Morgunblaðið - 16.11.1943, Side 1
Rússar sækja að Korosten
úr þrem áttum
Eru að umkringja
Gomel
London í gærkvöldi. Einkaskeyti til Morg-
unblaðsins frá Reuter.
RÚSSAR SÆKJA nú að Korosten úr þrem. áttum, og
eru þær sveitir, sem sækja að borginnj að suðaustan,
komnar allnærri henni. Að austan sækja Kósakkasveitir
fram, en að norðan er einnig sótt í átt til borgarinnar.
Rússar hafa tekið járnbrautárstöð eina allangt fyrir
vestan Gomel og þannig rofið þá undanhaldsleið
Þjóðverja úr þeirri borg. Hafa nú Þjóðverjar aðeins
opna leið til norðvesturs, ef þeir ætla að hörfa með setu-
lið sitt frá Gomel.
Bróðir Breiakon-
ungs vorður lands-
stjóri í Ástralíu
London í gærkveldi.
. TUjKYNT hefir verið o]>in-
þerlega, að hertoginn af Glou-
cester, bróðir Bretakonungs,
hafi verið skipaður landsst-jóri
í Ástralíu. Mun hann taka við
landsstjóraembættinu eftir
iiokkra mánuði. — Fregnir
herma, að mikill fögnuður sje
í Ástralíu vegna skipanar her-
togans í þetta embætti,
-— Reuter.
London í gærkveldi.
ARABAR í nágranna-
löndum Libanon eru ákaf-
lega gramir frönsku yfir-
völdunum þar fyrir tiltekt-
ir þeirra og berast mótmæl
in úr öllum áttum. Þannig
hefir Ibn Saud, konungur
Saudi Arabíu, sent Chur-
chill forsætisráðherra Breta
orðsendingu, og beðið hann
að beita áhrifum sínum í
þágu Libanonbúa. Einnig
hafa þeir mótmælt, Þjóð-
höfðingi Irak og F,arouk
Egyptalandskonungur.
Komið nefir til hópfunda
í mótmælaskyni gegn að-
gerðum Frakka, bæði í
Alexandríu í Egyptalandi,
Damaskus og Aleppo 1
Sýrlandi.
RÁÐIST Á SKIP ,
Á YANGTSE.
Chungking í gærkveldi.
Amerískar flugvjelar, sem
hafa hækLstöð í Kína, hafa
gert allharðar árásir á skip
Japana á Tangtsefljóti í Mið-
ICína. Var nokkrum skipum.
sökt, en önnur skemd.
— Reuter.
Casey, fulltrúi Breta í
Egyptalandi er nýkominn
frá Beyrut, og v,ar hann
þar að láta rannsaka at-
burð, er gerst ha,fði þar.
Höfðu stúdentar hópast
saman fyrir framan sendi-
herrabústað Breta í Beyrut,
daginn sem stjórnin var
handtekin, og er sagt að
stúdentarnir hafi viljað
beiðast aðstoðar Breta.
Skutu þá franskir hermenn
á stúdentana, og særðust
eða fjellu nokkrir þeirra.
I Alexandríu hitti Casey
Catroux hershöfðingi, sem
nú er á leiðinni ,austur til
Libanon og ræddust þeir
við um hríð.
Talið er að allmargt
Framhald á bls. 5
Þjóðverjar seg'.ja í dag, að
Rússar hafi víða byrjað hörð
áhlaup í Dnieperbugðunni,
bæði fyrir norðan Krivoi-rog
og Duiepropetrovsk. Segja
Þjóðverjar, að áhlaup Rússa
hafi þárna verið hörð, en flest
um þeirra hrundið. Einnig eru
bardagar sagðir halda áfram.
Rússar hafa að svo kommi
máli ekkert sagt um þessa
sókn.
Á KRÍMSKAGA.
segjast Rússar berjast til
þess að víkka út yfirráðásvæði
sitt við Kerch, og munu har-
dagar þar vera harðir, en að-
staðan þvínær óbreytt. Fyrir
austan Fastov og suðvestan
Zidomir kveða Rússar sig
hafa hrundið öflugum gagn-
áhlaupum Þjóðver ja. Á Koro-
stensvæðinu var bærinn Kag-
anowitch tekinn. Járnbrautar-
bær sá..sem tekinn-var fyrir
vestan Gomel, er á járnbraut-
inni milli Gomel og Kalinko-
viehi.
Þjóðverjar segjast hafa
eyðilagt 120 í’ússneska skrið-
dreka í bardögum í Dnieper-
bugðunni, og rekið Riissa yf-
ir Dnieper aftur, er þeir kom-
ust yfir fljótið hjá Cherkassi.
Fyrir norðvestan Smolensk
segja þeir að bardagar hafi
minkað. Rússar tala urn stór-
skotaliðsskæfur á þeim slóð-
um.
NÁMAMAÐUR KJÖR-
INN Á ÞING.
