Tíminn - 19.03.1965, Side 14
14
TÍMINN
FOSTUDAGUR 19. marz 1965
AUKIÐ UMFERÐAR-
EFTIRLIT
Framhald af 2. síðu.
aðeins \ í des., af 56 ökumannaslys
um aðeins 2 í des, af 107 farþegum
aðeins 7 og af 9 dauðaslysum
varð ekkert í desember.
Af þessu ættu menn að læra
og byggja á þessari miikilvægu
reynslu, og það sem hægt væri
að gera í einum mánuði ársins við
erfiðustu aðstæðurnar, ætti að
mega gera líka hina 11 máríuði
ársins.
Kristján Benediktsson ræddi
málið einnig ítarlega og nefndi
ýmis dæmi og tölur þessu máli
til rökstuðnings. Út af viðbárum
þeim, sem fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins hefðu haft um mikinn
ko^tnað, kvaðst hanh vilja taka
fram, að borgarfulltrúar Framsóikn
arflokksins treystu borgarstjóran-
um vel til þess að hafa eftirlit
með því, svo sem auðið væri, að
ekki væri eytt í þetta meira fé
en þyrfti, og leggðu það í vald
borgarstjóra sjálfs að gæta var-
úðar að því er snertir fjárhags-
hlið málsins. En þar sem fyrir ligg
ur mjög athyglisverður árangur af (
auknu umferðareftirliti, ætti að
byggja á þeirri reynslu og auka
þetta eftirlit.
Nokkrar umræður urðu um mál-
ið, og verða þær og framsögu-
ræður flutningsmanna, sem margt
mjög athyglisvert kom fram í rakt
ar síðar hér í blaðinu.
Meirihlutinn vísaði þessari
merku tillögu síðan frá, eins og
fyrr segir.
SONUR FRÆGS MANNS
Framhald af 2. síðu
Búdapest, fór þaðan til London
og hélt tónleika þar, kom svo
hingað, hélt fyrri tónleikana í
gærkvöldi, hlusta á Jörg Demus
og Sinfóníuhljómsveit íslands í
kvöld, held seinni tónleikana ann-
að kvöld og flýg heim til New
York strax á eftir.
— Hvernig líkar yður að leika
fyrir íslenzka áheyrendur?
— .Alveg prýðilega, mig langar
mikið til að koma hingað aftur,
segir ungi snillingurinn og er mik-
ið niðri fyrir.
— Hafið þér leikið inn á hljóm-
plötur?
— Já, þó nokkrar, en aðeins
ein er komin út, þar lék ég með
Alexander Schneider fiðluleikara,
sónötur eftir Schubert, platan er
nýkomin út hjá Vanguard Records.
Nei, ég veit ekki númerið á henni,
hún er ekki komin í safnið mitt,
þó að ég eigi orðið fjögur þúsund
plötur, því að ég hef enn meiri
löngun til að safna plötum eftir
aðra en sjálfan mig.
MAÐURINN í GEIMNUM
Framhald af 1. síðu
sem þeir neyttu af hinni beztu
lyst.
Leiðtogar Kommúnistaflokks
Sovétríkjanna og ríkisstjórn
Sovétríkjanna voru saman í
Kreml, þegar geimfaramir
fóru yfir Sovétríkin, og fengu
þeir beint loftskeytasamband
við þá. Þeir sendu ríkisstjórn
inni og miðstjórn flokksins
eftirfarandi skeyti: — „Áhöfn
in hefur það gott. Tæki geim
farsins starfa eðlilega. Geim
ferðin fer nákvæmlega sam-
kvæmt áætlun. Hin velheppn
aða geimferð heldur áfram“.
Leonid Bresjnev, aðalritari
sendi geimförunum heillaóskir
fyrir hönd allra æðstu manna
Sovétríkjanna og flokksins.
Sagði hann, að þjóðin og leið
togar hennar hefðu fylgzt með
geimferð þeirra í sjónvarpinu
og orðið mjög hrifnir af. Ósk
aði Bresjnev þeim áframhald-
andi góðrar ferðar og vel-
heppnaðar lendingar, Þá
fengu þeir skeyti, þar sem
sagt var að heimurinn vissi, að
hinir mestu vísindatilraunir á
sviði geimvísinda væru gerðar
af Sovétríkjunum. — „En það,
sem þið hafið gert, er stórkost
legra en svo, að hægt sé að
ímynda sér það“. Var sagt að
afrek þetta þjónaði málstað
friðar og framfara mannkyns-
ins. Geimfararnir svöruðu: —
„Við þökkum af heilum hug
heillaóskirnar og þá umhyggju
sem okkur er sýnd. Það mikils
verða verkefni, sem ættjörðin
hefur falið okkur, verður fram
kvæmt út í æsar. Við þökk
um Sovétþjóðinni fyrir heilla-
óskirnar".
