Alþýðublaðið - 13.06.1958, Blaðsíða 6
6
Alþýðublaðið
Föstudagur 13. júní 1958.
Dr. Jóhannes Nordal:
HÉR BIRTIST forustugrein síðasta
heftis Fjármálatíðinda, sem Landsbanki
íslands gefur út, en þar eru rædd úrræði
ríki'sstjórnarinnar í efnahagsmálunum.
Greinarinnar hefur áður verið getið í fréttum,
en Alþýðublaðið tekur sér það bessaleyfi
að koma henni í heild á framfæri við
Iesendur sína.
I.
UNDANFAÍRNA mánuði hef-
ur verið við vaxandi örðugleika
að etja í efnahagsmálum. Mik-
ið jaífnvægiSleysi hefur verið á
peningamarkaðnum, útlán hafa
aukizt ört og gjaldeyrisstaðan
versnað, svo að til vandræða
Jhorfir. Orsakir þessarar þróun-
ar hafa meðal annars legið í
því, að um síðustu áramót voru
fjárlög afgreidd án þess að séð
væri fyrir nægi'legum tekjum
til að tryggja hallalausan rikis-
búskap að óbreyttum niður-
greiðslum og öðrum gjöldum.
Einnig voru þá gerðir nýir
samningar um uppbætur til
sjávarútvegsins, sem höfðu í
för með sér alliverulega út-
gjaldaaukningu útflutnings.
sjóðs. Leiðir til lausnar á þess-
um vandamálum voru síðan til
athugunar um langt skeið, og
hinn 13. maí s. 1. var loks lagt
frarn á Alþingi frúmvarp til
iaga um útflutningssjóð o. fl.,
og er megintilgangur þess að
aflá tekna til að trvggja halla-
lausan rekstur útflutningsat-
vinnuveganna og ríkisbúskap-
arfins. Frumvarp þetta er enn
til umræðu á alþingi, þegar
þetta er rita, en verður vænt-
anlega að lögum fyrir mánaða-
mótin.
II.
Hið nýja frumvarp um út-
flutningssjóð gerir ráö fyrir all-
víðtækum breytingum á núver.
andi uppbótakerfi, og verður
rækileg grein gerð xyrir því,
svo og öðrum þáttum frumvarps
ins, í næsta hefti Fjármálatíð-
inda. Frumvarpið felur í sér
mjög mikla viðbótartekjuöfiun,
enda verð] tryggður hallalaus
ríkisbúskapur á þessu ári og
rekstrarafkioma útflutningsat-
Vinnuveganna bætt frá því, sem
.Verið hefur.
En jaínframt því, sem gert er
ráð fyrir, að styrkjakerf'i það,
sem höfuðatvinnuvegu'n; r hafa
byggt afkomu sína á undanfar.
in. ár, verðí enn aukið að mun,
felst í frumivarpinu a.llveruleg
stefnubreyting að því er varð-
ar fyrirkomulag styrkveitinga
og tekjuöflun. Gerir frumvarp-
ið ráð fyrir einfaldar upp-
er mjög minnkað frá því, sem
verið hefur, og er nú gei’t ráð
fyrir, að greiddar verðj upp-
bætur á allan útflutnmg og
duldar tekjur íslendinga erlend
is. Breytingar þær, sem fyrir-
hugaðar eru á tekjuöflun til út-
flutningssjóð’3, hníga í sömu
átt. Að vísu er ætlazt til, að
mikilla tekna verði aflað með
mjög háumi álögum á ákveðna
vöruflokka, sem ekki telj-
ast til brýnna nauðsynja, og
er hætt við, að þetta reynist
einn veikasti hlekkur hins nýja
kerfis, þar sem vafasamt er,
hvort gjaldeyrir verður fyrir
hendi eða nægur kaupmáttur til i
að tekj uáætlanir standist. Að |
öðru leyti er verulega dregið
úr misræmt því, sem veriö hef-
ur á álögum eftir vöruflokkum,
t. d. er gert ráð fyrir, að al-
mennar rekstrarvörur útflutn-
ingsframleiðslunnar heri sama
yfirfærslugjald og. meginþorri
innflutningsins.
