Vísir - 25.01.1957, Side 6

Vísir - 25.01.1957, Side 6
VlSIR Fösludaginn 25. janúar 1957, DAGBLAÐ Ritstjóri: Hersteinn Pálsson. Auglýsingastjóri: Kristján Jónsson. Skrifstofur: Ingólfsstræti 3. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3. Sími 1660 (fimm línur) Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Lausasala 1 króna. Félagsprentsmiðjan h.f. IBreff: Er þetta menning ? Orð og athafiiir kommdRÍsta. Að sjálfsögðu hafa kommúnist- ar reiðzt yfir því, að Vísir J skyldi benda á það í gær, að j gerð hefði verið samþykkt í J Verkamannafélagi Akureyr- ar varðandi brottför varn- arliðsins og jafnfamt birt mynd af formanninum, upp- bótarþingmanni staðarins, sem samþykkti fyrir aðeins fáum vikum, að varnarliðið skyldi vera um kyrrt. Þykir Þjóðviljanum rétt að gera ] lesendum sínum Ijóst að ) þótt kommúnistar hafi nú j staðið að því að brottför ) varnarliðsins var frestað, þá í hafi það ekki verið af því, að þeir vilji, að varnarliðið sé hér ái'ram? í>að er ekki úr vegi að rifja það upp með nokkrum orðum, hvernig afstaða kommúnista. hefir verið í varnarmálunum, j hvernig þeir hafa ekið segl- j um eftir vindi í þeim og látið j stundarhagnað ráða gerðum j sínum í þeim. Verður þá að ! byrja á að rifja það upp, að J kommúnistar hafa jafnan j haldið því fram, að íslend- i ingum stafaði mikil hætta j af að hafa herlið í landinu, j og hættan væri þeim mun ! meiri, sem horfur væru ískyggilegri í alþjóðamálum. j Hafa kommúnistar tekið í svo djúpt í árinni, að þeir ] hafa haldið því fram, að ís- j lendingar væru í bráðri tor- tímingarhættu, ef varnarlið j væri í landinu, meðan styrj- öld geisaði úti í heimi. Nú vita allir, að horfur hafa aldrei verið eins ískyggi- legar og í haust — þegar það gerðist samtímis, að Rússar réðust inn í Ung- verjaland og Bretar og Frakkar brutust á land á Suez-eiði — síðan á tímum Kóreustyrjaldarinnar. Virt- ust mestar líkur fyrir því ; um skeið að úr annari hvorri árásinni eða báðum yrði styrjöld, sem gæti kveikt ó- friðarbál, er næði um allan heim. Þeirri hættu var þó afstýrt um síðir, en lengi var allsendis óvíst, hvort svo vel mundi fara. En einmitt er hættan var mest, samþykktu kommún- istar að varnarlið skyldi vera áfram hér á landi. Þegar hættan var mest fyrir þjóð- ina, að þeirra dómi, sam- þykktu þeir, að varnarliðið skyldi hvergi fara. Hefðu þeir verið trúir stefnu sinni og mælt af heilum hug áður, hefðu þeir einmitt átt að segja um þessar mundir: ,,Nei, nú er hættan einmitt orðin svo mikil á heimsátök- um, að varnaríiðið má enn síður vera hér en áður. Oft var þörf á, að það færi, en nú er það beinlínis lífsnauð- syn fyrir þjóðina, að það verði á brott án nokkurrar tafar.“ Þannig samþykktu kommún- istar að kalla hættuna, sem þeir höfðu svo oft og lengi talað um, yfir þjóðina, þeg- ar þeir höfðu áður unnið eiða að því, að þeir skvldu hafa á hendi forustuna i frelsisbaráttunni. Þannig er nú þeirra saga, og þegar hún er skoðuð, þá er engin furða, þótt menn taki ekki nýjar samþykktir kommún- ista um brottför varnarliðs- ins hátíðega. Þeir munu láta sem þeir viti ekki af álykt- unum eins og þeirri, sem Verkamannafélag Akureyr- ar samþykkti, meðan þeir þurfa að borga fyrir ráf'- herrastóla sína með því að svíkja umbjóðendur. sína og þegja. Þeir munu halda á- fram að verzla með þetta mál eins og önnur, meðan þeir telja sig hafa nokkurn hagnað af slíkum viðskiptum. Undanfarið hafa oft verið uppi raddir um það, að hefta beri útgáfu svokallaðra „sorp- ! rita“, vegna spillandi áhrifa þeirra. Og víst er um það, að (lítill skaði væri að jafn smekk- ; lausum bókmenntum, þó þau I hyrfu af markaðinum. I En hvað mun valda því, að t það marglofaða menningar- tæki, Ríkisútvarpið, flytur nú hlustendum sögu sem að smekkleysum og viðbjóði tekur j langt fram hinum lélegustu „sorpritum“? Á ég þar við Gerplu, eftir Halldór’ -Kiljan Laxness. Sagan er viðbjóðslega „kyniskur karrikatur“ af einni af okkar ágætu fornsögum, Fóstbræðra sögu, þar sem höf. dregur niður í svaðið,, ekki að eins sögupersónur, sem