Morgunblaðið - 30.06.1944, Síða 1
Frakkar berjasl inn-
byrðis í París
London í gærkveldi.
, FRJETTARITARI þýsku
frjeltastofnunarinnar, Giinther
Weber sagði frá því kvöld, að
áflog og' bardagar hefðu átt
sjer stað milli Frakka, sem
hjeldú með Þjóðverjum og
annara, sem bandamannasinn-
aðir voru, í París í dag, þegar
um 1000 stríðsfangar, sem Þjóð
verjar tóku á Normandivíg-
stöðvunum voru fluttir gegnum
borgina frá járnbrautarstöðinni
Garee du Nord. Fult var af
fólki við götur þær, sem fang- |
arnir gengu eftir í fylgd varð- ;
manna, og er sumir fóru að
kalla vingjarnleegum orðum til
fanganna, byrjuðu ryskingarn-
ar, og urðu hin mögnuðustu
áflog.
Einn amerískur fangi kall-
aði til fólksins: „Bíðið þið bara
svo sem hálfan mánuð“.
—Reuter.
Eisenhower talar
enn til fiskimanna
London í gærkveldi.
EISENHOWER, yfirhershöfð
ingi innrásarherja bandamanna
hefir enn látið boð út ganga til
fiskimanna í hernumdum lönd-
um, og aðvarað þá um að fara
ekki a sjó og draga ekki fisk
á svæðinu frá Bayonne í Frakk
landi og að frísnesku eyjunum
fyrir Hollandsströndum, á tíma
bilinu frá í dag, 29. júní, og til
6. júlí. — Áður höfðum vjer
fært frjettir af boðum Eisen-
howers til fiskimanna í öllum
hernumdum löndum Vestur-
Evrópu að fara ekki á sjó frá
innrásardegi og alt til 26. þ.m.
— Reuter.
Bandaríkjamenn
missa flugvöll
London í gærkveldi.
SVEITIR 14. flughersins
ameríska, sem bækistöð höfðu
á flugvelli við Hengyeng í Suð-
ur-Kína, hafa orðið að yfirgefa
völlinn, sökum þess, að Japan-
ar sækja nú að honum og borg-
inni og hafa byrjað skothríð á
völlinn. Gátu Bandaríkjamenn
þó eyðilagt allar rennibrautir
flugvallarins, áður en þeir
hurfu á braut. — Reuter.
Árás á Metz.
London í gærkveldi: — Bresk-
ar sprengjuflugvjelar rjeðust í
nótt sem leið á kastalaborgina
frægu, Metz í Frakklandi, og
ennfremur á bæinn Blainville.
Var mótspyrna Þjóðverja ó-
venju hörð í lofti og mistu Bret
ar 20 flugvjelar af sveit, sem
ekki var mjög stór. — Nokkrar
þýskar orustuflugvjelar voru
skotnar niður. -r- Reuter.
Bretar
0
línur
ráku fleyg í vurnar-
Þjóðverja við Caen
Jenny Kammers-
gaard syndir í 43
klsl.
Búist við öflugri
gagnsókn Þjóðverja
í ÚTVARPI á íslensku frá
Berlín í gærkvöldi var frá því
skýrt, að hin fræga sundkona,
Jenny Kammersgaard, sem að
undanförnu hafi verið að æfa
sig undir langt þolsund, hafi
lagl upp í það í fyrradag og ver
ið á sundi í samfleytt 43 klukku
stundir. Þegar hún hafi synt í
8 klukkustundir rúmar, varð
hún viðskila við fylgdarbát
sinn vegna myrkurs og spurð-
Framh. á 2. síðu.
London 1 gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
I SÓKN ÞELRRf, sem Montgomery stefndi í gær og fyrra
dag gegn varnarstöðvum Þjóðverja við Caen, tókst Banda-
mönnum að komast yfir á eina á nokkru svæði og ná þar
fótfestu. Þetta er áin Odon, er fellur í Orne, og hafa milli
ánna verið tekin tvö þorp, Every og annað minna. Hefir
bandamönnum þarna tekist að r^ka um 5 km. langan, odd-
mjóan fleyg í víglínur Þjóðyerja og halda þeir honum enn,
þrátt fyrir vaxandi harðvítug gagnáhlaup skriðdrekasveita
Rompiels. Búast frjettaritarar Breta við því, að megingagn-
sókn kunni að vera í vændum á þessum slóðum.
Fallbyssur og skriðdrekar.
Bardagar þeir, sem þarna
hafa verið háðir, hafa mest
mætt á stórskotaliðinu og skrið
drekaliðinu. Fótgönguliðið hef-
ir ekki haft sig mikið í frammi
enn sem komið er. Skriðdrek-
arnir eigast venjulega við í
smáhópum, en enn hefir ekki
komið til allsherjar skriðdreka
orustu. Stórskotahríð úr fall-
byssum Þjóðverja hefir farið
vaxandi í dag, en Bretar senda
stöðugt meira lið yfir ána Od-
on.
Hliðaráhlaup um nótt.
Þjóðverjar gerðu í nótt sem
leið mikið áhlaup með það fyr-
ir augum að komast að baki
Bretum. Stefndu þeir liði sínu
að baki þeim niður með ánni
Odon, en áhlaupi þessu, var
hrundið, áður en það hafði náð
tilgangi sínum. Var barist
Framh. á 2. síðu
Síðustu frjettir:
Gagnáhlaup
Þjóðverja
byrjuð
London í gærkveldi.
