Forvitin rauð - 01.05.1980, Blaðsíða 13

Forvitin rauð - 01.05.1980, Blaðsíða 13
13 F egurðarsamkeppni eða gripasýning í ár standa þrír aðilar að Fegurðarsamkeppni íslands: Dagblaðið, H1jómplötuútgáfan hf. og Ferða- skrifstofan Úrval. Þáttur Dagblaðsins er að skrifa um keppnina og auglýsa hana upp. Með því móti slær blaðið fjórar flugur í einu höggi, auglýsir Ferða- skrifstofuna Úrval og H1jómplötuútgáfuna og eykur sölu blaðsins. Við snérum okkur til Steins Lárussonar, forstjóra Ferðaskrifstofunnar Úrvals og spurðum hann hvers vegna Úrval hafi ákveðið að standa að þessari keppni? Viðtal við Stein Lárusson forstjóra Úrvals Hvers vegna ákvað Ferða- skrifstofan Úrval að_______ standa að bessari keomi? Ferðaskrifstofunni Úrvali var boðið á síðastliðnu ári að taka að sér fram- kvæmd þessarar keppni. Fegurðarsamkeppni íslands er faktiskt í eigu Guðna Þórðarsonar og ferðaskrif- stofunnar Sunnu persónu- lega. Það er alveg ljóst að það er ekki hægt að reka þessa keppni. Það er ekki hagnaðarfyrirtæki. Það er útilokað að reka þetta nema með einhverju öðru, og ein af þeim leiðum sem hefur verið farin undanfarið er að reka þetta með ferðakynn- ingu, og um leið erum við að auglýsa fegurðarsam- keppni. Auglýsingu á ferðaskrif- stofunni Úrvají þá? 1 og með er þetta auglýsing fyrir ferðaskrif- stofuna. Nú hefur komið fram gagn- rýni á það hvernig stúlk- urnar hafa verið valdar úti á landi, á skemmti- stöðum þar sem allir eru draugfullir og hrópa "mistök" í lokin. Ég skal viðurkenna það að á einum stað var tals- vert um ölvun. Þegar við höfum komið á staðina úti á landi, hefur verið búið að hafa samband við tvær til þrjár stúlkur, sem við höfum vitað um og þær hafa komið á viðkomandi skemmt- un. Þannig hefur verið búið að ganga frá þessu fyrirfram. Það hefur verið gert í gegnum umboðsmenn hvort sem það nú eru kunningjar, vinir eða ættingjar, sem hafa bent á þær. Stúlkurnar voru spurðar hvort þær hefðu áhuga á þessu og komu þær þá á viðkomandi stað. Hafa engar neitað af þessum stúlkum, sem haft er sam- band við. Jú það hafa stúlkur neitað. En í vor hefur framkvæmdin verið þannig að við höfum verið með ungfrú ísland frá því í fyrra með okkur og blaða- konu frá Dagblaðinu. Þær hafa sxðan gengið um sal- inn og ef það eru ein- hverjar stúlkur, sem þeim hefur fundist athyglisverð- ar hafa þær haft samband við þær. Eru það stúlkur, sem eru athyglisverðar 1 útliti? Já, já í útliti. það er líka reynt að ræða við stúlkurnar. Þær eru teknar svona aðeins afsíðis og reynt að sjá hvernig þær koma út. Það er alltaf einhver maður með frá við- komandi stað og hann er þá spurður um þessar stúlk- ur. Er auðvelt að fá stúlkur til að taka þátt í þessu? Það virðist mjög auð- velt. Ég vil taka það fram, út af því að dans- leikurinn sé allur orðinn blindfullur, að við kjósum kl. hálfellefu. Þá er eftir að telja atkvæðin og ganga frá málunum. Það sem verið er að tala um þarna gerist þegar við loksins tilkynnum úrslitin. Það er kannske ekki fyrr en um miðnætti og við vitum öll hver'nig dans- leikur breytist á einum og hálfum klukkutíma. En hvað er á seyði þegar fólk hrópar "mistök, mis- tök" ? Það er alltaf eitthvað af fólki sem er á móti öllu Inn í þetta blandast fjölskyldumál, pólitík og allt mögulegt. Þannig er þetta á þessum smærri stöðum úti á landi. En hvert er nú eiginlega markmiðið með fegurðar- samkeppninni? Markmiðið er í sjálfu sér ekkert annað en það að kvenmaðurinn er falleg- asti hlutur sem til er á jörðinni, og þvi má ekki fólk horfa á fallega kven- menn sem, eins og maður segir, standa út úr. Stúlkur hafa áhuga á þessu Það er mikið af fólki sem hefur áhuga á fegurðarsam- keppnum. Þær gefa stúlk- unum tækifæri. Til hvers? Ja, þessar fimm stúkur sem við kusum núna til úrsiita fara allar til keppni erlendis. Hvaða tilgangur er i þvi? Þessar stúlkur vilja kannske allar komast i atvinnu úti i hinum stóra heimi,verða sýningarstúlkur eða komast i leiklist. Þær þurfa að vekja á sér eftirtekt. ÞÚ talaðir um að allir ættu að fá að horfa á fallegar konur. Finnst þér það ekkert niðurlægjandi fyrir

x

Forvitin rauð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.