Vísir - 08.01.1958, Qupperneq 12
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir. ______ . Munið, að þeir, sem gerast áskrifendur •
Látið hann færa yður fréttir eg annað Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið
lestrarefni heim — án fyrirhafnar af ókeypis til mánaðamóta.
yðar hálfu. M rESÍ rUR’ r4il?ÍÉm Sími 1-16-60. !
Sími 1-16-60. W UBH LHF iBwBa
Miðvikudaginn 8. janúar 1958
Nauisyn orðin á byggingu
safnahúss á Akureyri.
Undir sama þaki veröi bókasafn, nátturugripa-
safn, byggöasafn og listasafn.
Frá fréttaritara Vísis. —
Akureyri á gamlársdag.
Þeirri hugmynd hefur skotið
upp á Akureyri, að þar verði
byggt safnahús fýrir bökasafn,
náttúrugripasafn, byggða^afn
og listasafn og hefir Steindór
Steindórsson menntaskóla-
kcnnari borið fram tillögu um
Jietta í bæjarstjórn Akur-
eyrar.
Tillaga Steindórs var þannig:
„Bæjarstjórn samþykkir að
hefja á næsta ári undirbúning
að byggingu safnhúss fyrir bæ-
inn á líkan hátt og meðfylgj-
andi greinargerð gerir ráð fyr-
ir. Jafnframt kýs bæjarstjórn
þriggja manna nefnd til þess
að annast framkvæmdir og
undirbúning og starfi nefndin
í samráði við bæjarráð.“
í greinargerð segir tillögu-
maður á þessa'leið:
„Akureyrarbær á nú tvö
söfn, bókasafn og náttúrugripa-
safn. Þótt hið síðarnefnda sé
að vísu lítið, þá er það engu að
síður merkilegur vísir. Enn-
fremur hefir bærinn haft sam-
vinnu við Eyjafjarðarsýslu um
að efna til byggðasafns og er
þegar kominn nokkur vísir til
þess safns. Þá á bærinn allmörg
málverk, sem vel gætu verið
byrjun á listasafni.
Eins og nú er ástatt, eru hús-
næðismál safna þéssara í öng-
þveiti. Bókasafnið á að vísu
allgott húsnæði, en naumast
líður á löngu áður en það vex
upp úr þeim húsakynnum, sem
einnig eru á ýmsa lund óhent-
ug þótt vel megi við hlíta til
bráðabirgða. Náttúrugripa-
isafnið hefir húsnæði hjá bóka-
safninu, og hefir litla vaxtar-
möguleika innan þeirra veggja
og það því heldur sem bóka-
safnið er ört vaxandi. —
Byggðasafnið er húsnæðislaust
með öllu og er nú í bráðabirgða
j geymslu, og engin leið til að
jopna það almenningi. Málverk
þau, sem bærinn á, eru geymd
sumpart í Gagnfræðaskólanum
og sum í skrifstofum bæjarins.
Er slíkt vandræðalausn og þar
að auki er nær ókleift að taka
á móti farandsýningum mynd-
listarmanna eða listasafns rík-
isins, þar sem enginn er sýn-
ingarsalurinn til í bænum. Til
þess að leysa vandamál þessara
safna er undanfarandi tillaga
borin fram. Hér er um að ræða
svo mikið menningarmál, að
ekki má öllu lengur dragast úr
hömlu, að undirbúningsfram-
kvæmdir hefjist. Á næsta ári
mætti þegar hefja undirbúning,
ákveða safninu stað, fá upp-
drætti af húsi, sem þjónað gæti
umræddum tilgangi, en væri
jafnframt við það miðað, að
hægt yrði að auka við það síð-
ar meir eftir því sem þarfir
safnanna ykjust: Lagt er til, að
kosin verði sérstök byggingar-
nefnd. Tel eg það heppilegra
heldur en að bæjarráð eitt hafi
framkvæmdir með höndum,
því að það hefir í mörg horn
önnur að líta. Æskilegt væri að
framkvæmdum yrði hraðað
svo, að séð yrði fyrir endann
á byggingunni á aldarafmæli
bæjarins að fimm árum liðn-
um.“
Á fundi bæjarráðs fyrir jól
var tillaga Steindórs tekin fyr-
ir eftir að bæjarstjórnin hafði
vísað henni þangað. En meiri
hluti bæjarráðs taldi ekki fært,
sökum fjárhagsörðugleika, að
taka á fjárhagsáætlun fyrir
1958 framlag til byggingar
safnahúss.
Stjórn Eisenhowers býr
við vaxandi mótspyrnu.
Aukafjárveifin§ vegsis eld-
Uppdráttur þessi er af hinu uni-
deilda Ifni-svæði i Marokkó, þar
sem mest var barist á dðgunum.
