Morgunblaðið - 16.11.1943, Blaðsíða 12
12
Þriðjudagrir 16. nóv. 1843'
»
Nýfísku
skipasmíða
sföð við Elliða-
árvog .
I’RAM er komið á Alþingi
frv. m breyting á hafnarlög-
um fyrir Reykjavílau*katip-
stað ,flutt af sjávarútvegs-
nefnd Ed.
Frmnvarp þetta er samið af
milliþinganefnd, sem atviimu-
málaráðherra skipaði á ]>essu
ári, en hlutverk nefndarinnar
var að gera tillögur um l>ygg-
ingu og rekstur fullkominuái-
fekipasmíðastöðvar í Reykja-
vík. 1 nefndinni áttu sæti þess
ir nienn: Gísli Jónsson alþm.,
Pálmi Loftsson forstjóri, Arn-
finnur- Jónsson kennari og
Jón Axel Pjetursson hafnsögu
maður.
Tillögur nefndarinnar miða
að því, að Reykjavíkurbær
komi upp fullkominni skipa-
smíðastöð við Elliðaárvog, en
yíkissjóður styrki þær fram-
kvæmdir í sama hlutfalli og
aðrar hafnargerðir.
ITjer er um að ræða stór-
merkilegt mál og mun Mbl.
nánar skýra frá því innan
skams.
Samsönpr á Akur-
eyri.
Frá frjettaritara JNIbl.
á Akureyri."
IvA RLAKÓRINN „Þrvm-
lir“ á Ilúsavík iijelt samsöng
í Nýja P.íó á Akureyri síðastl.
sunnudag. Stjórnandi kórsins
er sr. Friðrik A. Friðriksson.
Á söngskránni voru 12 lög,
]>ar af tvö eftir söngstjórann,
en annars voru flest lögin eft-
ir erlenda höfunda, og liafði
meiri hluti þeirrá ekki heyrst
hjer sunginn áður opinberlega.
Bæjarbúar fjölmentu á sam-
sönginn og tóku söngstjóra og
kór mjög vel. Yoru mörg við-
fangsefnin endurtekin. — Við
hijóðfæj-ið var frú - Gertrud
Friðriksson, kona söngstjór-
ans.
Söngskemtun
í Grindavík.
Eggert Stefánsson og
Sigvaldi Kaldalóns hjeldu
hljómleika í Grindavík sl.
sunnudag við húsfylli, og
ágætar undirtektir.
Á dagskrá voru 14 lög
og voru þau öll eftir Sig-
valda Kaldalóns nema tvö.
Er Eggert hafði sungið:
..Þótt þú. langförull legðir“
Og ,,ísland ögrum skorið“
er voru síðustu lög á dag-
skrá, var söngvarinn hylltur
með dynjandi hórriahróp-
um, en söngvarinn svaraði
með því að biðja menn að
rísa úr sætum sínum og
hrópa húrra fyrir íslandi.
—• Var það ge'rt af mikilli
hrifningu. Með þessu end-
uðu hinýr ágætu hljómleik-
ar.
M S. Víðir
Hlaup úr Græna-
lóni.
FYRIR nokkruni dögum
urðu Fljótshverfingar ]>ess
varir, að vöxtur var kominn
í Súlu, en hún er hluti af
Núpsvötnum. Fór vatnið í
Súlu stöðugt vaxandi, og nú
er svo komið, að Núpsvötn eru
orðin alófær yfirferðar. Sam-
göngur yfir Skeiðarársand
eru því teptar með öllu.
Menn eystra eru ekki í vafa
um, að þessir vatnavextir um
þenna tíma árs stafa af því,
að Grænalón er hlaupið fram.
Síðan 1935 hefir Grænalón
þrívegis sprengt sjer framrás.
Síðast 1941. Stóðu vatnavext-
ir þá í hálfan mánuð.
Akurnesingar
eignast nýtt skip
, M.s. „Víðir“
eign h.f. Víðis Akranesi
Jf IÐ NÝJA skip m.s. Víðir, j
eign hlutafjelagsins Víðir á
Akranesi, kom hingað í gær í:
fyrsta sinn. Framkvæmdastj.
fjelagsins, Jón Sigmundsson,
hauð blaðamönnum að skoða
hið förkunnar fagra skip.
