Forvitin rauð - 01.05.1980, Síða 2
2
FORVITIN RAUÐ
OTGEFANDI: rauðsokkahreyfingin
AÐSETUR: SKÖLA VÖRÐUSTÍGUR 12,
28798
I
MIÐSTÖÐ 1 SUMAR: BLAÐHÓHUR:
Berglind Gunnarsdóttir s: 28079 Erna Indriðadóttir
Ingibjörg Hafstað S: 27838 Guðlaug Teitsdóttir
María Guðmundsdóttir S : 16891 Rán Tryggvadóttir
Valgerður Eiríksdóttir S: 28607 Elín V. ólafsdóttir
Dagný Kristjánsdóttir S: 83542 Valgerður Eirxksdóttir
Kristín Ástgeirsdóttir s : 19287 Ingibjörg Ingadóttir
Guðlaug Teitsdóttir s: 29647 Kristín Jónssdóttir
Oddný Gunnarsdóttir s: 15604 Dagný Kristjánsdóttir
Fréttír af starfínu
Ytra starf hreyfingarinnar
hefur verið með minna móti
síðustu mánuði - þegar frá
er talin starfsemi verkalýðe-
málahóps. Aðalverkefni hans
var að fylgja eftir kröfum
barnaársnefndar ASÍ. Mikil
\imræða fór fram innan hóps-
ins og þær enduðu með opmom
fundi í Lindarbæ, en þangað
voru helstu forkólfar verka-
lýðsfélaganna boðaðir. Undir-
búningur fundarins var mjög
vel skipulagður. Farið var
með dreifirit á vinnustaði
og fundurinn rækilega aug-
lýstur í blöðum og útvarpi.
Þrátt fyrir allt þetta - og
ágætar mótttökur víða á
vinnustöðum - var fundurinn
illa sóttur. Þarna mátti
sjá andlit þeirra sem
virkastir eru á vinstri
kantinum en verkafólkið -
sem fundurinn átti að höfða
til - lét ekki sjá sig.
Segir það sína sögu um þá
deyfð og það áhugaleysi sem
almennt hrjáir fólk um þess
ar mundir. Það skyldi þó
ekki vera merki um almenna
hægri þróun?
Þegar líður að l.maí
lifnar ævinlega yfir Hreyf-
ingunni og Rauðsokkar létu
ekki á sér standa þetta árif
frekar en þau fyrri.
Nokkrir undirbúningsfundir
voru haldnir þar sem rifjuð
voru upp slagorð hreyfing-
arinnar og þau fest á borða
fána, blöðrur og spjöld.
Ákveðið hafði verið á
ársfjórðungsfundi í apríl
að Hreyfingin skyldi ekki
ganga ein og sér. Rauðsokk-
ar fóru því óbeislaðir í
allar göngur dagsins, báru
áróðursspjöld og seldu efni
Hreyfingarinnar. Sala mál-
gagnsins „.Forvitinnar
Rauðrar" gekk eins og í
lygasögu og sýnir það okkur
að enn eiga Rauðsokkar
stóran hóp stuðningsfólks.
l.maí ávarp Hreyfingar-
innar var lesið upp á tvein
ur útifundum, fundi „Rauðr-
ar verkalýðseiningar" og
fundi „Baráttueiningar" -
auk þess sem því var dreift
prentuðu í öllum göngum.
Um kvöldið stóðu Rauð-
sokkar fyrir fjölmennum
dansleik í Lindarbæ. Með
sölu efnis og ágóða dans-
leiksins: greiddist úr
fjárhagserfiðleikunum í
bili; en betur má ef duga
skal.
Innra starf hreyfingar-
innar tók mikinn f j'örkipp
við stofnun svonefndra
grunnhópa (basisgrúppa).
HÓparnir eru nú alls sjö
og er það álit flestra að
þarna hafi verið sameinað
tvennt; annars vegar að
opna nýliðum leið inn í
Hreyfinguna og hins vegar
að gefa konum kost á að
tjá sig í litlum einingum,
læra af reynslu hverrar
annarrar og ekki síst að
átta sig betur á eðli
kvennabaráttunnar.
Gagnrýni á þetta fyrir-
komulag hefur heyrst og þá
sérstaklega frá þeim sem
ekki hafa verið í slíkum
hópi. Helstu rökin gegn
þeim eru að þessir hópar
taki til sín allan kraft
Hreyfingarinnar og stuðli
að enn meiri einangrun henn-
ar. Einnig að yfir þessum
fundum svífi andi gömlu góðu
saumaklúbbanna og hætta sé
á að sjálf jafnréttisbarátt-
an verði aukaatriði.
HÓparnir hafa þróast
á margvíslegan hátt. Flestii
eru þó komnir yfir byrjun-
arþáttinn þ.e. að kynnast og
ræða persónuleg mál og hafa
snúið sér að ákveðnum mál-
efnum.
Starf grunnhópanna mun
að mestu leyti leggjast
niður í sumar en byrja af
krafti aftur næsta haust.
Af öðrum hópum sem starf-
að hafa að undanförnu má
nefna „fóstureyðingahóp"
sem settur var á laggirnar
þegar Þorvaldur Garðar
Kristjánsson endurflutti
tillögur sínar á Alþingi
um breytingar á fóstur-
eyðingarlöggjöfinni. Hópur-
inn hefur verið í viðbragðs-
stöðu og tilbúinn í slaginn
ef með þarf.
Þeim sið hefur verið
haldið að bjóða gestum upp
í Sokkholt á laugardags-
morgnum, hlusta á málflutn-
ing þeirra, drekka kaffi og
ræða málin. NÍna Björk Árna-
dóttir heimsótti Rauðsokka
og las frábærar þýðingar
sxnar á ljóðum Vitu Anderson
Auður Haralds kom í heim-
sókn og upphófust hinar
fjörugustu umræður og ekki
má gleyma eftirminnilegri
heimsókn Þorvaldar Garðars
Kristjánssonar sem drakk
nokkra bolla af kaffinu
okkar og ræddi um bann við
fóstureyðingum.
Blaðhópur sér um útgáfu
Forvitinnar Rauðrar og hef\x
því verið á þönum út um
allan bæ að undanförnu við
að safna efni í blaðið.
HÓpurinn er einnig með í
gangi herferð til að safna
fleiri áskrifendum að mál-
gagninu. Blaðið kemur út
fjóriun sinnum á ári og
væntum við þess að fólk
verði duglegt við að senda
okkur línu ef eitthvað sér-
stakt gerist - skemmtileg
(eða leiðinleg) atvik.
MEÐAL EFNIS f
BLAÐINU:
FQSTUREYÐINGAR -
VIÐTÖL VIÐ LÆKNA
OG félagsrAðgjafa.
TVÆR KONUR SEGJA
FRÁ REYNSLU SINNI
FEGURÐARSA MKEPPNI
VIÐTAL VIÐ STEIN
LARUSSON FORSTJ0RA
FERÐASKRIFSTOFUNN-
AR ORVALS.
sm^saga og ljOð
GREIN UM FRYSTT-
húsbOnus
barAttustarf A
AKUREYRI
U M GRUNNHOPA
HRE YFINGARINNAR
VIÐTAL VIÐ TVO
FÉLAGA rHÖPUNUM
FRÉTTIR AF STARF-
INU
Y'
á
&