Forvitin rauð - 01.05.1974, Side 10
EFTIRFARANDI ÞÍÐINGAR ERU
Einhverstaöar er Sírejia. Grænn líkarai hennar
er þakinn hreistri. Andlit hennar er sjáanlegt.
NeÖan til á handleggi hennar slær rósrauðum
bjarma. Stundum fer hún að syngja. Konurnar
segja, að af söng hennar heyri þær aldrei annað
en langdregið 0. Þess vegna hafi söngurinn svo
hvetjandi áhrif á þær, eins og allt, sem minnir
á Oið, nullið eða hringinn, skapahringinn.
Þegar konurnar tala um sköp sín nota þær ekki
vktar samlikingar, þær fara ekki með upptalningar
eða niðurraðanir. Þær hafa ekki yfir langar
þulur, sem kalla yfir þær endalausar bölbænir
með viðlagi sínu. Þær reyna ekki að gera þagn-
irnar langar svo að það virðist, sem eitthvað
hafi fallið niður. Þær segja að allt þetta sé
merki um að málfarið sé að ganga sér til húðar.
Þær segja að allt verði að byrja að nýju. Þær
segja að sterkur vindur blási nú yfir jörðina.
Þær segja að sólin sé um það bil að renna upp.
Ljón hinna þriggja nátta var sent til móts við
Hippolytu. Sagt er að það tæki þrjár nætur
að telja þetta skrímsli með mannsandlit á að
ráðast gegn drottingu Amazonanna. Enginn
kann söguna af því, þegar hún barðist hetjulega
með boga sínum og örvum eða hvernig ljónið
braust um er hún dró það langt inn í fjöllin svo
það myndi ekki verða hættulegt fólki hennar.
Þessi frásögn hefur aldrei verið skráð. En
hermt er að fram að þessu hafi konurnar alltaf
verið sigraðar.
Konurnar muna eftir sögunni af henni, sem bjó
við úlfaldaslóðina. Berhöfðuð í sólinni
ákallar Clemence Maieul stöðugt sólgyðjuna.
Hún klippir lokka úr hinu mikla hári sínu og
kastar sér þrisvar sinnum á jörðina, sem hún
lemur með flötum lófunum og hrópar: "Heill sé
þér, hin mikla Amaterasu, í nafni móður okkar,
í nafni þeirra, sem á eftir munu koma. Komi
ríki okkar. Megi þessu kerfi verða kollvarpað,
jafnt hinu góða sem hinu illa." Þær segja, að
Clemence Maieul hafi oft teiknað á jörðina
Oið, sem er tákn gyðjunnar, tákn skapahringsins.
Sagt er, að snípnum hafi verið líkt við
kirsuberjakjarna, knúbb, brum, sesamfræ í hulstri
sínu, möndlu, myrtussprota,skuttlu, skráarás.
Sagt er, að ytri skapavörunum hafi verið líkt
við skeljar hörpudisks og þeim innri, sem
huldar eru, við Purpura frá Sidon og hita-
beltiskóralla. Sagt er, að raka varanna hafi
verið líkt við saltvatn með joðbragði.
Konurnar segja að þær hafi nú lært að treysta á
eigin matt. Þær segja að nú séu þær orðnar með-
vitandi um styrk samstöðunnar. Þær segja að
þær sem heimta nýtt mál verði fyrst að læra að
beita ofbeldi. Þær segja að þær sem vilja
breyta heiminum verði fyrst að grípa til riffl-
anna. Þær segjast standa við upphafið. Þær segja
að nýir tímar séu að renna upp.
Þýð. H.H.
/o