Tíminn - 24.12.1964, Side 18
18
TMMiNN
FIMMTUDAGUR 24 desember 1964
Eyðlmerkurbúarnlr mynda sig til árásar.
Arabíu-Lawrence
Arabíu-Lawrence heitir jóla-
mynd Háskólabíós, heimsþekkt
verðlaunakvikmynd, sem hlotið
hefur hvorki meira né minna en
7 Oscar-verðlaun fyrir utan viður-
kenningu frá 13 öðrum stofnun-
um, sem fást við að dæma kvik-
myndir. Þetta er bandarísk kvik-
mynd, gerð af Columbia-Pictures,
tekin í Technicolor og Super
Pamavision 70. Leikstjóri er Da-
vid Lean. Sýningartími myndar-
innar er þrjár og hálf klukku-,
stund, en margt, sem gerist á
þeim tíma. Leikstjóri og framleið-
andi eru hinir sömu og. gerðu
myndina Brúin yfir Kwaifljótið,
og helztu leikarar eru Alee Guin-
enss, Peter O'Toole, sem leikur
Arabíu Lawrence, Anthony
Quinn og Jack Hawkins. Enginn
kvenmaður kemur fram í mynd-
inni. Arabíu-Lawrence var brezk-
ur liðsforingi, sem í raun og veru
var virkur þátttakandi í uppreisn
Araba gegn Tyrkjum í fyrri heims
styrjöldinni. Hann gerði allt til
þess að sameina Araba og efla
'þá til baráttu, enda lifir nafn
hans í frásögnum styrjaldarinnar,
arfleifð brezka flughersins og þjóð
sögum Araba. Óþarfi er að rekja
efnisþráðinn nánar, en það mun
verða ósvikin skemmtun að heim-
sækja Háskólabíó á jólunum.
Prudence í kvikmyndinni Ævintýri í Róm.
Ævintýri;
í Rdm
Jólakvikmyndin í Laugarásbíói,
Ævintýri í Róm, fjallar um ást-
ina. Ástin er færð í léttan og
gamansaman búning og aðalhlut-
verkin leika, Troy Donahue, An-
gie Dickinson, Rossano Brazzi og
Suzanne Pleshette. Kvikmyndin,
sem er bandarísk, er tekin á
Ítalíu, gerð af Wamer Bros kvik-
myndafélaginu. Aðalsöguhetjan,
Prudence Bell vill gjaraan kynn-
ast ástinni nánar, og því segir
hún upp starfi sínu sem aðstoð-
arbókavörður við stúlknaskóla í
USA og fer til Ítalíu, þar sem
allir vita allt um ástina, eða svo
heldur hún. Á leiðinni til Ítalíu
kynnist hún glæsilegum ítölskum
heimsmanni, sem síðar reynist
henni góður vinur. Hin raunveru-
lega ást bíður hennar í Róm, þar
sem hún kynnist ungum Banda-
ríkjamanni, Don Porter, sem er
að nema byggingarlist. Hann hef-
ur verið liálftrúlofaður fallegri og
léttlyndri leikkonu, en nú tekur
Prudence sæti hennar. Nú ger-
SKAUTA-
DROTTNINGIN
í Austurbæjarbíói er þýzk kvik-
mynd á boðstólnum, Skauta-
drottningin, tekin í litum og Cine
mascope. Með aðalhlutverk mynd
arinar fara þau Ina Bauer, meist-
ari í skautahlupi og hinn heims-
frægi ' skíðmaður, Toni Sailer,
margfaldur Olympiumeistari. Enn
fremur kemur Vínar-ísballettflokk
urinn fram í myndinni. Inga, sem
leikin er af Inu Bauer, dansar
í skautahöll frænda síns, en í raun
og veru langar hana til að leggja
fyrir sig leiklist. Hún sækir tíma
í leiklist og söng í laumi, en í
skautahöllinni kynnist hún Hall-
er, leikinn af Toni Sailer, sem
stendur framarlega í ísknattleik.
Haller vinnur jafnframt við stórt
leikhús og lofar að útvega Inu
stöðu þar. Fyrir misskilning er
hún ráðin þangað og sá misskiln-
ingur á eftir að hafa miklar af-
leiðngar fyrir allar persónur mynd
arinnar. Állt fer þó vel og áhorf-
endur fá að sjá fallega skauta-
Skautadrottningin, Ina Bauer, ásamt
Toni Sailer.
dansa og einnig snilli skíðaakpp-
ans Sailer.
Hayley Mills og Maurice Chevalier í Börn Grants skipstjóra.
Börn Grants skipstjóra
Gamla bíó sýnir jólamyndina,
Börn Grants skipstjóra, og aðal-
hlutverkin leika þau Maurice
Chevalier og Hayley Mills, svo
ekki eru leikendurnir af lakara
taginu. Kvikmyndin börn Grants
ist margt óvænt og á endanum
flýr Prudence heim til Banda-
ríkjanna, en þar bíður Don henn-
ar á hafnarbakkanum.
Laugarásbíó sýnir einnig jóla-
mynd fyrir börn og hún heitir
Lad, bezti vinurinn. Þetta
er skemmtileg mynd, sem fjallar
um litla stúlku og hund. Myndin
er mjög viðburðarrík og sýnir vel,
hve hundseðlið er tryggt. Aðal-
hlutverk leika Péter Breck,
Peggy McCay og Angela Cart-
wright. Myndin er gerð af Warn-
er Bros og er í litum.
skipstjóra er gerð af Walt Disney
eftir skáldsögu Jules Veme, In
search og the Castaways. Var
þetta einhver vinsælasta kvik-
mynd síðasta árs í Bandaríkjun-
um og þótti Walt Disney takast
vel sem endranær. Chevalier fer
með hlutverk prófessors Paganel,
franska prófessorsins, sem ætíð
virðist skemmta nér, hvað sem á
gengur. Hayley Mills, er hin unga,
enska stúlka, sem leitar um all-
an heiminn að hinum týnda skip-
stjóra, föður sínum. Aðrir leik-
endur eru: George Sanders, sem
leikur grimman sjóræningjahöfð-
ingja, Wilfrid White, sem leik-
ur brezkan ævintýramann, auk
fjölda annarra, sem og langt yrði
upp að telja. Eflaust munu all-
ir geta skemmt sér í Gamla bíói
yfir jólin