Morgunblaðið - 24.06.1944, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Milar umbætur hafa verið
geriar á Yalhölf
1 á Þingvöilum
GISTIHÚSIÐ VALLHÖLL Á ÞINGVÖLLUM hefir tekið mikl-
um stakkaskiftum í vor. Hafa verið gerðar ýmsar nauðsynlegar
umbœtur á sjálfu gistihúsinu og í kringum það. Nýtt fyrirtæki
hefir tekið við rekstri gistihússins og er framkvæmdastjóri þess
fjeiags Ragnar Gunnlaugsson, fyrrum bryti, en í fjelagi með
honum, auk Jóns Guðmundssonar á Brúsastöðum, eru nokkrir
ungir, áhugasamir veitingamenn. Forstjóri í Valhöll er nú Pjeiur
Da nxelsson, veitingamaður.
Umbaetur úti og inni.
Fyrir þjóðhátíð var lokið við
að gera við ýmislegt í Valhöll.
Gistihúsið var málað utan og
ínnan, nýjum hreinlætisklef
um komið fyrir við suðurhlið
hússins, portið á bak við húsið
steypt og gangstjett fyrir fram
an gistihúsið steypt og sljettuð.
Sjálft húsið var húðað að utan
með skeljasandi.
Gert var við veitingasalina.
Þeir málaðir og stóri salurinn
„panellagður“. í einu horni
stóra veitingasalsins hefir verið
fcomið fyrir á mjög smekklegan
hátt afgreiðsluborði fyrir þjón
ustufólk. Er salurinn nú hinn
vistlegasti.
Aðrir veitingasalir hafa verið
dúklagðir og einnig þeir hafa
tekið miklum stakkaskiptum.
Smekklegri verslun hefir verið
koraið fyrir í suðurenda Val-
hallar.
Hreinlætisklefar og
rakarastofa.
Eúmgóðum og björtum hrein
lætisklefum hefir verið komið
fyrir í útbyggingunni fyrir
sunnan aðalhúsið, en þó er inn-
angengt á milli. Þar er og her-
bergi, sem ætlast er til að verði
rakarastofa. Mun þó ekki enn
hafa verið ráðinn rakari að
Þingvöllum.
Ef til vill eru þetta mestu um
bæturnar, sem gerðar hafa ver
ið í Valhöll, því hreinlætisklef-
ar voru áður, sem kunnugt er,
"litlir og ófullnægjandi þegar
maFgt gesta var fyrir austan.
Fyrirætlanir.
Kinir nýju stjórnendur í Val
Iio-il hafa í hyggju að gera enn
miklar umbætur í Valhöll. Þeg
ar hafa verið settir smábátar
á vatnið fyrir gesti, sem hafa
gaman af að rpa út á vatnið eða
upp eftir ánni.
Þeir fjelagar vilja láta fylla
upp mýrina fyrir austan hlaðið
að Valhöll og koma þar upp
tcnnisvöllum og öðrum leikvöll
um fyrir gesti. Ennfremur hef-
ir verið rætt um að koma upp
gO'Ifvelli á Þingvöllum.
Firásögn Jóns Guðmunds-
sonar.
Blaðamenn fóru austur á
Þingvöll til að sjá umbæturnar
Var þeim búinn veglegur há-
degisverður í Valhöll. Jón Guð
mxmdsson, Brúsastöðum, bauð
gesti velkomna. í ræðu, sem
hann hjelt, drap hann lítillega
tá þá erfiðleika, sem hann hef-
ir átt við að stríða og þó eink-
tiin fyrstu árin, eftir að hann
ko-rn að Valhöll. Gistihús var
fyrst reist á Þingvöllum árið
1898, en þá var aðbúnaður ekki
befrx en svo, að eldhúsið var í
gjí, sem hafi verið reft yfir.
Um annan eldivið en hrís, var
ekki að ræða. Salir veitinga-
hússins tóku þá í hæsta lagi 30
manns í sæti.
