Morgunblaðið - 24.12.1915, Blaðsíða 1
Gíeóileg
jóí!
cJólakuöld
liarnsins kvöld — með kóngaljós og jólatré;
í kirkjunni svo væran blund á móðurhné.
Engan jólakött! En hjólavagn — með innan i!
Og svo gúmmifugl að kreista: Bí, bí, bí!
Barnsins kvöld — sem endar bara alt of fljótt.
Eftir hlátur, kútur stúrinn. Góða nótt!
Mampia sækir laufabrauð, sem læknar alt strax —
lúrir barn — með sneið í hönd, til næsta dags.
Mannsins kvöld — svo margbrotin á árunum.
Minningarnar vagga’ á hugarbárunum.
Ellikvöld — þá bráðnar hrím af hárunum,
er helgin skín af barna gleðitárunum.
Sigurður Sigurðsson.
Gíeðileg
jóíí
Ú jólunum 1915.
*m jörðina blóðaldan hrynur heit.
Hver heyrir nú boðskap úr englanna sveit,
orð frelsarans fæðingarnætur?
Nú hatrið fer gandreið frá manni til manns,
og mannanna börn stiga trölladans
við myrkraforingjans fætur.
En konungur kristninnar grætur.
0
Kom, lausnari mannanna, likn oss bú.
Það er líkt og vér heyrum vængjasúg
frá hræfuglum haturs-landa.
Kom! Þó að vér aðhyllumst þrjózku og tál,
þá þráir þig, Kristur, hver einasta sál
frá sólskini suðrænna landa
til næðinga nyrztu stranda.
Kom, jólabarn alheimsins, algæzku lind,
og aumka þú mannanna hróplega synd,
er náðþurfa’ í neyð sinni standa.
Kom, drottinn vor, Kristur, með dýrð og með vald,
og drag burt hið þéttofna villunnar tjald
með hersveitum himneskra landa
og heilögum friðarins anda.
Einar Hjörleifsson,