Alþýðublaðið - 16.01.1958, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 16.01.1958, Blaðsíða 5
Fimmfcudagur 16. januar 1958 A 1 í> ý ð u b 1 a 5 i 5 6 EINN af kunnustu iðjuhöld- um í Evrópu, hollenzki verk- smiðjueigandinn B. van Leer, er Iátinn fyrir skömmu í París, 74 ára að aldri. Van .Leer var einkennilegur maður. Og ævi hans varð líka dálítið' óvenjuleg. Ungur að ár- um setti hann á stofn verk- smiðju, þar sem framleiddir voru ásar og legur á járnhverfla. Brátt var sagt að þar sem þeir er framleiddu járnhverfla vildu ekki kaupa af honum ása og leg ar; ictj hann krók koma á móti taragði og setti sjálfur á stofn járnhverflaverksmiðjur. Víst er um það að smám sanian kom taann á - fót verksmiðjum víða um heim, og ekki alis fyrir löngu átti hann 20 verksmiðj ur í Evrópu og öðrum heims- álfum. Danski framkvæmdastjórinn K. Hannover kveðst hafa \ kynnzt honum fyrst á alþjóð- ‘legri ráðstefnu, sem hann hafði boðað til í Amsterdam fyrír ná- lægt þrjátíu árum. Þegar funda höldum dagsins lauk, bauð taann öllum þátttakendum tii taátíðarhljómleika í tónlistar. taöll borgarinnar, en í hléinu af- henti ritari hans hverjum um sig vélritaða skýrsiu um það, se.m gerzt hafði á fundinum. .Nokkrum árum síðar heim- sótti danski forstjórinn Van Leer enn í skrifstofu hans. Kveðst sá danski aldrei á ævi sinni hafa augum Itið stærra skrifborð en það, sem hann saí við, en á véginn bak við það var gert heimskort mikið og merktar á það allar verksmiðj- nr hans þá. Mussolini haíði haldið ræðu kvöldið áður, og Van Leer, sem ekki var toikill aðdáandi hans, spurði danska forstjórann hvað ihann segði um ræðuna. Sá danski kvaðst að vísu hafa litið á hana í dag- blöðunum, en lézt ekki skilja hollenzku það vel, að hann gæti sagt álit sitt. Van Leer hringdi samstundis á ritara sinn og bauð að ræðan skyldi tafarlaust þýdd á ensku. Og þegar hann heyrði að Daninn væri á leið til Lundúna, kvaðst hann mundu geta greitt götu hans þar, og bað um símasamband við skrlf- stofur sínar í Lundúnum, — tafarlaust. Spurði síðan þann danska hvort hann gæti getið sér þess til hvert væri tóm- stundágaman sitt. — Temsla f jölleikahúsahesta, svaraði hann sjálfum sér, þegar sá danski lét gátuna óleysta. — Þú ættir að líta á þá. Að svo mæltu fylgdi hann Dananum til fjölleikahúss, sem hann átti þá, og var þar sæti fyrir um 300 áhorfendur. Og þegar kveikt hafði verið á Ijós- kösturum, lét hann reka inn á hringsviðið hesta nokkra, lét smella í svipunni, og þegar fák- ar þeir höfðu runnið brautina umhverfis sviðið að vild hans, námu þeir staðar frammi fyrir honum og risu upp á afturfæt- urna. Þá voru reknir inn nokkr- ir arahiskir gæðingar, sem hann kvaðst enn ekki vera bú- inn að temja. — Á hverjum degi, þegar ég dvelst hér í Amsterdam, eyði ég hér hálfri annarri klukkústund í hestatemslu. Það hlítur vel, því að engin önnur hugsijn kemst að á meðan á því stend- ur. Hann kvaðst efna til sýninga nokkrum sinnurn á ári og selja aðganginn dýru verði, „enda eru sýningarhestar mínir þeir beztu í Evrópu.“ Og ári síðar, um páskaleytið, var hann sjálf- ur kominn til Danmerkur með tólf úrvals sýningarhesta, sem hann stjórnaði sjálfur við fjol- IHÍlIIIÍÍIIiÍIIÍiiiÍ lllffll Dagsbrún. Tilkynning Kosning stjórnar, varastjórnar, stjornar vinnudeilu sjóðs, trúnaðarráðs og endurskoðenda fyrir árið 1958, fer fram í skrifstofu félagsins dagana 18. og 19. þ. m. Sömu daga fér. einriig fram allsherjaratkvæðagreiðsla um laga breytingar. Laugard. 18. jan. hefst kjörfundur kl. 2 e. h. og stendur til kL 10 e. h. Sunnud. 