Morgunblaðið - 30.06.1944, Blaðsíða 7
Föstudagur 30. júní 1944
MOBQONBL / MÐ
f
UIMDIRSTAÐA FRIÐARIIM8 A KYRRAHAFI
EN ÞAÐ kann að verða óger-
legt að stofna nokkurt alþjóð-
legt lýðveldi í Indonesiu. —
Breska stjórnin hefir þegar lát-
ið í ljós andúð sína á þeirri
hugmynd, að allar nýlendur
verði settar undir alþjóðlega
stjórn. Yfirlýsingu Churchill
um það, að hann hefði ekki
tekið við embætti sínu í því
skyni að leysa upp| breska
heimsveldið, hefir hvarvetna
verið veitt athygli. Oliver
Stanley, breski nýlendumála-
ráðherrann, tók það ákveðið
fram til enn frekari árjettingar
stefnu bresku stjórnarinnar, að
„stjórn bresku nýlendnanna
verður áfram að vera algerlega
í höndum Breta“. Þar sem yf-
irlýst viðhorf bresku stjórnar-
innar er þannig, hljóta Hollend
ingar, Frakkar og Portúgalar
að taka sömu afstöðu.
Jeg hefi nú gert frumdrög að
áætlun, sem jeg tel höfuðnauð-
syn að hrinda í framkvæmd til
þess að auðið verði að finna
nokkra viðunandi lausn á ný-
lenduvandamálinu.
Þá ætti einnig að fela alþjóð-
legri nefnd, sem útnefnd væri
af Kyrrahafsráðinu, að stjórna
japönsku umboðsstjórnarný-
lendunum, sem áður voru eign
Þjóðverja — Marianaeyjum
(246 fermílur, 44.052 íbúar),
Karolinueyjum (529 smáeyjar,
30915 íbúar) og Marshalleyj-
um (24 smáeyjar, 10.383 íbú-
ar).
Alþjóðleg öryggislína.
HÓPUR manna hjer í Banda-
ríkjunum hefir lagt fram þá
tillögu, að Bandaríkin komi upp
varnarlínu til tryggingar friðn-
um á Kyrrahafi. Varnarlína
þessi skyldi ná til Formósu yfir
eyjar þær, sem liggja í siglinga
leiðinni yfir Kyrrahafið —
Midway, Wake, Guam, umboðs
stjórnarnýlendur Japana, Fil-
ipseyjar, Liu-Chiu og Bonin-
eyjar. í riti sínu „Vandamálin
í Austur-Asíu eftir stríð“, kall-
ar Kurt Block virkjabelti þetta:
„fyrstu varnarlínu amerísk-
breskra hagsmuna í Austur-
löndum gegn sjerhverri hugs-
anlegri hættu frá Japönum,
Kínverjum eða Rússum. í rit-
stjórnargrein í blaðinu „Fort-
une“, var tekið undir þessa
hugmynd, en hún túlkuð á ann
an hátt. Þar var lína þessi skoð
uð sem varnarlína fyrir Filips-
eyjar, Indonesiuríkið, Indo-
Kína og suðurströnd Kína. Hvar
svo sem hugmyndin kann að
vera, hlýtur slík vamarlína að
tryggja Bandaríkjunum stökk-
palla þaðan sem þau geta beitt
áhrifum sínum á Kyrrahafs-
svæðinu og í himrm fjarlægari
Austurlöndum.
Bandaríkin —
jafnvægisaflið.
ÞESS má minnast, að þegar
á fyrstu árunum eftir 1930 var
það almenn ósk Austur-Asíu-
þjóðanna, að Bandarikin skær-
ust þar í leikinn. En það er ekki
hægt að koma við virkri íhlut-
un á fám vikum eða mánuðum,
nema nauðsynlegur undirbún-
ingur hafi áður farið fram. Og
hvernig er auðíð að undirbúa
jarðveginn þegar hernaðarleg-
ar bækistöðvar eru ekki fyrir
hendi? Með fúsleika sínum á
EFTIR WU NAN-JU
í þessari síðari grein sinni rekur Wu Nan-Ju nánar
hugmyndir sínar varðandi framtíðarskipan málanna á
Kyrrahafi. Hann aðhyllist stofnun víðtækra ríkjabanda-
laga eins og flestir þeir höfundar, sem ritað hafa og rætt
um þessi efni. Hann leggur þó ríka áherslu á nauðsyn
þess, að öllum ríkjum verði gefinn kostur á að njóta
frelsis og sjálfstæðis, jafnskjótt og þau eru nægilega
þroskuð til þess.
Síðari grein
að veita Filipseyjum sjálfstæði
hafa Bandaríkin sýnt, að þau
— að minsta kosti í bili — hafa*
ekki nein yfirdrotnunaráform
í huga. Ahrif þeirra geta því
vel orðið friðinum íil mikillar
eflingar. Utþensla áhrifavalds
þeirra til Austur-Asíu og Suð-
vestur-Kyrrahafslanda mun
verða vel þegin af þeim þjóðum,
er þessi lönd byggja, þar á með-
al Kínverjum, sem ekki hafa
neinar yfirdrotnunarfyrirætlan
ir í huga, en þrá aðeins frio og
rjettlæti.