London í gærkveldi. — Við
aukákosningu í kjördæmi lijer
í Bretlandi í gær var náma-
rnaður einn, Granville að
nafni, sem hauð sig fmm fyrir
verklýðsflokkinn, kjörinn
gagnsóknarlaust. Ilefir þing-
maður þessi, sem nú er orðinn,
unnið í kolanámum 1 38 ár
sámfleytt og aldrei vaxxtað
einn einasta dag. — Reutex;.
Fyrsta loftárás-
in á Sofia
London í gærkvöldi.
AMERlSKAR Mitchell-
sprengiflugvjelai’ tóku sig
upp af flugvöllum Ítalíu í
gær, til þess að gei’a fyrstu
loftárásina á Sofía, höfuð-
boi’g Búlgaríu. Var árásin
einkum gerð á jái’nbraut-
arstöðvar borgarinnar, en
um hana eru m.iklar sam-
göixgur suður til Grikklands
Álitið er að skemdir hafi
orðið mjög miklai’. Búlg-
arskar fregnir segja frá
lallmiklum skemdum á hús-
um og nokkru manntjóni
meðal borgai’búa. Barist
var í lofti yfir borginni og
segjast hinir amerísku flug
menn hafa skotið niður all-
margar þýskar orustuflug-
vjelar. — Tjón banda-
manna v,ar mjög lítið. Þá
aðstoðuðu aðx’ar flugvjelah
bandamanna jugoslafnesk-
ar sveitir og baráttu þeirra.
Reuter.
Stórgjöf til Hall-
grímskirkju,
SYSTURNAR tvær, sem
hlutu happdrættishús Hall-
grímskirkjxx, Þórunn og Sig-
urbjörg Gísladætur, Iiafa fyrir
nokkru fært biskxiphxxnx 1Ö
þúsund króna gjöf til ITall-
grímskii’kju. Skal verja þess-
ari fjái’hæð til kaxxpa á ein-
hvei-ju til gagns eða prýði fyr-
ir kirkjuna Dg munu systurn-
ar í samráði við biskup á-
kveða, hvað það skal vera.
Grianmar or-
usfur á Leros
London í gærkvöldi.
Á EYNNI Leros geisa
enn harðvítugir bardagar,
en Bretar og ítalir hafa
bætt aðstöðu sína nokkuð.
Þó er líklegt að þær
berjist í tveim hópum, því
fregnir í gær herma„' að
Þjóðverjar hefðu getað rof-
ið sambandið milli þeirra
sveita er börðust á norður-
hluta eyjarinnar og þeirra
er á miðri eynni berjast.
Bretar hafa tekið nokk-
uð af föngum á eynni, en
aðstaða þeirra er enn mjög
örðug. Þjóðverjar halda
uppi loftárásum á lið og
stöðvar Breta,’ en flugher
bandamanna, hefir reynt að
veita hersveitunum á eynni
hjálp, en hann þarf að fara
mjög langar leiðir frá bæki
stöðvum sínum.
Flugher bandamanna
gei’ir árásir á nærliggjandi
bækistöðvar Þjqðverja, t.
d. á. Kos, Rhodos og KríC
til þess að ljetta undir með
liðinu á Leros.
Bretar haf.a enn á valdi
sínu eyna Samos þaima
nærri, og hafa þeir nú fæi’t
þangað liðsa,uka grískra
fallhlífarmanna. Voru þeir
látnir svífa til jarðar á
eynni í fallhlífum. — Banda
menn mistu 9 flugvjelar í
bardögunum yfir þessum
slóðum í gær. — Reuter
Óánægja með
Badoglio.
London í gærkveldi.
FR.TETTARITARAR í Na-
poli hafa þær frenir að segja,
að allmikil óáixægja sje ríkj-
andi þar xxt af því. að Badoglio
vill ekki láta mynda lýðræðis—
stjórn á Italíxx, fyrri en hxxn
getxxr haft setxx í Rómaborg.
Fylgir fregnixxni, að eimx ráð-
hei’ra Badoglios hafi sagt sig
xxr stjórn hans, fullur vanþókn
xxnar á þessari tregðu Badogli-
os. og er Badoglio skammaður
í blöðunum í Naþoli, og sagt,
að haixix ætti að segja af sjer.
— Rexxter.
JAPANAR RÁÐAST Á
PORT DARWIN.
Londoix í gærkveldi. -— Fregn-
ir frá Sidxxey herxxxa, að jap-
anskar flugvjelar hafi í gær
gtrt árás á borgiixa Port Dar-
win á norðxxrströnd Ástralnx.
Ekki varð mikið tjón af árás-
xmxxm, en nokkrar japanskar
flugvjelar voru skotnar niður.
— Reuter.
Dómkirkjan í Soiia.
Fyrsta loftárásin hefir nú verið gerð á Sofía, höfuð-
box’g Búlgaríu. — Myndin sýnir dómkirkjuna í borg-
inni, en hún er álitin vera einhver fegursta kirkja í heimj
Aðförum Frakka í
Libanon mótmælt
*
af Aröbum