Morgunblaðið - 24.06.1944, Síða 1
31. árg-angur.
138. tbl. — Laugardagur 24. júní 1944.
ísafoldarprentsmiðja h.f.
Kanada óskar
íslenska lýðveldinu
allra heilla
Útvarpsræða MacKen-
zie King forsætisráð-
herra.
WINNIPEG: — Hjer birtist
ræða sú, er Mackenzic King,
forsætisráðherra Kanada, flutti
í tilefni af lýðveldisstofnunni á
Islandi:
„Endurreisn hins íslenska lýð
veldis er mörgum heimilum
hjer í Kanada mikið gleðiefni.
Nú eru liðin nær sjötíu ár síðan
fyrstu íslendingarnir settust að
í Kanada. Flestir þeirra settust
að í Manitoba en nokkrir stofn
uðu heimili í Ontario. Þetta var
hópur hraustra Birkibeina. Þeir
voru afbragðs borgarar og af-
komendur þeirra hafa fetað í
fótspor þeirra. íslenska þjóðin
hefir lagt mikinn skerf fram til
þess að auka menningarlíf í
Kanada, á mörgum sviðum. Og
sökum hins háleita lýðræðis-
anda, sem Islendingum er í
brjóst borið, stendur hin kana-
diska menning í mikilli þakkar
skuld við þá. Vjer minnumst
nú þess, að kanadiskir hermenn
dvöldust á íslandi í byrjun
þessa ófriðar. Þeir dvöldust
þar til þess að vernda frelsi
hins fagra lands. Kanada gleðst
innilega yfir því stjórnarfyrir-
komulagi, er Island hefir valið
sjer, og í nafni kanadisku þjóð
arinnar, sendi jeg íslensku þjóð
inni innilegar óskir um bjarta
og farsæla framtíð".
Varnarlínan við Cher-
bourg enn órofin
Kveðjur til forseta
frá Chrisfmas Möller
En áhlaupin halda
stöðugt áfram
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
MIKLAR ORUSTUR hafa geisað í allan dag umhverfis Cher-
bourg, að því er frjettaritarar með herjum Bandaríkjamanna
segja frá í kvöld, en víglína Þjóðverja er enn órofin, þótt smá-
skörð hafi verið brotin í hana sumstaðar. Bardagarnir halda
áfram. Annarsstaðar á innrásarsvæðinu hafa engar breytingar
orðið, þótt barist sje af hörku á svæðinu milli Tilly og Caen.
Hröð sókn banda-
manna við ádriahaf
BANDAMENN sækja enn
hí'att frani á austurströnd I-
talíu og eru nú um 30 km. frá
hafnarborginni Ancona, þar á
ströndinni. Á mið- og vestur
vígstöðvunum hafa varnir
Þjóðverja aftur á móti harðn
að allverulega, sjerstaklega á
miðvígstöðvunum, þar sem
Þjóðverjar hafa komið sjer
vel fyrir í fjallaskörðum og
hafa þar fallbyssur margar.
Á vesturströndinni hafa
Bandaríkjamenn sótt nokk-
uð fram, en bardagar hafa far
ið harðnandi. Eru nú fremstu
sveitir Bandaríkjamanna
þarna um 80 km. frá hinni
mikilvægu hafnarborog Li-
vorno. ■—Reuter.
ing Finna
Stokkhólmi í gær.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
IIERSTJÓRNARTILKÓNN
ING. FINNA í dag er á þessað
Ieið: „Á Kirjálaeiði, norð-
austur af Viborg brutust
Rússar inn í víglínur vorar
á tveim stöðum og uröum
vjer að hörfa á öðrum staðn
um, en gátum rjett víglín-
una á hinum. Um þessar slóð
ir geisa harðar orustur. Rúss
um mistókst að komast yfir
Viakin-ána. — Á Aunuseiði
er áframhald á bardögum.
Við Maselka höfum vjer
neyðst til að hörfa og yfirgáf
um vjer þar bæ einn. Sjóor-
usta var háð á Finska flóa
og söktu herskip vor þar
rússnesku herskipi. — Flug-
vjelar. vorar og loftvarnarlið
skutu niður 37 rússneskar
flugvjelar sl. sólarhring, þar
af 20 yfir Aunuseiði".
—Reuter.
ÞjóSverjar segja
mikið Ijon
London í gærkveldi.
ÞÝSKA frjettastofan gef-
ur í dag lýsingu á tjóni
í borginni Southampton, og
er hún tekiu eftir frásögn
þýskra flugmanna. Þeir seg'ja
að svifsprengjur hafi valdið
þar mikilli eyðileggingu, og'
sjeu hafnarmannvirki illa far
in, en ;3 skip í höfninni hall-
ist mikið. Þykkur reykur hyl-
ur að sögn þeirra ýtns svæði
borgarinnar, og 3 skip, sem
eldur er- uppi í, hafa verið
dreginn út úr • innri höfninni.
Reuter.
Bonomini vinnur holl-
ustueið.
London í gærkveldi: — Bono
mini, hinn nýi fórsætisráðherra
Itala og stjórn hans hefir unn-
ið hollustueið. Vann stjórnin
eið þenna ítölsku þjóðinni, en
ekki konungsættinni, sem 4ð-
ur hefir tíðkast. — Reuter.
í hæðunum við Cherbourg.
Þjóðverjar hafa mikil varnar
virki í hálfhring umhverfis
Cherbourg, en þar eru hæðir
miklar og víða klettaborgir.
