Alþýðublaðið - 03.07.1957, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 03.07.1957, Qupperneq 7
Miðvikudagur 3. júlí 1957 AgþýfSu bfagl® F'LUGVÉLAR hefjast á loft, lenda, hefjast aftur á loft, fljúga í ákveðna hringi, fara í beygjuri, lenda örstutta stund, meðan skipt er um flugmenn og á loft aftur. Við flugskýli Þyts á Reykjavíkurflugvelli standa nokkrir kennarar og nemendur flugskólans og fylgj- ast með flugferðunum, gagn- rýna og gera athugasemdir á fagmáli, sem en oss leikmönn- um lítt skiljanlegt. Meðal nemenda skólans kenn ir margra grasa, þeir eru alls staðar að af landinu, nokkrar stúlkur hafa lokið prófi þaðan og allmargiri útlendingar. FlugVfel lendir og ekur að flugskýlinu, í framsætinu er einn af kennurum skólans, og út úr aftursætinu, en þaðan stjórna nemendur á æfinga- flugi, stígur stúlka. Við nánari eftii grennslan kemur í ljós, að stúlkan er hollenzk og heitir Nella Baris, hún hefur dvalizt á íslandi í nokkra mánuði og hefur aldrei flogið fyrr, en datt í hug að læra að fljúga áður en hún heldur heimleiðis og er nú að æfa undir sólópróf. Elds- neyti er sett á vélina og annar . nemandi setzt upp í. Hilmar Daníelsson hefur lokið sóló- prófi og flýgur því einn, en kennarar fylgjast með fluginu frá jörðu. Hann hefur 70 flug- tíma að baki og er nú að búa sig undir að taka A-próf, en það veitir honum rétt til einka- flugs, það er að segja, hann hef ur svipuð réttindi og minna- prófs bílstjóri, má fljúga með farþega án endurgjlalds. Við tökum Hilmar tali, þar sem hann er að búa sig undir flug- tak, hann. hefur spennt á sig öryggisbeltið, lítur yfir mæla- borðið og reynir stýrisbúnað flugvélarinnar, allt verður að 'vera í fullkomnu lagi. Hann er nú að fara í marklendingar, áttaflug og ýmsari æfingar, sem þarf að sýna á prófi. Hilmar hefur hug á að halda áfram flugnámi og gerast atvinnuflug maður, þykir námið nokkuð dýrt, en.það vegur ekkert upp á móti ánægjunni af fluginu. „Þegar maðun er byrjaður er ekki svo auðvelt að hætta.“ Hílmar ekur flugvélinni út á flugbrautina, og bíður eftir merki frá flugturninum um að hann megi hefja sig til flugs, en flugumferðarstjórnin fylgist með öllum flugvélum, stórum sem smáum, og má enginn hefja sig til flugs eða lenda nema með hennar lefi. Flug- vélar Þyts hafa ekkert loft- skeytasamband, en flugskólinn hefur beint samband við flug- turninn, og tilkynnir í hvert sinn er flugvél býr sig til flugs. Flugturninn gefur flugmann- ínum til kynna með ljósmerkj- um, hvenæn hann megi hefja flugtak, eins er farið að þegar vélarnar eru á lofti, að flug- turninni héfur sambandi við þær með ljósmerkjum og til- kynnir í hvaða hæð skuli flog- íð og hvenær þær. mega lenda. Nú gefur flugturninn merki um að Hilmar megi fljúga, stöðugt grænt ljós, hann herð- ir á hreyflinum, flugvélin brun ar eftir brautinni og hefst á loft. Önnur vél ekur að flug- skýlinu, nemandi stígur út, annar setzt upp í, og innan skamms sést flugvélin sem ör- lítill depill yfir Álftanesinu. Þannig líður dagurinn hjá flugskólanum, allar vélar eru uipppantaðar frá því snemma á morgnana þar til seint á kvöld- In. Flugskólinn Þytur var stofn- aður árið 1949. Hefur Karl Ei- ríksson verið framkvæmda- stjóri hans frá byrjun* og h«fur Hilmar Daníelsson býr sig undir æfingaflug, verið er að snúa hreyflinum í gang. þegar útskrifað hátt á annað hundrað nemendur. Við skóiann starfa 5 fastir kennarar