Morgunblaðið - 23.09.1928, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
,Prior“-vinÖlar‘
í ý2 og 14 kössum og smávindlar í 10 og 20 stk. pökkum.
Cremas — Elegantes —- Perfectos — Reinas
Brevas — Pr. Habanos.
Heildvec*®!. Garðars Gislasosiai*.
Hugðýsingaitagíiók
Viðskifti.
Nýkomið: Mikið og' fallegt úr
1 val af biaðplöntum á Amtmanns-
sstíg 5. Ennfremur Tliuja og alls-
.konar kransaefni.
Línubátar og togarax: — Hefi
mörg sölutiloð á þýskum, enskum
og frönskum fiskiskipum. Hans R.
Þórðarson, Vonarstræti 12. -
Bjúgaldin, Epli og Glóaldin sel-
ur Tóbakshúsið, Austurstræti 17.
Afskorin sumarblóm altaf til
sölu í Hellusundi 6. Send heim ef
óskað er. Sími 230.
9=j
Tilkyimingar.
*®
M
Iþróttablaðið. kemur út í dag.
Söludrengir komi á Elapparstíg 2
ki. 11—12. Hæstu sölulaiin. .
Kaffi og matsölúhús verður opn-
að 1. október í húsi frú Þorbjarg-
ar Bergmann í Strandgötu 26 í
Hafnaríirði. Þar verður á boð-
stólum kaffi, gosdrykkir, öl, mjólk
og heit.ur og kaldur matur. Guð-
rún Eiríksdóttir, Laugaveg 47 —
sími 848.
Tapað. — Fundið.
.®
Ljósgrár hestur í óskilum á
Möðruvöllum í Kjós. Mark: Tví-
stýft.fr. h. og fjöður aftan vinstra.
öö’
Vinna
M
Maður, vanur öllum störfum við
sveitavinnu óskar eftir atvinnu. A.
S. í. vísar á.
Húsnæði.
fbúð vantar mig 1. október.
Hver vil leigja mjer? Heimilis-
menn eru fjórir. Björn R. Stefáns-
son, Lindarg. 43 B.
Kensla.
Kensla í ensku og frönsku.
Páll Skúlason, Öldugötu 17.
Sími 1418.
I.O.G.T.
heldur fund á mándagskvöld
kl. 8y2. Finnbogi J. Arndal
segir framhald ferðasögu til
Akureyrar.
Æ. t.
Chamberlain.
Regnhlífar
fallegí Arvel
nýkomid.
Verslnn
Torfa Þórfiarsonar.
Dngleg
stAlka,
w ö n ö 11 u m almennum
matartilbúningi, óskast
I. október. — Simi 385.
Gærnr
kaupir verslun
G. Zoega.
B*w
fæst allstaðar.
Aðalumboðsmenn
Sfurlaugur lónsson fi Co.
Reykjavík.
Frá því var sagt hjer nýlega, að
u,tanríkisráðherra Breta, Chamber-
lain hefð'i orðið að hætta störfum
í bili sökum heilsubrests.
Eftir síðustu fregnum að dæma
er ráðherrann ennþá bilaðri á
heilsu en alment var álitið í upp-
hafi, og er talið ólíklegt að hann
geti nokkurntíma tekið að sjer
ráðherrastörf. Svo við tslending-
ar getum vart vænst þess, að hann
geti framar tekið málstað okkar í
breska þinginu, þegar klögumál
enskra skipstjóra í garð okkar
koma þar á dagskr'á.
Chamberlain lagði nýlega af
stað í langa ferð sjer til heilsu-
bótar. Ætlaði fyrst suður um
Panama, vestur í Kyrrahaf og
norður með Kvrrahafsströndum til
Canada. Er hann fór heiman að
átti hann ílt með að ganga ó-
studdur. Og er til Liverpool koiii,
en þar stje liann á skip, *varð að
bera liann til skips.
Knattspyrnumót 3. flokks. Kapp-
leikurinn á föstudaginn fór svo, að
K. R. vann Víking með 4:1. í dag
kl. 2^2 verður úrslitaleikur móts-
ins milli K. Ii. og-Vals.
Tombólaai, sem áður hefir verið
sagt frá hjer í blaðinu, byrjar kl.
2 í dag í Kópavogi. Eru þar bæði
hús og tjöld fyrir gesti, og marg-
ir góðir drættir á tombólunni.
Drotningin er væntanleg hingað
annað kvöld.
iTennismót íslands. Klukkan 10
f. hád. í dag keppa þeir: Gísli
Sigurbjörnsson gegn Strögberg og
Kjartan Hjaltested gegn Hallgr.
