Alþýðublaðið - 28.03.1958, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 28.03.1958, Blaðsíða 11
-Föstudagur 28. marz 1958. AlþýSnblaSiS 11 seijari óskast f DAG er fösíudagurinn 28. niarz 1958. Slysavarðstofa KeyKjavfkur er opin allan sólarhringinn. Nætur- læknir L.R. kl. 18—8. Sími 15030. Eftirtalin apótek eru opin kl 9—20 alla daga, nema laugar- daga kl. 9—16 og sunnudaga lci 13—16: Apótek Austurbæjar {sími 1Ö270), Garðsapótek (sími 34006), Holtsapótek (sími 33233) og Vesturbæjar apótek (sími 22290). Bæjarbökasafn Rtjykjaviknr, Þingholtsstræti 29 A, sími 1 23 08. Útlán cpið virka daga kl. 2—10, laugardaga 1—4. Les- stofa opin kl. 10—12 og 1—10, laugardaga kl. 10—12 og 1—4. Lokað á sunnudögum yfir sum- armánuðina. Útibú: Hólmgarði 34 opið mánudaga, miðvikudaga 'og föstudaga kl. 5—7; Hofsvaila götu 16 opið hvern virkan dag nema laugardaga kl. 6—7; Efsta nundi 36 opið mánudaga, mið- vikudaga og föstudaga kl. 5.30— 7.30. FLUGFERÐIR Flugfélag' Islands h.f.: Millilandaflug: Hrímfaxi fer til Glasgow og Kaupmannahaín- ar kl. 08.30 í dag. Flugvélin er væntanleg aftúr til Reykjavíkur kl. 23.05 í kvöld. Flugvélin fer ",il Oslo, Kaupmannahafnar og Hamborgar kl. 08.30 í fyrramál- ið. — Innanlandsflug: í dag er áætlað að fljúga til Akureyrar, Fagurhólsmýrar, Hólmavíkur, Hornafjarðar, ísafjarðar, Kirkju bæjarklausturs og Vestmanna- ,eyja. — Á morgun er áætíað að fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Blönduóss, Egilstaða, ísafjarð- ar, Sauðárkróks, Vestmannaeyja og Þörshafúar. Lcftleiðir h.f.: Edda er væntanleg kl. 07.00 :i fyramálið frá New York. Fer til Oslo, Kaupmannahafnar og Hamborgar kl. 08.30. Hekla er væntanleg kl, 18.30 á morgun frá Hamborg, Kaopmannahöfn og Oslo. Fer til New York kl. 21.00. SKIPAFRETTIR Dettifoss fer frá Turku 28.3. LEIGUBÍLÁR Blfrpiðasiö'S Síeindórs Sími 1-15-80 Bifreiðastöð Reykjavíkur Sími 1-17-20 SENDiBÍLAR SendiMIastöðin Þrösiur Sími 2-21-75 til Kaupmann'ahafnar og Réykja víkur. Fjallfo'ss kom til Reykja- víkur 21.3. frá Gautaborg. Góða íoss fór frá Vestmannaeyjum 23. 3. til New York. Gullfoss fcr frá Hamborg 26.3. til Gautaborg ar og Kaupmannahafnar. Lagar- foss fór frá Vestmannaeyium 26. 3. til London, Rotterdam og Ventspils. Reykjafoss fór frá Hamborg 25.3. til Reykjavíkur. Tröllafoss kom til Reykjavíkur 22.3. frá New York. Tungufoss fór frá Vestmannaeyjum 24.3. til Lysekil og Gautaborgar. Skipadeild S.I.S.: Hvassafell fór frá Akranesi 26. þ. m. áleiðis til Rotterdam, Arnarfell fór frá Akureyri 25. þ. m. áléiðis til Rotterdam. Jök- ulfell fór frá Keflavík 24. þ. m, áleiðis til New Yorlc. Dísarfell er í Reykjavík. Litlafell er í Rendsburg. Helgafell fór frá Hamborg 25. þ. m. áleiðis til Reyðarfjarðar, Hamrafeli fór frá Batum 18. þ. m. áleiðis iil Reykjavíkur. Troja lestar sem- ent í Álaborg til Keflavíkur. Skipaútgerð rlkisins: Hekla kom til Reykjavíkur í gærkvöldi að austan. Esja er á Vestfjörðum á norðurleið.