Skipið er 103 smálestir
brúttó, alt bygt lir eilt, og er
öil smíði ]>ess og frágangur
hinn vandaðasti, og eins full-
kominn og frekast verður kraf
ist. Vjel skips er Lister-diesel-
vjel 320 hestafla. Ennfremur
er ljósavjel og er hún 20 hest-
afla.
Skipið er alt hitað upp með
rafmagni. Einnig er rafmagns
eldavjel. „Raftækjaverksmiðj-
an Rafha“ í Ilafnarfirði hefir
smíðað þessu hitunartæki.
1 framstafni og aftur í skip-
inu eru svefnklefar skipshafn-
arinnar. Einnig er í fram-
stafni skipsins og miðskips
farþegarúin. Eru þau í alla
staði hin ákjósanlegustu,
bólstraðir bekkir með öllum
veggjum, og eru farþegaklef-
arnir hitaðir upp með raf-
magnsofnum.
Báturinn er nú ieigður
Skipavítgerð Ríkisins til fólks-
og vöruflutninga milli Akur-
eyrar og Sauðárkróks. Ilann
er bygður sem fiskiskip, en
þegar horfið var að því að
Íeigja hann, var innrjetting-
um skipsins breytt, þannig, að
tekið var af lestarrými til inn-
í'jettingar farþegarúms. Svo
vel er frá innrjettingunum
gengið, að ekki tekur nema
stuttan tírna að þreyta skipinu
í fiskiskip, og mun það þá
bera um 70 tonn af ísfiski.
Teikningu af skipinu gerðu
Eyjólfur Gíslason skipasmíða-
meistari og nemandi hans,
Magnús Magnússon.
Bygging Víðis hófst í
Dráttarbraut Akraness í mars
! mánuði 1942, en nokkrar taf-
ir urðu, eða um þriggja mán-
aða tíma, sjerstaklega- vegna
]>ess, að tafir urðu á, að vjeliu
kæmi til landsins.
Skips'tjóri verður Bernhard
Pálsson frá Alcureyri og vjel-
stjóri Guðjón SigUrðsson,
Akranesi.
Yfirsmiður við smíði báts-
ins var Eyjólfur Gíslason
skipasmíðameistari, Akranesi.
Alla járnsmíði og niðursetn-
ingu vjela annaðist vjelsmiðja
Þorgeirs og Ellerts, Altranesi.
Raflagnii' annaðist Sveinn
Guðmundsson rafvirki, Akra-
nesi, niálningarvinnu Lárus
Árnason málarameistari, Akra
nesi, bólstrun bekkja Runólf-
ur Ólafsson húsgagnabólstrari,
Akranesi, hurðir allar og
glugga smíðaði Teitur Stef-
ánsson trjesmiður á Akranesi
og reiða Óskar Ólafsson, Rvík.
Jllutafjelagið Víðir var
stofnað 1938, um' b.v. Sindra,
er það keypti það ár, en í
stjórn þess eru: Pjetur Otte-
sen, formaður, Þorgeir Jósefs-
son og Ilalldór Jónsson.
Blaðið óskar Akurnesingum
og h.f. Víði til hamingju með
þetta glæsilega skip.
Valdimar Björnsson
flyiur erindi
í Anglia.
ANNAR skemtifundur An-
glía á þessum vetri verður hald
inn n.k. fimtudag að Ilótel
Borg. Þar flytur Valdimar
Björnson liðsforingi erindi,
sem hann nefnir „Ilvað er
Vestur-Islendingur V ‘
Vegna mikillar aðsóknar að
skemtifundum fjelagsins verð
ur aðeins fjeiögum leyfður að-
gangur
Aðalfundur
„Hauka".
NÝLEGA var haldinn aðal-
fundur knattspyrnufjelagsins
Ilaukar í IJafnarfirði.
Fundurinn var mjög fjöl-
sóttur. Starfsemi fjelagsins
hafði aukist mikið á árinu. Á
fundinum voru gefnar ítarleg-
ar skýrslur, sem sýndu aukna
starfsemi og betri fjárhag fje-
lagsins en nokkru sinni áður
í sögu þess.
1 stjórn voru kosin: form.
Guðsveinn Þorbjörnsson, vara-
forirí. Karl Auðunsson, ritari
Sigurbjörn Þórðarson, gjaid-
keri Jón Egilsson, fjármálarit-
ari Vilhjálmur Skúlason, með-
stjórnendur Kristín Þorvarð-
ardóttir og Margrjet Pjeturs-
dóttir. 1 varastjórn voru kosn-
ir: Ilalldór Arinbjarnar, Sæ-
yar Magnússon og Stefán Eg-
ilsson.