HeEmingi minni sífdarafli Akranes-
báta 1957 en árið áður.
Mestu munaði í ágúst og
nóvembermánuði.
Akranesi í gær.
Síldveiði Akranesbáta á því
liausti, sem nú var að líða, er
nieir en helmingi minni heldur
en hún var haustið 1956.
Alls veiddust í haust er leið
28 257 tunnur síldar á Akranesi
en 59 474 tunnur haustið áður.
Mestur munur var á veiðum í
nóvember- og ágústmánuði í
fyrra og hitteðfyrra. 1 fyrra (þ.
e. síðastliðið haust) veiddust
ekki nema 6661 tunna í nóvem-
bermánuði, en 22 209 tunnur i
sama mánuði árið á undan. 1
ágústmánuði bæði árin var
einnig mikill munur á afla. 1 s.
1. ágúst veiddust aðeins 1921 tn.,
en í ágústmánuði 1956 veiddust
11339 tunnur. 1 desember var
aflinn áþekkur bæði árin, en þó
heldur meiri árið 1956. En í því
sambandi ber að geta þess að í
desember 1956 voru ekki farnar
nema 52 sjóferðir frá Akranesi,
en í s. 1. desembermánuði 150
sjóferðir og veiddust þó um 460
tunnum minna.
Samkvæmt aflaskýslu Akra-
nesbáta í s.I. des. var heildarafl-
inn þann mánuð 11010 tunnur
hjá 21 báti í samtals 150 sjóferð-
um. Aflahæsti báturinn var- Sig-
urvon með 1043 tunnur í 11 sjó-
ferðum og næstir Bjarni Jóhann
esson með 8778 tunnur og Keilir
með 8720 tunnur eftir 7 sjóferðir
hjá hvorum bát.
Spennandi handknaft-
leikskeppni
Næstkomandi sunnudagskvöhl
senda Fimleikafélag Hafnar-
fjarðar og Knattspyrnufélag
Beykjavíkur beztu lið sín til
keppni í handknattleik að Há-
logalandi.
Efnt er til þessarar keppni í
ágóðaskyni fyrir væntanlega
þátttöku og för íslenzkra hand-
knattleiksmanna á heimsmeist-
arakeppnina í Berlín í vetur.
Keppni hefst kl. 8 um kvöld-
ið með keppni 2. flokks kvenna.
Þá verður háð keppni milli 3.
flokks karla og síðast keppa
meistaraflokkar FH og KR. Er
þess leiks beðið með mikilli eft-
irvæntingu, því þetta eru tví-
mælalaust tvö beztu handknatt-
Ieikslið í meistaraflokki karla,
sem nú eru til hér á landi og í
heild má segja að liðin séu mjög
jöfn og úrslit tvísýn í hverjum
leik þegar þau keppa.
Sambandsstjórnin í Wash-1 erfiðara uppdráttar en fyrr. Þó
ington á nú við harðnandi mót muni demókratar ekki hika
spyrnu að ræða á þingi, þar við, að veita fé ríflega til land-
sem hún er í minni hluta í báð-' varna.
um deildum. Þjóðþingið er nú komið sarn-
Eisenhower forseti hefur lagt an til fundar og hefur Eisen-
til við þjóðþingið, að það veiti hower forseti að undanförnu
, til viðbólar á fjárlögum þessa verið að vinna að hinum ár-
fjárhagsárs 1260 millj. dollara lega boðskap til þjóðþingsins,
til landvarna. j sem hann flytur er það kernur
Fénu skal varið til eldflauga saman jafnan í upphafi hvers
og stöðva, rannsókna og tækjja, árs.
m. a. rannsókna á hvernig unnt
verði að afstýra eldflaugahætt-
'iunni með því að eyðileggja eld-
flaugar,- sem eru á leiðinni.
Stjórn Eisenhowers á nú við
það að búa, að demokratar
hafa meirihluta í báðum þing-
deildum. Meðal þeirra er vax-
andi óánægja með Eisenhower
sem þjóðarleiðtoga, og þykir
það sem gerzt hefur á alþjóða-
vettvangi í seinni tíð, hafa
bent til, að hann sé ekki eins
heppilegur forystumaður og al- .
mennt var ætlað. Vafalaust I
kemur þetta sjónarmið einnig
fram til ávinnings flokknum
í næstu forsetakosningxim,
segja sumir fréttamenn, en
hvað sem um þetta sé, muní'
ýmis áform stjórnarinnar eiga
Hiítary hittir
Dr. Fuchs.
Sir Edmund Hillary kveðst
nú munu hitta dr. Fuch í stöð
„700“.