Óhætt mun að fullyrða, að
sú stefnubreyting, sem hér hef-
ur átt sér stað, horfi mjög til
bóta. Vænta má, að jafnari út
flutning’suppbætur muni stuðla
að betri nýtingu og dreifingu
framleiðsluaflanna á milli mis-
munandi greina útflutnings-
framleiðslunnar. Hitt er ekki
síður mikilvægt, að dregið sé
úr hinu geysil’ega misræmi, sem
orðið var í verðlagi innfiutn-
ings vegna mdsmunandi ir.n-
flutningsálaga. Var ljóst orðið,
að þetta misræmi Kafði í för
með sér óhóflegan innflutning
og notkun þeirra vörutegunda,
einkum rekstrarvara og atvinnu
tækja, sem haldið var óeðii-
lega ódýrum í sam.aúburði við
vöruverð aimennt og irmiend-
ins að hafa mest að segja varð-
andi aukningu þjóðart’eknanna
og almenna velmegun. Það er
því mikilvægt, að reynt sé á
ný að draga úr því misreemi í
Dr. Jóhannes Nordal
verðlagi, sem farið hefur vax-
andi með útfærslu uppbótakerf-
isins á undanförnum árum, en
þrátt fyrir það skref, sem nú er
verið að stíga, er enn langt x
land áður en komið verði á
heilbrigðu verðmyndu.narkerfí
hér á landi.
III.
End.a þótt takast megi með
ráðstö'funum þeim, sem útflutn
ingssjóðsfrumvarpið gerir ráð
fyrir að koma á greiðslujöfnuðj
á þessu ári hjá ríki'ssjóði og út-
flutningssjóði, eru ekkí mikil
líkindi til, að það ráði bót á
hinu mikla jafnvægisleysi gagn
vart útlöndum, sem emkemit
hefur efnahagsþróun á í'slandi
s. 1. þrjú ár. Grundvallarorsök
þessa jafnvægisleysis er um-
frameyðsla þjóðarbúsins í neild,
bæði í formj mikillar fjárfest-
ingar og neyzlu. Hið mikla mis-
ræ’rni, sem hefur skapazt á
milli framboðs og eftirspurnar
í heild, hefur komið fram inn
á við í sífelldri penin.gaþenslu
og hækkandi verðlagi, en út á
við í vaxandi greiðsluhalla gagn
vart útlöndum. Hefur þessi
halli verið jafnaður s. I. tvö ár
að miklu leytj með stórfelldum
erlendum lántökum, en, jafn-
framt hefur gjaldeyrisstaða
bankanna farið sáiversnandi, er-
lendar innstæður verið etnar
upp, en láusaskuldum safnað í
erlendum bönkum.
Þessar leiðir eru ekkj til
lengdar færar til þess að jafna
metin milli framleiðslu þjóðar-
búsins og útgja'lda. Takmörk
eru fyrir því, hversu mikil lán
er hægt að fá erlendis, en m,eð
vaxandi skuldum þyngist óðum
sá baggi .vaxta og afborgana,
bótakerfi, þar sem misræmið | an tilkostnað. Þegar til lengdar
á milli uppb óta til einstakra1 lætur, 'hlýtur hagkvæm nýt-
greina útflutningsframleiðslu ing framleiðsluafla þjóðarbús-
frir kvenskór úr leðri,
tnaðir.
iiUik, Laugavegi 63
ið á Vitastíg og Laug’avegi).
Nýff
Nýtízku sófaborð, gerð, sem hvergi er fáanleg
nema hiá okkur. Komið og sjáið þessi fallegu borð.
BéistfurgerSin hf.
Skipholti 19 — Sími 10-3-88.
sem þjóðarframleiðslan verður
að bera, og dregur úr þeim
gjaldeyristekjum, sem til ráð-
stöfunar verða í frámtíðinni til
annarra þarfa. Varðandi gjald-
eyrisstöðu bankanna er þegar
svo komið, að frekari skulda-
söfnun, erlendis kemur alls ekki
til miála, ef forðast á stórvand-
ræði í gjaldeyrismálum.
IV.
Ráðstafanir til að bæta af-
komu útvegsins og að draga úr
misræm, milli aðstöðu atvinnu
veganna, svo sem að er stefnt
með útfI utningssj óðsfrumvarp.
inu, eru vissulega nauðsvnleg
forsenda þess, að jafnvægi geti
komizt á milli fraimboðs og eft-
irspurnar í þjóðfélaginu. Hitt
er engu síður ljóst, að hverjar
þær ráðstafanir, sem, gerðar eru
til að bæta hag útflutningsat-
vinnuveganna og ríkissjóðs,
hljóta að renna út í sandinn á
skömmum tíma, ef ekki tekst
jaifnframt að stöðva þensluna
innan lands og koma á jafnvægi
á mllli framiboðs og eftirspurn-
ar. Þetta hefur sannazt hvað
eftir annað á undanförnum ár-
um. R'áðstafanir, sem gerðar
hafa verið til þess að skapa út-
flutningsframleiðslunni nauð-
synleg afkomuskilyrði, hafa
haft í för með sér verðhækkan-
ir, sem aftur hafa leitt til kaup.
hækkana, unz svo hefur verið
'komið, að útflutningsatvinnu-
vegirnir hafa aftur verið komn-
ir í þr'ot vegna aukins fram-
leiðslukostnaðar.