19. jan. hefst kjör- fundur kL 10 f. h. og stendur til kí. 11 e. h. og er þá kosn ingu lokið. ................... .... Atkvæðisrétt hafa eingöngu aðalfélagar, sem eru skuldlausir fyrir árið 1957. Þeir, sem enn skulda, geta greitt gjöld sín meðan kosning stendur yfir og öðlast þá atkvæðisrétt. Inntökubeiðnum verður ekki veitt móttaka eftir að lcosning er hafin. ............' Kjörstjórn Dagsbrúnar. leiksýningar í Kaupmannahöfn. — en aðeins nánustu kunningj- ar hans þar fengu að vita hver hann í rauninni var. Hélt hann þeim hinar dýrlegustu veizlur í glæsilegustu Salarkynnum borgarinnar og sagði þeim frá nýjum stálverksmiðjum, er hann væri að koma upp í Hol- landi á milli þess sém hann sveiflaði svipunni að hestum sínum í fjölleikahúsinu, og virtist þeim ógerlegt aö sjá hvort hann mæti meira, — verksmiðjurnar1 eða fjölieika- hesta sína. Þessar stálverksmiðjur hans fullnægðu ekki aðeins ströng- ustu kröfum hvað alla fráto- leiðslutækni snerti, heldur starfrækti hann þar veitinga- hús með sætum fyrir 250 gesti og umhverfis verksmiðjurnar var einn hinn fegursti biómgarð ur í Hollandi, þar sem tólf fast- ráðnir garðyrkjumenn sýndu sína list og tækni. Þegar haft var orð á því að hann legði mik- ið í kostnað, kvað hann þetta sinn máta að auglýsa. „Það koma að jafnaði þúsund gestir hingað á vi-ku og er þeim veitt- ur allur beini ókeypis. Svo er það kaup tólf garðyrkjumanna. Þetta er að vísu verulegur kostnaður, en ég geri ekki ráð fyrir að önnur fyrirtæki hljóti jafn athyglisverða auglýsingu fyrir svipað verð.“ Þegar Þjóðverjar gerðu inn- ráSína í Holland, varð Yan Leer að flýja til Bandaríkjanna rneð konu sína, — og hesia. Hann átti að vísu verksmiðjur í Bandaríkjunum, en þar eð hann var þegn þjóðar á valdi fjandmanna, voru þær taldar „eígn fjandmanna“, og hafði hann því ekki af þeim neinar tekjur. Þá tók hann að sýna hesta sína, og eftir tæpt ár hafði hann komið sér upp fjölléíka- húsi, sem hann rak af írábær- um dugnaði. Eftir það vár hann stoltastur, er hann sýndi kunn- ingjum sínum langar greinar um fjölleikasýriingar hans og hesta, sem birzt höfðu í banda- rískum blöðum á styrjaldarár- unum. Þegar styrjöldinni lauik leið ekki á löngu áður en hann vár farinn að leggja stund á stóriðj una aftur, og af enn meira kappi en nokkru sinni fyrr. Hann flaug nú í einkaflugvél á milli : verk'smiðjanriá, en hún var búin öllum þægindum, með al anriars baðh'erbergi, —- enda voru sumar af verksmiðjum hans í Suður-Áfríkú, aðrar í Ameríku, margar í Evrópu og nokkrar í Asíu, svo harirí var oftasf á ferð og flugi. Van Leer dáðist mjög að CHuréhilI, og eitt áinri er hann heyrði að hanri var staddur á Hollandi riotaði hari ntækifærið og vildi gefa honum tvo beztu .sæðingana sína, þar sem Ohurchill var á yrigr; árum ahnálaður hestamaðui’. ’ Þakk- aði hann Van Leer goít boð, kvaðst fyrir lóngu hættur að koma á hestbak, en sariit lang- aði sig hálft um hálft að líta á fálkaria. Og þegar hann sá þá, stóðst hana ekki rriátið, rétti Van Leer staf sinn og mælti: „Haltu í ístaðið, lagsmaður.“' Van Leer hafði gaman af sýninaum. Hann ér nú horfinn úr fjölleikahúsi þéssa heims, eftir að hafa skemmt sér kon- unglega. UM SÍÐUSTU ITELGI hefði danska skáldið Kaj Munk orðið 60 ára, ef hann hefði lif að. í því tilefni gefur hans gamli forleggjari út þrjár bækur: Skólaútgáfu af Cant, stydta og nokkuð breytta út- gáfu af ævisögu séra Nöj- gaards, sem var æskuvhiur Kaj Munks, — loks eins konar sjálfsævisögu Munks, þ. e. bréf þau og ritgerðir, sem fjalla um hann sjálfan. Hefur séra Nöjgaard valið í þá bók. Flest þau bréf, sem verðmætust eru talin til skilnings á léikrituni hans, ritaði háriri. prófessor Hans Brix, en þau hafa hiris vegar ekki verið gefin út í heild, aðeins brot og undir dul nefni í bók Brix, Hurtigt svandt den lvse sommer. Har- ald Mogensen segir í Politik- en, að í samanburði við þau arnar-bréf, sé mest allt í hinrii