Morgunblaðið - 06.02.1944, Page 12
12
*
Fiskiþingið
1 GÆIÍ voru á <lagskt'á
« fiskiþingsins: 1) Fiskimála-
ncfnd (vísaði tl fjárhags-
nefndar) 2) Erindi hafnar-
nefndar Skagastrandar (með
madi um hafnargerð þar).
Yísað tii fjárhagsnefndar. í»)
líafnarbótamál. í f>ví máii var
samþykt svohljóðandi til'l. frá,
sjávarútvegsnefnd:
„Fiskiþingið telur brýnn
nanðsyn bera til. að hafnar-
’bótamálið umhverfis landið
verði nú þegar skipulagt og
sett í fast kerfi og að fram-
•kvæmdum verði fyrst og
fremst beint að því. að gera
sem fullkomnastar fiskiveiða-
hafnir á þeim stöðum, sem.
liggja í námunda við góð
fiskimið og hafa góð skilyrði
til hafnargerðar frá náttúr-
imnar hendi og nægiiegt upp-
land. En horfið verði frá þeirri
stefnu, sem ríkt hefir mjög
sfðari árin, að veita að lítt at
truguðu máli, stórar fjárhæð-
ir til hafnargerða víðs vegar
nm iandið. þar sem framtíð-
arskilyrði virðast ekki fvrir
hendi“.
4) Tryggingannál sjó-
manna. Svohljóðandi tillaga
frá sjá varútvegsnefnd samþ.:
,.17. þing Fiskifjelagsins
Htur svo á, að órjettlátt sje
að útgerðin ein greiði slvsa-
"trygginga- og sti'íðstrvgginga-
gjald. eins og lögboðið er nú,
þar sem um hlutaráðningu
er að ræða. Ilinsvegar telur
þingiö rjett að gjöld þessi
verði tekin af óskiftum afla
og leggur ]>ví til, að Fiski-
þiugið samþykki áskorun til
Alþingis, að lögum þessum
verði breytt á þá lund, sem að
ofan greinir og s.je sama gjald
á Yjelbátum er stunda fiutn-
inga á flótim og innfjörðum".
ö) Rjettindi formanns. 8am-
J'.vkt svohljóðandi till. sjáv-
arútvegsnefndar:
„Að próf það, sem veitir
SKÍpstjórarjettindi á skipum
'b—15 rúml. hæfeki upp i 50
ruml., en lærdómur og önn-
■ursfeilyrði breytist eftir tii-
lögum skóiastjóra stýrimanns
skólans í Reykjavík og að'
st.jórn Fiskifjeiagsins leggi1
áhersltr á, að breyting þessi. I
fáist nú þegar á þessu Ai-
J)ingi“.
fi) Fisfesölumálið. Áiit sjáv-
arútvegsnefndar:
„Fiskiþingið skorar á stjórn
Fiskifjelagsins að hún hlufist
ti! um, við núverandi sanm-
inganefnd fisksölusamning-
anna, ag fult tillit verði tek-
ið tii hækkunar á útgerðar-
feostnaðí, sem orðið hefir síð-
an síðasti fisfesölusamningur
var gerður. Knnfremur sje
reyrit td líins ítrasta, að í
hinum nýja samningi. sje tek-
in til greina ef dýrtíð og út-
gerðarkostnaðui- eykst á samn
ingatímabilinu, og að það at-
11 u g i s t á r sf j 6 r ð un gs I e ga “.
1 rðu mifelar umræður um
f' ó:sölumárið.
London í gærkveldi. Bresk
smáherskip lentu í dag saman
við þýska tundurduflaslæðara
undan ströndum Norður-Frakk
lands og tókst að koma skotum
r tvo þeirra og kviknaði í öðr-
um. Ennfremur komu sprengi-
kálur á þýskan tundurspilli.
Mnnnsiein reynir oð bjurgn
hinum innihróaðu þýskn her
London í gærkveldi.
Einkaskeyti tit Morgunblaðsins
frá Reuter.
MANNSTEIN hershöfð-
ingi, yfirmaður Ukrainu-
hersins þýska, hefir nú
dregið saman allmikið skrið
drekalið og hafið árásir á
hring þann, er Rússar hafa
slegið um her Þjóðverja við
Mið-Dnieper, og segja Þjóð-
verjar að nokkur árangur
hafi náðst í þesu efni. En
Rússar segja, að öllum á-
hlaupum hafi verið hrund-
ið, bæði þeim er gerð voru
á hringinn utan frá, og
þeim, er hinar innikróuðu
sveitir sjálfar reyndu. Eru
bardagar mjög harðir á
þessum slóðum. — Rússar
hafa nokkrum sinnum skor
að á hið innikróaða lið, að
gefast upp, en því hefir ver
ið neitað. — Þá segja Rúss-
ar, að svæðið, sem hið
þýska lið sje á, hafi verið
minkað mjög í áhlaupum.
