn Gústafs Jóhannsson- ar. Mosfellsprestakall. Jóladagur, messað að Lágafelli kl. 2., messað að Árbæ kl. 4, 2. jóladag, messað að Brautarholti kl. 2, sr. Bjarni Sigurðsson. Hallgrímskirkja. Aðfangadag- ur, aftansöngur kl. 6, sr. Jakob Jónsson. Jóladagur, messa kl. 11, sr. Sigurjón Þ. Árnason, messa kl. 2, dr. Sigurbjörn Einarsson biskup, 2 jóladag, messa kl 11 sr. Jakob Jónsson, 3. jóladag, messa kl. 11, sr. Sigurjón Þ. Áma- son. Ásprestakall. — Jóladagur há- tíðarmessa í Laugarásbíói kl. 2.30, 2. jóladag bamaguðsþjónusta kl. 11 f. h. (ath. Breyttan messu tíma). sr Grímur Grímsson. Neskirkja. — Aðfangadagur, aft ansöngur kl. 6. Jóladagur, messa kl. 11, 2. jóladag, messa kl. 2, sr. Jón Thorarensen. Neskirkja Aðfangadagur, mið- næturmessa kl. 23.30, sr. Frank M. Halldórson. Jóladagur, messa kl. 2., sr. Frank M. Halldórsson, 2. jóladag, messa kl. 11, sr. Frank M. Halldórsson, sunnudagur, 27. des., barnasamkoma kl. 10, sr. Frank M. Halldórsson. Lúðrasveit drengja, leikur jólalög stjórnandi Páll Pampichler Pálsson. Jóla söngvar kl. 2., lögreglukór Reykja víkur syngur, stjórnandi Páll Kr. Pálsson, sr. Frank M. Halldórsson les jólaguðspjöllin. Víkurprestakall. — Aðfangadag ur, aftansöngur í Víkurkirkju ki. 6. e.h. Jóladagur, messa í Skeið- flatarkirkju kl. 2. e.h. Messa í Víkurkirkju kl 5 eh 2 Jóladag, messa í Reyniskirkju kl 2. e.h. Messa í Sólheimakapellu kl. 4. e.h. Sunnudagur, 27 des. Bamamessur í öllum kirkjum prestakallsins. Víkurkirkju kl. 5 e. h. 2. Jóladag, Reyniskirkju, kl. 2. e.h. Skeið- flatarkirkju kl. 4 e.. h. Sóknarprest urinn

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.