Hallgrímssyni. Sigurvegarnir í
þessmn leik keppa svo um meist-
aranafnbótina kl. 2 og fær sigur-
vegarinn að verðlaunum auk nafn-
bótarinnar, silfurbikar, gefinn af
Seheving Thorsteinsson lyfsala. —
Er það farandbikar, er aldrei
vinst til eignar. Þá fær hann og
gullnælu, sem í. R. gefur sigurveg-
ara árlega. — Auk þess fær sig-
urvegari, sje hann meðlimur í. R.,
rneistaraverðlaun frá því fjelagi,
og er það silfurdiskur. — Önnur
verðlaun er silfurnæla. — Verð-
launin afhendir formaður í. S. I.
að afloknum úrslitaleik. Á eftir
verður sýndur fjögra manna tenn
isléikur, tveir á móti tveimur. —
Taka þátt í þeim leik: annars
vegar Simon konsúll Frakka og
Strögberg, en á móti eru Magnús
Andrjesson og Guðlaugur Guð-
mundsson, eftir hlutkesti. Aðgang
ur er ókeypis fyrir alla.
Gullbrúðkaup eiga þau á þriðju
daginu kemur (25. þ. mán.) Stein-
unn Árnadóttir og Jón Jónsson
bóndi á Hafsteinsstöðum í Skaga-
firði.
Uffe, mokstursskipið, sem hefir
verið að dýpka Akureyrar- og
Siglufjarðarhafnir í sumar, er nú
komíð hingað' til Reykjavíkur.
Af veiðum komu í gær: Baldur
með 86 tunnur lifrar, Slcúli fó-
geti með 87 tunnur og Barðinn
með 60—70 tunnur.
Bremar, fisktökuskip, kom hing
að í gær; tekúr fisk hjá Copland.
Enskur togari kom hingað inn
í gær með veikan mann.
Sjómannastofan. Samkoma í
kvöld kl. 6 og annað ltvöld kl.
8l/2. Hr. Norheim talar.
Per B. Soot, norskur blaðamað-
ur hefir verið lijer í sumar. Hefir
liann skrifað 28 greinir um Is-
land og íslendinga í norsk dag’-
bloð og vikublöð. 1 „Oslo Tllu-
strerte“ er grein um íslensk skáld
og íslenskan skáldskap (satntál
við Einar H. Kvaran) og fylgja
myndir af E. H. Kvaran, Sírnoni
Dalaskáldi, Jónasi Hallgrímssyni
og Hannesi Hafstein. Önnur grein
er í sama riti um íslenska leik-
list (sámtal við Indrið'a Waage)
og fylgja myndir af ýmsum leik-
öndum. í „Iljemmenes Vél“ er
grein um íslendinga og norrænar
bókmentir (samtal við dr. Sig-
ut'ð Nordal) með mynd af þeim
dr. Páli E. Ölasyni, Sigurði Nor-
dal, Jóannesi Paturson og Jónasi
Jónssyni ráðherra. í satna riti er
einnig grein um íslenskar þjóðsög-
tit' og æfintýr (samtal við frú
Theódóru Tlioroddsen) ineð mynd-
um eftir Guðmund Thorsteinsson
úr „Þulum“. Þar fer blaðamaður-
inn rangt með, er hann segir, að
sáralítið hafi kornið á prent af
]>jóðsögumtm, en frú Theódóra
ltafi þó riðið' á vaðið og gefið út
ft'rii' nokkrtim árunt bók nm ís-
lenska þjóðtrú. — Auk þessa
eru greinir um ýms íslensk mál í
ýmsum blöðurn, svo sem „Morgen-
'posten* ‘, „Morgenavisen", „Nor-
ges Handels og Sjöfartstidende“
o. s. frv.
Hjúskapur. Fyrra sunnudag voru
gefin saman í Þykkvabæjarkirkju
ttngfrú Pálína Þórðardóttir frá
HávarSarkoti og Bjarni Ölafsson
bókbindari úr Reykjavík.
S m æ 1 k i.
— Jeg heýri sagt að faðir yðar
sje veikur! Er það' smitandi sjúk-
dómur ?
Ónytjungur: Jeg vona að svo
sjc ekki. Lækniriun sagði að hann
befði reynt of rnikið á sig!
Kven-
vetrarkðpnr
voru teknar upp
í gær.
Verð frá kr. 29.00
958
Blð Gbevintsfð!
nýkomin,
fást hvergi betri nje
ódýrari en í
Brauns-Verslun.
Fyrirliggjandi
Linoleniia
Fjölbreytt úrval
— lá^t verð.
Látúnsbryddingar
| Filtpappi
Linoleumlím
Kopalkitti
Hurðarskrár
Hurðarhúnar
Hurðarpumpur
Loftventlar
Handdælur
Slípvjelar.
Stál-M|ámskaiitar
fás'l i
JÁRNVÖRUÐEILD
jes zimasEN