Morgunblaðið - 06.07.1944, Side 1
31. árgangur.
14.8. tbl. — Fimtudaginn 6. júlí 1944.
ísafoldarprentsmiðja hX
Ameríkumenn sækia suður
ÞESSI NÁUNGI hjer á myndinni heitir Andreas Schmidt
og er quislingur í Rúmeníu. Hann er foringi þýska minni-
hlutans þar í landi og hefir að dæmi skoðanabræðra sinna í
öðrum löndum komið sjer upp líi'varðarsveit. Sjest hann
hjer á myndinni vera að tala. við einn af lífvörðum sínum.
80 manns fórust í
sprengingu í Aarhus
. 1000 hús hrunin og skemd
Stokkhólmi í gær. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
NÚ ÞEGAR er vitað um að 80 manns mun hafa farist
og 300 særst í ægilegri sprengingu, sem var í Aarhus í Dan-
mörku í gær (þriðjudag). Um 1000 hús í borginni hrundu,
eða skemdust í sprengingunni og rúður brotnuðu í húsum
víðsvegar um borgina. Það er ottast, að fleiri hafi farist,
en þeir 80, sem vitað er um með vissu.
Cherbourg-skaga
■' ..
Harðir bardagar um
Carpiquet-flugvöllinn
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
HELSTU FREGNIRNAR frá innrásarsvæðinu í Frakk-
landi í kvöld eru af framsókn Bandaríkjahersveita Omar
Bradleys hershöfðingja suður Cherbourgskaga. Hafa
Bandaríkjahersveitir sótt þarna fram töluvert, þrátt fyrir
mjög harða mótspyrnu Þjóðverja, sem hafa góðar varn-
arstöðvar í hálendinu á vesturströndinni.
Bandaríkjahersveitir hafa tekið strandfcæina St. Nicolas de
Pierre, Pont og Neufmsnil og framsveitir Bandaríkjamanna
nálgast nú La Haye du Puits.
fangar teknir
í Frakklandi
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
ÞAÐ VAR tilkynt opinber-
lega á miðnætti í nótt í aðal-
stöðvum Eisenhowers, að banda i
rrienn hafi nú tekið als 50.000 ,
þýska hermenn höndum, síðan ;
innrásin var hafin í Frakkland. |
Margir fangar hafa hætst við
síðustu dagana, einkum í bar-
dögunum um Carpiquet-flug-
völlinn og í sókn Bandaríkja-
manna suður Cherbourgskaga.
Spánverjar haía ekhi
hjálpað til við fram-
leiðslu svifsprengja
LONDON í gærkveldi: Eden
utanríkismálaráðherra Breta,
skýrði frá því í neðri málstof-
unni í dag, að hann hefði fengið
ábyggilegar upplýsingar um, að
það væri ekki rjett, að Spánverj
ar hafi aðstoðað Þjóðverja við
framleiðslu svifsprengja, eða að
svifsprengjuhlutar hafi verið
framleiddir á Spáni.
Fregn um þetta birtist fyrst í
útvarpinu í Moskva. Einn þing-
maður spurði Eden, hvort hann
vildi ekki snúa sjer til rússnesku
stjórnarinnar og fá um það upp
lýsingar hvaðan fregn þessi
væri komin. Eden sagðist ekki
vilja gera það. Sagðist vera viss
um, að ef rússneska stjórnin
teldi fregn þessa að einhverju
leyti merkilega myndi hún án
efa skýra bresku stjórninni frá
því. — Reuter.
de Gaulle ræðir
alvarleg mál við
Rcoseveil
ALGIERS í gærkveldi: Áður
en ae Gaulle hershöfðingi lagði
af stað áleiðis til Washington
sagði hann í yfirlýsingu, að
hann færi til að ræða mjög al-
varleg og mikilsvarðandi mál
við Roosevelt forseta.
Mál þau, er hann myndi ræða
við forsetann, væru hagsmuna-
mál beggja þjóðanna.
„Bandaríkjaþjóðin, sem hef-
ir yfir að ráða gífurlegum iðn-
aðarauðlyndum og vinnuafli,
hefir framleitt vopn í barátt-
una fyrir frelsi og lýðræði í
heiminum", sagði de Gaulle.
Reuter.
Sprengingin varð í þýsku
skotfæraskipi, sem lá í höfn-
inni og er talið að slys hafi
valdið sprengingunni, en ekki
skemdarverk, eins og í fyrstu
var talið, segir í fregn, sem
danska frjettastofan hjer í
Stokkhólmi birtir í kvöld.
Christmas Möller um hetjuskap
Hafnarbúa.
