Vísir - 17.01.1958, Blaðsíða 12

Vísir - 17.01.1958, Blaðsíða 12
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir. Látið hann færa yður fréttir og annað Jestrarefni heim — án fyrirhafnar af yðar hálfu. Sími 1-16-GO. Munið, að þeir, sem gerast áskrifendur Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið ókeypis til mánaðamóta. Sími 1-16-60. Föstudaginn 17. janúar 1958 Svar Macmlðlans tið Bulganins: Þjóðirnar vænta mikils af fundi stjornarleiötoga. Boðar -annað svarbréf innan tíðar. Harold Macmillan forsætis- ráðherra Bretlands hefur svar- að fyrra bréfi Búlganins for- sæflisráðherra Sovétríkjanna. Kveðst hann munu víkja nán ara að fundi st|jórnarleiðtoga í öðru bréfi, er hann sendi hon- um sem svar við síðara bréfi hans, og gera þá og önnur at- riði að umtalsefni, en hann bið- ur Búlganin vera þess minnug- an, að þjóðir heimsins vænti sér mikils af fundi stjórnarleið ,toga stórveldanna ef haldinn yrði. Macmillan harmar í svari sí)iu, að sovétstjórnin ;sky|ldi hafa hætt þátttöku í smkomu- lagsumleitunum um afvopnun á vettvangi Sameinuðu þjóð- anna, en hefði hún fallist á, að sérfræðingar tækju til athug- unar eftirlit með afvopnun og banni við kjarnorkuvopnum, hefði málum þokað í rétta átt. Macmillan kvað stjórn sína mundu taka til athugunar til- lögurnar um hlutlaust belti og einnig, að gerður yrði griða- sáttmáli, og hann endurtók, að engin brezk ríkisstjórn mundi nokkurn tíma réttlæta ofbeldis- ; árás á sovétríkin eða vera þátt- !takandi í slíkri árás. íhaldsblöðin eru ánægð með svar Macmillans, og má þar til i nefn Daily Telegraph í London, iNewcastle Telegraph og York- shire Post, áhrifamikil blöð úti á landi, en Times, óháð, er ánægt með sumt í svarinu, en miður með annað. —. News Chronicle, frjálslynt, gagnrýn- ir svarið, og telur þá Maemill- an og Eisenhower báða í varn- arstöðu, en þeir ættu að vera j fremstir í fylkingu í friðarsókn, 1 og Daily Herald, blað jafnaðar- ímanna gagnrýnir Macmillan fyr ’ ir svarið, og ekki sízt þann ■ hægagang, sem blaðið telur i vera á svörum hans. j Macmillan heiðraður. Macmillan er nú á Ceylon og verður í dag sæmdur heiðurs- titlinum doktor í lögum við há- skólann þar í landi, en að þeirri athöfn lokinni fer hann aftur til fundar við Bandaranaika forsætisráðherra. Macmillan hefur verið mjög vel t'ekið á Ceylon. Dagsbrúnarfundurinn aivarlðg áminning fyrir kommúnísta. Stjórn þeirra varð fyrir þungri gagnrýni. Dagsbrún hélt fund í Iðnó í j gærkvöldi, og var þar allmikið; fjölmenni samankomið, enda bersýnilegt, að kommúnistar höfðu smalað á fundinn. Var fundur þessi haldinn vegna kosninga þeirra í Dags- brún, sem fram fara um helg- ina, og tóku átta af frambjóð- endum B-listans, lista lýðræð- issinna, til máls á fundinum. Voru kommúnistar ötulir við að trufla ræður þeirra með köllum og hrópum, og var bersýnilegt, að þeim var illa við þá gagn- rýni, sem fram kom á sttjórn þeirra í félaginu. Ræðumenn kommúnista forðuðust hins vegar eftir mætti að tala um starfsemi stjórnarinnar undan Kjarnorkustöðin í Shippingport í Pennsylvaníu hin fyrsta í heimi. Fímmtán ára kjarnorku|tröun í Bandaríkjunum. Markið er:Friðsamleg hagnýting til blessunar mannkyni. farin tvö ár, enda er það mesta afrek hennar að hafa komið í veg fyrir hvers konar kjara- bætur félagsmanna, meðan fjölmörg félög hafa fengið kjör sín bætt á ýmsan hátt. Átti stjórnin í vök að verjast, eins og við var að búast, því að aldrei hefur staðið á henni, þegar kommúnistar hafa taiið ástæðu til að reka Dagsbrúnar- menn út í verkföll til að þjóna pólitískum þörfum flokks þeirra. Fundurinn í gær var alvar- leg áminning fyrir stjórnina, sem óttast nú mjög völd sín og áfellisdóm óbreyttra verka- manna. Vinnið að sigri Sjálfstæðis- fbkksins ALLT Sjálfstæðisfólk í Reykjavík er hvatt til nð starfa fyrir Sjálfstæðisfiokkinn bæði á kjördegi og fyrir kjördag. Skrásetning á sjálfboðaliðum fer iram i skrifstofu SjúLf- stæðisflokksins í Sjálfstæðishúsinu dáglega kl. 9—12 og 13—19. Fólk er áminnt að láta s! : i >ig ■ »'fa sem f.