Jón sagðist hafa lengi haft í
huga að gera ýmsar umbætur
á Valhöll. Hann hefði verið
lengi að leita sjer að fjelögum
til að reka með sjer gistihúsið.
Hefði hann nú loksins fundið
þá og taldi sig hafa verið hepp-
inn í valinu. Fjelagar hans
hefðu ekki ráðist í þetta fyrir-
tæki til þess að græða fje held
ur af áhuga fyrir því að koma
upp góðu veitingahúsi í Valhöll
og ef einhver hagnaður yrði af
rekstrinum yi'ði hann notaður
til að bæta gisti- og veitinga-
staðinn.
★
Það er engin vafi á, að þeir
menn, sem nú hafa tekið við
rekstri Valhallar, munu gera
alt, sem í þeirra valdi stendur
til að aðbúnaður gesta verði
sem bestur. Þeir eru allir kunn
áttumenn í sínu fagi, sem hafa
fullan hug á að vinna þarna
þarft verk.
Manns saknað
á ísafirði
MANNS að nafni Alf Simson
er saknað frá ísafirði. Hefir ekk
ert til hans spurt síðan 16. þ.
mánaðar.
Blaðið hafði í gærkveldi tal
af lögreglustjóranum á ísafirði,
og skýrði hann svo frá, að Alf
hafi farið að heiman frá sjer
að kvöldi 16. þ. m. og ætlað fót
gangandi , til Súgandafjarðar,
sem er röskur þriggja og hálfr-
ar stundar gangur. Ætlaði hann
að vera viðstaddur hátíðahöld-
in að Hrafnseyri 17. júní, og
fara þangað fi'á Súgandafirði
með báti. Síðan hefir ekkert til
hans spurst. Lögreglunni var
fyrst gert aðvart um hvarf
bans 21. þ. m. og var sama dag
fiafin leit að honum, og þeii’ri
leit haldið áfram daginn eftir,
en hún bar engan árangur. —
Fjöldi manns tók þátt í leitinni.
Alf Simson er tvítugur að
aldri.
Japanar taka Lingyang
Chungking í gærkveldi: Jap
anar hafa tekið borgina Lirxgy-
ang í Mið-Kína eftir snai’pi
bardaga. Áður höfðu þeir gerl
magnaðar loftárásir á borg
þessa. sem nú er því nær i rúst
um. Amerískar flugvjelar hafa
nú gert atlögur að stöðvum Jap
ana við borgina. — Reuter.
Hafmagnið til
aðalhitunnar
EINS og fyrirsögn þessarar
greinar ber með sjer, verða
hjer eingöngu gerð að umtals-
efni viðskifti þeirra, sem raf-
magn nota til aðalhitunar, og
Rafmagnsveitu Reykjavíkur, en
þau hafa eigi verið með öllu
sem ánægjulegust undanfarna
mánuði. Þó skulu þau ekki rak
in hjer ítarlega, aðeins getið
nokkurra atriða.
Rafmagnsveitan taldi hækk-
un rafmagnsverðs, sem gekk í
gildi við álestur mæla í des s.l.,
nauðsynlega yfir erfiðuslu vetr
armánuðina, háskammdegið, til
að hvetja menn til sparnaðar á
rafmagninu. Loforð var sam-
tímis gefið um, að verðið skyldi
lækka aftur að 2 mánuðum liðn
um, enda átti stækkun virkjun-
ar við Ljósafoss þá að vera lok-
ið. Þetta brást þó og enn voru
loforð gefin. Nú áttu rafmagns
notendur að hafa biðlund þar
til í maí. Síðara loforðið hefir
reynst jafngott hinu fyrra. —
Rafmagnsnotendur kunna slík-
um vanefndum illa, sem von-
legt er, og einkum þar sem þeir
þykjast greiða um of hátt raf-
magnsverð, hvort heldur er eft
ir hitunartaxta eða heimilis, þó
hinn síðari keyri úr hófi fram.
