Vísir - 08.01.1958, Blaðsíða 6

Vísir - 08.01.1958, Blaðsíða 6
VÍSIB WÍSIIR D A G B L A Ð Vísir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson. Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3. Ritstjórnarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl 8,00 18,00. Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00 19,00. Síml: 11660 (fimm línur). Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Vísir kostar kr. 20,00 í áskrift á nármði, kr. 1,50 eintakið í lausasölu. Félagsprentsmiðjan h.f. Þeir eru sannir fjandmenn Nýjasta lántakan. Milli jóla og nýárs var til- kynnt í blöðum og útvarpi, að ríkisstjórnin hefði enn tekið lán erlendis — að þessu sinni fimm milljóna dollara lán, sem tekið var í Banda- ríkjunum. Verða þær átta- tíu milljónir króna, sem ríkissjóður fær þar til ráð- stöfunar, notaðar til að koma upp sementsverk- smiðjunni á Akranesi, svo og til ýmissa annarra fram- kvæmda, eins og skýrt hef- ir verið frá í fréttum í sam- bandi við lán þetta, enda mun þörfin nokkurn veginn óseðjandi. Núverandi ríkisstjórn hefir setið að völdum í hálft ann- að ár, og mun það vera eitt helzta afrek hennai', að hún hefir tekið fleiri lán á þess- um stutta tíma en nokkur önnur ríkisstjórn á jafnlöngu tímabili. Hún hefir á þessu hálfu öðru ári tekið fleiri og meiri lán erlendis en marg- ar ríkisstjórnir tóku á öllu stjórnartímabili sínu, enda ’ munu íslendingar nú skulda tvöfalt meira erlendis eri þeir gerðu, þegar ríkisstjórn „umbótaaflanna" tók við völdum, og eru þó á engan hátt í betri aðstöðu til að standa undir sívaxandi af- borgunum og vöxtum af siíkum lánum en áður. Er nú einnig svo komið, að um tíundi hluti af öllum gjald- eyristekjum þjóðarinnar renna til að standa undir af- borgunum og vöxtum. Annars hefir það vakið athygli sumra, hve Þjóðviljinn tek- ur þessari lántöku með mik- illi stillingu. Hingað til hef- ir hann ekki verið svo hrif- inn af dollurum og lántökum vestan hafs, að honum þætti ekki rétt að vara við áhrif- um af slíku. Rósemi komm- únista getur ekki stafað af neinu öðru en því, að þeir gera sér enn góðar vonir um, að lán verði einnig tek- in úr austurátt. Það er á allra vitorði, að þeir hafa hug á lánum þaðan eins og viðskiptum við löndin aust- an járntjalds. Eins og vitað er, eru Austur- Þjóðverjar nú að smíða fyr- ir íslendinga tóif 250 lesta fískiskip. Mun skipasmíða- stöðin treysta sér til að lána andvirði skipanna að nokkru en aðeins skamman tíma, svo að útvega verður lán til að standa straum af kaupun- um að miklu leyti. Auk þess ætlar ríkisstjórnin að láta smíða 15 togara austan járntjalds, og það var upp- lýst á þingi fyrir jólin, að ríkisstjórnin hefir ekki hug- mynd um, hvernig hún ætl- ar að afla fjár til þeirra kaupa, en hyggst samt gera samning um smíðina í al- gerri óvissu um fjárútvegun. Kommúnistar gera sér vonir um, að tekið verði lán aust- an járntjalds í sambandi við skipasmíðar þessar. Þeir gera sér vonir um, að þá verði tekið svo stórt lán, að öll hin verði smámunir einir í samanburði við það. Þess