Forvitin rauð - 01.05.1974, Qupperneq 27
EigLnlega hafSi ég aldrei komist upp á lag meS
aS lesa góSar bsskur, lá bara £ Vikunni og öSru
láttmeti, og mér hafSi beldur aldrei veriS sýnt
um að fylgjast meS heimsviSburSum. Pegar viS
Ejössi hittum skólafélaga hans og annað fólk,
sem hann þekkti, þá fannst mér ég oftast vera
£ vandræSum með aS tala við þaS - þetta var
allt svo gáfaS og menntaS. Svo virtist mér
Bjössi bara helst ekki vilja aS ég v*ri að segja
nokkurn skapaðan hlut, þegar þetta fólk heyrði -
hann var greinilega smeykur um að ég kæmi upp
um fáfræði m£na. S£ðan hætti hann alveg að taka
mig með sér og ég áttaði mig á þv£ að við áttum
litla samleið. Annaðhvort hafði ég dregist
aftur úr frá þv£ að við byrjuðum að vera saman
eða hann haft of mikið forskot. Þegar hjóna-
band okkar hafði staðið £ n£u ár fór hann frá
okkur og gifti sig annarri. Hún hefur bæði
menntun og sjálfstætt starf og getur staðið
honum á sporði. Hann gerði vel við mig og
börnin á venjulegan mælikvarða - ég hefi heimilið
áfram með börnunum og hann greiðir r£flega með
þeim. En samt varð ég að fá mér einhverja vinnu
og þá vandaðist málið. Ég hafði týnt niður þv£
litla, sem ég kunni og fæ aðeins lágt launuð störf.
3f ég hefði gert mér grein fyrir að svona gæti
farið hefði ég getað reynt að læra eitthvað eða
þjálfað mig £ einhverju og þá væri ég ekki eins
illa á vegi stödd núna. Þetta eru l£ka ógurleg
viðbrigði fyrir börnin - það er eins og við séum
komin £ einhvem annan flokk, en áður.
Og nú kem ég að þér, Sveinn. Hefur þú aldrei
sett dærnið hjá þér þannig upp að skeð gæti að
konan þ£n veiktist og yrði ekki fær um að
afla tekna, eða að hún dæi - að ég nú ekki tali
um að hún hreinlega yrði leið á ykkur og færi
s£na leið og þú sætir eftir með einfalt meðlag
mað börnunum? Hún gæti hitt einhvern, sem hefði
fylgst betur með t£manum, en þú, þv£ að auðvitað
ert þú samkvæmt bréfi þ£nu dál£tið einangraður
þarna heima með börnin og getur orðið úr takt
við hana, sem er úti £ dagsins önn og hittir
marga og hlýtur að geta fylgst betur með en þú.
Reyndar kamur fram £ bréfi þ£nu að þú ert að
ranka við þér, þar sem þú finnur að þú ert að
dragast aftur úr þ£num gömlu skólafélögum úr
iðnskólanum. án árangurs hefur þú reynt að
koma öðru barninu á leikskóla - en þitt tilfelli
flokkast ekki undir forgang hjá almennum
dagvistunarstofnunum.
Mér virðist þú ráðvilltur þar sem þú spyrð
hvaða stefnu þú eigir að taka - og hér kemur
mitt ráð. LáTTU EKKI HUGFALLA3T - SNÖOU VÖRN
1 SOKN. Finndu einhverjar leiðir til þess að
rjúfa þann vftahring, sem þú ert £ til þess
að verða sjálfstæð og óháð manneskja. á meðan
þér hefur ekki tekist það verðurðu aldrei nema
hálfur maður. Fyrsta skilyrði er að finna
öruggan stað fyrir bömin á meðan þú þarft að
vera frá þeirn. Þú getur reynt að koma yngra
barninu £ einkafóstur eða taka höndum saman
við hóp áhugafólks um byggingu dagvistunar-
stofnunar. S.t.v. er áhugi fyrir sl£ku £
hverfinu, sem þið eigið heima 1.
Eldra bamið
getur verið á skóladagheimili, þegar venjulegum
skólat£ma lýkur. Þegar þessi atriði eru komin
á fastan grundvöll skaltu byrja að fsta þig
aftur inn £ þitt gamla starf og þú munt ná þvf
fljótlega þar sem þú ert með sveinspróf £ iðn
03 ekki liðin nema u.þ.b. sjö ár s£ðan þú
starfaðir við hana sfðast.
En eitt tel ég mjög þýðingarmikið eftir að þú
ert byrjaður að starfa aftur utan heimilis þ.e.
að gera konunni þinni ljóst að ykkur ber báðum
til samans að inna af hendi heimilisstörfin.
Ef þú ekki gerir henni það skiljanlegt þá lenda
þau öll á þér og þú kemur til með að bera uppi
tvöfalt starf og sl£kt er hvorki skynsamlegt
til lengdar né sanngjarnt gagnvart þér.
Keð von um að þér vegni vel kveð ég þig.
R.S. £ bréfinu þ£nu segir þú að stundum séu
félagar þ£nir að núa þér þv£ um nasir að þú
látir konuna þ£na vinna fyrir þér. Það er
skrftið að aldrei ásakaði neinn mig um þetta
á meðan við Ejössi vorum gift - þ.e. að ég
léti hann sjá fyrir mér. Samt er þetta alveg
nákvæmlega eins tilvik.
Gaman væri að heyra frá þér. Sama.
27