Morgunblaðið - 04.12.1943, Qupperneq 1
30. árgangur
275. tbl. —'Laugardagur 4. desember 1943.
Isafoldarprentsmiðja h.f.
Fimm stórárásir á
Berlín á 14 dögum
RIJSSAR NALCAST ÞRJA
MIKILVÆCA BÆI ■
•1 " ■"" -■ - — - %
Innrásarfloti í höfn
Myndin sýnir flota Bandaríkjamanna einhversstaðar á
Kyrrahafi. líefir floti þessi safnast saman, til þess að gera
innrás á einhverja af eyjum Japana. Eru í honum hæði her-
skip og flutningaskiþ.
Áttundi herinn kom-
inn uð Sun Vito
Öflugt áhlaup Þfóðverja
við Cherkassi
London í gærkvöldi. — Einkaskeyti til Morgun- •
blaðsins frá Reuter.
RÚSSNESKIR HERIR SÆKJA nú að þrem mikilvæg-
um bæjum, Rogachev og Slobin í Hvíta-Rússlandi og
Snamenka, járnbrautarstöð í Dnjeperbugðunni. — Eru
Rússar komnir mjög nálægt öllum þessum bæjum, en þar
sem Rússar hafa brúarsporð yfir Dnjeper við Cherkassi,
hafa Þjóðverjar hafið öfluga gagnsókn gegn hinum rúss-
nesku herjum og beita fjölda skriðdreka. Eru nú háðar
stórorustur á þessum slóðum.
Harðar loftorust
ur yfir borginni
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
— frá Reuter.
MIKILL FLOTI breskra Lan-
caster- og Halifax-sprengju-
flugvjela gerði fimtu stórárás-
ina á Berlín á einum hálfum
mánuði, í nótt sem leið, og var
varpað niður svifblysum víðs-
vegar umhverfis borgina, til
þess að orustuflugvjelarnar
sæju betur til að ráðast gegn
bresku flugvjelunum. Urðu
margar og grimmilegar loftor-
ustur, en er inn yfir borgina
kom, tók við geysileg loftvarna
skothríð og ótal leitarljós voru
í notkun.
Sumsstaðar voru ský yfir
borginni, og urðu flugmennirn
ir að varpa sprengjygum niður
um skýin sumsstaðar. Eldar
miklir sáust koma upp víðs-
vegaí í borginni, en sprengjum
var aðallega varpað á önnur
svæði en í fyrri árásunum.
Flugvjelatjón Breta hefir
sjaldan verið meira í einstakri
árásarferð, þar sem 41 sprengju
flugvjel kom ekki aftur.
Frégnir frá hlutlausum lönd
um segja, að vatnslaust, gas-
laust og rafmagnslaust hafi ver
ið í Berlín í dag, og engin blöð
hafi komið þar út.
Himmler innanríkisráðherra
hefir gefið út tilskipan um það,
að slökkvilið þýskra borga skuli
eflt að miklum mun.
Ifölsk herskip
á Kyrrahafi
FREGNIR herfna, að Bado-
gliostjórnin hafi nýlega gert
uppskátt, að ítölsk herskip væri
komin til Kyrrahafsins. — Er
tálið líklegast, að skip þessi hafi
farið um Suezskurðinn og Ind-
landshaf til Kyrrahafsins, og
má vera að Bretar noti þau til
baráttunnar gegn Japönum á
Bengalsflóa. Gæti svo farið, ef
nokkuð er um munaði af ítölsk-
um eða frönskum herskipum
kæmi austur, að Bretar gætu
rekið Jápana frá Andamaneyj-
um og lokað aðflutningaleiðum
Japana til Burma á sjó.
LONDON í GÆRKVÖLDI —:
Breska flotamálaráðuneytið
tiikynnir í kvöld, að einn af
tundurspillum Breta hafi farist
af völdum óvinanna. — Skipið
var 1350 smálestir.
—Reuter.
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
ÁTTUNDI herinn mun rni
vera kominn í úthverfi borg-
arinnar San Vito, en hún,
stendur á strönd Adríahafs-
ins um 12 km. fyrir norðan
Sangro-ána. Ilefir sóknin ver-
ið erfið og höfðu Þjóðverjar
á einum stað sprengt djúpt
gil»f veginn og tafði það mjög
fyrr skriðdrekum Breta. Þeg-
ar þeir voru komnir yfir,
gerðu Þjóðverjar svo gagn-
áhlaup._en því var hrundið og'
sókniuni haldið áfram.
Lengra inn í landi hafa
Þjóðverjar að egin sögn, yfir
gefið bæinn Lucano, en hann
var æði vel víggirtur. Um
bæinn Castel Di Frontano var
barist grimmilega* í návígi í
sólarhring, en hann er nú í
hönduni áttunda hersins. —<
Álitið er að Þjóðverjar s.jeu
að fá liðsauka á vígstöðvarn-
ar.
. Fimti herinn hefir gert:
nokkur áhlaup og orðið noklc
uð ágengt, en yfir vígstöðv-
um hans er flugherinn sífelt
á sveimi og' gerir miklar á-
rásir á stöðvar Þjóðverja gegn
þeim. Einnig rjeðust Libera-
torflugvjelar á borgina Bolza-
no á Norður-ltalíu.