í dag tilkyntu Rússar
töku borga þeirra í Póllandi
sem Þjóðverjar höfðu áður
sagt að þeir hefðu hörfað
úr, Rovno og Lutzk, og segj
ast Rússar jafnvel hafa sótt
enn lengra fram á þessum
slóðum, þannig að herir
þeirra sjeu nú ekki nema
um 80 km. frá landamærum
þeim, sem voru milli Þjóð-
verja og Rússa árið 1941, er
Rússlandsstyrjöldin hófst.
Þá segja Rússar í tilkvnn
ingu sinni, að þeir sjeu nú
búnir að ná á sitt vald öllu
svæðinu fyrir austan Peip-
usvatnið, og enn sunnar
stefna þeir til borgarinnar
Luga, en Þjóðverjar hörfá
jafnt og þjett undan á svæð
inu fyrir suðvestan Lenin-
grad.
Rússar segjast í dag hafa
skotið niður 22 flutninga-
flugvjelar, er voru að flytja
Norðurvígstöðvarnar
birgðir til hins innikróaða
herliðs, ennfremur 24 aðrar
og eyðilagt 109 þýska skrið
dreka í gær.
Ráðist á fiugvelli
í Frakklandi.
London í gærkveldi.
Mestu loftárásir, sem gerð-
ar hafa verið á franska flug-
velli, voru gerðar í dag, þegar
flugvirki og Liberatorflugvjel-
ár rjeðust á marga flugvelli í
Frakklandi, bæði við París og
aðra sunnar, sy,ður um miðbik
landsins. Urðu miklar skemdir
á flugvöllum þessum að sögn
ílugmannanna, og einnig voru
loftorustur háðar. Ekki eru enn
fyrir hendi skýrslur um flug-
vjelatjónið í árásum þessum,
en Vichyfregnir segja, að all-
mikið tjón hafi orðið í úthverfi
Parísar, þar sem sprengjur hafi
fallið. Fórst þar einnig allmargt
fólk. — Reuter.
Fimleikasýning í dag
Úrvals fimleikaflokkar Ármanns sýna í síðasta sinn í
dag. Sýningin ,er i íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar og hefst
kl. 5 e. h. — Flokkarnir hafa sýnt tvisvar áður á þessu ári
við mikla aðsókn og fádæma hrifningu, en margir hafa
orðið frá að hverfa. — I dag sýnir fyrst kvennaflokkurinn,
þá sýnir karlaflokkurinn. — Myndin hjer að ofan er tekin
á opnunarhátíð Ármanns s.l. mánudag. (myndina tók U. S. I
Army Signal Corps).
Hnefaieikamói
Afmælishátíð Ámiamis hjelt
áfram í gærkvöldi með hnefa-
leikamóti.
Ivept var í sex þvngdarflokk-
um, með 18 ke]jpendum, Öll-
um úr Ármanni.
Yfirieitt var ke])uin nokk-
bragðdauf, lítið um ,,teknik“
og vii-tust flestir þátttakend-
urnir frekar lítið æfðir, enda
skamt liðið á veturiun.
Urslit í einstökum Jjyngd-
arflokkúm urðu Jressi:
F1 uguvi gt: M a rteinn I >j örg-
vinsson vann Friðrik Guð-
mundsson.
Fjaðurvigf : Stefán Magn-
ússon vann Kristmund Þor-
steinsson.
Ljettvigt: Arnkell Guðm.
vann Jóel B. .Takobsson.
Veltvigt: Geir Einai'sson
vánn Steinþór Sæniundsson.
Millivigt: Bragi Jónsson
vann Þorvald Ásgeirsson, (en
sá dómur virtist nokkuð tví-
ræður.
Þungavigt: Gunnar Olafs-
son vann Þorkel Magnússon
og síðan Arnar .Tónsson.
Gunnar sýndi besta leik
kvöldsins á móti Arnari .Tóns-
syni og vlrðist hann vera í
mjög góðri æfingu, enda
vann hann báða keppinauta
sína á hraðanum og ágætum
vörnum. Stefán Magnússon,
Arnkell Guðmundsson og Jó-
el -Takobsson eru allir ,.tekn-
iskir" og sýndu einnig ágæt-
an hnefaleik.