Nokkru síðar sendi sjónvarp
ið í Moskvu sendingu beint frá
geimfarinu og sýndi Lenov þá
áhorfendum loggbók geim-
farsins. Þá sást einnig sólar-
ljósið, sem sikein inn um„kýr
augu“ Voskhods. Meðan á send
ingunni stóð, ræddu báðir
geimfararnir við Raoul Castro,
varnarmálaráðherra Kúbu, en
hann dvelur nú í Moskvu.
Castro spurði, hvort þeir gætu
séð Kúpu, og geimfararnir svör
uðu því til, að þeir hefðu séð
allar heimsálfurnar og að þeir
sendu hlýjar kveðjur til kúb-
önsku þjóðarinnar.
För Voskhods 2 út í geiminn
var haldið leynilegri, en síð
ustu tvær vikurnar hefur orð
rómur verið á kreiki um slíka
geimför. Opinber tilkynning
var gefin út 48 mínútum eftir
geimskotið, en líklegt er talið,
að geimfarinu hafi verið s'kot
ið upp frá tilraunastöðunni í
Baiikonuc í Kazkahstan. Hring
ferðin umhverfis jörðu tekur
99 mínútur.
Fram að þessari geimför hafa
sovézkir geimfarar lagt að
baki sér um 11 miljónir kíló-
metra í geimnum. Þeir hafa
farið samtals 275 sinnum um
hverfis jörðu og verið í geimn
um í 17 daga.
ftalskt blað fullyrti um helg
ina, að 14 sovézkir geimfarar
hafi farizt í geimferðum frá
því árið 1960. Einn þeirra,
Belokonev að nafni, á að hafa
látið lífið, þegar hann var að
fara út úr geimfarinu til þess
að ná í agnir, sem svifu við
hlið skipsins.
Báðir geimfararnir eru
kvæntir. Pavel Beljajev fædd
ist 1925 rétt utan við Moskvu
og hefur hann verið flugmað
ur í 20 ár. Hann gerðist sjálf
boðaliði í rússneska hernum
18 ára gámall, gekk í flugskóla
í síðari heimsstyrjöldinni og
tók próf 1945. Hann var sæmd
ur orðu Rauðu stjörnunnar og
sjö öðrum heiðursmerkjum.
Kona hans heitir Tatjana og
eiga þau tvær dætur. Irinu,
sem er 15 ára, og'Ludmilu sem
er 10 ára.
Aleksei Leonov fæddist í
Síberíu og er 30 ára gamall,
Hann útskrifaðist úr flugskóla
í Úkraníu 1953 Hann hefur
verið sæmdur orðu Rauðu
stjörnunnar og tveim heiðurs
merkjum öðrum. Hann er aðal
ritari í flokksféiagi geimfar-
anna rússnesku og ?uk þess
mjög duglegur teiknan, og
hafa margar teikningar hans
birzt í blaði geimfaranna,
Neptun. Kona hans heitir
Svjetwana og eiga þau þriggja
ára dóttur, Viktoríu.
! KVIKMYND
Framhald af 8. síðu
ilar hafa harðlega mótmælt
þessum fullyrðingum um mynd i
Zetterlings.
Og þótt myndin hafi enn ekki
sézt hérlendis fer etoki hjá því j
að menn hallist að því að álíta
talsvert mikið í hana spunnið,
þar eð Svíar hafa nú ákveðið
að senda myndina til Cannes,
sem fulltrúa sænskrar kvik-l
myndalistar, en sænskar kvik-'
myndir hafa löngum vakið
mikla athygli þar sem víðar. j
Vonandi líða ekki mörg ár þar
til við fáum að dæma fyrir
okkur.
Þess má að iokum geta að
auðvitað hefur Mai Zetterling
nú hafið töku nýrrar kvik-
myndar enda verður vart erfitt
fyrir hanan að fá til þess
nauðsynlega fyrirgreiðslu, eft
ir að svona vel gekk með henn
ar fyrstu stóru mynd.