Því hefir verið haldið fram, að
rafmagnsverðið hafi verið of
lágt samanborið við hitaveituna
og rjettur þeirra, sem hana nota
því fyrir borð borinn. Væntan-
lega fæst úr þessu skorið, en
það rjettlætir auðvitað eigi
hækkun á rafmngsverði, sem
geri rafmagnsnotendum að
grexða margfaldan hitunar-
koslnað á við hitaveilunoiend-
ur.
Hitaveitan heldur nú innreið
sír.a í aðalborgina. Þeir, sem
nota rafmagn til aðalhitunar,
búa því einkum í úthverfunum.
Þeir gera að svo stöddu engar
kröfur til að fá að njóta þæg-
ina hitaveitunnar á heimilum
sínum, en þeim finnst eigi ó-
sanngjarnt, að þeir í hennar
stað fái að njóta þeirra þæg-
inda, sem rafmagnshitun veit-
ir. — Gjaldið, sem þeir vilja
greiða, á. að vera sambærilegt
‘við hitaveituna, þeir vilja held-
ur ekki vera afskiftir og aettir
skör lægra öðrum bæjarbúum.
Steingrímur Jónsson raf-
magnsstjóri hefir skrifað mjög
fróðlega grein, sem hann.nefnir
,,Um verð á rafmagni til hitun-
ar í sa.manburði við kol“, og er
að finna í tímariti V. F. í., 5.
hetti 21. árgangs. — Greminni
fylgja margar töflur og línurit.
Þar má sjá, að kwst.-fjöldi á 1
tonn kola er í beinu hlutfalli
við orkunýtni og hitagildi kol-
anna, en í öfugu hlutfalli við
orkunýtingu rafmagnsins, þ. e.
aukið hitagildi og orkunýtni
kola eykur kwst.-fjöldann,
aukin orkunýtni rafmagns
fækkar honum hinsvegar. Jeg
flelli upp í töflu um jafngildi
hitamagns á kolum og rafmagni
og nota þessar tölur.
Hitagildi kola 7000 kg. k il.
(meðaltal töflunnar)
Orkunýtni kola 40%
(álitin 50—60% að jafnaði)
Orkunýtni rafmagns 90%
(meðaltal töflunnar)
Við þessi skilyrði er talið, að
Framh. á bls. 5.
Laugardagur 24. júní 1944,
r %
Forsefa Islands berasf
kvei|ur frá Manifoba
og Korður-Dakofa
DR. RICHARD BECK, full-
trúi Vestur-íslendinga, gekk í
dag á fund forseta íslands og
flutli honum ávörp og kveðjur
ríkisstjórans í Norður-Dakota,
fylkisstjórans í Manitoba og
þriggja fylkisþingmanna í Mani
toba.
' Kveðja þingmannanna er á
þessa leið:
„Til ríkisstjórnar íslands og
hins háa Alþingis.
Vjer, hinir íslensku þingmenn
í fylkisþinginu í Maniloba, finn
um oss það skylt, að flytja rík-
isstjórn íslands, Alþingi og
heimaþjóðinni, vorar hjart-
fólgnustu árnaðaróskir í tilefni
af þeim miklu og markverðu
tímamótum, er þjóðin nú stíg-
ur fullnaðarspor sitt í sjálf-
stæðisáttina með endurreisn
síns forna lýðveldis; þó tveir af
oss hafi ísland aldrei augum
litið, og sá fyrsti, sem skrifar
undir þessa kveðju, færi á ung-
lingsaldri að heiman, þá er oss
öllum þremur jafnt í blóð borin
sterk rækt til hinnar íslensku
þjóðar, jafnframt aðdáun yfir
skapfestu hennar, jafnt í blíðu
sem stríðu. ,
Vjer finnum til víðtæks metn
aðar yfir því, að eiga xneð yður
arfleifð Egils og Snorra, og vera
áhoi'fendur, þó í fjarlægð sje,
að þeim hátíðahöldum, sem
fram fara heima í tilefni af
þeim sjálfstæðissigri, er ísland
tekur sinn tignarsess meðal
frjálsra og fullvalda þjóða, og
vjer vitum einnig, að hinar
miklu þjóðir, sem vjer búum
með, Canada og Bandaríkin,
bjóða ísland fagnandi til sætis
á bekk lýðfrjálsra þjóða.
