Vísir - 29.06.1957, Blaðsíða 11

Vísir - 29.06.1957, Blaðsíða 11
Laugardaginn 29. 'júní. 1957 vlsra Hálfrar aidar afmæli Siáturfélags Suðurlands. Þa& var stofnað við Þjórsárbrú 1907. Um l>essar mundir er Sláturs- félag Suðurlands 50 ára, en það var síofnað á fundi sem lialdinn var við þjósái’brú 28 janúar 1907. Á fulltrúafundi og aðalfundi sem haldinn var s.l. þriðjudag og iniðvikudag var þessara merku tímamóta minnst. Fundinn sátu fulltrúar af öl!u félagssvæðinu sem nær frá Slceiðarársandi að Hvítá í Borg- arfiroi. Tijdrög að stofnun félagsins. Kringum síðastliðin aldamót eru miklir erfiðleikar á sölu af- urðá bænda og þá ekki hvað sizt sauðfjárafurðum. Áiáð 1896 er bannaður innflutningur lif- andi fjár til Bretlands. Markaðir með sauðfé á fæti höfðu mjög ííðkast fyrir þann tíma. Reynd er sala saltaðs kindakjöts bæði til Bretlands, Danmerkur og sið- ar Nor.egs, en gefst misjafnlega j og oft illa. Framleiðsla islenzkra bænda var á þessum tíma mun meiri á kindakjöti, en markaður I var fyrir innanlands enda kaup- ■ staðir litlir, svo að allt kapp var lagt á sölu afurðanna til útlanda. En þetta gekk sem fyrr segir ! misjafnlega og oftast var við- ; kvæðið það, að verkun kjötsins væri svo slæm, að varan taldist lítt söluhæf. Ýmsir forystumenn j þjóðarinnar hefja þá bar- ! áttu fyrir úrbótum á þessu sviði. Og var þetta til þess að Slátur- íélag Suðurlands var stofnað. Jón H. Bergs forstjóri. Framkvænidir hefjast. Þegar á árinu 1907 var hafist handa um byggingu sláturhúss ' í Reykjavik og var byggingunrd lokið svo að hægt var að hefja slátrun þá þegar um haustið eða 2. okt. Árið 1910 er heimilað að gera íilraun með slátrun nokkurra dilka í Vík. Þessi tilraun er íram kvæmd 1911 og hefir slátrun. íarið þar fram æ síðan og frá ^ 1916 hefir verið slátrað þar öllu , fé Skaftfellinga, þar til byggt ( var sláturhús á Kirkjubæjar- j klaustri. Þessi þróun hefir síðan haldið áfram. Rekur Sláturfélagið nú sláturhús á Kirkjubæjarklaustri, í Vík, Djúpadal á Rangárvöllum, Hellu á Rangárvöllum, Selfossi og við Laxárbrú í Skilmanna- hreppi auk sláturhússins í Reykjavik. Fjölþætt starfsemi í Reykjavík. Félagið hefur komið sér upp sölubúðum i Reykjavik og rekur þar nú 6 matvön.iverzlanir. Þá hefir félagið nær því frá upp- hafi rekið pylsugerð, sem stöð- ugt hefir tekið breytingum og endurbótum og er nú í samræmi við nútima kröfur. Árið 1920 hóf félagið svo niðursuðustarfsemi og hefir rekið niðursuðuverk- smiðju síðah. Auk þessa hefir íé- lagið starfrækt reykhús, annast sláturgerð og haft allskonar kjöt vinnslu. Mun S.S. hafa verið með fyrstu fjTirtækjum liéi' á landl til að hefja slíka starfsemi. Frá því 1913, hefur félagið rekið sitt eigið frystihús og síðar byggt fleiri. Þá hefur íélagið um 25 ára skeið rekið Ullarverksmiðj- una Framtiðin, og- fer starfsemi hennar vaxandi. í sambandi við starfsemi félagsins annast það dreyfingu íramleiðslu sinnar til fjölmargra fyrirtækja. Ör þróun. Langmest slátrun er hjá íé- laginu árið 1943 eða um 87 þús. fjár. Önrrur mesta slátrunin er 1937 rúm 83 þús. fjár og hin þriðja í röðinni er 1851, þegar skorið er niður í Árnessýslu, þá er slátrað.81.600.fjár. Á árunum eftir 1943 fer mæðiveikin að segja til sín og fækkar sauðfénu. Það er fyrst nú að sauðfjártalan á félagssvæðinu hefur náð því að verða svipuð og var áður en mæðiveikina bar að garði. Árið 1956 greiddi félagið tæpar 20 milljónir kr. í fjárverð til bænda en heildai’sala félagsins var alls 60 milljónir króna. Fyrsti forstjóri félagsins var Hannes Thorarensen. Hann lét af starfi 1924. Þá tók við Helgi Bergs og gengdi liann forstjóra starfi til dauðadags. Við starfi tók þá Jón H. Hergs, hdl. nú- verandi forstjóri. 