---- Herðubreið er á Austfjörðum. J. Magnús BJarnason: Nr. 63 EiRIKUR HANSSON Skáldsaga írá Nýja Skotlandi. Skjaldbreið er á Húnaflóahöfn- um. Þyrill er í Reykjavík. Skaft- fellingur fer frá Reykjavík í dag til Vestmannaeyja. ■—o— Norrænafélagið efnir til skemmtifundar í Tjarnarkaffi, niðri í kvöld kl. 20.30. — Ávarps orð: Magnús Gíslason. — Upp- lestur. — Kvikmyndasýning. — Dans. — Félagsmenn eru beðnir að fjölmenna og taka með sér gesti. FUNDIE Náttúrulækningafélag Reykja víkur héídur aðalfund sir.n á morgun kl. 4 í tluðspekifélags- húsinu. Frá Guðspckifélaginu. Fundur verður í stúkunni Mörk kl. 8,30 í kvöld. Þar verður erindi, upp- lestur, hljómleikar o. fl. Kaffi- veitingar verða á eftir og gestir velkomnir. —o— Syngjandi páskar verða kl. 3 á morgun í Austurbæjarbíói. mig í hvert skipti, sem hann sá mig. Eg tók líka fljótt eftir því, að lögregluþj ónarnir veittu mér sérstaka eftirtekt, þegar ég var á ferð um göt- urnar, einkum var það, þegar götudrengirnir voru margir nærri, eða þegar ég var þar á ferð, sem mannmergð var mikil. Og strax fyrsta daginn, virtist mér, hver einasti lög- reglúþjónn, sem ég mætti, þékkja mig. Eg hélt ekki kyrru fyrir, Eg var alltaf á ferð og fiugi um borgina frá einu horni til ann- ars. Eg gekk fram á hverja einustu bryggju, því að ég hafði gaman af að sjá skipin og horfa á, hvernig mennirnir fóru að að áfferma þau. Eg gekk í kringum herverkin á hólnum, og horfði lengi á fall- þyssurnar og hermennina, sem voru á ferð fram og aftur. Stundum gekk ég hringinn í kring um hinn frœga lystigarð borgarinnar og stóð öft lengi við hverja rifu, sem ég sá á garðinum, til að sjá það, sem fram fór þar fyrir innan, en aldrei eyddi ég penrngum fyrir það að mega koma þar inn. Eg gaf líka nákvæmar gætur að varningnum í búðargluggun- um. Sérstakiega stóð ég iengi við gluggann á hinni svo- nefndu „Sjö centa búð“. Allt, sem þar var á boðstólum, kost- aði aðeins sjö cents hver hlutur. Mest var þar barna- glingur og ýmis leikspil, og oft var ég kominn á fremsta hlúnn með að fara þar inn til að kaupa eitthvað, en fátækt- in bannaði það. Þó bar það tvisvar við, að ég fór inn í búð, sem var skammt frá „Sai- lors Home“, og keypti ég þar brjóstsykur fyrir eitt eent í hvort skiptið. Eg gat ómögu- lega stillt mig um það, því að brjóstsykurinn, sem var til sýnis í gluggakistunni, var svo fallegur á að líta og girnileg- ur og af svo mörgum tegund- um, að enginn lítill drengur, sem hafði haft fáein cent í vasanum, hefði getað horft á þá hrúgu, án þess að fara inn í búðina og kaupa sér nokkra mola. Á þessari f^rð niinni u,m borgina sá ég líka margt ógeð- fellt. Eg kenndi í brjósti um margan vesalings hestinn, sem var horaður og meiddur, en varð þó að pínast áfram fyrir þungu æki og varð um leið að þola ótal svippuhögg af djöfli í mannsmynd. Eg kenndi í brjósti um vesalings menn- ina, þreytulega og dapra, sem unnu áf kappi við uppskipun- ina á bryggjunum, og máttu ekki líta upp frá verkinu eitt einasta augnablik, af því þeir voru ekki sjálfs sín húsbænd- ur. Og þó kenndi ég enn meira í brjósti um hina, sem báðu ó- aflátanlega um að mega þræla, til að fá fáein cents, en fengu ekki. Eg kenndi í brjósti um vesa- lings böi’nin, sem gengu um göturnar berfætt og óhrein og í ræflum, og sem voru auðsjá- anlega svöng og ef til vill veik, böra, sem virtust vera heim- ilislaus og munaðarlaus, börn, sem börðust fyrir tilveru sinni, eins og bezt þau gátu, og lifðu á molunum, sem hönd mann- úðarinnar kastaði út á strætið til þeirra, börn, sem höfðu ef til vill aldrei heyrt hlýlegt orð í sinn garð og fundu ó- sjálfrátt til þess, að þeim var ofaukið í mannfélaginu og áttu þar ekki heima. Eg kenndi í brjósti um vesalings drengina, sem lifðu af því að sverta skó á götun- um, drengina, sem voru í ó- hreinum druslum, teyjulausir, vestislausir, með snærisspotta fyrir