Vísir - 22.11.1954, Side 9
Máiiudaginn 22. nóvexnber 1954.
vtsm
&
Heimsófen...
Framh. af 3. síðu.
„Hvað um framtíð skólans?“
,,Þar sem Húsmæðrakenn-
araskóli íslands er æðsta
menntastofnunin á vegum hús-
mæðrafræðslu í landinu ber
honum að vera í höfúðstað
landsins, því þar eru mestir
möguleikar til þess, að nám
húsmæðrakennaranna geti orð-
ið fullkomið og fjölþætt.
Skólinn þarf eigið hús og
þyrfti að innrétta það í sam-
ræmi við starfsskilyrði skólans.
Húsið þyrfti ekki að vera stærra
en meðal íbúðárhús. Honum
hefir þegar verið ætlað rúm á
lóð kennaraskólans.
Raddir hafa borizt um að
flytja skólann til Akureyrar,
og hefir verið bent á hús Hús-
mæðraskóla Akureyrar, sem nú
stendur autt.“
Skólastjórinn athugaði hús
þetta og þótti það ekki hentugt.
Það er byggt fyrir 36 nemend-
ur og kennslustofur allar og
eldhús allt of stórt fyrir starf-
seihi skólans, einnig er þar eng-
in heimavist, sem þyrfti þó að
vera ef Húsmæðrakennaraskól-
inn yrði þar til húsa.
Það er afar hæpið að rífa
upþ ungan skóla, sem aðeins
er að byrja festa rætur og koma
honum fyrir í öðru umhverfi
og við lakari starfsskilyrði en
hann hefir haft..
Um leið og eg þakka skóla-
stjórunum greinagóð svör, vil
eg leyfa mér að þakka frk.
Helgu Sigurðardóttur fyrir
hönd reykvíslcra húsmæðra fyr-
ir allar þær nýjungar og hollu
ráðleggingar, sem hún hefir
veitt þeim með fróðlegum út-
vai-pserindum og fjölbreyttri
sýnlcennslu í Húsmæðrakenn-
araskólanum.
Er. J.
Kcma borgarstjóri...
Framh. af 3. síðu.
bygginguna fyrir hervarna-
ráðuneytið við Montrealveginn,
í nánd við Orleans.
Síðasta hneykslið er þó sú
frétt, að -til standi að flytja
Styrjaldarminnismerkið af
Sambandstorginu og flytja það
upp í Gatineau-hæðirnar.
Það væri réttast að hlutað-
eigándi ráðgerðamenn létu
setja upp súlu með þessari
áritun: „Hér var höfuðborg
• Kanada Stofnsett 1. júlí 1867,
en dó í barnæsku“. Voru þessi
orð inælt af óvenjulegum
þunga og var hneykslun borg^-
arstjóra aúðsæ.
Gat hún þess að sambands-
stjðrnin væri' mjög nánasarleg !
í peningamálum og væri það
vafalaust orsök.til flutningsins,
en ekki það, áðl sförfin yrðu
betur af: hendi deyst- annars-
staðar. Eh þó að bórgurunum
væri sárt um að ríkisskrifstofur
flyttust á burt myndi þetta
verða tíi að létta nokkuð hús-
næðisvandræðin.
Þeir, sem mæla með flutn-
jngnum telja að flejra hæfi-
leikafólk sé fáanlegt í Montreal
en þarna. Telja þeir það líka
kost, að þar sé skrifstofa kvik-
myndanefndar í nánd við fjar-
sýnisstöð.
★
Betra er að bursta með sápu
mjög óhreinan þvott, en að láta
hann í bleikivatn.
Casanova....
hann var skæruliðaforingi og
að stórfé hafði verið lagt til
höfuðs ho.num.
Um nóttina lagðist hann til
svefns í tjaldi ásamt mörgum
japönskum fyrirliðum og áttu
3 menn að halda vörð um har.n.
En þeh’ dottuðu snöggvast, er
leið á nóttina og þá skreið hann
undir tjaldskörina. og hvarf í
myrkrið.
Fljótið rann
í öfuga átt.
En nú hófst bardaginn við
frumskóginn fyrir alyöru.
