Alþýðublaðið - 16.01.1958, Blaðsíða 8
Alþýðublaðið
Fimmtudagur 16. janúar 1958
Leiðir allra, sem ætla að
kaupa eða selja
Bf L
liggja til okkar
Bíiasalan
Klapparstíg 37. Sími 19032
Áki Jakobsson
Og
Kristján Eiríksson
hæstaréttar- og héraðs
dómslögmenn.
Málflutningur, innheimta,
samningagerðir, fasteigna
og skipasala.
Laugaveg 27. Sími 1-14-53.
Húseigendur
önmimst allskonar vatns-
og hitalagnir.
HiíaSagnir s.f.
Símar: 33712 og 12899.
Húsnæðis-
miðlunin,
Vitastíg 8 A.
Sími 16205.
Sparið auglýsingar og
hlaup. Leitið til okkar, ef
þér hafið húsnæði til
leigu eða ef yður vantar
húsnæði.
Samúðarkort
Slysavarnafélag Islands
kaupa flestir. Fást hjá slysa
vamadeildum um land allt.
í Reykjavík £ Hanny ’ðaverzl
uninni í Bankastr. 6, Verzl.
Gunnþórunnar Halldórsdótt
ur og í skrifstofu félagsins,
Grófin 1. Afgreidd í síma
14897. Heitið á Slysavarnafé
Iagið. — Það bregst ekki. —
KAUPUM
prjór.atuskur og vað-
málstuskur
hæsta verði.
Áiafoss,
Singholtstræti 2.
Sigurður Ólason
Hæstaréttarlögmaður
Austurstræti 14.
Sími 15535.
Viðtalst 3—6 e. h.
Minningarspiöld
D. A. S.
fást hjá Happdrætti DAS,
Vesturveri, sími 17757 —
Veiðarfæraverzl. Verðanda,
sími 13786 — Sjómannafé
lagi Reykjavíkur, sími 11915
— Jónasi Bergmann, Háteigs
vegi 52, sími 14784 — Bóka
verzl. Fróða, Leifsgötu 4,
sími 12037 — Ólafi Jóhanns
synl, Rauðagerði 15, sími
33096 — Nesbúð, Nesvegi 29
----Guðm. Andréssyni gull
smið, Laugavegi 50, sími
13769 — í Hafnarfirði í Póst
Rásinu, sími 50267.
LEIGUBÍLAR
Bifreiðastöðin Bæjarleiðii
Sími 33-560
Síminn er 2-24-40
Borgarbílastöðin
—o—
Bifreiðastöð Steindórs
Sírni 1-15-80
Bifreiðastöð Reykjavíkui
Sími 1-17-20
5ENDIBÍLAR
Nýja sendibflastöðin
Sími 2-40-90
Sendibflastöðin Þröstur
Sími 2-21-75
»♦<»♦♦♦»♦♦♦»♦♦♦♦♦♦»» ♦»♦»}
Framhald af 6. síðu.
styrktar tónlistinni í landinu.
En á sama tíma hafa þessir
sömu menn látið sér lynda að
flokka hljóðfæri með ,,lúxus:i-
varningi, svo að t. d. píanó, sem
kostar 6—7 þúsund krónur í
innkaupi erlendis, er fyrir háa
tolla af ýmsum tegundum kom-
ið upp í 18—20 þúsund krónur
þegar það er komið 'heim til
kaupenda hér á landi. Stangast
þetta nú ekkert á hjá þeim
blessuðum? — Einhvern veginn
finnst mér þetta bera vott um
svo flókið gáfnafar, að einfald-
ir menn eins og ég ættum ekki
að leggja út í það að skilja rök
þingmannanna okkat- í þessum
efnum. — En sjái beir sér nú
ekki fært að lækka toilana stór-
Iega, þá ættu þeir að minnsta
kosti að samþykkja eina alls-
herjar undanþágu undan tolli
á hljóðfærum til félagsheimila
og samkomu’húsa hinna ýmsu.
byggðarlaga. Það hljóta þeir þó
að sjá sjálfir. Jæja, ég heid svo
að ekki sé þörf að orðlengja
þetta frekar, en allir skilji livað
það er, sem ég hef gengið með í
maganum undanfarin ár!
5.
Fyrst ég er nú kotnir.n Jiér í
daginn og veginn mað mínar
áhyggjur, er bezt að ég víki
nokkrum orðum að vinum mín-
um prestunum. Lóðið er nefni-
lega það, að fyrir þó nokkrú síð-
an vorum við að rabba saman,
Jón Þórarinsson tónskáld og ég.
