Vísir - 05.05.1958, Blaðsíða 11

Vísir - 05.05.1958, Blaðsíða 11
Mánudaginn 5. maí 1958 VfSIR II Slökkvilið kvatt íit sex sinnum um helgina. Hvergl samt um mikla eldsvoBa né verufegt tjón aB ræða. Um helgina var mikið aðorðið tilfinnanlegt. Þá var gera hjá Slökkviiiðinu í Rvík, slökkviliðið tvívegis kvatt út á en hvergi þó um mikla elds- 7.tímanum í gærkveldi, fyrra voða né verulegt eldtjón að skiptið að skemmtibát við ræða. j Grandagarð, en búið var að Á laugardaginn var slökkvi- slökkva í honum þegar komið liðið kvatt um hádegisleytið að var á staðinn. Seinna skiptið að Borgarhólsbraut 1 í Kópavogi bragga eða skála við Kleppsveg. vegna elds sem kviknað hafði út Þar höfðu krakkar kveikt í frá olíukyndingu. Hafði olía kassadóti sem stóð við skálann helzt á gólf í kyndingarklefan- um og síðan kviknaði í. Búið var að slökkva þegar slökkvi- liðsmennirnir komu á staðinn. í gær var slökkviliðið þríveg is kvatt á vettvang. Fyrst um hálfþrjúleytið að bragga sem Landleiðir h.f. nota fyrir verk- og hlauzt ekki af frekara tjón. I nótt, á 3. tímanum, var slökkviliðið kvatt út vegna elds í öskutunnu á Hverfisgötu, en í morgun, klukkan rúmlega 8 var það kvatt að Völlum í Blesu gróf, sem er múrhúðað timbur- hús. Þegar slökkviliðsmennirn- stæði á Grímsstaðaholtinu. Eld- ir komu á staðinn lagði mikinn ur hafði komizt milli þilja í reyk út um baðherbergisglugga bragganum og varð slökkviliðið en þegar inn kom reyndist eld- að rjúfa nokkuð af þekjunni til j ur vera í fatahrúgu á baðher þess að komast að eldinum. Úr bergisgólfinu. Ekki var talið að því gekk slökkvistarfið greið- j annað tjóii hafi orðið, svo lega og ekk'i talið að tjón hafi n<>kkru næmi, en í fötunum. Vítaverð og hættuleg skemmdar- verk unnin á vita. Spellvirkjar hafa tvívegis heimsótt nýjan vita á Hólmsbergi. Tvívegis á einu ári hafa verið framin vítaverð skemmd- arverk á vitanum á Hólmsbergi milli Leira og Keflavíkur. Viti þessi var byggður árið 1956 og tekin í notkun 1. marz s.l.. — S.l. sumar voru unnin skemmdarverk á vitanum með riffilskotum. Eyðilögðust þá 4 rúður í vitabyggingunni og einnig hafði verið skotið til marks á hurð vitans með riffli og ennfremur skotið stórt gat á hana með haglabvssu. Hefur þurft að skjóta hvað eftir ann- að á hurðina með með hagla- byssunni, því hún er mjög þykk og sterk. Er vitinn var tekir, í notkun 1. marz vanuðust menn til að vitinn fengi að vera í friði fyrir skemmdavörgum þessum en því var ekki sð heilsa. Nýlega hafa spellvirkjar, þeir sömu eða aðrir, heiinsótt vitann og að þessu sinni skilið eftir sig öllu ljótari vegsummerki en í fyrra sinnið. Hafa verið skotn- ar í sundur 4 rúður á sjálfu ljóskerinu með a.m.k. 7 kúlum. úr riffli, hlaupvídd 22, og með þeim afleiðingum að græna glerskífan'í ljósakrónunni hef- ur brotnað í mél og einnig kvarnast út úr sjálfri linsunni. Rúðumar í ljóskerinu eru mjög þykkar og hafa óefað varnað því að ekki hlutust meiri skemmdir á þeim dýru tækjum sem þarna eru. Viti þessi er gasviti en mjög full- kominn og þannig úr garð gerður að tengja má hann við rafmagn ef þurfa þykir. Vitavörðurinn á Garðskaga hefur umsjón með þessum vita og kemur vikulega til umsjón- ar, og eftirlits. Hami uppgötv- aði þessi skemmdarverk á föstu- dag, svo þau hafa verið framin s.l. viku. Er það eindregin áskor un til allra er einhverjar upp- lýsingar kunna að geta gefið urn þessi fáheyrðu skernmdar- .. verk að koma þeim til réttra yfirvalda, lögreglunnar í Hafn- arfirði eða sýsluskrifstofunnar. Slík fáheyrð skemmdarstarf- semi getur stofnað lífi og lim- um margra sjófarenda í bráða hættu. Rykfrakkar, íslenzkir og