Ástæðan fyrir því, að svona
hefur farið, er fyrst og fremst
sú, að ekki hefur verið horfzt í
augu við þá staðreynd, að það
er hvorki hægt. að draga úr um-
frameftirspurn í þjóðfélaginu í
heild né bæta afkomu einstakra
atvinnuvega án þess að það
komj ein’hvers staðar niður. Ef
enginn vill taka á sig byrðarn-
ar, leiðir það til þess, að hver
veltir þeim yfir á annan í kapp
hlaupi kaupgjalds og verðlags.
Að hve miklu leyti menn eru
reiðubúnir að taka á þessu
vandamáli, mun skera úr um
það, hvort ávinningur hinna
fyrij.'huguðu ráðstafana verði að
engu-gerður á mokkrum mánuð
um eða hvort þær marka varan-
leg skrsf í átt til jafnvægis í
efnahagsmálum: landsins. Fjarri
fer því, að hér sé um atiðvelt
viðfangsefni að ræða. Sé sam-
dráttur nauðsynlegur, er fátt
stjórnirjálalega erfiðara en að
ákveða, úr hvaða hluta af heild
arneyzlu þjóðarfoúsins eigi helzt
að draga. Á að minnka nsyz-1-
una cg þá hverra? Eða er heppi
legra að mismunurinn fálst með
minni fjárfestingu?
Varðandi neyzluna skiptir
stefnan í kaup'gjaMsmalum
einna mestu máli. í frumvarp-
inu er gert ráð fyrir 5%. kauþ-
hækkun þegar í upphafi. Tak-
ist ekki að konna í veg fyrir
frekari hækkanir vegna vísitölu
bindingar launa eða kaupdeilna,
hlýtur jafnvægi hins fyrirhug-
aða uppbótakerfis að raskast.
Það er því beinliínis nauðsyri-
legt að marka heilbrigða stefnu
í kaupgjaldsmlálum, ef árang-
ur á að nást. Hin’s vegar er
varla kleift að ná jafnvægi með
því einu að drag'a úr neyzlu.
EðMlegra og vafalaust auðveld.
ara er að ná því að mestn með
samdrætti hinnar miklu fjár-
festingar.
Frumvarp ríkisstjórnarinnar
gerir ráð fyrir verulegri hækk-
un á innfluttum vörum iil fram
kvæmda. Ætti þetía í sjálfu sér
að hafa áhriif til samdráttar á
fjiárfestingu í landinu. Hvort
svo fer í rayndinni, er þó undir
því komið, að peningaveltan
aukist ekki að sama skapi vegna
aukin.na útl'ána. Nokkur aukn-
ing er að vísu óurhflýj anlég
vegna vaxandi tilkostnaðar. ef
forðast á reks trarstöövanir. —
Hins vegar þarf eftir föngurn
að koma í veg fyrir, að bank-
arnir veití fé til fjárfestingar.
í þessum efnum er varla veru-
legs árangurs að vænta nema
mörkuð verði samræmd stefna
af ríkissjóði og b'önkunum í því
skyni að draga úr peningaþensl
unni.
Framliald á 8. síftn.
s
s
s
s
s
s
V
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
Ssleetzk ©g erlend úrvalsljóð —
effSr Eisiar H. Kvaran.
YGGLDAN sko’laði Sindb'að um sjá,
unz síðasta skipbrotið leið hann.
Hann molaði fleyið sitt Feigsbjargi á,
og fádæma hörmungar beið hann.
Svo lagði hann inn í ægi'leg göng,
er af tók að draga þróttinn;
þar drúptu gljúfrin svo dauðans-þröng
og dimm eins og svartasta nóttin.
Þá förlaðist kraftur, og féll á bann dá
í ferlegum dauðans helli.
— En hinum megin var himin að sjá
og hlæjandi blómiskrýdda vélli.
— Svo brýt ég og sjálfur bátinn minn
og berst inn í gljúfra-veginn. —
Við förum þar Ioksins a'llir ínn. —
En er nokkuð hinum megin?
V
s
s
s
s
s
s
i
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
's
s
s
s
s
$
s
V
s
s
s
s
s
$
s
s
s
$
*
s
s
s