Morgunblaðið - 10.09.1944, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 10. sept. 1944
70 ára:
\
CARL BERNDSEN
póstafgreiðslumaður
Á MORGUN 11. sept. er sá
mæti maður Carl Berndsen á
Skagaströnd 70 ára.
Hann er fæddur á Skaga-
strönd 11. sept. 1874, sonur
hjónanna F. H. Berndsen
káupmanns og Bjargar Sig-
urðardóttur.
Carl ólst upp hjá foreldr-
um sínum en gerðist verslun-
armaður 1892 hjá JóhannÍ
Möller kaupmanni á Blöndu-
ós. Var hann þar í 4 ár og
naut mikilla vinsælda rneðal
viðskiftamanna Möllers, Ilann
giftist 15. apríl 1896 Steinunni
Siemsen kaupmanns í Keflavík
hinni mætustu konu. Sama
vor fluttist hann til Skaga-
strandar og starfaði við versl-
un föður síns á Hólanesi næstu
árin. Tók svo við versluninni
árið 1901 og rak hana um 15
ára skeið, en hætti 1916 mest
vegna þeirra örðugleika, sem
stríðið hafði í för með sjer
fyrir öll viðskifti á þeim ár-
um,
Á árunum 3922—1936 var
Carl bókhaidari hjá tengda-
syni sínum, Ólafi Lárussyni
kaupfjelagsstjóra á Skaga-
strönd. Póstafgreiðslumaður
á Skagaströnd hefir hann ver-
ið síðastliðin 48 ár og er enn.
Ilann var bóndi á Spákonu-,
felli árin 1919—1922 og altaf
síðan hefir hann haft nokk-
urn búskap með öðrum störf-
um.
Þau hjónin Carl og Stein-
unn eignuðust 6 börn og cru
5 þeirra á lífi, alt hið merk-
asta fólk. Einn son mistu þau
fyrir fáum árum þá fulltíða
mann.
Carl Berndsen er vinsæll
maður í hjeraði sínu 'og víða
um land á hann góðvini.
Ilajm er gáfaður maður og
gleðimaður mikill, fríður sín-
um og A'ar hið mesta karl-
menni að burðum. Alúð hans
og framúrskarandi gestrisni
er alkunnug eigi aðeins inn-
an hjeraðs heldur o.g víða um
land. Kona hans og börn hafa
verið honum samhentíþvíefni
og heimilið því einstakt glað-
værðar- og gestrisnis heimili.
Carl Berndsen er víðsýnn
maður og skoðanafastur á-
hugamaður um framkvæmdir
og opinber mál, heldur jafn-
an sínar götur og lætur ekki
hlut sinn fyrir neinum.
Á þessum merkilegu tíma-
mótum æfinnar mun verða
fjölmenni vina og vandamannai
á hinu glaðværa og gest-
risna fyrimyndar heimili.
Sá fjölmenni vinahópur hús-
bóndans, sem ekki á þess kost
að mæta heima til að heiðra
þenna kæra vin á afmælisdag-
inn sendir honum og allri
fjölskyldunni bestu kveðju
og hugheiiar óskir um gleði
og hamingju á ókomnum ár-
um.
Lifðu heill kæri vinur.
Jón Pálmason.
Fleiri segja nei.
London: — Kosningar standa
nú yfir í Ástralíu um það, hvort
þjóðin vilji fela stjórninni vald
til þess eftir styrjöldina að
stjórna öllum viðreisnarfram-
kvæmdum. — Enn sem komið
er hafa 253.560 fleiri neitað
spurningunni en játað.
Ký bék:
Saga könnunarleið-
angra til Suður-
skautsins
NÝLEGA er komin á mark-
aðinn bók eftir Sigurgeir Ein-
arsson, sem nefnist Suður um
höf. Er þetta saga rannsókn-
arferða til Suðurheimskauts-
ins, hliðstæð fyrri bók höf-
undarins, Norður um höf, sem
fjallaði um rannsóknarleið-
angra til Norðurheirnskauts-
ins. '
Þessi nýja bók Sigurgeirs
er yfir 300 bls. í stóru broti,.
prýdd miklum fjölda mynda
og korti af suðurhveli jarðar.
