Morgunblaðið - 16.11.1943, Síða 5
N
V
Þriðjudagur 16. nóv. 1943
MORGUNBLAÐIÐ
ÞjóbmLnjasafninu
haja nýlega horist
góhar gjafir
FORSTÖÐUMAÐUR þess, þjóðminjavörður, hefir skýrt
blaðinu svo frá, að hinum yngstu deildum safnsins, Sjó-
minjasafninu og Iðnminjasafninu, hafi nýlega bæst ágæt-
ir munir að gjöf. Þórarinn Egilson, framkvæmdastjóri í
Hafnarfirði, hefir gefið Sjóminjasafninu fallegt líkan af
þilskipinu „Guðrúnu á Gufunesi“ og fyrir hönd sýningar-
ráðsins, sem annaðist íslandsdeild heimssýningarinnar í
New York, hefir Haraldur Árnason kaupmaður afhent því
5 skipa- og bátalíkön, sem voru á sýningunni.
Iðnminjasafninu hefir Jón
Halldórsson húsgagnasmíða
meistari ánafnað ýmsa á-
gæta muni, er hann hafði
móttekið sem heiðursgjafir,
staf, drykkjarhorn, vegg-
hillu, steinhring, gullúr,
silfurlíkan af hákarli o. fl.
Til sömu deildar Þjóðminja-
safnsins verða einnig taldir
nokkrir dýrmætir munir,
sem þeir úrsmíðameistar-
arnir Magnús Benjamínsson
óg Pjetur Hjaltested höfðu
ákveðið, að gefa Þjóðminja-
safninu. Hefir ekkja Magn-
úsar, frú Sigríður Einars-
dóttir, afhent safninu þessa
hluti: Vasaúr úr silfri, smíð-
að af Magnúsi, og annað úr
með sjaldgæfu verki og
yandað, úr gulli, einskonar
stjörnukíki eða áhald til ná-
kvæmra tímaákvarðana, er
Magnús hafði búið til, og
enn fremur fallegan, lítinn
tannbauk eftir Stefán Ei-
ríksson. En Pjetur Hjalte-
sted hefir nú þegar afhent
sjálfur til safnsins ágæta
stundaklukku, vandaðan
,',regúlator“, sem Magnús
Benjamínsson hefir smíðað
árið 1894, en Hjaltested átt
lengi og hafði ánafnað Þjóð-
minjasafninu.
Hinum eldri deildum Þjóð
minjasafnsins bætast stöð-
ugt ýmsir munir að gjöf. —
Einkum eru Mannamynda-
safninu gefnar Ijósmyndir,
bg er þar að nefna eina gjöf
langmesta, ljósmyndaplötu-
safn Pjeturs Brynjólfsson-
ar, er ljósmyndastofa Sigr.
Zoega og Co. hefir afhent
Mannamyndasafninu. — Er
æskilegt, að menn muni eft-
ir að senda safninu gamlar
ljósmyndir, sem þeir hafa
undir höndum, en óska ekki
að varðveita hjá sjer sjálfir.
Listiðnaðarsafnið
hlaut nýlega marga ágæta
muni að gjöf. Frk. Sigríður
Björnsdóttir, ráðh. Jónsson-
ar, lagði stund á listræna
leirkerasmíð nokkur ár og
bjó til marga fallega skraut
gripi, frumlega að gerð. —
Hún óskaði ekki að selja
þessa hluti, en varðveitti þá
og ánafnaði þá Þjóðminja-
safninu. Hafa þeir nú verið
afhentir því af systkinum
hennar. , -
hafði borið lengi. Faðir hans
Helgi Hálfdánarson lektor,
hafði fengið þann hring að
gjöf frá Árna biskupi Helga
svni, en áður höfðu átt hann
Hannes biskup Finnsson og
faðir hans, Finnur biskup
Jónsson í Skálholti.
Sýna margir Þjóðminja-
safninu velvild sína á ýms-
an hátt, þótt ekki sje með
slíkum stórgjöfum og dýr-
gripum sem þeim, er hjer
hefir nú verið getið.
Framh. af bls. 1.
manna hafi farist, eð.a særst
alvarlega í óeirðunum í
Libanon, og eru á meðal
hins látna fólks bæði konur
og börn. Frjettaritarar
segja, að víðar hafi komið
til alvarlegra óeirða, en í
höfuðborinni Beyrut. Alls
telja menn að um 150
manns hafi beðið bana eða
særst alvrlega, en ekki
munu þó öll kurl komin til
grafar enn í þessum efnum.
MacMillan, fulltrúi Breta
í Algiers, mun einnig rann-
saka atburð þann, er skotið
var á stúdentana. Stúdent-
ar í Cairo hafa farið í hóp
göngur í mótmælaskyni.
Stjórnin í Transjórdaníu
hefir sent bresku stjórn-
inni formlega mótmæli gegn
framferði Frakka í Liban-
on, segja fregnir, sem bor-
ist hafa til Jerúsalem, en
hinsvegar hefir fulltrúi
Frakka í Cairo mótmælt
harðlega því, að egyptska
stjórnin sje að blanda sjer
í Libanomálin.