Utan við þessi virkjabelti hafa
verið háðar harðar fótgöngu-
liðsorustur í dag. Að suðaust-
anverðu tókst Bandaríkjamönn
um að sækja fram um einn km.
og tóku þeir þar nokkrar varn-
arstöðvar. ■— Einnig er sótt
fram eftir járnbrautinni og
unnu Bandaríkjamenn þar einn
ig á. — Svo virðist sem Þjóð-
verjar hafi komið liði sínu af
austanverðum skaganum til
boi'garinnar, því þar hafa
Bandaríkjamenn engri mót-
spyrnu mætt.
Tilly-Caen svæðið.
Þar hafa miklir bardagar
verið háðir, en þó ekki eins
harðir og að undanförnu. Bret-
ar hafa gert árásir sumstaðar,
sjerstaklega fyrir suðvestan
Tilly, en nær Caen hafa Kan-
adamenn hrundið áhlaupum
Þjóðverja. — Við Carentan virð
ist alt með kyrrum kjörum,
enda sagði einn af herfræðing-
um bandamanna, að ekki væri
skilyrði til sóknar þar, eins og
stæði, því skriðdrekasveitir
Þjóðverja á Tillysvæðinu gætu
þá komið sóknarliðmu 1 opna
skjöldu.
Veður ekki gott.
Veðrið hefir enn verið slæmt,
flugveður ilt og vindur allmik-
ill. Loft_ mjög skýjað. — Hefir
verið óveður í þrjá sólarhringa,
en er að skána.
Kominn til skjaianna
aftur
ÚTDRÁTTUR úr símskeyti
til forseta íslands frá Christ-
mas Möller og konu hans:
,,Á þessum merkidegi Islands
og hinnar íslensku þjóðar lang
ar okkur að senda yður bestu
kveðjur og óskir. Við óskum yð
ur allra heilla og vonumst til
þess að mega biðja yður að
flytja íslensku þjóðinni bestu
óskir okkar um framtíð henn-
ar og hins íslenska lýðveldis“.
Langt er nú síðan að manns
þess, sem hjer sjest á myndinni,
var mikið getið í frjettum, en
hann heitir Orlando, og var full
trúi ítala við friðarsamningana
í Versailles 1918. Síðan hefir
lengi verið hljótt um hann, þar
til á dögunum, að fregn kom
um það, að Þjóðverjar hefðu
drepið liann í Róm. En nú er
hann kominn bráðlifandi í hina
nýju stjórn Ítalíu!
Morrison ræðir
svifsprengjuárásir
London í gærkveldi.
MORRISON innanríkisráð-
herra Breta gerði svif-
sprengjuárásir Þjóðverja á
Suður-England aftur að um-
ræðuefni í neðri málstofunni
í dag, og kvað eigi hafa orð-
ið tjón, sem alvarlegar af-
leiðingar hefði fyrir þjóðar-
heildina. Kvað hann stund-
um 10 svifsprengjur hafa
komið inn yfir England í
einu, en annars væru þessar
árásir þannig að oftast væru
einhverjir af þessitm vágest-
um á ferðinni. — Manntjón
kvað Morrison ekki hafa
verið mikið minna 5 fyrstu
dagana, en þá fimm daga í
febrúar, er Þjóðverjar gerðu
harðar loftárásir á Suður-
England. Þá kvað ráðherr-
ann orustuflugvjelum og loft-
varnaliði hafa. orðið nokkuð
ágengt í baráttunni við svif-
sprengjur þessar, en vel gæti*
svo farið að árásir-nar liörðn
uðu enn, og ómögulegt væri
að gera við því, þótt tjón
yrði nokkurt. —Reuter.
Njósnari skotinn í
London.
London í gærkveldi: Njósn-
ari, sem starfaði fyrir Þjóð-
verja í Bretlandi, var skotinn í
London í morgun. Þetta er sá
15. í röðinni, sem Bretar taka
af lífi í styrjöldinni heima í
Bretlandi. Maður þessi var
Belgíumaður, 28 ára gamall og
hafði njósnað fyrir Þjóðverja
um nokkurt skeið. — Hann
starfaði í skrifstoíum belgísku
stjórnarinnar í London.
— Reuter.
Rússar helja sókn
milli Mogilev og
Vitebsk
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
ÞJÓÐVERJAR SÖGÐU frá því snemma í dag, að Rússar hefðu
byrjað mikla sókn á breiðri víglínu í Hvíta-Rússlandi, milli
borganna Mogilev og Vitebsk. í kvöld staðfestu Rússar þessa
fregn í herstjórnartilkynningu sinni, og er frásögn þeirra um
það svohljóðandi:
„Hersveitir vorar byrjuðu
stórárásir í dag fyrir norðaust-
an og suðaustan Vitebsk með
miklu liði. Var brotist gegnum
virkjabelti fyrir norðvestan
Vitebsk. Var brotist gegnum
virkjabelti fyrir norðvestan
Vitebsk á tuttugu km. breiðu
svæði, og sótt fram frá 12 til
15 km.
Fyrir suðaustan Vitebsk var
einnig sótt fram um 8—10 km.
og var þar tekin járnbrautar-
stöðin Samostochi. —
Að því er irjettastofufregnir
segja seint í kvöld, geisa harð-
ir bardagar nú umhverfis
Vitebsk og einnig langl suður
á bóginn.