1 stjórn eiga nú sæti Pétur Ottesen, alþingismaður, Ytra Hólmi, Eggert Eggertsson, Með alfelli, Helgi Haraldsson, Hrafn kelsstöðum, Sigurður Tómas son, Bjarkarstöðum og Siggeii Lárusson, Kirkjubæ. Endurskoð endur eru þeir Jón Gíslason Norður-Hjáleigu og Skúli Gunn laugsson, Bræðratungu. Dýrasögur barnanna Áóaífundur Samvinnu- trygginga. Samvinnutryggingar héldu aðalfund sinn í Bifröst í fyrra- dag. Munu þær á þessu ári endurgreiða hinum tryggou 2,675,000 krónur, sem er tekju- afgangur ársins 1956. Að því er forstjóri félagsins, Jón Ólafsson, skýrði aðalfund- inum frá, var tíunda starfsár félagsins í fyrra hið lang- stærsta og námu iðgjalda- tekjur yfir 43 milljónum kr., sem er 37,2% aukning frá ár- inu 1955. Með þessari úthlutun tekju- afgangs, sem skipt verður milli beinnar endurgreiðslu og stofn- sjóðs, hafa Samvinnutrygging- ar samtals endurgreitt félags- fólki sínu 12,3 milljónir króna, síðan byrjað var að endur- greiða tekjuafgang árið 1949. A5 þessu sinni mun ekki verða unnt að endurgreiða neitt fyrir bifreiðatrj'ggingar, þar sem tap varð á rekstri þeirra, þrátt fyr- ir iðgjaldahækkun á árinu. Aðalfundur lífstrygginga- félagsins Andvöku var einnig haldinn í Bifröst í fyrradag. Framkvæmdastjóri þess félags er einiiig Jón Ólafsson og, stjórn hin sama og hjá Sam- v innutry ggingum. Gefin voru út 592 líftrygg- ingaskírteini á árinu að upp- hæð 13 milljónir króna. Eru þá í gildi hjá félaginu 8 227 líf- tryggingaskírteini og trygg- iíígastöMinn 85,5 milljónir kr. Úr einu af slátuvhúsum S. S. (Frh. af bls. 7) Hann verður einn og yfirgef- 1 inn, vinalaus, heimilislaus. — Hann leitar til aðila sem gjarn- an vilja hjálpa, en það dugar aðeins lítinn tíma. Árum saman er hann heim- ilislaus, uinkomulaus. Full- kominn útilegumaður á nú- tímavísu. Viljaþrek hans virð- hafá mihkað með- áfram- líaldandi áfengisneyzlu. í Tíminn iíður. Hann finnst drukknaður í höfninni; Trú- jiegá hefur hann legið mánuð- luxxs saman í sjónum. Sennilega 50 xl otjöi eynnL Hundurinn Snati og kötturinn Branda lögðu upp í langt ferðalag saman. Þau ætluðu sér að komast út á eyna, sem var í stóra vatmnu í skóginum. Þessir tveir vinir höfðu yfirgefið heimili sitt og vini sína og ætluðu! sér að koma aldrei aftur. Og þetta var allt saman vegna þess að matmóðir þeirra hafði bakað kynstrin öll af bollum og einmitt þegar hún var nýbúin að taka þær út úr ofninum, var hún beðin að koma út í fjós, þar sem ein kýrin var að bera. Þannig vildi það til að Snatí og Branda hámuðu í sig allar bollurnar, því það var ómögulegt að hætta við bolluátið eftir að einu sinni var byrjað á því. Allt í einu stóð matmóðir þeirra í dyr- unum og svo komu nokkrir skellir og skipun um að hnypja sig burtu og að Iokum var þeim báðum hent út.i Já, svona var það nú. Svo löbbuðu vinirnir niður að vatninu heldur ólundarlegir, en þegar Branda sá stóréfc vatmð varð hún smeik. Hoppaðu upp á bakið á mér svo þú blotnir ekki, sagði Snati og óð út í vatnið og þegar hann botnaði. ekki lengur tók hann sundtökin og synti rakleitt út í eyna. Hvílíkur ljómandi staSur. Grasið var bæði há~ vaxið og mjúkt viðkomu og svo var þar heldur enginn, sem sló til þeirra. Já, hér .ætluðu Snati og Branda að vera það sem eftir var æfinnar. Þau fóru í gönguferð um eyna en það var fljótlégt, því hún var ekki stór. Þegar líða tók á daginn urðu þau afskaplega svöng. Þau sáu ekki annað ráð en að leggjast í grasið og sofna. Eftir nokkra stund vöknuðú þau, en sulturinn var ekki horfinn. Þau höfðu alls ekki búizt við þessu, því heima voru þau vön að fá matinn sinn á réttum tíma og árí þess svo mikið sem að biðja um hann og dallurinn! þeirra var þar að auki alllaf fullur af mat. Branda hljóp aftur upp á bakið á Snata sem flýtti sér að synda til lands. Svo hlupu þau í spretti og komust alla leið inn í eldhús og þar í hlýjunni beið dallurinn þeirra með indælis braúðskorpum og mjólk. Þeim datt ekki í hug að strjúka að heiman framar. Svo lögðust þau til hvíldar og matmóoir þeirra virtist alveg búm að gleyma boll- unum, því hún breitídi vel ofan á Snata og Bröndu og gaf þeim sykurmola um leið og hún bauð þeim góða nótt. íallið í sjóínn rnilli báts og “ryggju. Hann þekktist á merkj um á handlegg. ,,Enginri hafði j spurt um hann.“ Varla geturj nokkur hlutur valdið sliku um- komuieysi nema áfengisneyzla. j Grð íá eigi iýst þcirri rharg- víslegu sorg og vonbrigðum, er alit oí oft leiðir af áíengis- neyzlunni, — en með því að vekja athygii á einstökum eyði- leggingartUíellam, — er leííast við, að vara xnetm v:ð htoum geigvæ.nlegu hættum áfengis-> nevzlunnar. iiuM ® Pí ipuig raúioið skýrði ný' legu frá 1*\4 að búizt væri viít mikilli hveitiuppskeru 1 ár í Rína, og að hún yrði ekki mtimi en í fyrra en þá var cppskeron mjög göð, að sögn íatemanna stjónutrinn j.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.