I henni er að finna ítarlegar
frásagnir af öllum rannsókn-,
arleiðangrum til Suðurskauts-
! ins og þeim mönnum, sem þar
j hafa einkum komi við sögu.
/Auk þess er þar að finna mik-
inn fróðleik um lönd og eyjar
innan takmarka Isálfunnar og
dýralífs þeirra. Er bók þessi
hvorttveggja í senn: stórfróð-
leg og skemtileg aflestrar.
Efnið er stórbrotið og fjöl-
þætt, enda rötuðu heimskauta
könnuðirnir tíðum í margs-
skonar æfintýri og áttu við,
hina ótrúlegustu örðugleika
að etja.
Bókaútgáfa Guðjóns Ó. Guð
jónssonar gefur bók þessa út
og er vel til hennar vandað í
hvívetna,
Hafskipið Rex stór-
skemmt
London í gærkveldi.
BRESKAR Beaufighterflug-
vjelar rjeðust fyrir skömmu á
hið fræga ítalska hafskip Rex
á Adríahafi og kveiktu í því
með rakettubyssum. Síðar varð
vart' við, að skipið væri dregið
til hafnar, en þar rjeðust flug-
vjelar aftur á það og hittu það
enn með allmörgum rakettu-
skeytum. — Rex er frægasta
Atlantshafsfar Itala, hafði um
tíma Bláa bandið svonefnda
fyrir hraðamet í siglingum yf-
ir Atlantshafið. Skipið er um
50 þús. smál. að stærð og þótti
að öllu mjög veglega búið.
— Reuter.
Sextugur:
Bjarni Kjartansson
forstjóri
Bjarni Kjartansson, forstjóri
í Siglufirði, verður sextugur í
dag. Hann er fæddur að
Drangshlíðardal undir Eyja-
fjöllum 10. sept. 1884. Foreldr-
ar hans voru: Kjartan Guð-
mundsson, bóndi í Drangshlíð-
ardal og síðari kona hans Sól-
veig Finnsdóttir. Guðmundur,
afi Bjarna, var sonur Jóns
„ríka“, bónda í Drangshlíð,
Björnssonar „ríka“, að Eystri-
Sólheimum. Guðmundur reisti
nýbýlið Drangshlíðardal og
bjó þar til dauðadags. Af syst-
kinum Guðmundar komust 6
til fullorðins ára og eru frá
þeim komnar miklar ættir á
Suðurlandi. Meðal bræðra hans
var sjera Kjartan í Ytri-Skóg-
um, er dó að Elliðavatni við
Reykjavík 1895. Öll voru þau
systkinin dugnaðarfólk hið
mesta, höfðinglynd og prúð-
mannleg og virðist ekki hvað
síst -prúðmenskan vera ein-
kenni ættarinnar.
Sólveig Finnsdóttir, móðir
Bjarna, var ættuð frá Mýrdal
og stóðu að henni góðar ættir.
Bjarni ólst upp hjá foreldr-
um sínum og stundaði algeng
sveitastörf sem þá var títt og
var til sjóróðra í Vestmanna-
eyjum á vetrum. Um tvítugs-
aldur fluttist hann til Víkur í
Mýrdal og tók að.stunda þar
skósmíði og síðar verslunar-
stöi'f. Vann hann sjer fliótt
traust sem verslunarmaður og
árið 1911 tók hann við for-
stöðu hins tiltölulega nýstofn-
aða kaupfjelags Skaftfellinga,
er þá var í byrjun aðeins pönt-
unarfjelag og gegndi síðan
kaupfjelagsstjórastörfum, er
það hóf almenna verslun.