Reuterfregn seint í gær-
kveldi segir þá fregu eftir
heimililum frá Viehy, að Þjóð-
vcrjar hafi tekið hæinn Lancai
no aftur með gagnáhlaupi.
Frakkland úr tölu
stórvelda!
London í gærkveldi.
í RÆÐU, sem Smuts mar-
skálkur flutti fyrir skömmu,
kom fram það álit hans, að
Frakkland yrði ekki í tölu stór
velda gftir styrjöldina.,— Hafa
þessi ummæli marskálksins
vakið hina mestu athygli víðs-
vegar um heim. I ræðunni tal-
aði Smuts aðallega um heim
þann, sem verða myndi eftir
styrjöldina. — Reuter.
Frakkar reiðir
Smuls
Algiers í gærkveldi.
Einkaskeyti til MbL
frá Reuter Eftir John
Talbot.
ERANSKA þjóðfrelsisnefnd
in gaf í kvöld út opinbera j
yfirlýsingu, varðandi ummælii
Smuts marskálks um Frakk-
land í ræðu hans nýlega. Er
yfirlýsingin á þessa lund:
„Það græðir enginn á því, að,
fara að deila við Srnuts, en
léiðtogar Frakka eru honum
algerlega ósammála, er hann
segir að úti sje um Frakk-
land sem stórveldL Frakkland,
er nú að sýna með verkum.
sínum, a-ð það er enn stór-
Framh. á 2. siðu.
RáÖsfafnunni
í Teheran lokið
|ondon í gærkvöldi.
ÚTVARPIÐ í Moskva sagði
seint í kvöld, að Stalin hefði
setið á ráðstefnu með Churc-
hill og Roosevelt í Teheran,
höfuðborg Persíu nokkra und-
anfarna daga, og væri ráð-
stefnunni nú lokið. — Enn-
fremur var sagt, að á ráðstefn-
unni hefði verið rætt um styrj-
öldina gegn Þjóðverjum, og
einnig um ýms stjórnmálaleg
og viðskiftaleg efni.
Allir þjóðhöfðingjarnir höfðu
ýmsa af ráðgjöfum sínum með
sjer á ráðstefnunni.
Tilkynning verður gefin út
um hana síðar. —Reuter.
Samsæri gegn
Roosevell
London í gærkvöldi.
FREGNIR frá Washington
herma að leyeilögregla Banda-
ríkjanna hafi ljóstað upp um
samsæri til þess að ráða Roose-
velt forseta af dögum. — Var
höfuðpaur þessa samsæris frá
Michigan^ og hefir hann verið
sendur á geðveikrahæli til rann
sóknar, þar sem líkur benda til
þess, að hann sje ekki með öll-
um mjalla. —Reuter
Fríkirkjan verður
fluft
SAMKVÆMT skipulagsupp-
drætti bæjarins verður að
flytja Fríkirkjuna þaðan, sem
hún nú ér. Stjórn Fríkirkju-
safnaðarins hefir sent bæjar-
ráði brjef, þar sem farið er
fram á að kirkjan verði flutt á
lóð, sem er þar rjett hjá, sem
hún er nú, og ennfremur, að
það verði gert söfnuðinum að
kostnaðarlausu.
Herir Rússa, sem sækja
fram í suðvestur frá Krem-
enchug eru að sögn rúss-
nesku herstjórnarinnar,
komnir alllangt frá stöðvum
þeim, er þeir höfðu í gær,
en fregnritarar segja, að
hægt sje nú fyrir Rússa að
skjóta á járnbrautarstöðina
Snamenka.
Norður í Hvíta-Rússlandi
hafa Rússar nú því nær af-
numið Gomelbugðuna svo-
kölluðu, og sækja að Slobin
úr austri og norðaustri. Eru
þeir um 15—2 kílómetra frá
bænum, en um 14 km. frá
Rogachev, sem stendur þar
nokkru norðar, á vestur-
bökkum Dnjeperfljótsins. —
Hafa Rússar tekið ýmsa smá
bæi og þorp á þessum slóð-
um.
Við Cherkassi.
Rússar segjast nú eiga í
hörðum varnarbardögum
við brúarsporð sinn við
Cherkassi, nokkru fyrir
norðan Kremenchug og
telja að Þjóðverjar beiti þar
allmörgum skriðdrekaher-
fylkjum til áhlaupa. Segjast
Rússar enn hafa getað
hrundið áhlaupum þessum,
þótt þau sjeu mjög hörð.
Svo virðist, sem bardagar
liggi nú að mestu leyti niðri
fyrir vestan Kiev, og ekki
er heldur getið um neinar
meiri háttar viðureignir á
Krímskaganum.
I Dnjeperbugðunni hefir
aftur brugðið'til frosta og er
því auðveldara um hernað.
Spellvirki í Kaup-
mannahöfn
London í gærkvöldi.
STOKKHÓLMSFREGNIR
herma í kvöld, að vjelsmiðja
ein í Kaupmannahöfn hafi
seinni partinn í dag verið
sprengd í loft upp. Ónýttist hún
algerlega. — Einnig var kveikt
í á nokkrum stöðum.