Frjettaritarar vorir í
Normandi segja seint í
kvöld, að gagnáhlaup
Þjóðverja gegn fleyg
þeim, sem Bretar ráku í
víglínur Þjóðverja sunn-
an árinnar Odon, sjeu nú
byrjuð og geisi halramir
þardagar á vesturhlið
fleygsins.
Ekki er talið að bar-
dagarnir sjeu enn nema á
byrjunarstigi. Þjóðverjar
g;era þarna árásir með
skriðdrekum.
—Reuter.
taka Bobruisk
Petrosawodsk
Rússar
©g
London í gærkveldi.
Einliaskeyti til Mbl. frá Reuter
TVÆR DAGSKIPANIR hafa
einnig í dag verið gefnar út í
Moskva, og fjallaði sú fyrri um
töku borgarinnar Pedrosa-
wodsk, höfuðstaðar finsku
Karelíu. Er sú borg vestan On-
egavatns. Síðari tilkynningin
var svo um það, að hin mikla
varnarstöð Þjóðverja, Bobru-
isk, væri fallin Rússum í hend-
ur, eftir stórkostlegar orustur.
Hafa Finnar nú mist yfirráð yf-
ir þeim kafla Murmanskbraut-
arinnar, sem ligjjur úm Aunus-
eiðið.
I dagskipan þeirri, þar sem
taka Petrosawodsk var tilkynt,
er tekið fram, að Rússar hafi
með töku borgarinnar náð á
sitt vald allri járnbrautinni til
Murmansk. Það voru hersveit-
ir Meretskows hershöfðingja,
er borgina tóku, og fóru sum-
ar þeirra á skipum yfir Onega-
vatnið og komu þannig varnar-
liði borgarinnar í opna skjöldu.
Borgin Petrosawodsk er um
480 km. norður af Leningrad,
og var það síðasta borgin, sem
Finnar hjeldu á Murmansk-
brautinni og aðalbækistöð
finsku herjanna á Karelíuvíg-
stöðvunum. Hafa nú Rússar
náð aftur mestum hluta Aunus
eiðisins, milli Ladogavatns og
Onegavatns.
Viðureignirnav við
Bobruisk.
Síðari dagskipanin gaf til
kynna, að borgin Bobruisk,
sem er um 140 km. suðaustur
af Minsk, hefði verið tekin eft-
ir grimmilega bardaga. Stend-
ur borg þessi við járnbrautina
milli Gomel og Minsk, á útjöðr
um Pripetmýranna, við ána
Beresina.
Þá er frá því skýrt af frjetta-
riturum, að Rússar sjeu nú óð-
um að færast nær borginni
Minsk; sumar fregnir, að vísu
ekki opinberlega staðfestar,
segja, að Rússar sjeu nú í að-
eins 48 km. fjarlægð frá þess-
ari mikilvægu hernaðarstöð.
Sí LD !
Frá frjettaritara vor-
um á Siglufirði.
Fimtudagskv. 29. júní:
Fyrstu síldina er borist hef-
ir á land hjer, kom m.b. Sæ-
finnur frá Norðfirði, með
hingað í kvöld. — Vonx það1
um 200 tunnur er hann hafði
fengið á Skagagrunni. Kast
þetta var þó svo stórt að nót-
in rifnaði og mistu skipverjar
nokkuð af aflanum. Skipverj-
ar sögðu sjó þar um slóðir
svartan af síld. Síldin er feit-
ari en vænta mætti á þessum
tíma sumars.
Þá bárust blaðinu í gær-
kveldi fregnir frá Raufarhöfn
og skýrir írjettaritari vor þar
svo frá:
Síld hefir sjest vaða við
Sljettu og Langnes, síðustu
daga. — Bátar hjeðan ljetu
reka í nótt fyrir beitusíld og
fengu þeir rúmlega tvær tn.
í net.
Sókn stöðvuð
við Adriahaf
London í gærkveldi.
VEGNA harðrar mótspyrnu
Þjóðverja hefir sókn banda-
manna á strönd Adríahafsins
stöðvast í bili. — Annarsstaðar
á ItalíuvígstÖðvunum er sókn-
inni haldið áfram, þótt hún sje
nú miklu hægari en áður. Á
vesturströndinni nálgast fimti
herinn bæinn Sienna, en á mið-
vígstöðvunum geysa enn orust-
ur við Thrasimenovatnið. Vest
ar hafa Frakkar sótt nokkuð
fram, en í gær var erfitt um
hernað allan, því ofsarok var á
og þrumur miklar og elding-
ar. Hindruðu þessir aðilar all-
ar flugferðir og gerðu auk þess
spjöll víða, bæði á hernaðar-
tækjum og eignum ítalskra
borgara. — Reuter.
Hafnfirsk
stúlka
hverfur
HAFNFIRSKRAR stúlku hef-
ir verið saknað að heiman síðan
á þirðjudagsmorgun. Er það
Sigríður Jónsdóttir, til heimils
á Hverfisgötu 41.
Hún fór að heiman kl. 6 á
þriðjudagsmorgun. en til henn-
ar hefir ekkert rpurst síðan.
Lögreglan í Hafnarfirði hefir
leitað stúlkunnar á öllum hugs-
anlegum stöðum, en sú leit hef-
ir ekki enn borið árangur.
Stúlkan mun hafa verið eitt-
hvað einkennileg í háttum og
það hefir komið fyrir áður, að
hún hafi farið að heiman, en
hefir ekki verið saknað jafn-
lengi og nú.