Vjer þökkum íslensku þjóð-
inni sívaxandi góðvild og ástúð
x vorn gárð, er hámarki náði
með hingað komu hins virðu-
lega sendifulltrúa að heiman,
biskupsins yfir Islandi, herra
Sigurgeirs Sigurðssonar, er með
ræðum sínum og Ijúfmannlegri
framgöngu heillaði hjörtu fólks
vors hvar sem -leið hans lá.
Þessu jafnframt þökkum vjer
einnig heimsóknir allra annara
kærkominna gesta að heirrian.
Vjer biðjum draumalandi
voru í norðurhöfum guðs bless-
unar í framtíð allri.
Winnipeg, 4. maí, 1944.
S. Sigfússon,
þingm. St. Geoi’ge kjördæmis.
Paul Bardal,
þingm. Winnipegborgar.
G. S. Thoi’valdson,
þingm. Winnipegborgar“.
í kveðju frá R. F. McWilli-
ams, fylkisstjóra Manitoba,
kemst hann m. a. svo að orði:
„íslendingar, sem lekið hafa
sjer bólfeslu í Kanada, eru í
röð beslu borgara vorra. Sá þátt
ur, sem þeir eiga í opinberu
lífi, atvinnulífi og viðskiftum,
er langsamlega ofar hlutfalli
við fólksfjölda. Þeir voru fyrsti
þjóðflokkurinn, auk Engilsaxa,
sem komust áfram í þessu
landi“.
í kveðju frá John Mcses,
landstjóra Norður-Dakotaríkis,
segir m. a,:
„Það er mjög viðeigandi, að
Noi’ður-Dakotaríki sendi full-
trúa (dr. Richard Beck prófess-
or), við þetta ágæta tækifæri,
því að hjer býr stærsti hópur
manna og kvenna af íslenskum
ættum, þeirra er í Bandai'íkj-
unum bua“.
„Jeg treysti því, að þegar ís-
land öðlast fult sjálfstæði, megi
upp renna blómaöld, og að fram
tíðin megi bera í skauti sínu
enn meiri framfarir, andJegar,
bóklegar og efnalegar fyrir þjóð
yðar‘.
(Frá utanríkisráðunevt-
inu).
Lögreglan vill
geymsluhús fyrir ,
óskilamuni
LÖGREGLAN hefii' farið fram
á það við bæjarráð að fá lóð
fyrir hús, þar sem geyma skal
óskilamuni, sem enginn eigandi
finst að.
Það er svo, og hefir verið um
langan tíma, að mikið af als-
konar drasli, sem enginn finst
eigandi að, liggur á almanna-
færi hjer í bænum. Eins og er,
hefir lögreglan engin tök á því
að koma þessu drasli nokkurs-
staðar fyrir til geymslu.
En peningar og aðrir fjár-
munir í óskilum verða hjer eft-
ir sem hingað til geymdir á lög
reglustöðinni, þar til rjettur
eigandi vitjar þéirra.
Framsókn á Saipan
Washington í gærkveldi*
HBRSVBITIR Bandaríkja-
manna á Saipan-ey hafa sótt
fram um hálfan annan km.
á vesturströndinni en náð
nokkrum hæðum á austxir-
ströndinni. Mótspyrna Japana
er enn hörð, og hafa þeir mik
ið stórskotalið.
' Á Byak-ey við Nýju-Guineu
verjast Japanar enn af harð-
fengi, en margt Ixendir til
þess að þeir sjeu að reyná
að koma liði sínu á brott fíái
eynni. Hefir verið sökkt liðs—
flutningahátum þeirra, er
voru á leið tjl meginlands-
ins. —Reuter.