og notaðan eru 6 flug- vélar við kennsluna: 4 Piper Cup vélar, sem hafðar eru til byrjendakennslu, Ercube og Cessna 172, sem er fyrsta vélin, sem skólinn keypti nýja úr veiksmiðju, fyrir þá, sem lengra eru komnir. Strangt eftirlit er með við- haldi flugvélanna, eru þær yfir farnar á 25 flugtíma fresti, hneyflarnir teknir upp og allur sem farið er eftir landslagi., og notkun hjálpartækja við flug í sjónflugsskilyrðum, flugeðlis- fræði og helztu grundvallaiv reglur um meðferð og daglegt eftirlit flugvéla og undirstöðu- atriði í vélfræði. Einnig læra einkaflugmenn blindflug og taka próf í því. Margii. atvinnuflugmenn hér hafa lært hjá Þyt, og er svo komið, að allir eða flestallir verðandi flugmenn hér ljúka prófum þaðan. Skilyrði fyrir því, að nem- í blindflugi og 10 tíma nætur- | flug. Bóklegt nám til atvinnuflug- | prófs er 660 tímar. Kenndar eru almennar loftferðareglur, sér- staklega reglur um flugumferð og flugumferðarstjórn, veður- fræði, loftsiglingafræði, flug- eðlisfiæði og vélfræði. Réttindi frá flugskólanum Þyt eru takmörkuð við þær flugvélastærðir, sem nemendurl hafa lært á, en þeir læra síðan hjá flugfélögunum og áfram- haldandi réttindi koma með aukinni neynslu í atvinnuflugi. Þeir eru urn það bil 3 ár að- stoðarflugmenn áður en þeir verða flugstjórar á stærri vél- um, en tíminn fer nokkuð eftir hæfni og reynslu. Aðsókn að flugnámi hjá Þyt fer sívaxandi, og er nú orðin meiri en hægt er að anna. Árið 1955 var farið með 2 flugvélar skólans austur að Egilsst'öðum og haldið námskeið þa.. Gafst þetta rnjög vel og hafa forráða- menn skólans hug á að halda þessari starfsemi áfram á fléiri stöðum á landinu, en sökum ó- nógs flugvélakosts er ekki hægt að koma því við sem stendur. Tvær flugvélar skólans eru í síldarleit, en auk þess enu flug vélar Þyts hafðar í margt ann- að en kennsluflug, svo sem sjúkrafíug og fleira. Þar sem Þytur brautskráir menn til atvinnuflugs, þurfa nú Framhald af 1. síðu. Lindholm, D. 13,41 . í.: 8, D.: 3. 10 km. hlaup: Tögersen, D. 30:41,6 (vallarmet) Laurissen, D. 31:03,6 Kristján Jóhannsson, I. 31:58.8 Hafsteinn Sveinsson, í. 35:58.8 í.: 3, D.: 8. 4x400 m. boðhlaup: ísland: 3:19,0 Danmörk: 3:20,8 !.: 5, D.: 2. í landskeppninni 1950 unn- um við með 108:90, árið 1951 unnum við með 113:98 og 195ð með 108Vf :102Vé. Framhald af 1. síðu. unarsamkomulag milli annarra þjóða færi út um þúfur. Ráðherrann sagði ennfremur, að inn í væntanlegt afvopnun,- arsomkomulag yrðu sett á’kvæðí til að hindra þjóðir.eins og Kín- verja og þau Evrópulönd, sena ekki yrðu aðilar að samkomu- laginu,. íað rjúfa það. Það mundi þýða, að þau ríki, er undirskrifuðu slíkt samkomu- lag, yrðu laus allra mála, ef þriðja ríki rifi samkomulagið. ALGIER-MÁLIÐ. Dulles var ennfremur spurð- ur nákvæmlega um afstöðuna til Algier og sagði, að ef Banda- ríkjamenn æsktu þess að taka fyrir nýlenduvandamálið, gæt.u þeir vel látið Algier og Frakk- land vera en taka í stað þess lörxdin undir yfirráðum komm- únísta. Hann kvað Bandaríkja- stjórn þeirrar skoðunar, að hún gerði mest gagn með því a.