vegna eru þeir enn svo ró- legir yfir dollaralánunum, sem stjórnin er alltaf að taka, að þeir gera ráð fyrir, að ,,góða“ lánið, sem brátt vei'ður vonandi tekið, vei'ði upp á meira en tugi mill- jóna, helzt nokkur hundruð, svo að það bindi íslendinga rammlega í þessa átt og helzt miklu fastar en dollaralánin binda vestur á bóginn. Með viðskiptum hefir þegar tek- izt að binda íslendinga að nokkru, en kommúnistum finnst ekki nóg að gert og lántaka mundi vera hið mesta happ í þeirra augum. Fyrir um það bil 15 árum fluttist ég, sem þetta skrifa, til Reykjavíkur. Ástæðurnar voru mai'gvíslegar, svo sem erfiðleik- ar á búskap og fleiri af þvi tagi, en þó réð það ekki litlu, að ung- iingarnir á heimili mínu heyx’ðu mikið um það talað, að mönnum liði svo vel í Reykjavík, þvi að þar væru bændur mergsognir í þágu svejtanna, og allar skemmt anir þar og því líkt væri borgað með svita sveitamanna. Það voru vitanlega vinir sv-eita manna, sem komust þannig að orði, og þeir fóru heldur ekki leynt með það, að allt mundi vei'ða betra, ef hægt væri að klekkja á Reykvíkingum, láta þeim blæða fyrir sveitirnar en ekki öfugt. Og unglingarnir i sveitinni töldu það hcilaga ( skyldu að fara til Reykjavíkur 1 — það var þeirra krossferð, þvi að þeir ætluðu að vinna borgina. svo að bændum gæti liðið betuiv 1 Fi’amsóknarmenn hafa streymt til Reykjavíkur í þúsundatali undanfarna ára tugi, en svo undarlega hefur brugðið við að þeir hafa flestir hætt að vera framsóknarmenn, þegar þeir hafa fengið að kynnast Reykja- vík og gera samanburð á sann- leikanum um hana og skáld- skapnum, sem þeir fréttu um i j sveitinni. Það er eins og bæfinn hafi verið stórkostleg verk- smiðja, þar sem framsóknar- mönnum hefur verið breytt jafn óðum og þeir komu inn fyrir bæjarmörkin. Þetta er líka eðlilegt, því að jafnskjótt og menn hafa oi'öið bæjai’menn — Reykvikingai" — hafa þeii- gert sér grein fyrir þvi, að stefna framsóknar var ekki að gera þéttbýlinu til góða og ekki heldur dreifbýlinu, held- ur aðeins lítilli klíku, sem stjórn ar í sameiningu Framsóknar- flokknum og þeim verzlunarfyr- irtækjum, sem stai’fandi eru í kringum hann. Það er rétt, að mönnum líður vel í Reykjavik, en ekki er það á kostnað sveitanna, því að vit- anlega helzt allt i hendur í þessu landi eins og öðru. Það er ekki hægt að segja. að einhver lifi á öðrum, heldur lifa allir í sameiningu. Það vill Framsókn ekki heyra nefnt, þegar talað er um Reykjavík og Reykvíkinga — og því þarf að vinna grenið. Eg ætla ekki að hafa þetta öllu lengra, en einu verð ég að bæta við, áður en ég legg frá mér pennann. Framsóknarmönnum er ævinlega illa við að heyi'a á það minnzt. hversu fjandsam- legir þeir eru Reykjavík. Þeir svei'ja og sárt við leggja, að þeir séu sannir vinir Reykjavik, en hafi nokkur efazt um undirferli þeirra og flærð, þá þarf hann ekki annað en að lita á lista Framsóknai’manna við bæjar- stjórnai’kosningarnar. Þar er i f\Tsta sæti maður, sem taldi það ágætt, að Reyk- víkingar greiddu milljóna króna skatt í framsóknarhitina, þegar leyft var