1 dag kl. 5 lýkur hátíða-
höldum Ármanns með fim-
leilcasýningu T. fl. karla og
kvenna.
r
Arsgamlar bóla-
kröfur á seluliðið
ekki teknar til
greina
Frá íslensk-amerísku bóta-
kröfunefndinni hefir blaðið
fengið tilmæli um að birta eft-
irf arandi:
Samkvæmt lögum, sem bóta-
nefnd ameríska herliðsins á Is-
landi fer eftir, verða kröfur um
bætur fyrir tjón eða slys, ekki
teknar til greina, ef kröfur eru
ekki komnar í. hendur Ame-
rísku herbotanefndinni innan
árs frá þyí að tjónið, eða slys-
ið varð.
Maungdaw
Washington: — Steypiflug-
vjelar bandamanna hafa gert
miklar árásir á stöðvar Japana
á Chindvinsvæðinu í Burma og
einnig á hernaðarbækistöðvar
nærri Maungdaw. Þar voru Jap
anskar orustuflugvjelar á
sveimi, en voru hraktar burtu
af flugvjelum bandamanna.
Sunnudagnr 6. febrúar 1944
Noregssöfnuninni
lokið. Als safnaðist
kr. 828.017.45
NOREGSSÖFNUNINNI er
lokið. Safnast hafa krónur
828.017,45. Guðlaugur Rósin-
krans, ritari Norrænafjelagsins
skýrði blaðamönnum frá söfn-
uninni í gær.
Söfnunin hófst þann 17. maí
1942, en þann dag er þjóðhátíð-
ardagur Norðmanna. Ritarinn
gat þess, að gerðar hefðu verið
tilraunir til að senda fje til
Noregs gegnum sendiráðið í
Stokkhólmi og Rauða Kross
Svíþjóðar, en það tókst ekr.i.
Norrænafjelagið hefir ákveð-
ið að afhenta Norrænafjelaginu
og Rauða Kross Noregs fjár-
upphæðina strax og tekst að
ná sambandi við Noreg, og hef-
ir verið ákveðið að bau ráðstafi
henni.
Stærstu gjafir, er söfnuninm
bárust, eru eftirtaldar gjafir:
Frá ríkissjóði 350.000 þús.,
frá nokkrum bæjar- og hrepps
fjelögum 158.000 þús., af þeirri
upphæð gaf Reykjavíkurbær
100.000 þús.
Gjafir frá einstökum fyrir-
tækjum voru þessar tvær
gjafir stærstar, frá S. í. S.
25.000 þús. og frá Kveldúlfi
h. f. 20.000 þús.
Víða var tekið á móti gjöf-
um fyrir söfnunina, og á einum
stað safnaðist mest hjá Morg-
unblaðinu, rúml. 23.000 þús.
Þá skrifaði Norrænafjelagið
kvenfjelögum um land alt og
hefir söfnuninni borist 500 kg.
af hverskonar prjónavöru, eink
um þó bamaföt. Ekki hafa all-
ar sendingar borist enn.
Framkvæmdarnefnd söfnun-
arinnar skipa þessir menn: frá
Nor^ænafjelaginu, Guðlaugur
Rósinkrans, frá Normanslaget
H. Faaberg og formaður Rauða
Kross íslands, Sigurður Sig-
urðsson berklayfirlæknir. —
Voru þessir menn tilnefndir af
undirbúningsnefnd söfnunar-
innar.
Lesbókin í dag
í LESBÓKINNI í dag er
grein eftir Magnús Jónsson
prófessor um 40 ára afmæli
innlendrar stjórnar, en nú um
mánaðamótin voru 40 ár liðin
síðan Hannnes Hafstein tók
hjer við ráðherradómi. Þá er
frásögn frú Sigrúnar Bjarna-
son um heimilislíf Gríms
Thorrisens á Bessastöðum,. en
frú Sigrún dvaldi þar á hverju
sumri síðustu 10 árin, sem
Grímur lifði.
Þá er niðurlag á greininni,
er hófst í síðustu Lesbók um
ameríska heimskautaleiðang-
urinn, er lenti í hinum miklu
mannraunum. Smásaga eftir
Sommerset Maugham, Annáll
Lesbókar o. fl.
Hinn stuttorðiannáll, sem
birtur er í hverju tölublaði Les
bókarinnar, kemuí- mörgum
vel, einkum þeim, er balda
Lesbókinni saman, en þeir eru
mjög margir — Oft þurfa
menn að glöggva sig á því
hvaða daga hinn og þessi at-
burður hafi gerst. Lykilinn
að því finna menn í þessum
annál.