í öllu, sem lýtur að geimrann-
sóknum, þótt aðeins áhugamaður
væri, að fáir hériendis stæðu hon-
um á sporði. Einnig er það kostur
við Hjáimar, að hann er búsett-
ur utan við borgina, þar sem skil-
yrði til hlustunar eru svo margfalt
betri en hér innanbæjar, því að
t.d. of mikil birta frá rafmagns-
Ijósum getur haft truflun á þetta
hárnákvæma tæki.
ÞYRLUFLUG
Framhald af 16. síðu
arhjólum, en ekki gæti verið um
það að ræða að gera þarna flug-
braut, sem trygg væri fyrir þær
flugvélar aðrar, sem notaðar eru
í innanlandsflugið að athafna sig
á.
KOSNINGAR
FrairO »lo 'i 9. síðu
fylgi á meðal hinna mörgu
þjóðflokka landsins.
Flokkur Tshombes hefur
reynt mikið til þess að jafna
þjóðflokkaágreininginn í land
inu, með því að fá samvinnu
við viðkomandi aðila. í flokkn
um hans eru nú sameinaðir
undir eitt merkí 49 eldri flotok
ar og samtök. Þrátt fyrir það
eru einig starfandi í land-
inu 179 aðrir flokkar.
Ekki er hægt að búast við
að þessar kosningar í Kongó
komi til með að stöðva völd
,,Mumbo-Jumbo“ galdraguðsins
í frumskógum Kongó, og ann
arra galdraguða yfir lífi hins
frumstæða fólks., sem byggir
landið. Samt má líta á þessar
kosningar, sem fyrsta skrefið
til að breyta frumstæðu villi-
mannaþjóðfélagi í nútímaþjóð-
j félag.
(Unnið með einkaleyfi úr
Editorial Research Reports).
1 HLUSTUNARSTÖÐ
j Framhald af 16. síðu
j hafa þeir áhuga á að hlustunar-
stöðvum af þessu tagi sé komið
upp sem víðast, og ekki sízt hér á
íslandi, því að á þessu svæði Norð-
i ur-Atlantshafsins eru möguleikar
' til að hlusta á geimför á þeirn
hluta hringbrautarinnar.sem ómiss
i andi er til að teugja saman hlust-
unarkerfið. Sannast hér sem oftar,
að ísland er f'eikilega þýðingar-
mikið land í margs konar vísinda-
legu tilliti. Þessi eðlisfræðingur,
Ken Fea, hefur eftirlit með hlust-
unarstöðvum orezka vísindafélags-
ins, heima og erlendis. Fundurn
okkar bar fyrsi saman í Stjarn-
rannsóknastöðirini i London. þar
sem við störtuðum samtímis.
Þegar hann svo tók við pessu
starfi hjá Vísindafélaginu, en ég
hjá Eðlisfræðistofnun háskólans,
ifærði hann í ta) við mig, hvort
ekki væru tök a að fá einhvern
aðila hér til a?i annast þetta hlust-
unartæki. Satt að segja er Eðlis-
fræðistofnun nnskólans enri svo
þröngui stakkui skorinn og fá-
mennt starfslið að við getum fá-
um verkefnum okkur bæti. bein-
ast lægi við. að Ríkisútvarpið eða
Landssíminn annaðist verl: af
þessu tagi. En oað var úr, að Eðl-
isfræðistofnunin tæki þetta að sér.
Þessi ungi stúdent, Hjálmar
Sveinsson. hei'ui umsjón með
tækinu Við vorum heppnir að fá
hann til þessa verks. Hann starf-
aði hjá Almannavörnum. og dr.
Agúst valfells 'akti athygh mína
á þvi, að hann væn svo vei neima
NYTT LEIKRIT
Framhald at bls. 16.
með góðri samvizku, hvað jersón
um viðvíkur. Hins vegar er senni
legt að aldrei sé hægt að semja
leikrit án þess að hægt sé að
finna einhverjar hliðstæður at-
burða.
— Hvenær fæddist annars hug-
myndin að leikritinu?
