Morgunblaðið - 04.06.1939, Síða 7
Sunnudagur 4. júní 1939.
M0RGUNBLAÐ5Ð
7
Ekta olívenolíu
nærandl krcm
(skin food). Notið það
á hverju kvöldi ef húð-
in er þur, veðurbarín,
sólbrend.
Krukkur 2.50, 3.50, 5.00.
Laugaveg 19.
Borðlampar,
Vegglampar,
nýkomnir.
Skermabúðin.
Laugaveg 15.
AH 0 AÐ hviliat
oaeS gleraagum frá
THIELE
• Teiknistofa
J Sig. Thoroddsen
5 verkfræðixigs.
% Austurstræti 14. Sími 4575.
• Útreikiiingxir á j ámbentri
• steypu, miSstöðvarteikningar
o. fl.
iHiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimimiiimiiiiiiiiiiiiiiii^
Ólafur Þorgrímsson j
lögfræSingur.
| Viðtalstími: 10—12 og 3—5. |j
Austurstræti 14. Simi 5332. §
Málflutningur. Pasteignakaup |
Verðbrjefakaup. Skipakaup. |
Samningagerðir.
vonHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimnniinninmiii
Óbarinn
harðfiskur
0.75 V? kg.
ViSIR!
Laugaveg 1.
Útbú Fjölnisvegi 2.
IÍÁLAFLUTN1NGSSKR1FST0FA
Pjetur Magnússon.
Einar B. Guðmundsson.
Guðlaugur Þorláksson.
Símar 3602, 3202, 2002.
Austurstræti 7.
Skrifstofutími kl. 10—12 og 1—6.
Kappleikurinn í gær
IHAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
ur hans eru eínstakar í ná-i
kvæmni, en hann fjekk sjaldan
tækifæri til að notfæra sjer
þann góða eiginleika venga þess
hvað hann sækir mikið aftur.
FYRRI HÁLFLEIKUR.
Strax á 1. mínútu fyrri hálf-
leiks fá Valsmenn tækifæri á
marki, en Ellert skallar yfhv
Valsmenn halda sókn sinni
fyrstu 5 mínúturnar og á 6. mín-
útu gera þeir gott upphlaup.
Ellert, Magnús og Sigurpáll, en
það upphlaup eyðilegst með
því að Ellert og Björgúlfur
standa báðif ranstæðir. •
Á 7. mínútu gera K. R.-ingar
upphlaup, en komast ekki nema
að vítateig. Á 8. mínútu er tek-i
in hornspyrna á K. R., sem þó
er hættulaus. 10 mín: K. R.-
ingar herða sig um stund og ná
góðum upphlaupum, sem þó
stranda á vörn Vals. Á 16. mín-
utu spyrnir Óli B. Jónsson lag-,
legu skoti á mark, en Her-
mann ver vel.
22. mín: Óli B. Jónsson set-
ur mark 1:0. — Valur herðir nú
sókn sína án þess að þeim tak-
ist að ná verulega góðum sam-,
leik og fyrri hálfleikur endar
með því að K. R.-ingar hafa eitt
mark yfir.
SEINNI HÁLFLEIKUR.
Seinni hálfleikur hefst með
því að aukaspyrna er tekin á
K. R. Ekkert verður úr og er 3
mínútur eru liðnar, er tekin
aukaspyrna á Val. Yfirleitt fekk
Valur á sig mikið fleiri auka-
spyrnur í leiknum.
Á 9. mínútu setur Björgúlfur
fyrsta mark Vals. 1:1.
K. R.-ingar herða nú sóknina
og á ;14. mínútu leikur Hans
Kragh fallega upp að markinu.
Þar verður þvaga, sem endar í
aukaspyrnu á Val á endamörk-
um vallarins mitt á milli horns
og marks. Bjargast þá mark
Vals naumlega.
19 mínútur: Hans spyrnir fal-
lega á mark, en Hermann ver.
31 mínúta: K. R. hefir haldið
sókn um stund, en .síðan gengur
á upphlaupum frá báðum. Þegar
5 mínútur eru eftir af leik tekst
Björgúlfi að skora annað mark,:
2:1.
K. R.-ingar gera nú hvert upp-
hlaupið á fætur öðru, en þeim
tekst þó ekki að jafna.
í leikslok þustu áhorfendur út
á völlinn og föðmuðu Valsmenn
að sjer. Síðan fór mannfjöldinn
með þá að sttikunni, þar sem
verðlaun voru afhent.
Mjer datt í hug, er jeg gekk út
af vellinum, að það væri gott fyrir
Valsmenn að þeir væru ekki í
Ameríku, þar sem almenningur
reynir að fá minjagripi af fræg-
um mönnum með því að rífa föt
þeirra og geyma. Vívax.
★
I. fl. mótið heldur áfram í dag
og verður kappleikur kl. 10 f. h.
í dag- milli Fram og Víkings.
Kennarar og nemendur frá
Kvennaskóla Húnvetninga: Munið
fundinn á Hótel Skjaldhreið á
þriðjudagskvöld' Rætt um norður-
för og fleira viðvíkjandi afmæli
skólans. Fundurinn hefst kl.
stundvíslega.
Dagbók.
Veðurútlit í Rvík í dag: SV-
gola. Skúrir.
Helgidagslæknir er í dag Hall-
dór Stefánsson, Ránargötu 12.
Sími 2234.
Næturlæknir er í nótt Berg-
sveinn Ólafsson, Hávallagötu 47.
Sími 4985."'"
Engin meSsa í Laugarnesskóla
í dág.