Háskólinn hefir
miklar f ramkvæmdir
á prjónunnm
I)r. Jón Helgason þiskup,
ánafnaði Þjóðminjas^ifninu
steinhring Úr gulli, er hann ' byrjunarkenslu í náttúrufræð
FJÓRIR þingmenn, einn úr
ihverjum flokki, flytja frv. mn
að framlengja uin 10 ára skeið
I (frá 1. jan. 1947) einkalevfi
Háskólans ti) þess að reka
happdræfti.
j í eftirfárandi brjefi frá
i rekt-or lláskólans er gerð
I grein fyrir, hvaða framkvæmd
í ir ætlað er að gera fyrir á-
góða happdrættisins.
..Fyrir hönd Hasltóla íslands
vil jeg hjer með óska þess, að
framlengt verði um 15 ár einka-
leyfi það, sem háskólinn hefir
haft til þess að reka happdrætti,
en leyfistíminn er á enda í árs-
lok 1946.
Ástæður til þessarar málaleit-
unar eru þær, að mikið er eftir
ógert.af byggingum .og öðrum
framkvæmdum, sem fyrirhugáð-
ar eru, til þess að háskólalóðin
geti orðið miðstöð vísindaiðkana
hjer á landi. Til þessa má nefna:
a) Leikfimishús. Nú eru leik-
fimi og sund skyldunámsgrein-
ar í háskólanum. Verður að
leigja húsnæði til kenslunnar,
en tíminn er mjög óhentugur
stúdentum og rekst á aðra
kenslu. Má á það benda, að
margir framhaldsskólar hjer í
bæ eru í mestu vandræðum með
húsnæði til leikfimiskenslu, en
leikfimishús háskólans mundi
bæta mjög úr, því að aðrir skól-
ar mundu geta komist þar að.
Er nú orðin mjög brýn þörf á
því, að bætt sje úr vandræðum
háskólans og annara skóla í þess-
um efnum.
b) Hús fyrir náttúrugripasafn.
Þettá safn hefir nú algerlega ó-
fullnægjandi húsnæði og er auk
þess landsbókasafninu til mikils
óhagræðis. • Háskólaráð hefir
rnikinn áhuga. iu .að. .koma , upp
úm, er mundi spara námsmönn-
um mikið fje og landínu gjald-
eyri. Háskólaráð sendi hinu háa
Alþingi tillögur sínar í þessu
máli s.l. vetur, en fjárveitinga-
nefnd taldi málið ekki nægilega
undirbúið, til þess að hægt væri
að veita fje til greiðslu stofn-
kostnaðar kenslunnar, sem er
allmikill. Þeim undirbúningi er
nú haldið áfram. í fyrii'huguðu
náttúrugripasafnshúsi er gert
ráð fyrir kenslustofu og vinnu-
stofum undir þessa kenslu.
c) Háskólalóðin er mjög stór
(um 8 ha),' og verður geysimik-
ið verk að koma henni í sæmi-
legt horf. Girða þarf lóðina vand
aðri girðingu, en ummál henn-
ar er á annan kílómetra, flytja
mikinn jarðveg til á lóðinni og
til hennar, gera grasvelli, gróð-
ursetja blóm og runna, svo að
umhverfið verði byggingunum
samboðið, og helst að koma upp
lífandi safni allra íslenskra
jurta (botaniskum garði) á lóð-
inni. Um kostnað við alt þetta
er ekki hægt að gera neina á-
ætlun enn sem komið er, enda
hefir ekki verið gengið frá
skipulagsuppdrætti lóðárinnar,
en víst er, að hann verður géysi-
mikill. Er ætlun háskólaráðs að
láta ekki hefja vlnnu þefesa, með'-
an eftirspurn er mikil eftir vinnu
afii, heldur geyma haná, þangað
til að vinnunnar er meiri þörf.
Ýms önnur verkefni bíða úr-
lausnar, þó- að ekki sjeu hjer
talin, sem yfirstjórn kenslumál-
anna og háskólaráði gæti komið
saman um að láta framkvæma á
kostnað happdrættis h-áskóians.
Virðingarfylst
Jón Hj. Sigurðsson.
<S>
Tvær vinsælar
G 0 S I
er. kominn í bókabúðir, með myndum eftir
Walt Disney. Þessi bók þarf engra meðmæla,
allir krakkar vilja lesa hana.
LAJLA
norsk saga fyrir ungar stúlkur, sem gerist í
Finnlandi og er ein vinsælasta telpusaga á
Norðurlönum- Hefir hún oft verið kvik-
mynduð og þótt frábærlega góð.
Skemtileg — Rómantísk — Spennandi.
| f
*;* X
| ástnndið |
1 í sjálfstæðismálinu'
Rök fjórtán þjóðkunnra manna fyrir frest-
un endanlegra sambandsslita.
Rökum þessara manna vilja allir lý'ðræð-
isvinir kynnast.
Rókin fæst hjá öllum bóksölum og kostar
5.00 krónur-
f
1
*
I
f
1
f
I
i
i
i
Ý . X
• •!»
v.>.:-:,vvvvvvv,:,.:‘vvvvvv*;.vvvvvvvv^vv':.‘',.,x*.x..:,*>vv.:*vvvvv.:.
—
—■
BEST AÐ AUGLÝSA
I MORGUNBLAÐINU
Verslunarfjeiagi
Maður sem lagt gæti fram 30—40 þúsund
krónur, getur gengið inn í gamalt gott fyr-
tæki, sem er að auka. starfsvið sitt*.
Frekar-i upplýsingar gegn því að senda til-
boð auðkent „Trvgt fyrirtækiþ sgndist-afgr-
blaðsins. . " • ' " ' ' ' '