ð blanda sér ekki í mál utan verk- sviðs hennar. ,,Það væri órétt- mætt að saka Frakka um aft- urhaldssemi í nýlendumálum á sama tíma sem þeir hafa fyrir skýmmu veitt fimm ríkjum sjálfstæði, þ. e. a. s. Viet Narn, Laos, Kambou, Túnis og Mar- okkó“, sagði Dulles. stýrisútbúnaður yfirfarinn ná- kvæmlega; er að þessu mikið öryg'gi og engin ástæða til að óttast að neitt komi fyrir flug- vélarnar á lofti. Mikil aðsókn er að flugskói- anum- og stunda þar nú nám milli 60 og 70 manns. Flestir þessara -nemenda læra til einka flugs, en gera má x-áð fyrir, að 20—25% nemenda haldi á- fram námi og gerist atvinnu- flugmenn. Nemendur, sem hefja flug- nám, mega ekki vera undir 17 ára aldid. Ganga þeir undir stranga læknisskoðun og verða að fullnægja kröfum um lík- amshreysti, sjón, litskyggni og heyrn. Fyrsta próf,. sem nemendur taka, er svonefnt sólópróf. Sóló prófsmenn hafa rétt til að stjórna flugvél, þó ekki með farþega innanborðs. — Öll kennsla undir sólópróf er verk leg og munnleg, þurfa nemend- ur að hafa 8—10 flu’gtíma til að fá að gangast undir það. Til að fá réttindi til einkaflugs þurfa nemendur að vera orðnir fullra 18 ára og hafa 40 flugtíma að baki. Prófið er bæði verklegt og bóklegt. Öll bókleg kennsla fer fram í flugskólanum á vet- ur.na, en bóklegt nám undir einkaflugspróf er um 120 tím- ar alls. Kenndar eru almennar loftferðareglur, undirstöðuat- riði veðurfræðinnar, hag'nýt loftsiglingafræði, svo sem notk- un landabréfa, loftleiðsögn, þar andi fái að ganga undir atvinnu flugmannsp.óf eru, að hann sé orðinn 19 ára að aldri og hafi lokið gagnfræðaprófi. Nauð- synlegt er að hann skilji og lesi ensku fullkomlega, þar sem all- ar kennslubækur skólans um flug eru á ensku, en enska er alþjóða flugmál sem kunnugt er. Þaif að hafa flogið 200 klst. samtals, innifalið í því skal vera að minnsta kosti 100 klst. flug sem aðalflugmaður, 20 tíma langflug, 10 tíma kennsla engiri nemendur að fara utan til flugnáms, og er því bæði auðveldara og kostnaðarminna i að læra flug en elia. Flugfloti íslendinga stækkar óðum, sífellt bætast við nýrri og fullkomnari flugvélar, og flugið á áreiðanlega mikla framtíð fýfiri sér; er því sífellt þörf á fleiri flugmönnum, og er gott til þess að vita, að hægt er að veita ungu flugmannsefnun- um fullkomna menntun og þjálfun hér heima. Sfjérnarskrárbreyíini feHcf í V.-Þýzkaíani* Bonn, þriðjudag. TILLAGR um stjórnarskrár- breytingu í Vestur-Þýzkalandi til þess að leyfa framleiðsJU kjarnorku í friðsamlegum tíl- gangi fékk í dag ekki tilskiliim meirihluta tveggja þriðju hlula atkvæða, sem nauðsynlegur er til slíkra breytinga. Aðeins mun aði tveim atkvæðum, en það ér sama atkvæðamagn, sem mu- aði í s. 1. viku. Menn, sem nærrl standa stjórninni, segja þt.S vera algjörlega lögfræðileg atriði, sem komið hafi í veg fyrir, að nokkur hluti kristi- lega demokrata greiddi ekki e.t- kvæði. Nokkrar stúlkur hafa lokið prófmn frá Þyt. Ein stúllta stundar þar flugnám um þessar mundir, er hún hollenzk og heitir Nella Boris, hún ætlar að Jjúka sólóprófi. HÖRÐ KARÁTTA er xxú hefjast gegn gin- og klaufavei&l í Evrópulöndum. Veikin hefuil' aukizt ískyggilega í ýmsxtm löndum hin síðari árin. Nú hef- ur Matvæla- og laiidhúnaða.t- stofnim Sameinuðu Þjóðama (FAO) tekið málið í sínar hend- ur og sett á Iaggirnar nefnd, er að vinna að því að veikim j. verði útrýmt með öllu. Gin- og klaufaveikisnefndxa hélt nýlega fund í Rómaborg og samþykkti áætlun í baráttunra gegn þessum skæða vágestli Eftir mjög nákvæma yfirvegu.a féllst nefndin á, að einasta ráf;- ið til þess að veikinni yrði úi- rýmt með öllu væri að aflíí'a hvert það dýr, er tæki veikina; Sem sagt, alger niðurskurður..

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.