Þingvallakirkja, Messað í dag
kl. 1. (Ferming)*. Síra Hálfdan
Ilelgason.
Hjúskapur. Nýlega voru gefin
saman í hjónaband hjá lögmanni
Ásta E. Jónsdóttir og Geir Bald-
ursson bifvjelavirki. Heimili þeirra
er á Klapparstíg 11,
Hjúskapur. Gefin voru saman í
hjónaband ungfrij María Magnús-
dóttir og Jón Jónsson klæðskeri.
Heimili ungu hjónamla er á Brá-
valiagötu 26.
Hjúskapur. 1 gær voru gefin
saman í hjónaband af síía Árna
Sigurðssyni ungfrú Fanney Sigur-
geirsdóttir, Skólavörðustíg 33, og
Kristbjörn Tryggvason læknir. —
Ungu hjónin fara til Danmerkur
með Gullfossi annað kvöld.
Heyskapur var byrjaður í Braut-
arholti á Kjalarnesi í gær.
Eimskip. Gullfoss er í Reýkja-
vík. Goðaföss kom til Önundar-
fjarðar síðdegis í gær. Brúarfoss
fór frá Leith í gær áleiðis til Vest-
mannaeyja. Dettifoss er á leið til
Grimsby frá Vestmannaeyjum.
Lagarfoss er á Akureyri. Selfoss
er á leið til laudsins frá útlöndnm.
UngTrehnadeild Slysavarnafje-
lagsins aðstoðár við Sjómanna-
daginn í dag með því að selja að-
göngumiða að Iþróttavellinum.
Þess vegna eru allir meðlimir
hennar beðnir að mæta kl. 1 e. h.
í dag á skrifstofu Slysavarnafje-
lágsiiis í Hafnarstræti,
6 ára, en ekki 16, var pilturinn
(Árni Ólafsson), . sem fórst, af
slysförum við bryggjugerðina á
Skagaströnd á föstudaginn var.
Árni litli var uppeldissonur Carls
Berndsens.
Prentvilla var í blaðiiiu í fyrra-
dag, þár sem sagt var frá sam-
sæti Pjeturs Zóphóníassonar, stóð
Steinn Dorfi í staðihn fyrir Steinn
Dofri.
Útvarpið:
Sunnudagur 4. júní.
10.45 Morguntónleikar (plötur).:
a) Symfónía í fis-moil,l',eftir
Haydn. . ,
b) Píanókohsert í A-dúr, eftir
Mozart. . '• ,
11.50 Hádegisútvarp.
13.30 Útvarp frá útihátíð sjö-
mannadagsins við Leifsstyttuna
í Reykjavík: Ræður, söngur,
hljóðfæraleikur. ,) . .
17.00 Messa í Fríkirkjuiini (sjera
Árni Sigurðsson).
19.30 Hljómplötur: Ljett lög.
19.50 Frjettir.
20.20 Útvarp frá hátíð sjómanna
dagsins að Hótel Borg.
23.00 Danslög,
24.00 Dagskrárlok.
Mánudagur 5. júní.
12.00 Hádegisútvarp.
19.30 Hljómplötur: Ljett lög.
19.45 Frjettir.
20.20 Hljómplötur: Göngulög.
20.30 Sumarþættir (Valtýr Stef-
ánsson).
20.50 Útvarpshljómsveitin leikur
dönsk alþýðulög (Einsöngur
Gunnar Pálsson).
21.30 Hljómplötur-. Dönsk tónlist.
22.00 Frjettaágrip.
Dagskrárlok.
Vjelstjórafjelag islands
skorar á alla nieÖHmi sína að mœta í hópgöngu sjó-
manna, sem hefst frá Stýrimannaskólanum, kl. 12,50
í dag.
Vlætið stundvíslega kl. 12,30.
STJÓRNIN.
Sýning
Sj ómannadagsins
í Markaðsskálanum verður opnuð í dag kl. 4 e. h.
fyrir almenning.
SkipstjórafjelagiB A L D A N
skorar á alla meðlimi sína að mæta í hópgöngu sjómanna
sem hefst frá Stýrimannaskólanum kl. 12,50 í dag.
Mætið stundvíslega kl. 12,30
STJÖkNIN.
Funöur
verður haldinn þriðjudaginn 6. júní á Hótel Skjaldbreið.
*
Fastlega er skorað á kennara og nemendur frá kvenna-
skóla Húnvetninga að f jölmenna stundvíslega kl. 9 síðdegis.
NEFNDIN. 1
MorgunblaDið með morgunkaffinu
X #
Jarðarför mannsins míns,
SIGURÐAR SIGU RÐSSONA R
frá Hjalteyri,
er andaðist 25. f. m., fer fram þriðjudaginn 6. júní kl. iy2 e. h.
og hefst með bæn að heimili mínu, Helgadal við Kringlumýrar-
veg. Jarðað verður í Fossvogskirkjugarði.
Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað.
Inga Sigurbjamardóttir.
Hjartans þakkir til allra er aúðsýndu samúð við andlát og
• •, v ..... •»
jarðarför
FRIÐSEMDAR ÍSAKSDÓTTIJR
frá Ási.
Eiríkur Jónsson og böm.
Við þökkum hjartanlega fyrir alla þá miklu samúð og
hluttekningu sem okkur var sýnd við andlát og útför móður
okkar,
GUÐBJARGAR GUNNARSDÓTTUR,
frá Eystri-Kirkjubæ.
Elín Hjartardóttir. Sigríður Ujartardóttir.
Oddgeir Hjartarson.