1 vetur æfa fjórir flokkar
leikfimi og handknattleik und
ir stjórn Garðars S. Gíslason-
ar. Eru það karlaflokkur,
drengjaflokkur og tveir
kvennaflokkar, fyrir byrjend-
ur og þær stúlkur, sem æft
hafa áður. Stjórn fjelagsins
og nefndir þess hyggjast að
hafa allfjölbreytta starfsemi
næsta. ár.
MUSSOLINI SETUR
ÞING.
Londón í gærkveldi. — Þýska
frjettastofan segir frá því, að
þing hins nýja flokks Musso-
linis hafi verið sett í dag. Setti
Mussolini þingið sjálfur og'
stjórnarþví. — Reuter.
Hull gefur skýrslu.
Washington í gærkveldi.
CORDELL IIULL. utanrík-
isráðherra Bandarík janna,
mun bráðlega gefa þinginu
skýrSlu um ráðstefnuna í
Moskva. 1 dag ræddi Hull við
hlaðamenn, og kvað árangur
ráðstefnunnar í alla staði hafa
verið ágætan. Hann tók það
fram, að engir' ieynisamningar
hefðu verið gerðir á ráðstefn-
unni, og sagði einnig, að hún
heíði verið mjög mikilvæg að
,því leyti að auka skilning að-
ila hvers á öðrunr, og að leysa
sameiginleg vandamál.
Eldur í Lækjargötu
12 B
I GÆR um klukkan 14 kom
upp eldur í húsinu nr. 12 B
við Lækjargötu, sem er eign
síra Bjarna Jónssonar vígslu-
biskups, og býr hann þar.
Þegar slökkviliðið kom a
staðinn, var mikill eldur í
]>akhæð. Eldurinfi komst einn-
ig í þak hússins.
Slökkviliðinu tókst fljótlega
að ráða niðurlögum eldsins,
þrátt fyrir erfiða aðstöðu, en
miklar skemdir munu hafa
orðið af völdum brunans á
þakhæÖ. Einnig munu töluverð
ar skemdir hafa orðið af
vatni á næstu hæðum fyrir
neðan, einkum þó í íbiið síra
Bjarna.
Tíðindalítið frá
Ílalíu.
London í gærkveldi.
FREMUR lítið ber nú til
tíðinda á Ítalíuvígstöðvunum,
enda eru veður þar ill og varn
ir Þjóðverja mjög seigar. Átt-
undi herinn hefir þokast öi'-
lítið áfram í Appenninafjöll-
unum og tekið þar hæð eina,
en fimti herinn hefir tekið
nokkrar hæðir vestar, og vai*
niótspyrna hörð á báðuin stöð-
um. Rigiiingar og snjókomiu*
ern á vígstöðvuninn og mjög
kalt uppi í fjöllunum. Virðist'
svo, sem Þjóðverjar ætli sjei*
að verja þær stöðvar, sem þeir
hafa. nú, eins lengi og þeim
er auðið. — Reuter.
Breskir námamenn
í verkfalli.
London í gærkveldi.
Tíu þúsund kolaíiámu-
menn í Manchester í Bret-
landi hafa nú átt í verk-
falli í viku, en samnings-
umleitanir' strandað. Hefir
nú verið skora.ð á námu-
menn þessa að hverfa aftur
til vinnu. og er álitið, að
þeir taki upp vinnu að nýju
Þing námamanna mun
koma saman í London í
næstu viku og verður þar'
meðal annars rætt um kja.ra
bætur til handa námamönn
um. — fteuter.
Sendisveit Islands í
London fær nýtt hús
í BRJEFI frá London er
þess getið, að sendisveit ís-
lands þar ! borg muni inn-
,an skams flytja úr húsi því^
sem skrifstofur og bústaður
sendiherrans hefir verið, í
nýtt hús, sem íslenska,
stjórnin hefir fest kaup á
fyrir sendisveitina.
Ef þetta nýja hús skamt
frá Buckingham-höll. Ekkí
fylgir það fregninni hve-t
nær sendiherrann og skrif-
stofur sendisveitarinnar
jflytti í nýja húsið.