íslenzka þjóðin hefir dáð öldum saman, heldur einnig hinn helgasta arf þjóðarinnar, fornbókmenntirn- ar, með þeim endemum, að slíkt finnst ekki annars staða’- í íslenzkum bókmenntum. Er Gerpla öll þannig, að mörg lé- legustu „sorpritin" eru stórlega siðbætandi í samanburði við slíka viðurstyggð, svo langt er Gerpla fyrir neðan allt vel- sæmi. Öðru hverju hafa heyrst heyrst raddir, uppblásnar af siðferðilegu vandlæti, yfir nokkrum bráðsjöllum saka- málasögum, er lesnar hafa verið í útvarpiff. Vandlæting þessara dyggðapostula hefir gengið svo langt (mig minnir í Þjóoviljanum), að telja forn- sögulestur próf. Einars Ól. Sveinssonar siðspillandi! Minn- ir mig að Njála væri þar sér- staklega fordæmd, sem óholl lesning! Hvað segja siðapost- ularnir um Gerplu? Af hverju þegja þeir nú? Óhætt er að segja það menn- ingarhlutverk Ríkisútvarpsins í hæsta máta vafasamt, að flytja hlustendum þessa svívirðu svívirðinganna í íslenzkum bókmenntum. Ekki verður ann- að séð en að forráðamenn út- varpsins séu með slíku að eyði- leggja heilbrigðan bókmennta- smekk þjóSarinnar. P. Á. myrodl um ieik> Hreinsun Suez-skurðar miðar vel áfram, og eru menn von- góðir um það, að siglingar um hann geti hafizt áður en j mjög langt um líður. Verður ) þá fljótlega bætt úr olíu- j skorti þeim, sem hefir valdið j mikum erfiðleikum víða í j V.-Evrópu, og einnig munu flutningsgjöld með skipum j lækka til muna, þegar sigl- ! ingaleiðir styttast og ekki þarf að fara suður fyrir Afríku. íslendingar hafa áhuga fyrir því, hversu miðar við að hreinsa Suez-skurðínn eins og fleiri þjóðir. Það er ekki aðeins, að vænta má batn- andi sambúðar margra þjóða, þegar þessi mikilvæga sigl- ingaleið hefir verið opnuð á nýjan leik, heldur má vænta þess, að opnun skurðarins hafi einnig efnahagsleg áhrif hér á landi. Leiga á oliu- flutningaskipum mun lækka til muna, þegar skurðurinn verður kominn í gagnið aft- ur, og allir skilja, hversv miltilvægt það er. En verður þá gerð breyting á farm- Norræni sum- arháskólinn. Norræni Sumarskólinn, sem haldinn hefur verði til skiptis á Norðurlöndum nema á Islandi undanfarin 5 sumur, verður næsta sumar haldinn í Ljungs- kille, skammt frá Gautaborg í Svíþjóð. Stendur hann yfir i tvær vikur, eins og verið hefur, og verða tekin fyrir viðfangsefni. sem liggja á mörkum fleir' fræðigreina. Þátttaka er heimi! þeim, er lokið hafa stúdent.s- prófi, háskólanemendum. kandi dötum og prófessorum. íslend ingar hafa frá upphafi tekið þátt í SumarliáskólanUm, en þeir geta flestir verið 10 héðan. j Til undirbúnings þátttöku í Sumarháskólanum fara fram eins konar námskeið eða um- ræðufundir í öllum háskólabæj- um á Norðurlöndum, og hefur svo einnig verið hér. Mun undir- búningsnámskeiðið hefjast í febrúar n.k., en þeir sem taka bátt í því, ganga fyrir um styrk til þátttöku í Sumarháskólanum, sem veittur kann að vera. Vænt anlegir þátttakendur skulu hafa snúið sér til Ólafs Björnssonar. prófessors, eða Sveins Ásgeirs- sonar, hagfræings, fyrir 1. febr. n. k. gjöldum Hamrafells, ef eitt- hvað verður eftir af leigu- tíma þess? Aðalsteinn Hallsson íþrótta- jkennari, hefur eins og kunnugt ,er beitt sér fyrir ýmsum nýj- j ungum í gerð barnaleikvalla ■ undanfarin ár. Lét hann gera kvikmynd af barnaleikvelli og leikvallarstarfi í Ytri-Njarðvík árið 1954. Mynd þessi túlkar á mjög at~ hyglisverðan hátt hugmyndir Aðalsteins um það, hvernig leikvellir gætu verið útbúnir að leiktækjum og leikvallar- gæzlunni hagað, til þess að leikvellirnir verði börnunum eftirsóknarverðari og þroska- vænlegri heldur en raun ber jafnvel vitni um, að þeir háfi áður verið. Leikvallarmynaina, ásamt fleiri fróðlegum, en um leið bráðskemmtilegum myndun, hefur Aðalsteinn sýnt víða úti um land, bæði börnum og full- orðnum, við góða aðsókn og mjög lofsamlega dóma. Hefur hann nú í hyggju að sýna þessar myndir hér í Reykjavík, einkum börnum og öðru skóla- fólki svo og fullorðnum, sem áhuga hafa á þessum málum. Verður auglýst hvar og hve- nær þessar sýningar verða. Ágóða þeim, sem gæti