Danska ráðið í London birti
í dag ávarp frá leiðtoga frjálsra
Dana, Christmas Möller, vegna
atburðanna, sem gerst hafa í
Kaupmannahöfn undanfarið.
Christmas Möller hrósar
mjög hetjuskap hinna vopn-
lausu Kaupmannahafnarbúa,
sem tóku upp baráttuna gegn
þýska hernum. Segir Möller,
að Kaupmannahafnarbúar hafi
unnið glæsilegan sigur, sem
ekki muni gleymast.
26 japönskum
skipum sökl
WASHINGTON í gærkveldi:
Kafbátar Breta og Banda-
manna, sem eru í víking í
Kyrrahafi og við strendur Asíu
hai'a enn sökt samtals 26 jap-
önskum skipum. Meðal þessara
skipa var eitt beitiskip og einn
tundurspillir. — Reuter.
Franskir skæruliöar
ná landsvæði
af Þjóðverjum
LONDON í gærkveldi: — Út-
varpið í Algiers skýrir frá því
í dag, að franskir skæruliðar
hafi náð á sitt vald mörgum
dölum í Pyreneafjöllum. Ogur-
legar orustur eiga sjer stað fyr
ir austan Bonedalinn í Suður-
Frakklandi.
Franskir skæruliðar hafa
veitt Þjóðverjum marga skrá-
veifuna síðan innrásin hófst.
Hafa franskir skæruliðar eink-
um ráðist að járnbrautum og er
nú svo komið, að öll umferð um
Nord járnbrautarstöðina í Pas
de Calais er stöðvuð vegna
skemdarverka, sem Frakkar
hafa unnið á járnbrautinni.
Reuter.
Loftárásir á flugvelli
í Hollandi
og Belgíu
LONDON í gærkveldi: —
Amerískar Liberator-flugvjel-
ar og flugvirki rjeðust í dag á
flugvelli Þjóðverja í Hollandi
og Belgíu og á bækistöðvar
svifflugvjela á Pas de Calais-
svæðinu í Norður-Frakklandi.
Flugveður var ekki goott. Var
skýjað og urðu flugmennirnir
að miða sprengjunum með
sjerstökum tækjum.
Aliar amerísku flugvjelarnar
komu aftur, heilu og höldnu
til bækistöðva sinna.
— Reuter.
Keres teflir í Svíþjóð.
Stokkhólmi: Hinn víðfrægi
skáksnillingur Paul Keres frá
Eistlandi tekur þátt í skákmóti
hjer í Stokkhólmi um þessar
mundir. Hafa Þjóðverjar veitt
honum fararleyfi.
Gagnáhlaup Þjóðverja
við Caen.
Á Caen-vígstöðvunum stend
ur enn í sama þófinu. Bar-
dagar eru þarna harðir og
hafa Þjóðverjar gert þarna.
allhörð gagnáhlaup, en hafa
ekki unnið neitt á.
Flugveður hefir. verið slæmt.
Er enn lágskýjað og rigning
á innrásarsvæðinu. en þrátt
fyrir það gerðu flugvjelar
bandamanna miklar árásir í
dag á tvær brýr Þjóðverja á
Orne fljóti. Voru þessar brýr
Þjóðverjum mikils virði, því
um þær hafa aðalflutningar
Þjóðverja til Caenvígstöðv-
anna farið.
Flugmönnum bandamanna
tókst að hitta brýrnar með
sprengjum og énnfremur
sprengdu þær upp fallbyssu-
stæði Þjóðverja á þessum
slóðum. Aðrar flugvjelar fóru
til árása á birgðastöðvar
Þjóðverja og flutningatæki.
Það hefir borið meira á
þýska flugliðinu í dag en
undanfarna daga. Rjeðust.
þýsku flugvjelarnar einkum
á hersveitir Breta og Kanada-
manna, sem hafa komið sjer
upp brúarsporði handan Odoa
árinnar.
1 gær fóru flugvjelar
bandamannar nm 500 árásar-
ferðir á innrásarsvæðinu og
skutu niður 27 þýskar flug-
vjelar, en mistu sjálfir 20
vjelar.
Harðir bardagar um
Carpiquet-flugvöllinn.
Ógurlega harðir bardagar
hafa staðið í dag «m Carpi-
quet-flugvöllinn, r,em Kanada-
menn náðn að nokkru leyti á
sitt vald í gærdag. l'lafa Kan-
adamenn haldið velli. Þjóð-
verjar hafa teflt fram skrið-
drekum til að reyna að hrekja.
Kanadamenn af vellinum. —
Tókst þeim á einum stað að
hrekja Kanadamenn úr stöðv-
um sínum um stund, en þeir
náðu þeim aftur eftir harða
návígisbatdaga.