Tíminn - 12.03.1965, Síða 3
FÖSTUDAGUR 12. man 1965
TÍMLNN
3
í SPEGLITIMANS
Rúllan á myndinni hér að of-
an var notuð til þess að flytja
flóttamenn frá Austur-Berlín til
Vestur-Berlínar. Það var 27 ára
gamall maður, Dieter, í Vestur-
Belín, sem fékk hugmyndina,
og ætlaði hann að koma kærust
unni sinni á þennan hátt yfir
borgarmörkin. Hann fékk því
þessa rúllu með háspcnnuþræði
á — í rauninni stal hann henni
hjá rafmagnsveitu borgarinnar.
Síða bjuggu þeir til lítið „her-
bergi“ inni í rúllunni þó það
stórt ,að fjórir menn gátu kom-
izt þar fyrir. Tók þetta verk um
60 klúkkustundir .
Einn félaga hans vann hjá
vöruflutingafyrirtæki, og ók
meðal annars oft á milli borgar-
hlutanna. Hann kom rúllunni
inn í A-Berlín, þar sem flótta-
mennirnir, meðal þeirra unn-
usta Dieter, földu sig inpi í
henni. Hann útvegaði sér síð-
an nauðsynleg skjöl, og ók rúll
unni aftur til V-Berlínar, án
þess nokkrun grunaði neitt.
En fyrir Dieter varð öll hans
mikla vinna til lítils .Þegar unn-
usta hans, Vera, kom til V-Ber-
línar, kom í ljós, að hún átti
von á barni með einum vini
sínum fyrir austan. Og þremur
dögum síðar fór hún af frjáls-
um vilja til baka.
★
Hin fræga klukka Monte
Cassino-klaustursins er komin
til skila. Hún hvarf sporlaust í
síðari heimsstyrjöld, en fannst
nú nýlega í franska bænum
Strassbourg, og var hún afhent
ítölskum yfirvöldum. Klukka
þessi, sem er úr bronzi, var
steypt árið 1630. Monte Cassino-
klaustrið var jafnað við jörðu
í stríðinu ,en hefur nú verið
byggt upp að nýju.
★
Kenning Darwins um aðlög-
unarhæfni dýranna hefur feng-
ið rækilega staðfestingu í
Moskvu. f dýragarðinum þar
dvelja nokkrir apar frá Afríku
sem að sjálfsögðu eru mjög ó-
vanir þeim miklu kuldum, sem
þar eru að vetrarlagi. En nú
hefur hár apanna vaxið mjög,
og hafa þeir þannig fengið
góða vörn gegn kuldanum. Aft-
ur á móti áttu vísindamennimir
í miklum erfiðleikum með hala
apanna, því að ísinn festist allt
af á þá. En þeir dóu ekki ráða
lausir, heldur skáru halana af.
Mun það nokkur nýjung að sjá
halalausa apa í dýragarði,
#
Hvað gerist f heila manns-
ins, þegar hann skiptir skyndi-
lega um skap? Nils-Áke Hillarp
prófessor við Karólinsku stofn
unina í Stokkhólmi, segir að
bráðlega verði hægt að sjá í
smásjá, hvað gerist í heila-
frumum mannsins ,þegar hann
skiptir um skap. Verði því bráð
lega hægt að rannsaka sál-
ræna sjúkdóma í smásjánni, og
jafnvel venjulega geðvonzku!
Próf. Hillarp er yfirmaður sér-
stakrar rannsóknadeildar, sem
vinnur að slíkum rannsóknum.
★
Johnny Hallyday, vinsælasta
stjarnan í Frakklandi um þess-
ar mundir, gegnir nú herskyldu
þar í landi. Og þegar hann
hefur lokið henni, fær hann
enn á ný nóg að gera. Meðal
þeirra tilboða, sem hann hefur
fengið ,er að leika James Dean
í kvikmynd, sem Bandaríkja-
menn ætla að gera um líf
þessa dáða kvikmyndaleikara,
sem enn þann dag í dag, 10 ár-
um eftir dauða sinn, er tilbeð-
inn af þúsundum kvenna víða
um heirn.
★
Brezki kvikmyndaleikstjórinn
Anthony Mann hefur í huga að
gera kvikmynd um lestarránið
mikla í Bretlandi 1963, en þar
tókst ránsmönnum að stela um
300 milljónum íslenzkra króna
og hefur einungis lítill hluti
peninganna fundizt, þótt 12
menn hafi verið dæmdir fyrir
ránið .
Mann er nýkominn til Lond
on frá Noregi, en þar vann
hann að kvikmyndini „The Her-
oes of Telemark”, sem fjallar
um skemmdarverk, sem unnið
var á Rjukan í síðari heimsstyrj
öld.
Mann mun að öllum líkind-
um byggja kvikmyndina á bók-
inni „The Robbers’ Tales” eftir
blaðamanninn Peta Fordham,
sem fullyrðir, að bók hennar sé
byggð á upplýsingum, sem hún
hafi fengið hjá glæpamönnun-
um sjálfum.
♦
Þá hefur Spánn fengið sína
Sophíu Loren, en hún er að
vísu ungbarn ennþá. Loren-fjöl-
skyldan í litlum bæ rétt hjá
Zaragossa ákvað að hin ný-
fædda dóttir skyldi heita
Sophia til heiðurs hinni ítölsku
kvikmyndastjörnu. Hér á mynd
inni sést Sophia litla í örmum
systur sinnar, Maríu,en faðir-
inn stendur við hlið hennar.