Þá má enn betur trjrggja það.
að varnarbelti þetta komi að
fullum notum, með því að fela
yfirstjórn þess í hendur alþjóð-
legri hernaðarnefnd, er útnefnd
væri af Kyrrahafsráðinu, Að
sjálfsögðu myndi áhrifa Banda-
ríkjanna gæta þar langmest.
Hersveitir þær, sem gættu varn
arbellis þessa, gætu einnig ver-
ið frá hinum ýmsu sameinuðu
þjóðum, þótt hersveitir Banda-
ríkjanna yrðu þar eðlilega fjöl-
mennastar. Varnarlínuna mætti
einnig framlengja frá Formósu
norður til Koreu, og myndi þá
kínverska hernum falið mikil-
vægt hlutverk í vörnum henn-
ar.
Kyrrahafsráðið ætti eftir stríð
að skipa alþjóðlega nefnd til
þess að annast frjálsan flutning
fjármagns, vinnu, lífsnauðsynja
og hráefna milli landa Austur-
Asíu og Kyrrahafseyja. Á herð
um þessarar nefndar myndi
hvíla það hlutverk að uppræta
allar orsakir til ágreinings milli
þessara þjóða innbyfðis og rnilli
þeirra og þjóða annará heims-
svæða.
Öil þessi mál. sem hjer hefir
verið drepið á, þyrfti að leysa
á hinu fjögurra ára vopnahljes-
iímabili.
Millibilstímabilið.
Á VOPNAHLJESTÍMABIL-
INU verður að leggja horn-
steina friðarskipulagsins, en á
hinu sex ára langa millibiis-
tímabili þarf að trj'ggja undir-
stöðuna enn betur.
Hafi ábyrgri stjórn verið kom
ið á laggirnar í Japan í lok
vopnahljestímabilsins, verður
hægt í upphafi annars iímabils-
ins að gera formlega friðarsamn
inga milli Japana og fyrri and-
stæðinga þeirra og veita opin-
bera staðfestingu breytingum
þeim, sem orðið hafa á vopna-
hljestímabilinu. Hin alþjóðlega
stjórnarnefnd mun áfram vaka
yfir japönsku stjórninni, gefa
henni leiðbeiningar og heimta
frekari brej'tingar, ef þörf ger-
ist. Herir hinna sameinuðu
þjóða munu þá hafa verið flutt-
ir frá Japan, að undanteknum
nokkrum hernaðarlega mikil-
vægum stöðum, sem áfram
verða að vera undir eftirliti
bandamanna. Japanskar korn-
myllur, verksmiðjur og skipa-
smíðastöðvar halda áfram að
framleiða varning til greiðslu á
skaðabótum. í lok sex ára tíma-
bilsins á Kyrrahafsráðið að
rannsaka ítarlega alla fram-
komu og háltsemi japönsku
stjórnarinnar, og telji það hana
fullnægjandi, lýsir það milli-
bilstímabilinu lokið, skaðabóta-
, greiðslur niður feldar, alþjóð-
jlegt eftirlit afnumið og jap-
önsku stjórnina fullkomlega
frjálsa og reiðubúna til þess að
taka þátt í nýskipan hins lýð-
ræðislega friðarskipulags, með
jafnrjeítisaðstöðu við önnur
ríki.
Þannig munu Japarjir aðeins
hafa setið tíu ár í fangelsi fj'rir
alla þá glæpi, sem þeir hafa
framið siðan árið 1931 — og
það getur ekki talist langur
tími af þjóðaræfi.
] Á þessu tímabili rnunu Kín-
verjar halda ófram að beita
allri orku sinni að auknum iðn
aði og fullkomnara lýðræðis-
skipulagi. Gert er ráð fjair því,
að í lok þessa sex ára tímabils
verði Kína vel á veg komið að
því marki, sem það hafði sett
sjer á báðum þessum sviðum.
Ekki síðar en í lok þessa tíma-
bils verour að finna endanlega
lausn á Ytri-Mongoliu-vanda-
málið.
Þá verða einnig ýms önnur
störf, sem liggja fyrir, Kj-rra-
hafsráðinu á þessu tímabili.
Fyrst og fremst verður að
þjálfa alþjóðlegan her, og á-
kveða framlag hvers bandalags
rikis í hlutfalli við stærð, fólks
fjölda og stjórnmálalega og við
skiftalega hagsmuni hvers
þeirra.
Samtímis þjálfun þessa hers
verður hin alþjóðlega hernað-
arnefnd að gera áætlanir um
afvonnun hinna einstöku þjóða
smótt og smátt. Að lokum skal
hver þjóð einungis hafa nægi-
legan herstj’rk til þess að halda
uppi lögum og rjetíi innan
sinna eigin landamæra. í sam-
ræmi við þetta skulu hinar ein-
stöku þjóðir og einstaklingar
algerlega sviftir rjetti til þess
að framleiða herflugvjelar,
skriðdreka og önnur þungaher-
gögn.