farmgjaldaokur Hamra fells. Hann neitaöi að mótmæla skattinum. Og sem undii’staða listans i síðasta sæti hans, er maðurinn, sem taldi að í í-auninni ættu Reykvikingar að gx-eiða meira fyrir olíuna, en þeim var gert með milljónaokrinu. Hann sagði, að Reykvíkingar — og aðrir landsmenn — mættu þakka fyr- ir að vera ekki látnir borga enn meira, og þóttist vist vera að gera góðverk! Og þessir tveir menn krefjast þess, að þeir séu taldir til vina og velgerðarmanna Reykjavík- nr. Það eru skaplitlir kjósendur, sem taka undir kröfu þeirra með því að kjósa þá. Munum, að við kjósum hag Reykjavíkur aðeins með því að setja x við D. Gamall Strandamaður. Stórfróðleg bók um kommiínis- mann og feril hans í Evrópu. Lítið f jör enn. Nú er aðeins hálf þriðja vika til bæjarstjórnarkosning- anna og má segja, að lítið fjör sé komið í kosninga- baráttuna. Andstöðuflokkar sjálfstæðismanna sækja af litilli snerpu, enda ekki við miklu að búast af þeim, því að þeir vita sem er, að Sjálf- stæðisflokkurinn mun vinna glæsilegan sigur í kosning- unum hér í bæ — fær vafa- lítið níu menn kjörna — og þeir skilja, að baráttan er vonlaus. Það liggur í augum uppi, hvers vegna Sjálfstæðisflokkurinn vinnur svo glæsilegan sig- ur. í fyrsta lagi af því, að sjálf gagnrýni andstæðinga hans — ef gagnrýni skyldi kalla — er góð sönnun fyr- ir því, að bænum er stjórn- að af fyrirhyggju og gætni. Og í öðru lagi af því, að kjósendur munu nota tæki- færið til að lýsa vantrausti á núverandi ríkisstjórn, þeg- ar þeir ganga inn í kjörklef- ann 26. þessa mánaðar. Hvort tveggja tryggir sjálf- stæðismönnum glæsilegan sigur. „Verkamenn undir ráðstjórn" eftir Anatole Shub og í þýðingu l Stefáns Péturssonar þjóðskjala- ) varðar nefnist iítil, snotiu- bók, sem komin er út fyrir nokkrum dögum á vegum Ingólfsútgáf- uiinar. Nafn bókarinnar, segir til um efni hennar, og skiptist hún í 5 kafla, sem heita „Svikin bylting (1905—24)“, „Stéttaríki ráð- stjórnarinnar (1928—52)“, „Kúg un Mið-Evrópu (1944—52)“, iiiiifiBiiiiiiiiiiiaiiiðiiiiiiiiiiiiHii Lausn á leynilögregluþraut: ouSibjuojjj — 'uin -unfuaA efStÁj ua goj epuiftu ge suisuiiaq tuba ja ge<j 'utSaiu ; b-ijsuia eueddeuq ejeq .indeji -uoAq suxagy 'iuuiqqj e ui.§aui b.ijsuia iq.iouiuin gis uijja. ipqqs ‘suisqq puoq i jsuuejj §o luundeq je öijoa igjeq uuiju utas uuunddeuH 'iqau j -ijjoj npj ipjBA uui.iossajaij; i iiiiiiiiiiiixiiiiiiiniiiiiimiiiiiiii „Gagnsókn verkalýðsins (1953— 55)“, og „Frelsisbaráttan (1956 —?)“. Þetta er í einu orði sagt stór- fróðleg bók, og ætti enginn, sem hefur hug á að kvnna sér þróun heimsmála en þó einkum bar- áttu þjóða meginlands Evrópu gegn kommúnismanum, að láta hana framhjá sér fara. Þarna er hálfrar aldar saga — eins mesta umbrotatimabils sögunnar — í stuttu máli en greinilegu, því að þarna eru aðalatriðin tekin til athugunar og meðferðar. Kommúnistahættunni verður ekki bægt frá, fyrr en verður ekki bægt frá. fyrr en nógu margir gera sér grein fyr- i þvi, hvenig kommúnistar starfa og hvað fyrir þeim vakir. Um þ'að fræðir þessi bók og er því tímabær hér