Hvort sem við ræddunt nú leng-
ur eða skemur, þá braut Jón
upp á nokkru, sem ég að vísu
vissi, en hafði ekki hugsað út í.
Og það er þetta: Hvernig stend-
ur á því að íslenzkir prestar
geta ekki komið sér saman um
hvernig ,;Faðirvorið“ á að
hljóða? Við, foreldrar barna,
sem erum að reyna að kenna
þeim „Faðirvorið“ eins og okk-
ur var kennt það í æsku, lerid-.
um oft í óttáíégum vandræðum,
þegar prestarnir eru að flytja
þessa bæn í messunum. Þeir
ha'fa alls konar tilbrigði á „Fað-
irvorinu", og hverju eigum við
að svara blessuðum börnunum,
ef þau koma hlaupandi til
manns og segja: „Mamma --
eða pabbi, presturinn kann ekki
Faðirvorið“? Einhverra hlilta
vegna finnst mér, og ég býst
ekki við að ég sé eirin um þá
skoðun, að ,,Faðirvorið“ eigí að
vera svo rótfast í biblíunni, svo
ákveðið í textaþýðingunni, að
þar megi engu orði breyta. Ég
leyfi mér hér að segja, að ég hef
heyrt svo ótrúlegar útgáfur af
„Faðirvorinu“, að börnin
myndu alls ekki þekkja það fyr-
ir sömu bæn. Sá merki maður
Jónas Jónsson frá Hriflu hefur
oftar en einu sinni kvartað yfir
því á prenti, að unglirigar kunni
ekki „Faðirvor11 og þessi kvört-
un er v-afalaust á rökum reist.
— En ég spyr: Er nú að furða,
þegar sjálfir prestarnir eru að
hringla með textann ýfð guðs
þjónustur? Getur nú ekki biess
aður biskupinn gefið út tilskip-
un, eða prestarnir hans kofniö
sér saman um að „Faðirvorið“
sé nú sú bæn, sem þurfi að vera
friðhelg fyrir þeim mönnum,
sem langar til að hafa alla hlutj
öðruvísi en aðrir?
6.
Fyrst ég er nú farinn að tala
um andleg mál — eða kirkjunn
ar mál, þá er kannske ekki úr
vegi að ég að lokum drepi ör-
lítið á viðskipti okkar,, nokkurra
söngvara, við kirkjunnar menn
hér í Reykjavík. Okkur hafði
sem sé lengi þótt að við guðs-
þjónustur væri tónlistin allt of
takmörkuð og tilbreytingalaus.
Við jarðarfarir, við skírnarat-
hafnir, við hátíðamessur og
venjulegar messur, alltaf eru!
það sömu sálmalögin, sem mað-:
Ur heyrír. Kannske er skipt um j
textann, sálmana, en lögin eru
þau sömu: „í dag er giott í döpr !
um hjörtum“ og „Þú Kristur, I
ástvin alls sem lifir“ — þelta
eru sömu lögin; — líka: „Nú ár-
ið er liðið í aldanna skaut“ og 1
„Ég lifi og ég veit hve löng er |
míri bið“. Og ég leyfi mér að |
efást um að sáímálögin, sem
sungin eru sunnudag eftir
sunnudag, ár eftir ár, séu fleiri
en 20—25, kannske 30.
Okkur datt því í hug, nokkr-
um söngvurum, ég held fyrir
þrem árum siðan —- að bjóða
prestum og organistum í Rvik,
að við skyldum læra eitt gamalt
íslenzkt sólmalag, gjarna úr
Grallaranum, og svo eina út-
lenda hymnu eða lófsöng hvert
okkar, og skipta okkur síðan
niður á kirkjurnar hér i höfuð-
staðnum og syngja þar við
venjulega messúgjörð á sunnu-
dögum yfir véturinn. Þetta
hefðu orðið að minnsta kosti 14
ný sálmalög, sem þarna hefðu
komið fram við guðsþjónustur í
hverri einustu kirkju Reýkja-
víkur á vetri. Þetta boð hefur
verið gert — að vísu munnlegá
— mörgum prestum og organ-
istum Reykjavíkur, og þeir aliir
verið sérstaklega þakkiátir fyr-
ir boðið og hrifnir af þessari
hugulsemi. Við settum þó eitt
skilyrði: það, að prestarnir sjálf
ir eða organistarnir kölluðu
með okkur fund, þar sem þetta
yrið undirbúið og skipuíagt að
eirihverju leyti. Nú •— síðan
þetta var eru liðin ár og dagar.