Eru það seinustu fréttir um
ágreining þeirra. — í Reuter-
fregn segir að það sé skylda
Sir Edmunds að greiða fyrir
dr. Fuchs sem bezt hann geti,
vilji dr. Fuch halda áfram
ferðum sínum, eins og upphaf-
lega var ætlað.
39651 á kjörskrá í
Reykjavík.
Sanxkvæmt upplýsingum frá
Manntalsskrifstofunni telur kjör
skrá í Reykjavík við bæjar-
stjórnarkosningarnar í mánuð-
inum 39 651 manns.
Er hér þó ekki um tæmandi
tölu að ræða um kosningabæra
menn í bænum, þar sem skráin
nær yfir alla þá, er 21 árs verða
til og með 23. janúar 1959. Er
það fólk skrifað á kjörskrá
með fyrirvara. Við síðustu bæj-
arstjórnarkosningar 1954 voru á
kjörskrá 36 825.
Eisenhower ávarpar
þjéðþingið á morgun.
Á morgun, fimmtudag, flytur
Eisenhower Bandaríkjaforseti
þjóðþinginu hinn árlega boð-
skap um ástand og horfur, seni
forsetinn jafnan flytur í jan-
úar, er þjóðþingið er komið>
saman til starfa.
Eisenhower hefur starfað að
ræðu sinni að undanförnu á
búgarði sínum við Gettysburg,
og er kominn aftur til Wash-
ington.
| Útvarpið, „The Voice of
American“ mun útvarpa ræS-u
I Eisenhowers um heim allan
eins og hann flytur hana.
■ Ræðuna hefur Eisenhower
'milli kl. 17.15 og 18.15 eftir
Greenwich meðaltíma (16.15—
17.15 ísl. t.) en flutningur ræð-
Atlantshafsráðið kemur sam- unnar mun taka um 30 mínút-
an til fundar í dag í París og ur.
Fundur Natoráðs
haldinn.
ræðir svörin til Búlganins.
A undan ræðunni verður út-
Afrit af bréfum ríkisstjórna varpað fréttum úr ýmsum
Frakklands, Belgíu og Banda- löndum og stendur sá frétta-
ríkjanna liggja fyrir fundinum. flutningur stundarfjórðung.
Engin svör munu verða birt í i Útvarpað verður til Evrópu
íá 11, 13, 16, 19, 25 og 31 mtr.
heild að sinni.
fé fennir í Grímsey.
Hefur ekki komið fyrir í manna minnum.
Frá fréttaritara Vísis. —
Akureyri í morgun.
I síðastliðnum mánuði fennti
fé í Grímsey í aftaka norð-
austan hríðarveðri en þar hefur
ekki fennt fé fyrr í minni
elztu manna.
Rétt um miðjan desember-
mánuð skall á stórhríð af
norðaustri í Grímsey og brast
hún skyndilega á. Sauðfé var þá
allt úti, enda hafði veður ver-
ið milt og gott dagana áður og
menn áttu ekki von jafn skyndi
legrar veðrabreytingar.
Geysilegt ofankafald var
jafnhliða hvassviðrinu, en
veðrið lægði fljótlega og er
leið nokkuð á daginn slotaði
því svo að menn gátu leitað
fjárins. Kom þá brátt í ljós að
allmargt hafði fennt þá um
daginn. Mörgu af því varð
bjargað, en nokkurar kindur
köfnuðu og fundust dauðar.
Elzti barnfæddur Grímsey-
ingur, sem kominn er nær átt-
ræðu, segist ekki vita til að þar
hafi fé fennt áður.
Aftaka hríðarveður gerði
svo aftur í Grímsey bæði á
jólanóttina og á gamlárskvöld
en olli þá ekki neinu tjóni.
Aðfaranótt s.l. sunnudags
gerði hláku og tók snjóinn þá
að miklu leyti upp svo að nú
eru hagar komnir upp að nýju
og fé beitt.
Sjór hefur lítið verið stund-
aður frá Grímsey að undan- ■
förnu sökum ógæfta, en s.l.
mánudag réru bátar með hand-
færi og var meðalafli á bát um
11 skpd. af þorski.
Að þessu sinni hefur enginn
! Grímseyingur leitað úr eynni í
atvinnuleit, eins og oft hefur
tíðkast, en nú búa eyjarskeggj-
ar sig af kappi undir væntan-
lega hrognkelsaveiði við eyna,
en s.l. vetur og vor var hrogn-
kelsaveiði þar óvenju góð.
Kvenfélagið Baugur í Gríms .
ey efndi til jólatrésskemmtunar
s.l. laugardagskvöld og var hún
vel sótt.