Morgunblaðið - 24.12.1915, Page 2

Morgunblaðið - 24.12.1915, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ■y': LeroLle: Hjarðmermirnir koma. »ÉR eigum því að venjast hér í bænum á hverjum helg- um degi, að þegar líður að hádeginu, þá taka kirkjuklukk- urnar að hljóma. Hljómur þeirra er í eyrum kristinna manna há- tíðleg rödd, sem kallar menn til umhugsunar um andlega og eilífa velferð sína, kallar þá til að kasta frá sér nokkur augnablik öllum daglegu umsvif- unum, og ganga í hús drottins til þess að heyra þar, hvað faðirinn á himnum vill í orðí sínu tala við börnin á jörðunni. Þeir, sem kunnugir eru þjóð- lífi og þjóðsögnum vor Islendinga, þeir vita það, að íslenska þjóðin hefir öld eftir öld talið klukkna- hljóðið heilagasta hljóm, að hún Jólaklukkan. £ftir síra Ólaf Ólafsson. hefir fundið til þess, að klukkna- hljómurinn er heilög alvörurödd, sem talar og lætur til sín heyra í Guðs nafni. Ein sönnunin fyrir þessari þjóðartrú og þjóðar- skoðun er sú, að í öllum fornum sögnum eiga allar óvættir, alt það, sem táknar vald myrkra og og vonsku, að fiýja fyrir klukkna- hljóðinu, og hræðast það. Bak við þessa fornu þjóðtrú liggur fögur og alvarleg trúartilfinning og trúarskoðun, sem margt mætti um segja, en sem eg ætla þó ekki að þessu sinni að fara að brjóta til mergjar. — En á hitt vildi eg minna í sambandi við þetta, að það var siður hjá feðrum vorum upp til sveita, líklega um land alt, að taka með lotningu ofan höfuðföt sín, er þeir lieyrðu til kirkjuklukknanna á helgum dög- um. Þessi siður mun hafa smá- lagst niður, þegar sú skoðun tók að ílendast upp til sveita, að það væri ekki «fínt,» að vera guð- hræddur eða guðrækinn. — En eg hefði viljað kjósa, að þessi siður hefði fengið að Iifa, þógamall væri; því eg tel það einlægt skaða, þegar góðir og gamlir þjóðsiðir týnast og deyja, þjóðsiðir, sem tákna og hafa að baki sér göf- ugustu og beztu tilfinningarnar, sem til eru í mannshjartanu. En þessi siður táknaði efalaust frá upphafi djúpa lotningu fyrir því, sem heilagt er. Þegar líður að miðjum aftni í kvöld, þá taka kirkjuklukkurnar að hljóma, ekki einasta yfir Reyk- javík og Reykvíkingum, ekki einasta yfir landinu okkar og ís- lenzku þjóðinni, heldur yfir öll- um kristnum löndum og þjóðum, yfir öllum hinum kristna mann- heimi; og það mál, sem kirkju- klukkurnar tala, skilja allir, hverr- ar þjóðar sem þeir eru, og hvaða tungu sem þeir mæla. Eg hygg það nú alveg víst, að þegar klukknahljómurinn líður í kvöld á loftbylgjunum inn í heim- kynni vor, þá. muni flestum finn- ast meiri helgi- og alvöruhreimur I klukknahljóðinu heldur en venjulega endranær, og jafnframt meiri gleði- og friðarhljómur. Jólaklukkan er hljómþýð og hljómblíð; hún hringir gleði °S frið inn í hvert óspilt mannshjarta- Fyrir hljómi jólaklukkunnaf tekur allur hinn kristni manD' heimur ofan með heilagri lotD' ingu. Þegar jólaklukkan tekur a* hljóma, þá kemur gleðisvipur á hin litlu andlit barnanna og sm^' ingjanna, sem með lifandi eff'1' væntingu og hjartanlegri þrá ha'3' beðið þessarar stundar, yndælustl1 stundarinnar, sem þau þekkja, að blessuð jólin komi með IjósunUú1 og hinum margvíslegu fagnaðb sem jólunum fylgir. Ef það annað borð rætist nokkurn tíd® í þessu lífi, að ásjóna mannann® ljómi sem engilsásjóna, þá ef það á saklausum börnunum " jólunum, þegar jólaklukkan teku að hljóma og færir mönnum Þ^ boðskap, að nú séu jólin konllÐ' En jólaklukkan snertir við beí5tu hjartastrengjunum hjá fleirum eU hún tekur líka ulU hiuulU vald og meiri myndugleika oT1 ^eS börnunum; hjartaræturnar á okkur, fullorðnu. Hún hefir meira en hin»f frá annað til að vekja hjá okkur barnslegu og góðu tilfinningar saklausu bernskuárunum, tir 1 ingar, sem veraldarkuldinn, v

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.