— Ætli það hafi ekki verið vor
ið 1961 sem ég byrjaði að skrifa
það. Persónurnar sá ég orðið fyrir
mér svona einu til tveimur árum
áður, en þá voru þær ekkert farn
ar að opna munninn. Frumsýning
in var svo haustið 1962, og lcikrit
ið var að mótast lengst af til
þess tíma. Eg samdi og endur-
samdi í samráði við leikstjórann,
Gísla Halldórsson, og aðra sem
þátt tóku í undirbúningi sýning
anna og ég á þeim mikið að
þatoka. Þetta leikrit var ekki
„skrifborðsvinna" ef við getum
orðað það svo, heldur að miklu
leyti unnið í leikhúsinu sjálfu
eins og ég hefi oft áður sagt.
Ertu ekki orðin vellríkur á
þessu?
— Ekki vil ég nú segja það, en
annars hefi ég haft ágætt út úr
þessu, eftir því sem gerist með
hugverk á íslandi, og ég hefi get
að grynnt á húsbyggingarskuldun
um. En ég geri ekki ráð fyrir að
múrarar- telji að mikið og þeir
hefðu ábyggilega etoki litið við
þessu.
— Hvernig gengur með nýja
lei'kritið?
— Það er of snemmt að segja
noktouð um það enn þá. Eg er
svona að velta þessu fyrir mér.
— Er ekki óhætt að segja að
frumdrögin séu langt toomin?
Ef þú endilega vilt þá er
kannski hægt að orða það svo.
— Og ætlarðu að vinna það
eins og Hart í bak, ljúka því í
leikhúsinu sjálfu?
— Um það er líka of snemmt
að fullyrða neitt, en ég er mjög
ánægður með að hafa fengið tæki
færi til þess með Hart í bak og
ég hefði svo sannarlega ekki á
móti því að hafa sama háttinn á
aftur, ef viss skdyrði verða fyrir
hendi.
Noikkuð að lokum?
— Ekki nema þakklæli til allra
þeirra, sem hafa lagt hönd á
plóginn til þess að sýningarnar
á Hart í bak urðu 200.
SELIR OG MINKAR
Framhald af 16. síðu
um, sem væntanlega verður
opnaður í Landsspítalanum nú
í vor. Meðal skemmtiatriða að
þessu sinni verður skinnavöru-
sýning frá Birger Christensen
í Kaupmannahöfn , og mun
verða komið hingað með 40
stykki til sýningarinnar, bæði káp-
ur, slár, jakka og ýmsan sport-
fatnað, allt úr skinni.
Mikið verður um fatnað úr
minkaskinni, sem er nú mjög í
tízku um allan heim, en auk þess
má nefna islenzku selskinnin, sem
þykja einhver þau beztu til fatn-
aðarframleiðslu. Þá eru bæði káp-
ur og jakkar úr lambsskinnum og
hálfskinnum, og meira að segja
úr hrosshúðum, svo ekki sé nú
minnzt á fínni tegundir, sem nóg
verður af líka.
Hátíðin í Súlnasalnum hefst
klukkan 19 á fimmtudaginn kem-
ur, 25. marz, og hefst hún með
borðhaldi, en auk tízkusýningar-
innar verður sýndur jazzballett,
og gerir það Kamilla Hallgríms-
son, og einnig munu tvær Hrings-
konur leika fjórhent á píanó.
Miðar á Hringshátíðina verða
seldir í anddyri Súlnasals Hótel
Sögu á laugardaginn milli klukk-
an 2—3 og á mánudaginn klukkan
3 til 5. Verða borð tekin frá um
leið.
Á fundi með blaðamönnum í
dag sögðu Hringskonur, að nú
væri komiö að lokaátakinu í
Barnaspítalasöfnuninni, því deild-
in yrði væntanlega opnuð um mán
aðamótin apríl/maí. Nú væn verið
að kaupa rúm og rúmfatnað og út-
búa allt til þess að hægt verði að .
opna deildina á næstunni.
BLADBURÐARBÖRN
óskast til að bera út víðs vegar um bæinn.
Bankastræti 7, sími 12323
Hjartanlegar þakkir til allra er auðsýndu okkur samúð viS and-
lát og iarðarför mnnsins mfns og föður okkr
Kristjáns Pálssonar,
trésmíðameistara.
Helga Sæmundsdóttir, börn og
vandamenn.
A Hjartanlegar þakkir til allra, er sýndu okkur samúð við fráfall og
jarðarför,
Friðriks Kristjánssonar,
Hrafnabjörgum
Eiginkona, börn, tengdabörn og
barnabörn.