> r, V': ‘ k ‘ ’ Sjúlts<«?55SsfektklWÍi:í'.l,': , *' Þegar „kynt“ var í fyrsta kjarnorkuofninum 1942 í Chicago, var talin svo mikil sprengingarhætta á ferðuni, að á verði var flokkur manna, reiðubúinn að hætta lífi sínu við björgunarstörf, ef illa færi, en til þess kom ekki. Allt gekk að óskum við framleiðslu orkunnar, sem nam Vz vatti. Þessi viðburður markaði í reyndinni upphaf kjarnorku- aldar. Nú, fimmtán árum síðar, hef- ir verið tekinn í notkun gríð- ar mikill karnorkuofn nálægt Pittsburg, sem framleiðir raf- magn til notkunar á iðnaðar- svæði, þar sem 250.000 manns búa. Er þessi kjarnorkuofn var tekinn í notkun yar ekki hafður nálægur flokkur þjálf- aðra björgunarmanna — slíkra flokka er ekki lengur. þörf — í þeirra stað eru korrjin full- komin sjálfvirk öryggistæki. Kjarnorkuofn þessi er hinn mesti, sem gerður hefir verið til friðsamlegrar hagnýtingar kjarnorku. Hinn mikli munur á þessum tveimur viðburðum gefur nokkra hugmynd um þá stór- kostlegu framför, sem orðið hefir á þessu 15 ára tímabili við framkvæmd kjarnorku- áætlunar Bandaríkjanna. Mikl- ar vonir hafa ræzt og fram- tíðarvonirnar eru jafnvel enn bjartari, því að mark Banda- ríkjaþjóðarinnar er hið sama í kjarnorkumálum nú sem 1942, „að efla varnir til vernd- ar hinum frjálsa hfeimi og nota kjarnorkuna til hagsbóta öllum þ óðum“. Sú þekking, sem aflað hefir verið, er notuð við vísindaleg- ar rannsóknir, í sjúkrahúsum, þar sem yfir 1 milljón sjúk- lingá njóta góðs af henni, og í ið.-iið Unnið er markvisst að því, að draumurinn um hag- nýtingu kjarnorku til að bæta hag mannkynsins rætist, með framleiðslu véla í margskonar kjarnorkustöðvar, smáar og stórar, til framleiðslu á ódýru rafmagni um heim allan. Árið 1960 verða starfrækt í Bandarkjunum 6 mikil kjarn- orkuver og eiga þrjú þeirra að framleiða rafmagn til heimila og iðnaðar, og tvö til fram- leiðslu rafmagns fyrir tvær miklar rannsóknastofnanir kjarnorkuráðs, og ein til fram- leiðslu rafmagns handa hern- aðarlegri stofnun. Sem stendur er unnið að undirbúningi 50 kjarnorkuvera, en mörg fleiri munu bætast við. Bandaríkin hafa boðið fram aðstoð á sviði friðsamlegrar hagnýtingar kjarnorku til þess að menn megi vera frjálsir og búa við öryggi og velmegun. Gaillard sfgraðl — Mtteö 20 athvwöii meirihtuta. Gaillard bar sigur úr býtum við atkvæðagreiíuluna í full- trúadeild þingsins í gær, en með naumum meirihluta. Þetta var í fimmta sinn, sem hann hefir farið fram á traust deildarinnar, og hefir hann aldrei sigrað með jafn naum- um meiri hluta og nú — 20 at- kvæða mún. Rætt var um eftirlaun til tveggja milljóna uppgjafaher- mana, sem hækka skyldu, en Gaillard ákvað frestun á mál- inu. Hækkunin, ef hún kæmi til framkvæmda nú, tefldi i hættu efnahagsviðreisnaráætl- un stjórnarinnar. Var tillaga fram komin um, að taka málið á dagskrá. Var það fellt sem að ofan segir, en Gaillard lýsti yfir, að hann myndi biðjast lasnar, ef deildin snérist gegn sér í málinu. Helga fékk á sig sjó. Vélbáturimi Helga frá Reykjavík fékk á sig sjó i fyrrinótt, er hún var að veið- um undan Jökli. Við ólagið brotnaði beitu- skúr á bátnum, lífbáturinn |brotnaði og gluggar í stýris- húsinu. Engin slys urðu á mönnum og komst báturinn heilu og höldnu til hafnar hér í Reykjavík og liggur hér nú. Helga hefir verið í útilegum undanfarið og veitt allsæmi- lega. Kom hún inn fyrir þrem dögum og hélt síðan út aftur og var búið að leggja einu sinní er hún tók á sig sjó í fyrrinótt, eins og áður er sagt. x-D Einn af „heSgum" mönnum Ind- Eands dæmdur til lífláts. Hafði gerzt einvaldur á smáþorpi og stundað stigamennsku. Það hefir vakið athygli iun| allt Indland og víða gremju,! að einn hinna svonefndu „helgu; manna“ (sadu) hefir verið dæmdur til lífláts. Menn þessir eru förumenn og skipta milljónum. Þeir lifa á ölmusum, fara þorp úr þorpi; og vinna aldrei ærlegt hand- tak. Eru þeir þung byrði á þjóðinni, en hún er svo strang- trúuð, að erfitt er að uppræta þessa „stétt“, enda þótt sjálfur Nehru hafi jafnvel tekið svo til orða, að rmriaj hinna belgu manna væri - kísíH. íjöl«u4 auðnuleysingja og letingja, sem lifðu á trúgirni almennings. Nýlega kom einn af þessu tagi til þorps í Uttar Pradesh- fylki — um 150 km. frá New Delhi — og gerðist hann eins- konar einvaldur þar. Lét hann þorpsbúa ræna ferðamenn til að afla fjár, og tókst ekki að handsama mann þenna, fyrr en fylgismenn hans höfðu oröið 5 lögreglumönum að bana, eto auk þess dóu 8 fyl gismenn'hans í viðureign við lögregluna. Níi . hefir hinn helgi maður, sem ©r 35 ára, T«ri dæmdur til deaðfeú

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.