orðið af sýningunum ef aðsókn yrði almenn, verður varið til þess að hefja smíði og framleiðslu fjölbreyttra leikvallartækja, sem svo verða seld við eins vægu verði og unnt verð-ur þeim, sem óska, bæði einstök- um byggðalögum og einstakl- ingum. En til þess að hefja þessar framkvæmdir þarf nokkurt fé til kaupa á efni, verkstæðisplássi o. s. frv. Er hér áreiðanlega unnið að þörfu málefni börnunum til heilla og þess því að vænta að þessar sýningar Aðalsteins verði sæmilega sóttar. Kviktnynd um listmálarann Grigorescu. Kvikmynd um list rúmenska meistarans Grigorescus verður sýnd í Stjörnubíói á morgun, í 26. þ. m„ kl. 3. Kvilunynd þessi er talin ein hin fegursta sinnar tegundar, sem hér hefur sézt. Á undan sýningunni flytur Magnús Á. Árnason listmálari stutt erindi um líf listamannsins og list, en Magnús var eins og kunnugt er í Rúmeníu. í haust j og kynntist þá m. a. verkum þessa meistara. Sýning þessi er | aðallega haldin fyrir nemendur listaskólanna í bænum, en öll- um listunnendum er heimill að- j gangur. Mikil ófærð liefur verið á göt- unum seinustu daga vegna snjó- komunnar og liefur verið illfært um m-argar götur bæði fyrir gang' andi og akandi. Vegheflar hafa farið um helztu götur og rutt snjónum upp á gangstéttir, en seinkgra verk hefur það verið að flytja snjóinn af stéttunum á burt. — Um þetta sendir lesandi Bergmáli hugleiðingar sínar, á þessa leið: „Áður en véltækni komst á það stig, sem hún er nú, voru oft mikl- ir erfiðleikar í umferðarmálTim „innan Hringbrautar“ þegar mik- ið snjóaði, eins og marga rekur eflaust minni til. Lá þá stundum við neyðarástandi, og var það gert að umræðuefni í Vísi fyrir nokkrum árum. Snjóinn á gangbrautirnar! En hú er öldin önnur. Að visu hefur snjóað tulsvert undanfarna daga en það kemur ekki að sök. Vélknúnar skóflur bruna um göt- urnar og hreinskafa þær i einu vetfangi, svo a’ð akbrautirnar verða eins og á sumardegi, og bílstjórarnir lcunna sér engin læti. Hvað verður svo um allan snjóinn? Heldur er nú fávíslega spurt, þvi hvar skyldi hann vera látinn, annars staðar en á gang- stéttarnar; þar lirúgast hann upp í meters djúp*ar beðjur og legst eins og værðarvoð að kjallara- gluggunum. Bærileg uppbót á hitaveitúna fyrir þá, sem aldrei fá yl á ofna sína. Þarna komu gangstéttirnar loksins að ein- hverju gagni. Fleiri bíla! Er annars nokkuð vit í þvi, að vera að leggja i þessi rándýru mannvirki fyrir örfáar hræður, sc-m af einskærum þráa hafa ekki enn þá fengið sér bíl? Og svo eru menn að fetta fingúr út í það, þótl bilarnir séu einráðir í umferðinni, ,og réttur gangandi fóllcs sé takmarkaður hæfilega. Menn ættu heldur að reyna að troða þeirri einföldu staðreynd inn í hausinn á sér, -að það er ekki hægt að vera maður með mönnum hér i höfuðstaðnum nema liafa einkabíl til umráða. Þeim, sem þráast við -að sam- þykkja það, má þá ráðstafa á við- eigandi hátt. Það er nóg rúm fyrir þá á eyðibýlunum, sem Færeyingarnir fussa við. Sandur og möl á sumrin. En sem sagt, þetta stefnir allt í rétta átt og stórt skref i áttina er að taka gangstéttarnar i notk- un sem snjógeymslur. í fram- haldi af því mætii benda á, *að þegar vorar og snjóa leysir, væri tilvalið að taka þær til annarra nok:, t. d. fyrir geymslu á bygg- ingarefni, svo sem sandi og möl. Það skal játað, að undantekning er með gangstéltir i Austurslræti, og nágrenni, þar eru vinnuflokk- ar frá bænum á ferðinni vi.ð snyrtingu seint og sncmma. En skýringin er á reiðum liöndum: Margir bíleigendur stunda vinnu í miðbænum, og auðvitað verða þeir að leggja leið sína fótgang- andi þvert yfir gangbrautina til þess að komast á vinnustað. Nú munu menn spyrja: Er þá ekki sjálfsagt að liætta við alla gang- stéttagerð? Ónei, ekki er þ-að skynsamlega ályktað, því hvar ætti þá að láta snjóinn af akbraut- unum? Bráðabirgðalausn. Það ber því allt að sama brunni með það, að þeir örfáu, sem enn þá þráast við að kaupa sér bil, verða að vinda bráðan bug að því að eignast liánn sem allra fyrst,

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.