útlenzkir. Sportskyrtur í miklu úrvali. Herraföt, góð og ódýr. Sokkar, bindi, manchettskyrtur. STAKKUR, Laugavegi 99, gengið inn frá Snorrabrau.t. Sími 24975. Hallgrimur Lúðvíksson lögg. skjalaþýðandi í ensku og þýzku. — Sími 10164. VORMÓT I. fl. á Melavelli í kvöld kl. 8.30. K. R. — Þróttur. Dómari Bjarni Jensson. (58 K. R. Knattspyrnumenn. Meistara og II, fl. Æfing í kvöld kl. 8.30. Fjölmennið. Þjálfarinn. (000 KARLMASSÚR fundið. — Uppl. í síma 33103 eftir kl. 7 á kvöldin. (143 ** I Arás — Gefið börnunum SÓL GRJÓN á hverjum morgni...! Góður skammtur af SÓL GRJÓ» NUM með naegilegu af mjólk sér neytandanum fyrir'/3 af.dag- legri þörf hans fyrlr eggjahvítu. efnl.og færir likamanum auk þess gnægð af kalki, járni, fosfór og B-vítamínum. Þessvegna er neyala SÓL GRJÓNA leiðin til heil- brlgðl og þreks fyrlf börn og ungiinga. AlFAPPÍR ♦ PAPPA » TAU ♦ GLER ♦ VIÐ LPEEUT" H SKIPHOLT S H SIMI 1 9909 Framh. af 1. síðu. þeir skildu. Kunningi hins rot- aða flutti hann að því búnu heim til sín, en þegar sá raknaði úr rotinu í gærmorgun og ætlaði að fá sér morgunverð, kom hann engu niður því kjálkarnir störf- uðu ekki. Var þá leitað læknis og kom í Ijós að maðurinn var kjálkabrotinn. Hefur hann nú kært málið til rannsóknarlög- reglunnar. Árás. 1 fyrrinótt réðst þýzkur mað- ur inn í íbúð fyrrverandi unn- ustu sinnar, þar eð hann taldi sig eiga henni grátt að gjalda. Braut hann fyrst hurð og dyra- umbúnað íbúðarinnar og kommst þannig inn. Þegar inn kom, kom til talsverðra átaka, en að því búnu tók Þjóðverjinn allt sðm hann fann lauslegt þar inni grýtti því í gólfið og braut. Var kallað á lögregluna til þess að skakka leikinn og var maðurinn þá enn svo æstur í skapi og óstýrilátur að lögreglan varð að setja hann í járn og flytja í fangageymsl- una. Stuldur. 1 gær var farið í tvo mann- lausa bíla báða í Bústaðahverf- inu og voru allir hjólkopparnir hirtir af öðrum feirra, en öll verkfæri hirt úr hinum. Sumarbúðir K.F.U.M. í Vatnaskógi verða starfræktar | sumar eins og undanfarin ár. Gefst drengjum og unglingum kostur á að dveljast í sumarbúðunum, samkvæmt eftirfar-< andi skrá: . í Dvalarflokkarnir í sumar: 1. 13. júní til 20. júní 9 ára 0g eldri 2. 20. júní til 27. júní 9 — — — 3. 27. júní til 4. júlí 9 — — — 4. 8. júlí til 18. júlí 14 — — — 5. 18. júlí til 25. júlí 12 — — — 6. 25. júlí til 1. ágúst 12 — — — 7. 1. ágúst til 8. ágúst 9 — — — 8. 8. ágúst til 15. ágúst 9 — — — 9. 15. ágúst til 22. ágúst 9 — — — 10. 22. ágúst til 29. ágúst Fullorðnir I I Innritun fer fram á skrifstofu K.F.U.M., Amtmannsstíg J 2 B, kl. 5,15—7 e.h. alla virka daga nema laugardaga. —< Innritunargjald, kr. 20,00 greiðist við skráningu. — Nánarl upplýsingar fást á .skrifstofu K.F.U.M., sími 17536 og 13437. ' Skógariiienn K.F.U.M. '.iáB Tilbcð óskast í að leggja raflögn og símalögn í fyrirhugaðl póst- og símahús á Akranesi. Teikningar og útboðslýsing verða afhentar á skrifstofu yfirverkfræðinga í Jandssíma* húsinu í Reykjavík og á landssímastöðinni á Akranesi gegn 500 króna skilatryggingu. 1 Reykjavík, 3/5 1958. | Póst- og símamálastjórnin. e ~T Stúlka óskast til afgreiðslustarfa. SSfd & fsski?r Bergstaðárstræti .37. ix Kvennadeild Slysavarnafélagsms í Reykjavík heldur afmælisfund sinn miðvikud. 7. maí í Sjálfstæðig* húsinu kl. 8 með sameiginlegri kaffidrykkju. Til skemmtunar: Leikþáttur, söngur með guitar-undirleik og kvennakórino syngur, stjórnandi Herbert Hriberchek. Undirleik annast Selma Gunnarsdóttir. D A N S. ý1 Aðgöngumiðar seldir í Verzl. Gunnþórunnar Halldórs- dóttur, Hafnarstræti. ífil «:

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.