Alþjóðadómstóll.
AÐ LOKUM verður ráðið að
koma á fól alþjóðadómstól og
gera varanlegan friðarsáttmála.
I upphafi millibilstímabilsins
mun hlutlausum þjóðum svo
sem Rússum og Portúgalsmönn
um boðin innganga í Kyrrahafs
og Austur-Asiu ráðið. Ráðstaf-
anir munu verða gerðar tiLþess
að ræóa friðarlöggjöfina. í því
skyni mun verða skipuð alþjóð-
leg löggjafarnefnd, sem situr
að staðaldri og verður skipuð
sjerfræðingum. Fyrsta hlutverk
þessarar nefndar mun verða að
semja friðarsáttmála til þess að
leggja fyrir bandalagsráðið. þar
sem Japanir og Thailendingar
muhu einnig fá að hafa full-
trúa. _
I lok þessa millibilstímabils
og eftir að friðarsáttmálinn hef
ir verið samþyktur af banda-
lagsráðinu og staðfestur af hlut
aðeigandi ríkisstjórnum með
tilskyldu atkvæðamagni, kem-
ur sáttmálinn til framkvæmda
og tjaldið verður dregið frá
leiksviði hins varanlega friðar-
skipulags.
Friðartímahilið.
EINS og þegar hefir verið
bent á, mun undirstaða friðar-
ins í aðalatriðum hafa verið
lögð á vopnahljes- og millibils-
tímabilinu. Það, sem greint verð
ur í sáttmála þessum og fram-
kvæmt á þriðja tímabilinu, verð
ur að engu lej'ti nýtt. Hjer mun
aðeins verða um það að ræða,
að kerfisbinda og færa í letur
það, sem hagnýtt hefir verið
og reynst vel á hinu tíu ára til-
raunaskeiði.
Bandalagsráð Austur-Asíu-
og Kyrrahafsríkjanna mun
verða höfuo þessa friðarskipu-
lags. Hinir upphaflegu meðlim-
ir þess munu verða Bandaríkin,
Stóra-Bretland, Kína. Ástralíu,
Nýja Sjáland óg Holland. Á
millibilstímabilinu mun Rúss-
landi, Portúgal, Filipseyjum,
Koreu og Indlanái verða boðin
innganga í ráðið. Þegar friðar-
tímabilið hefst, mun einnig Jap
an og Thaiiand boðin þátttaka.
Hvert ríki mun eiga tvo fulltrúa
í ráðinu, annan kjörinn af hlut-
aðeigandi þjóð, sem fulltrúa
hennar, en hinn kjörinn af hlut
aoeigandi ríkisstjórn, sem full-
trúa hennar. Hver fulltrúi skal
einungis fara með eitt atkvæði.
Aðalviðfangsefni ráðsins mun
verða að varðveita friðinn,
brjóta alla ágengni á bak aftur,
framfylgja sameiginlegum laga
ákvæðum og leiðrjetta og
breyta lagaákvæðum og samn-
ingum, ef þeir að einhverju
leyti geta teflt friðinum i hættu.
Ymsar umlirnefndir munu
starfa á vegum ráðsins, bæði
hernaðarnefnd, viðskiftanefnd,
fjárlagamálanefnd, löggjafar-
nefnd og fjármálanefnd.
Alþjóðadómstóllinn mun að
meslu leyti vera óháð stofnun.
Einfaldur meiri hluli atkvæða
mun verða láíinn ráða úrslit-
um um úrlausn flestra mála, en
í einstaka veigamiklum málum
J mun þó verða krafist aukins
meiri hluta. Áreiðanlega mun
verða horfio frá þeirri reglu, að
allir verði að vera sammála um
úrlausnir málanna.
Ágreiningsmál' milli þjóða
verður að leggja fvrir alþjóða-
dómstólinn og þjóðirnar verða
að hlýta úrskurðum hans og
] þola refsingar, ef því er að
I skifta.
,Ríki, sem afhendir hluta af
valdi sínu, til þess að skapa
alþjóðlegt vald, og síðan eign-
ast í staðinn hlutdeild í starf-
semi þessa alþjóðavalds, glatar
ekki meira frelsi en einstakling
arnir, er þeir afsala sjer hluta
af sjálfræði sínu til þess að
skipuleggja ríki og fá síðan að
njóta borgararjettinda í því.
Frelsi þeii’ra er ekki aðeins ó-
skert, heldur hefir það verið
enn betur treyst.
Afsal rjettinda einstakra
þjóða, heimi öllum til blessuh-
ar, er merki hins nýja tíma.
Þjóðir Austur-Asíu og Kyrra-
hafslanda verða að skilja þetta
Merki Republikana
Kepublikanaflokkurinn í Bandaríkjunum gengur jafnan (il
kosninga undir fílsmerki, og liefir oft lifandi fíla með í kosn-
ingagöngum sínum og áróðri. Hjer sjest uppáhaldsfíll flokksins,
ásamt framkvæmdastjóra flokksins, Harrison Spangler.