Morgunblaðið - 07.05.1939, Qupperneq 2
Sunnudagur 7. maí 1939.
,? MORGUNBLAÐIÐ
1 - ..... . ... }_____________:_____
Hitler og
Norðurlönd
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Undirtektirnar undir uppá-
stungu Þjóðverja um
„ekki-árásar-sáttmáJia“ við Norð
urlönd eru nú að koma fram.
í NOREGI hafa öll blöð sam-
hljóða lýst sig andvíg því, að
slrkur samningur verði gerður
við Þfóðverja, þar sem það gæíi
haft í för með sjer að Norð-
rhenn yrðu taldir meðál þeirra
Jtjóða, sem fylgja Þjóðverjum
í utanríkismálum.
f SVÍÞJÓÐ segir ,,Social-
demokraten“ að mikill meiri-
bluti allra flokka sje fráhverf-
„ekki-árásar-sáttmála“ við
Þjóðverja.
Aftur á móti. er aðstaða
OANA alt önnur en annara
Norðurlanda vegna legu lands-
ins.
, Vegna þess að Danir eiga
land að Þýskalandi er það taÞ
ið æskilegt, að Danir noti hvert
tækifæri sem þeir fá til þess að
lef?gja áherslu á hlutleysi sitt
og móttaka loforð um, að það
verði virt.
Svipuðu máli gegnir um
FINNA. Þeir hafa m. a. gert
pk^i-árásarsamning við Rússa.
Jjipsvegar er ljóst, að sameig
inlegt svar Norðmanna, Dana,
Svía og Finna mundi verða til
stuðnings aðstöðu þeirra í yfir-
standandi tvísýnu í alþjóða-
málum. (NRP—FB.).
Tyrkinn
sfyður
Brefa
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
| D rá Ankara, höfuðborg Tyrk
lands, kemur fregn um
það, að samkomulag hafi orðið
milli Breta og Tyrkja um gagn
kvæma aðstoð til þess að
tryggja frið í austanverðu Mið
Jarðarhafi.
Rússnesku stjórninni hefir
verið tilkynt jafnóðum um gang
þessara samninga.
Slökkviliðið var í gær kvatt í
Hafnarstræti 6 (óbygð lóð). Hafði
þar verið kveikt í rusli í litlum
sktir, sem stendur á ló.' n.i, Var
eldurinn brátt slöktur. Skemdir
urðu engar.
Tengdapabbi verður leikinn í
kvöld. Athygli skal vakin á því
að nokkrir aðgöngumiðar verða
seldir á kr. 1.50.
B.v. Hilmir kom af veiðum í gær
50 föt lifrar.
Drengjahlaup Hafnarfjarðar fer
frám í dag kl 4 og hefst við
íffekjargötu. Margir keppendur.
lífaupið er kílómetri.
Guðspekif jelagið. Reykjavíkur-
stúkan og Septíma halda saineig-
inlegan fund mánudagiun 8. þ. m.
kl. 9. Lotusdagur. Starfslok.
Til Kotvogsfólksins. Frá A. X.
10 kr.. Margrjeti Þorláksdóttur 5
kr., Þórði Sím. 5 kr.
Hitler og Mussolini ekki
sammála um Pólland
Samningar Breta
við Rússa:
Nýjar tillögur
Frá frjettarítara vorum.
Khöfn í gær.
Bretar hafa hafnað tillögum
Rússa um þrívelda-
hernaðarbandalag milli Breta,
Frakka og Rússa.
1 svari sínu koma Bretar fram
með nýjar tillögur og er í þeim
gert ráð fyrir, að Rússar takist
ábyrgð á herðar aðeins í
Austur-Evrópu. Skuldbindingar
Rússa koma aðeins til fram-
kvæmda, þar sem Bretar eru
bundnir loforði um stuðnihgsogj
ekki fyr en eftir þesSu toforði
er kallað.
Halifax lávarður ,utanríkis-
málaráðherrai Breta, átti í dag
tal við Maisky, sendiherrai
Rússa í London, og tilkyrjtýboirH
um efni hins breska svarp, sem
mun verða fengið sovjfetf^tjórn-
inni í hendur af sendiherra
Breta í Moskva.
tPrAvBN
K0N/GSBER6\
ÖST<> <
~ , r*".y PREl/SSEN /'
Lv/.(\
/* sföí 0' .r
° L E N
. . ■ i: .■ :
Afstaða Danzig-friríkisífts til Aust-
,ur-Prú§slands j og ;)póilands. Talið
er að hersveitir Pólverja geti
komist á hálfri klukkustund að
torginu um miðbik Danzig-borgar,
en Þjpðverjar .kamisfc,. þangað á
ekki skemri tíma en ,2 klst. ,
Bresku kon-
vestur um ðaf
Þýsk-rússnesk
samvinna?
