Vísir - 06.05.1957, Side 6

Vísir - 06.05.1957, Side 6
8 VÍSIR Mánudagín.a 6. maí 1957 WISIR. D A G B L A Ð Vísir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson. Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3. Ritstjórnarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,00—18,00. Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00. Afgreiðsla Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00. Sími: 1660 (fimm línur). Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Vísir kostar kr. 20,00 í áskrift á mánuði, kr. 1,50 eintakið í lausasölu. Félagsprentsmiðjan h.f. Skattíríðindi sjómanna. Eins og almenningur veit, hefir talsvert verið rætt um skatt- fríðindi.sjómanna að undan- förnu — bæði á alþingi og utan þess. Mönnum kemur saman um það, að gera þurfi sjómennskuna eftirsóknar- verða í augum landsmanna, og einkum vngri kynslóðar- innar, svo að vaskir æsku- menn vilji stunda sjóinn frekar en að sitja í hóglífis- stöðum í landi, sem eru þar að auki ekki eins arðbærar fyrir þjóðfélagið. Sennilega má beita ýmsum ráðum til þess að gera þessi störf eftir- sóknarverðari, en þó munu menn á einu máli um það. að heppilegast sé að létta skött- um af sjómönnum, því að skattabyrðin er nú orðin ó- bærileg að kalla. Nú skyldi maður ætía, að „stjórn hinna vinnandi stétta“ hefði lcomið fram af rausn í þessu máli, ákveðið skattfríðindin slík, að um verulega bót hefði verið að ræða. En það var öðru nær, því að fríðindi þessi eru sára- lítil, og varla orð á þeim gerandi, þegar á það er litið, að ríkisstjórnin hefir fyrir skemmstu ákveðið nýja skatta, sem nema hvorki meira né minna en fjórðungi úr milljarði. Þcir skattar verða að sjálfsögðu einnig teknir af sjómönnum, og það, sem ríkisstjórnin ætlar að skila aftur með skattfríðind- um þeim, sem hún hefir gert að tillögu sinni og verður framkvæmt, er ekki nema h'tið brot af þeirri fúlgu, sem hún hafði fyrir skemmstu á- ltveðið að taka af þeim með nýju skattlagningunni. Þetta er raunverulega mergur- inn málsins. Ríkisstjórnin er nýbúin að leggja dráps- klyfjar á þegnana, svo að annað eins hefir vist ekki þekkzt í fjármálasögu þjóð- arinnar, og svo þykist hún vera dæmalaust rausnarleg, þegar iiún býðst til að skila litlum hluta þessa fjár aft-j ur til fámenns hóps, sem vinriur mikilvæg störf fyrir þjóðarheildina. Stjórnin metur sjómannsstörfin ber- sýnilega ekki mikils, ef skattfrádrátturinn, sem hún hefir fengið samþykktan á þingi, sýnir mat henriar á gildi þessara verka. Ilann er bersýnilega sannari mæli- kvarði en hin fögru orð, sem | stjórnarsinnar hafa látið sér um munn fara i sambandi við þetta mál. Sjálfstæðismenn reyndu að fá því til leiðar komið, að skatt- frádrátturinn yrði meiri, úr þvi að sjálfsagt þótti að fara þessa leið til að laða menn' að þessari atvinnu. Þeir vildu, að hann væri svo | mikill, að eitthvað munaði j um hann. En það var ekki' í samræmi við kokkabækur, stjórnarflokkanna, og það var kaldhæðni örlaganna, að einn helzti foringi kommún- ista var gerður út til að boða, að tillaga sjálfstæðismanna í þessu efni mundi ekki verða samþykkt. Fjármálaráðherrann hefir löng- um fengið orð fyrir að láta ekkert tækifæri til tekju- öflunar sér ur greipum ganga, og getur það vissu-! lega verið góðra gjalda vert undir vissum kringumstæð-' um. En það orð fer einnig af honum, að hann láti ekk- ert fé af hendi rakna ótil- neyddur. Afstaða stjórnar- i innar varðandi skattfrá- drátt sjómanna viðist ein- kennast af þessum þáttum í fari fj ármálaráðherrans. Straubrettin með ..ULÁA itWlH.X! -- má hækka og lækka að vild svo að einnig er hægt að sitja við þau þegar strauað er. Ermabretti fylgir hverju straubretti. Þessi vinsælu straubretti koma í verziunina í dag. Véla- og raftækjaverziunin h.f. Bankastræti 10, sími 2852. I Keflavík, Hafnargötu 28. Gólfdúkur Linoleum, hálflinoleum, gólfgúmmí plastdúkur, fiitpappi og Iím fyrirliggjandi. RAFMAGNSRAKVÉLAR PHILIPS Nokkur stvkki af . . þessum vinsælu . . rafmagnsrakvélum væntanleg í dag. Véla- og raftækjaverzlunin h.f. Bankastræti 10, sími 2852. í Keflavík, Hafnargötu 28. Dívanteppi margar gerðir. Verð kr. 78 kr. VERZL. fyrirliggjandi 600x15 650x15 700x15 710x15 475x16 500x16 600x16 Columbus h.f. Brautarholti 20. Vantar duglega og ábyggilega afgreiðslustúlku. Einnig getur komið til greina stúlka, er vinnur seinni hluta dagsins og framúr. CaféLería. Hafnarstræti 15. Einar Eiríksson. Edwin Árnason Lindargötu 25. Sími 3743.. SINCLAIB SILHOM: blfrefðabónlð sem hreinsar og bónar bílinn í einni yfirferð. Ennfremur: Sinclair bremsuvökvi, vatnskassaþéttir, vátnskássahreinsari og rúðuþvottalögur. SMYRILL, Húsi Sameinaða. — Sími 6439. Orninn Undanfarið hefir mikið verið rætt um þá hættu, sem ern- inum stafar aí eitrunarher- ferð á hendur refinum. Ern- ir eru orðnir mjög fáir á landinu, og rnundu. allir harma það, ef þessi glæsilegi fugl hyrfi með öllu. Þeir, sem kunnugir eru afleiðing- um af fyrri eitrunarherferð- um hér á landi, eru sann- færðir um, að enn cin slík herferð mundi áreiðanlega hafa eitt í för með áév — að síðustu örnunum yrði btur- í hættu. að, en allsendis óvíst um árangur gagnvart tófunni. Eina örugga ráðið að vinna á tófunni er að hafa verð- laun svo há, að menn hafi áhuga fyrir að veiða bana, telji það borga sig að verja nokkrum tíma til þess. Nýtt frumvarp uin þetta efni ger-j ir ráð fyrir all-miltlu hærri | verðlaunum en áður fyrir að vinna ref eða mink, en þó gengur það ckki nógu langt. Einstakir hreþpar hafa að sögn hælckað hjá sér verðlaunin í kr. 500 fyrir ref, og Visir hefir heyrt, að þetta hafi vakið þann áhuga, að tiltekinn maður í einum hreppnum hafi unnið átta refi í vo,r. Það er áreiðanlega vænlegra til árangurs að hafa verðlaunin sém hæst og hætta við alla eitrun, sem gerÍL’ áreiðanlega tjón og vafasamt gagn. Þói’sgötu 14. Opið kl. 8—11,30. M*lakaffi kr. 2,50. Smurt brauð kr. 6,00. Snittur kr. 4,06.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.