★
Mafían — sterkasta glæpa-
hreyfing Bandaríkjanna —
leitar nú að nýjum leiðtogum
í New York »g Chicago. Leið-
togi Cosa Nostra-deildarinnar í
New York, Vito Genevese, var
dæmdur í 15 ára fangelsi 1960,
og í síðustu viku var beiðni
hans um náðun vísað frá. Hann
verður því að sitja í fangelsi
þessi 15 ár. Og leiðtogasætið er
því laust.
Svipað ástand er innan Cosa
Nostra-deildarinnar i Chicago
en toppmaðurinn þar, Salva-
tore Gianca hefur verið svo
mjög umræddur í blöðum
vestra að undanförnu, að hann
hefur engan vinnufrið. Gianca
mun því taka sér frí. Og bæði
í Chicago og New York er nú
barizt um toppsætin í glæpa-
hreyfingunni.
Mafían er sterkasta glæpa-
hreyfingin í Bandaríkjunum.
Innan hennar eru fjölmargar
svonefndar Cosa Nostra-fjöl-
skyldur, — en virkir „félags-
menn” eru um 2000 í New York
Þar í borg selur Mafian eitur-
lyf til 30—40 eiturlyfjasjúk-
linga, og þessir eiturlyfjaneyt-
endur stela áriega verðmætum
fyrir um 21 milljarð ísl. kr.
árlega til þess að geta keypt
eiturlyfin. f Chicago hefur
Cosa Nostra-deildin árstekjur,
sem nema rúmlega 90 milljörð
um ísl. króna.
•
Jacqucs Demy fékk hin eft-
irsóttu „Prix Louis Delluc” ár
ið 1964 fyrir kvikmyndina
„Stúlkai með regnhlífarnar”
I ár er það kvikmyndin „Le
Bonheur”, sem hlaut þennan
mikla heiður ,og Demy er síður
en svo óánægður með það .Það
er nefnilega konan hans, Agnes
Varda, sem gerði þá kvikmynd.
★ ★
15 drengir og stúlkur frá Svíþjóð fórust nýlega i Austurríki, þegar snjóflóð féll á langferðabifreið,
sem þau voru í. Myndin hér að ofan var tekin í Bromma, en þangað voru lík unglinganna flutt frá
4usturríki.
TIL SÖLU
2ja og 3ja herb. íbúðir viðs-
vegar í oorginni.
4ra herb. íbúð í góðum kjallara
við Hrísateig. íbúðin er rúml
100 fm. íbúðin er ný stand
sett og laus til íbúðar
4ra herb. íbuðir við Langholts
veg, Ljósheima, Kleppsveg
Silfurteig, Sörlaskjól, Kirkju
teig.
6 herb. íbúðir við Rauðalæk og
Bugðulæk Bílskúr og bíl
skúrsréttur.
Tveggja íbúða hús við Njáls-
götu.
Einbýlishús við Laugaveg.
4ra herb. íbúð, fokheld, á jarð
hæð, við Þmghólsbraut,
Kópavogi.
Hæð í tvíbýlishúsi, 126 fm, við
Hraunbraut. Kópavogi, Bíl-
skúr, þvottahús, herb. og
geymslur á jarðhæð. Ein-
angrunarefni og efni í milli-
veggi fylgir.
2 hæðLr, fokheldar við Þing-
hólsbraut. Hvor hæð 135 fm.
Bílskúrsréttur.
2 hæðir, önnur fokheld, hin
lengra komin, við Nýbýla-
veg. 5 hetb. íb., sér þvotta-
hús og auka snyrtih.b. á for-
stofum. Bílskúrar á jarðhæð.
1000 fm. lóð.
rvíbýlishús, 140 fm, fokhelt,
við Nýbýlaveg. Sér þvotta-
hús. Bílskúrar, geymslur og
4 herb. á jarðhæð.
Einbýlishús, um 165 fm. grunn-
fl. tilbúin undir tréverk, við
Hjallabrekku og Holtagerði
í Kópavogi. A hæðum 3
svefnherb., bað stofur og
eldhús. í kjallara 2 herb.
þvottahús, geymslur og kynd
ing. Bílskúrsréttur.
Einbýlishús, fokheld, um 200
fm og 38 fm bílskúr og
geymslur, við Hlégerði. Allt
á einni hæð. Mjög vönduð
bygging.
Einbýlishús, fokhelt, við Holta
gerði, Kóp. stærð 188 fm.
Einbýlishús, verður fokhelt í
vor, 155 fm. við Mánabraut,
Kóp. Bílskúr um 30 fm. Allt
á einni hæð.
E'inbýlishús við Fögrubrekku-
Kóp. tilbúið undir tréverk.
Á hæðintii 5 herb. íbúð. Á
jarðhæð, 75 fm, er bílskúr,
þvottaherb geymslur og
kynding.
Einbýlishús við Digranesveg,
Kóp. Á hæðinni 2 stofur, eld
hús, baðherb.. og þvottahús.
í risi 5 herb.
Einbýlishús við Víghólastíg
Kópav. rúml. 108 fm. hæð,
4 herb, eldhús og baðherb.
f kjallara herbergi, geymslur
og kynding. 70 ferm. bílskúr.
Stór og velhirt lóð.
Keðjuhús, folcheld, 5 herb. í-
bú% og Dílskúr og herb. á
jarðhæð. Hitaveita.
Byrjunarframkvæmdir fyrir
keðjuhúsi Sigvaldahverfi,
Kópavogi. Mótatimbur og
gluggar í húsið geta fylgt.
Fasteignasalan
HÚS & EIGNIR
Bankastræti 6
Símar 16637 og 40863
1