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn i gær.
VxAÐ er augljóst af skrifum þýskra og ítalskra
blaða, að ósamkomulag er á milli „öxuls“-ríkj-
* anna, Þýskalands og ftalíu, um Pólland. Þýsk
blöð fordtbmá ræðu Becks ofursta og kalla hana (skv.
FÚ.) lygaræðu. *
Það verður hinsvegar ráðið af ítölskum blöðum, að
ítalir telja það óforsvaranlegt að hætta á Evrópustyrj-
öld út af Dánzig'
Itölsk blöð fördæma ýfirleitt ekki tóeðu Becks ofursta og
segja, áð eftir ræðuhá &jeu miklir mögulóikar á því, að ná frið-
samlegum samningum. : ,m > *'
'Von Ribbentrop er nú kominn til Ítalíu til þess, að því er
talið er. að réyna að jafna ágreining Þjóðverja við ítali. Hann
ræddi við Ciano greifa í kvöld.;
„The Times“ skýrir frá því í skeyti frá Rómaborg í dag,
að Þjóðverjar muni reyna að ná samkomuliagi við
Rússa, ef Pólverjar halda áfram að streitast á móti kröf-
um þeirra. Italir halda því fram, að Þjóðverjar hafi þeg-
ar stigið fyrsta sporið í þessa átt.
ÞJÓÐVERJAR BIÐJA UM TILLÖGUR
„Berliner Börsen-Zeitung“ segir í dag um ræðu Becks, að
hann hafi slegið á framrjetta hendi Þjóðverja. Blaðið segir, að
Póiverjar verði að sýna, að þeir sjeu fúsir til vináttu við Þjóð-
verjá og géra þáð'fneð því að eiga frumkvæðið að nýjum samn--
ingágerðum. Þeir verði að koma fram með tillögur, en geta ekki
væiist að Þjððvérjar kórfti fram með tillögur.
Mannlaus blil veldur
stéríjðni
Sá atburður vildi til um 11
Jeytið í gærmorgun, að
mannlam bíU rann til í halla
og lenti á stórum verslunar
gluggarúðum og braut þær
Nemur tjónið mörg hundruð
krónum og það sem verra er,
að ólíklegt má telja, að svo stór
rúðugler fáist nú hjer á landi
sem stendur.
Bíllinn, sem rann á rúÖnrnar
var sorphreinsunarbíll bæjarins.
Hafði hann verið skilinn eftir á
Veghúsastígnum, milli Lauga-
vegs Apóteks og Laugavegs 18,
en sá stígur hallar talsvert nið-
ur að Laugavegi. Beint á móti
Veghúsastígnum er húsið Lauga
vegur 15, eign L. Storr. Þar í
húsinu er og verslunin Skermp,-
búðin. Rann bíllinn þvert yfir
Laugaveginn og á glugga
Skermabúðarinnar. Braut hann
aðalsýningargluggarúðuna ogv
gluggakai*minn með og einnig
smærri rúðu.
Á ýmsum stöðum við strend-i
ur Finnmerkur hafa sjest kaf-
bátar og hefir eftirlitsskipinu
Fridtjof Nansen verið skipað
að athuga hverra þjóða kafbát-
ar þessir sjeu. (NRP—FB).
100.000 bílar eru nú í Nor-
egi, sem ganga fyrir hreyfil-
afli 'og er verðmæti þeirra 350
milj. kr. (NRP—FB).
Frá frjettaritara vorum-.
Khöfn í gær.
Bresku konungshjómn, Ge-
org VI. og Elisabeth
drotning lögðu af stað í dag
opinbera heimsókn til Kanada,
Bandaríkjanpa og Nýfundna-
lands með hafskipinú „Empress
of Australia“ í dag. Verða þau
á ferð í Ameríku fram í næsta
mánuð.
Þegar skipið lagði af stað
frá Portsmouth, Ýýlgdu því 17
herskip, þar af 3 stærstu her-
skip Breta.
Upphaflega ætluðu konungs-
hjónin að fáfá í hinu svonefnda
orustubeitiskipf>;,,Repulse“ sem
er hraðskreiðasta skip breska
fiotans. En vegna ástandsins í
álfunni var horfið frá því ráði.