á landi, þar sem kommúnistum hefur verið hoss- að í æðstu stöður af misvitrum og metorðagjörnum svonefnd- um stjórnmálamönnum. Miðvikudaginn 8. janúar 195S 1 frétt, sem birt var hér í blað- inu um fjölgun sauðfjárins, var minnst á nauðsyn þess, að gæta yrði vel haglendisins. Mörgum mun þykja fróðlegt að sjá, hvað frekara er um þetta sagt í Ár- bók landbúnaðarins enda er þetta eitt af framtíðarmálunum. Hér á landi er sem sé að verða mikil breyting, sem fer í þá átt, að beita sauðfé æ meira á rækt- að land, og haglendi, sem borið verður á. 1 Árbókinni er og vik- ið að því framtíðarverkefni, að stækka gróðurlandið. Mennilegir landvinningar. Þar er einnig rætt um það, sem ritstjórinn, Arnór Sigurjóns son, kailar menniiega landvinn- inga. Hann segir: „Það er þegar ljóst orðið, að hægt er að auka gildi beitilands stórkostlega með því að þurrka upp mýrar og græða sanda og mela, sandgræðslan getur orðið miklu ódýrari og greiðari en nokkurn mann dreymdi um fyr- ir fáum árum (sbr. og greinar sem eigi alls fyrir löngu voru birtar hér í blaðinu, eftir skýrslu Run. heitins Sveinssonar). Gróið land hér á landi er ekki nema 17—20 þúsund ferkílómetrar og sumt af því mýrar og hálfgerð óræstis holt. Líkur eru til, að við getum auðveldlega stækkað gróð urlandið meira en um þriðjung, og bætt það gróðurland, sem við eigum, að mjög miklum mun. Með því mundi landið okkar raunverulega verða tvöfalt stærra en nú. Þetta er veglegt framtíðarverkefni, friðsamlegir og mennilegir landvinningar, þvi líkir, sem þegar Hollendingar vinna land af Norðursjó. En það land, sem við vinnum af öræf- unum verður fyrst hagi fyrir sauðfé okkar, en síðar fær það væntanlega enn meira og veg- legra hlutverk.“ Fjölgun með gát. „Ef við viljum auka landbún- að okkar frá þvi, sem nú er sýn- ist vegna markaðshorfa sá kost- ur líklegastur í bili að fjölga sauðfénu. En sú fjölgun verður úr því sem nú er orðið, að vera með fyllstu gát. Við verðum að gæta þess, hvort tveggja, að spilla ekki högum með ofbeit og láta ekki koma rýrð í féð vegna hagaþrengsla, og einkum verðum við að gæta okkar að hleypa fénu ekki geyst upp í góðu árunum, en þá er sú freist- ing mest að fjölga fénu. Hefur þó fáum orðið slíkt arðsamlegt, því að oftast hefur þurft að fækka fénu aftur, þegar illa árar, en þá er það oftast rýrt og því lítið, sem fyrir það fæst. Þetta hefur beztu búmönnum okkar skilizt, og hafa þeir því löngun gætt þess að halda.fjár- stofni sinum sem jöfnustum, auka hann gætilega og jafnt, en varast að láta hann minnka í vondu árunum. Fram til þessa liefur það aðallega verið fóðrið, sem þurft hefur á að líta i'.m stærð búsins, en hér eftir verður einnig og engu síður að líta á það, livað hagarnir þo!a.“ — 1. Þegar brezkt kaupfar nálg- aðist strendur Kína fyrir nokkru gerði ein af flugvél- um þjóðernissinna steypi- árás á það þrívegis, en þá varð flugvélin fyrh' skotum úr loftvarnabyssum kínv. kommúnista á ströndinni og flaug liún þá á brott, en skipið komst óskaddað í höfn.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.