Hann hafði. orðið að skilja
kompásinn sinn og landabréf
eftir hjá Japönunum og hann
villtist þrásinnis, er hann var
að leita . að,. félögum sínum,
skæruliðunum. Hann kom að
fljótinu, sem honum famist
renna í öfuga átt. Og hitabelt-.
isregnið dundi jafnt og þétt og
hann fann að þrekið rénaði. í
kínversku þorpi fékk harn
góða máltíð, hrísgrjón, sætar
kartöflur, grænmeti og harð-
fisk. Hann hélt svo för sinni
áfram, en gekk stöðugt í hring
og gat ekki fundið nein merki
þess að skæruliðar væru í
nánd.
Eftir 14 daga göngu í frum-
skóginum fékk hann hnasóíí,
malaríu. Hann iá sjúkur í
mannlausum kofa þegar hann
heyrði Japni koma. Hann faldi
sig í holu tré rétt fyrir utan
kofann. Meðan hann lá þar
fann hann að hann var ai-
veg kominn að því að gefast
upp. Þetta er allt gagnlausí,
hugsaði hann og fólkið heima
fær ekki einu sinni að vita að
ég hef gert allt, sem í minu
valdi stóð. Hann sofnaði í felu-
stað sínum og vaknaði ekki aft-
ur .fyrr en dimmt var orðið. Þá
var hitasóttin horfin og matar-
lystin komin aftur. Nokkra
daga enn var hann að leita og
rakst þá á nokkra af félögurn
sínum. Höfðu þeir flutt sig upp
til fjalla.
Flúið til ímyndunaraflsins.
Margir af þeim sem voru í
fangabúðum í síðari heimstyrj-
öldinni áttu þess engan kost að
flýja. Ef einhver fangi strauk
úr fangabúðum Japana og var
gripinn, var hann hálfshöggv-
inn. Og Japanir tóku líka af
lífi alla skálafélaga þess, sem
ætlað hafði að flýja. Þetta fældi
menn frá að hugsa um slíkt —,
miklu fremur en hríðskota-
byssur og leitarljós. Þegar
þannig stóð á leituðu menn
fremur á náðir ímyndunarafls
síns og leituðu frelsis - innra *■
með sjálfum sér. Varð þá lífið j
í fangabúðunum þolanlegt og[
varð jáfnvel í sumum tilfellum
dýrmæt reynsla.
Osigrandi dugur er stöðugur
undirstraumur lýsinganna í bók
Williams. Fer ekki hjá því, að
menn komi auga á að einræðis-
stefnur, sem beita ógnun, kúg-
un og fangelsunum, geti ekki —
þrátt fyrir allt — mátt sín mik-
ils gagnvart mamiúð, kímni og
hugkvæmni.
AÐALFUNDUR
Knattspyrnufélagsins Valur verður haldinn í
félagsheimilinu, mánudaginn 29. nóvember næst-
komandi kli 8,30 síSdegis.
DAGSKRÁ:
Venjuleg aSalfundarstörf.
Stjórnin.
Hlý nær-
f öt — bezt a
vörnin
gegn kuld-
anura. —
Úrval í öll-
um stærð-
um.
L.H. MULLER
AS gefnu tilefni lýsum viS því hér meS yfir,
t aS heildverzlunum er aSeins heimilt aS selja ávexti
i til þeirra aSilja, sem viSurkenndir eru samkvæmt
í reglum Félags íslenzkra stórkaupmanna og er því
jmeð öllu óheimil sala til einstaklinga.
Hinsvegar hafa vei*zlanir í Reykjavík, sem eru
innan Sambands smásöluverzlana, ákveSiS aS
selja :ávexti í heilum kössum á mun Iægra verSi
en í lausasölu.
Ávaxtainnflytjendur
Samband smásöluverzlana
Ver5 ca. b. 42.000-00 meö öHuin sköttutm
Gegn nauSsynleguin leyfum útvegum viÖ fóiksbíla og/eða sendiferðabíla frá Volkswagenwerk í
Þýzkaíandi. — Voíkswagen bílarnir eru nijcg ódýrir í innkaupi og rekstri og allur viðhaldskostnaður
lítill, þar sem bíllinn er mjög einfaldur að gerð.
Leitiö uppfýsinga um Voíkswagen bíiaita áöur en þér ráöstafiö feyfum yöar.
MEÍLÐ VEHZE UJVIJV HEKEA HLE.
Hveríisgötu 103. — Sími 1275.