nýju bók gráspörvatíst. Kon- unglega leikhúsið minntist einnig dagsins með nýrri sýn- ingu á leikriti Munks, En Idea- list. Meðal leikenda er Anna Borg. Loks má geta þess, að í kgl. bókhlöðunni í Kaup- mannahöfn stendur nú yfir sýning til minningar um Munk, og var hún opnuð á af- mælisdaginn, 13. janúar. — H — BANDARÍSKA kvikmýridin 12 angry men — eða Tólf reiðir menn — er einhver at- hyglisverðasta kvikmynd, sem gerð var á síðastliðnu ári. Mynd iri fjallar um úrskurð kvið- dóms í morðmáli, en er ó- vénjuleg að því leyti, að hún gerist öll í því herbergi, sem kviðdómnum er feng’ið til að koma sé sarnan um úrskurð sinn. Eigi að síður er myndin ótrúlega spennandi. Er þar fjallað um efnið með sál- fæðilegum skýringum, svo sem. oft er háttur í bandarísk- um kvikmyndum. En að tækni til minnir þess.i mvnd ekki all- lítið á kvikmynd Danans Carl Th. Dreyers um Jeanne d’Arc, andlitsmyndirrnar skipta miklu máli. Henry Fonda og Lee J. Cobb með aðalhlutverkin. - -II — TÖLUVERÐAR horfur eru taldar á því, að Hamletsýn- ingarnar í Kronborg verði teknar upp, aftur í sunaar, en þær hafa legið niðri sakir fjár skorts síðan sumarið 1954. Það ár sýndi brezkur leikflokkur frá Old Vic leikhúsinu leik- inn og lék Richard Burton titilhlutverkið og Claire Bloom Opheliu. Auk erfiðleika á að útvega nægilegt fé í styrk til að halda áfram þess- ari merkilegu menningarstarf- semi, reyndist veðráttan oft duttlungafull og jók enn á fjárhagsörðugleikana, þegar aflýsa þurfti sýningum alltof oft. Hins vegar hafa Haml'et- leikirnir orðið mikið til þess að kynna Danmörku og danska me'nningu erlendis, og aukið ferðamannastrauminn. Eru því öflug samtök í Dan- mörku tekin að vinna að því, að koma fótum undir þessa leik starfsemi á ný. Takizt þetta í sumar, er talið líklegt, að danskur leikflokkur sýni Ham let í hinum sögufræga kast- alagarði í sumar. Meðal kunnra leikara, sem leikið hafa Hamlet í Kronborg, má nefna Bretann Sir John Guil- gud, Sir Laurence Olívier, Michael Redgrave, Þjóðverj- ann Gustaf Grúndgens og Norðmanninn Ilans Jakob Nilsen, sem nýlega er látinri. — II — JOHN PATRICK, sem skrifað hefur leikritin. Segðu stainlrium, sem Leikfélag Reykjavíkur sýrrdi 1951 ,og Tehús Ágústmánans, sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu í fyrra, hefur nú enn á ný samið leikrit, sem leikhúsin flykkjast til að sýna. Leikrit- ið heitir „The Curious Mrs. Savage“ og segir þar frá rosk- inrii konu, sem hefur lausa skrúfu,; þj |ist af þeirri teg- und brjálsemi, sem kölluð er hjartagæzka. Min-ni leikritsins eiri því ekki ósv.ipað og hjá franska skáldinu Giraudoux í. „La Folle de ChaiIlot“, v.it- lausu konunni frá Chaillot. — Léikritið haut ágætar viðtök- ur' vestra og eru hafnar á því eða eru að hefiast sýningar víða urn Evrópu. T. d. avr ný- lega frumsýning á leikritinu í Kaupmannahöfn. — H — UM FÁTT er nú meira rætt meðal tónlistarmanna en. elekróniska tónlist, og telja. sumir, að þarna hafi opnast nýir heimar möguleika, en. aðrir hlæja eða yppta öxlum. í ýmsum löndum eru þó kom- in á fót eða verið að rei'sa. stúdíó fyrir elektró'niska tón- list, t. d. í Þýzkalandi, Milano og nú er í ráði að reisa eina slíka í Svíþióð. Ýmis tónskáld hafa aflað sér frægðar fyrir elektróniska tónlist, t .d. Þjóð- verjinn Stockhausen. Á hljóm leikum, þar sem flutt er elek- trónisk tó.nlist, sitja menn fyr- ir auða sviði, en elektróniska tónlistin er þá þangað komin frá einhveriu studíól og síðan útvarpað gegnum hátalara. Um nótnaskrif er h.eldui ekki að ræða í elekiróniskri músik, heldur ger.ir höfundur eins konar uppdrátt að lag'inu.. Silkisnúrur í mörgum litúm Gardínubúðin Laugaveg 28 (Gengið inn frá götunni)

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.