— Enginn kallar saman fund,
■— kirkjukórarnir syngja sömu
sálmana og prestarnir eru ó-
sköp ánægðir með þetta allt
saman, og hvers vegna skyld-
um við þá ekki vera það líka?
Það kemur fyrir að kvartað er
yfir lélegri kirkjusókn. En hvað
er gert til úrbóta? Hvað er gert
til að auka áhuga safnaðarins?
Það er örugglega ekki gert með
því að auka á fjölbreytni tón-
listarinnar í kirkjunni. Mér er
ekki grunlaúst að með öðrum
þjóðum skipí tónlistm veglegri
sess við guðsþiónustur en hér
hjá okkur. Og það er ekki laust
við að mér þyki hálfgerður let-
ingiábragur á þéssiim ágætu
kirkjunnar mönnurn að taka
ekki þessu boði okkar söngvar-
anna. Það gæti þó aliíaf-verið
einn liður í t.ilraun til að auk.a
kirkjusóknina. En se:n sagt:
Þeir um það. Nú er ég víst bú-
inn að segja meira cn nóg í
kvöld og hætti þess vegna og
býð góða nótt.
ÞorvaEdur Ari Arason, hdl.
LÖGMANNSSKRIFSTOFA
Skólavörðustíg 38
c/o Páli Jóh. Þorlcifsson h.f. - Póslh. 621
Símar 15416 og IU17 - Simnefni: Aii
Frámlíald af 12. sITSn.
ingarinnar beri upp á útgáfu-
dag nýrra íslenzkra fr.'merkja,
meðal annars vegna þess, að
póstsstjórnin hefur gefið ielag-
inu vilyrði fyrir, að á sýning-
unni verð notaður sérstakur
póststimpill sem minnir á þessa
fyrstu íslenzku frímerkjasýn-
ingu og sem um leið mun gefa
bréfum þeim er þar verða
stimpluð og póstlögð, — sér-
stakt safnaragildi og mun því
maður frá pósthúsinu í Reykja-
vík, sem veitir móttöku bréf-
um, sem stimplast eiga ineö
þessum sérstæða stimpli, verða
starfrækt þar þá daga, sein sýn-
ingin er opin. Ennfremur er í
ráði að þarna verði söludeild
frá frímerkjasölu póstsíjórriar-
innar og einriig sölubúðir sem
hafa á boðstólum frímerki, er-
lend og innlend og ýmislegt,
sem varðar frímerkjasöfnun.
ATHYGLISVERÐ
SÝNING.
Sýningarnefndinni er kuriri-
ugt um, að til sýningárinnar
verða send gömul og ný frí-
merki úr einkasöfnum manna
hér á lándi, sem eigá mjög at-
hyglisverð frímerkjasöfn, og
eru þess virði að aðrir fái iföki-
færi til að sjá og læra af, hvern
ig sáfna skál frímerkjum. Þá
er búist við að eirihvcr Hluti
af frímerkjasafni íslenzku þóst
stjórnarinnar verði þarna til
sýnis, en Gunnlaugúr Briérn,
póst- og símamálastión, sern
leitað var um samvírinu varð-
aridi sýniriguna, hefúr sýrit sýn
ingarnefndinni þá velvild að
heita hénni allri þeirri aðstoð,
sem pótsstjórninni er unnt í
té að láta, meðal annars með
því að sýna þann rausnarskap,
að ljá Félagi frímerkjasafnara
sýningarrámma þá, sé& þarf til
notkunar á sýningunni, Þaö eru
bví vonir sýningarnefndarinnar
að vel megi takast riieð þessa
fyrstu íslezku frímerkjasýn-
ingu, en einungis íslenzkum frí-
merkjasöfnurum er heimii þátt-
taka.
Arbék landbúnaéarins
KOMIÐ er út 4. hefti 1957
af Árbók Iandbúnaðarins. Rit-
stjóri er Arnór Sigurjónsson.
Meðal efnis er: Tala og fall
þungi dilka 1956. Fjölgun sauð
fjárins. Skýrslur um tölu kúa
og fralrileiðslu mjólkur og
skuldir bænda í árslok 1955 og
1956.
Árbók landbúnaðarins er gef
,in út af Framleiðsluráði land
.búnaðarins...................
FÉLA6SLÍF
Guðspekifélagið
Fundur í St. Septínu föstu
daginn 17. þ. m. kl. 8,30 s .d. í
Ingólfsstræti 22.
Grétar Fells flytur erindi:
Andlit Drottins.
Gestir velkomnir — kaffi.
Farfuglar.
Munið tómstundakvöldið að
Lindargötu 50 í kvöld kl. 20,30.
Kvikmynd.
Nefndin...