Tvö herskip „Glasgow" og
„Southamton“ fylgja „Empress
of Australia“ alla leið vestur
um haf.
Austurvöllur. Matthías Ásgeirs-
'soii, gárðyrkjuráðunautur bæjar-
ins, ér nú'áð byrja að láta prýða
Aiistúrtölf fyrir suimirið. \''erða
ræktnð 'þar blóm ‘/eins "og nndan-
farin sinfiur og alt' gert til þess að
jirýða sem mest þenna fag.ra blett
í miðjum bænum DáVit.lar breyt-
ingar verða gerðar ái yelliirum. T.
d. verða göturnar brgikkaðar
nokkuð. Bæjarbúgr ættu allir sem
einn að yera samlmga í bví að
hlúa að Áusturveíli og láta sjer
ant um að hann líti sem best út.
Ekki er ætlast til annars af bæj-
arbúum, eit' að þeir gangi vel um
vollitth og gæti þess að traðka
ekki í blómabeðunum- eða grasinu.
Fyrirlestur um
fingrarím
Sig'urþór Runólfsson á Álafossi
fingrarímsmaður, senr skrif-
að er nm í Lesbókinni. ætlar í dag
að halda fyrirlestrrr um fingrarím
í Varðarhúsinu.
Margir, sem þekkja Sigurþór,
bafa beðið hann um að kenna sjer
þessa gömlu list. En bann hefir
ekki farið út í það enn, að kenna
þetta öðruni.
Þó menn kæri sig ekki run að
leggja á sig það erfiði, að læra
fingrarímið, munu ýmsir hafa
gaman af því að heyra Sigurþór
segja frá þessu, og sýna hvernig
hann getur, eins og gamlá folk-
ið kunni, notað fingur sína fvrir
almanak.
Fyrirlesturinn ei' í Varðarhús-
inu kl. 2 e. h. »
Eimskip. Grrllfoss tor frá Vest-
mannaeyjum í fyrradag síðdegis
ále.iðis til Leith. Goðafoss kom frá
útlöndum milli 7 og 8 í gærkvöldi.
Brúarfoss er í Reykjavík. Detti-
foss er í Hamborg. Lagarfoss er
á leið til Austfjarða frá Vest-
mannaeyjum. Selfoss er á leið til
Áustfjarða frá Hamborg.
Gestir í bænum. Hótel Borg:
Jón Björnsson, Borgarnesi. Hótel
Vík: Gunnlaugur Blöndal listmál-
ari, Kaupmannáhöfn • Ásgrímur
Sigurðsson skipstjóri og' frái,
Siglnfirði.
Yfirleitt leggja þýsk blöð á-
herslu á að Beck hafi ekki kom-
ið fram með neinar ákveðnar
tillögur. Talsmaður utanríkis-
málaráðuneytisins sagði í morg-
un að ræðan sje á engan hátt
fullnægjandi samningsgrund-
völlur.
Sum þýsk blöð flytja í dag
(skv. F.Ú.) langan lista af árás-
um sem þau segja að gerðar
hafi verið á Þjóðverja í Pól-
landi og eignir þeirra.
GÓÐAR UNDIRTEKTIR.
í Englandi hefir ræðu Beclts
verið ágætlega tekið. Er hún tal-
in virðuleg, ákveðin og lipurlega
samin. Bretar segja að enn sje'
ekki of seint að taka tipp samri-
inga.
Bresk blöð vekja athygli á því
að Beck gerði eitgar mótkröfur á
hendur Þjóðverjum, og er Bretum
þakkað ]iað nokknð. En slíka/r
mótkröfur hefðu getað liaft við-
sjár í för með s,jer þegar í stað.
PÓLVERJAR ÁNÆGÐIR.
London í gær F.Ú.
„Gazetta Polska“, blað pólsltu
stjórnarinnar, segir, að á hak við
sjerhvert orð í ræðunni standi öll
pólska þjóðin, og önnur pólsk blÖð,
hverjum flokki sem þau tilheyra,
tala um ræðuna á svipaðan hátt.
Brúðkaup sitt haida þ. 14. maí
næstkomandi frk. Ólína Daníels-
dóttir og Hjeðinn Sveinsson vjel-
fræðingur. Þau verða gefin sasnan
í Hans Tavséns kirkju í Kaup-
mannahöfn. Heimili þeirra verður
í Ilelgolaudsgade 13.