axlarbönd, sokkalausir, með bera fæturna í hörðum og snúnum stígvélum af fullorðn- um karlmönnum, í buxum, sem oi’ðnar voru að smátætlum, og sem í fyrstu höfðu verið sniðnar á stóra menn, drengi með óhrein andlit og enn ó- hreinni hendur, drengi, sem ef til vill áttu ekki annað heirn- ili en sorphaug, eða sfconsu undir einhverri bryggjunni, eða tóma sírópsámu með fá- einum hálmstráum í, sem átti að heita sæng, drengi, sem áttu ef til vill foreldra á lífi, foreldra, sem börðu þá með bareflum, ef þeir komu ekki heim með peninga, sem nægði til að borga fyrir eina mörk af viskí eða pott af bjór, drengi, sem aldrei höfðu lært ’ annað en það, sem var ljótt og andstyggilegt, og sem aldrei höfðu notið ylsins af móður- ástinni og höfðu aldrei lært að kalla neinn „pahba“. Drengi, sem ekki vissu hvað þeir sjálfir hétu og því síður hvað gamlir þeir voru, drengi sem litu tortryggnislega á hvern, sem þeir mættu, — litu á hvern, sem fram hjá þeim með augnaráði hálf- gekk, hatursfullu qg Mlf-ótta-' blöndnu, drengi, sem glottiii eins og villimenn og spýttu tóbakslög um tönn og töluðu Ijót orð, drengi, sem þrátt fyrirj allt og allt .áttu til innst í sál- um sínum frækom hins góða og g'öfuga. Þau frækorn lágii að sönnu djúlpt niðri í klakan- um qg sorpinu, en gátu þó undurfljótt sprungið út og leitt fram fögur blóm, bara ef hlúð værj að þeim. Eg kenndi í brjósti um vesa- lings gömlu konurnar, sena seldu aldini á torgum og gatnai mótum, konur með silfurgrátt hár og með mæðuörjn á vöng- um og enni, kónur lotnar, og lúnar, sem studdust við hækj- ur og gátu aðeins hreýft sig með sárustu erfiðismumum, konur, sem eitt sinn höfðu ver ið fríðar og blómlegar, sem höfðu elskað og verið elskaðar, en áttu nú engan að í hinnii miklu veröld, áttu engan aðý sem gæti séð fyrir þeim, ᣠþví að þær voru ekki lengur ungar og blómlegar, heldur orðnar að „glerbrotum á mann félagsins haug.“ Eg kenndi líka sárt í brjósti' um vesalings .mennina, sem sátu þar, sem mest var um- ferð, sátu þar allan liðlangam claginn og báðu um peninga, menn, sem voru blindir, eðaj höfðu misst báða fætur eða báðar hendur, eða vorui krypplingar og höfðu örkuml. Menn, sem einu sinni höfðu verið hraustir, léttfærir og kátir og boðið heiminum og öllu, sem í honum var, byrgin, en sem nú voru ósjálíbjarga og daprir, — jafnvel hinn minnsti ormur, sem skreið í duftinu, var betur fær um að afla sér fæðu, heldur en þessir aumingjar, sem drógu fram lífið á þeim fáu centum, sera hinir hiartagóðu réttu að þeim. Margt fleira átakanlegt sá ég og heyrði. En innan um og hringinn í kringum alla þessa eymd og fátækt sá ég auðinn og prjálið og alls konar unað, Þegar ég var búinn að vera* nokkra daga í „Sailörs Home'1 datt mér í hug að vita, hvort ég gæti ekki ínnunnið mér nokkur cents raeð því að selja dagblöð. Eg sá daglega-mikinn fjölda drengja vera að selja blöð, og virtist mér þeim ganga vel salan. Eg fór því snemma einn morgun yfir að prentsmiðju morgunblaðsins ..The Halifax Herald“ og 3 3 Zorin og Drago sáu að eitt af loftskipum þeirra hafði verið skotið niður. Þeim hafði Um heppnast að flýja inn í ský, en loftskip þeirra var s.amt illa laskað. „Yið verðum að kom- ast til Brunol,“ hvæsti Zorin, „þú verður að koma skipinu til Grunol,” sagði hann við flug- manninn. En flugmaðurinn hi'isti höfuðið. „Við verðum að nauðlenda“ sagði hann.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.