Gegndi hann því starfi til árs-
ins 1928, er hann tók við for-
stjórastarfi við Áfengísverslun
ríkisins í Siglufirði, sem hann
hefir annast síðan.
Meðan Bjarni vár kaupfje-
lagsstjóri í Skaftafellssýslu,
naut hann mjög almennra vin-
sælda. Prúðmenska hans og
góðvild var öllum kunn og á
hinum miklu kreppu og erfið-
leikaárum, sem voru meiri í
Skaftafellssýslu en víða ann-
arsstaðar, ekki síst af völdum
Kötlugossins 1918, vildi hanri
hvers manns vandræði leysa.
Þó að Bjarni væri að eðlisT
fari maður hljedrægur, gegndi
hann ýmsum trúnaðarstörfum
á þeim árum og var hrókur alls
fagnaðar á gleðimótum og í
fjelagslífi. Ekki hvað síst hafði
sönglistin heillað hug hans,
enda voru þeir bræður Bjarni
og Sigurjón, nú kaupfjelags-
stjóri í Vík, sjálfkjörnir for-
ystumenn í öllu sönglífi þar um
slóðir og munu margir minn-
ast þess með gleði.
Bjarni kvæntist 1906 Svan-
hildi Einarsdóttur, Hjaltasonar
í Vík, hinni ágætustu konu, og
hefir heimili þeirra jafnan ver-
ið rómað fyrir gestrisni og
myndarskap og munu Skaft-
fellingar fyrr og síðar minnast
þess. Það er og mála sannast,
að þegar þau fluttu burt úr
Skaftafellssýslu var þeirra al-
ment saknað af hjeraðsbúum.
Þau hjónin hafa eignast 4
börn, sem öll eru á lífi: Einar,
skipstjóra í Vestmannaeyjum,
Sólveigu, húsfreyju í Siglufirði,
Kjartan, sparisjóðsgjaldkera og
Björgvin, lögfræðing, sem einn
ig eru þar búsettir.
Bjarni Kjartansson hefir jafn
an notið sjerstakra vinsælda,
sökum góðgirni sinnar og prúð
mensku. Síðustu 16 árin hefir
hann átt heima í Siglufirði og
verið forstjóri áfengisversiun-
arinnar þar og rækt það starf
af sinni alkunnu trúmensku,
enda þótt ekki sje vandalaust
að gera þar öllum til hæfis.
Á þessum tímamótum í ævi
hans munu vinir hans nær og
fjær senda honum margar hlýj
ar kveðjur og árna honum og
fjölskyldu hans heilla og far-
sældar.
Ó. J. Þ.
BEST AÐ AUGLYSA
I MORGUNBLAÐINU
•♦♦♦••♦••♦♦♦••*♦♦»♦•♦♦•••••••♦••♦♦••♦♦♦♦♦♦♦♦♦•♦♦♦♦♦•♦•••♦♦•<»♦♦♦♦••••♦♦•♦♦•♦•♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦•♦♦♦♦♦♦•♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦«»♦♦»♦♦♦♦♦♦♦<»<&♦<»»♦»
< t
t
X-9
5W
Eftir Roberl Slorm ii
OKAY, pUööY... PUT UP
SOUR 5HOOT5-PI5TOL
AN' ÖET SACK IN
VOU/? SAöKET í Wm
HEY, BLUE-JAW!
CALL OFP THI5 W4TCI-Í
OOÖ...I DON'T LjKE
^ POINTERS!
Copr. T944, King Featurcs Syndicate^Jnc
Worid rights reserved.
JCH - TCM! C'/VSON, i'LL
FIX VOU A FROSTV ONE. T *
UOOAN'S HERE-ME'LL f mooan?
BE ÖLAD T'ÖEE YOUÍ Xr .
r YOU AIN'T
J'JST KIDDIN
blue-jawí I
JUMPEP MY
BAIL !
WELL, FL00P5Y, HOW
AI?E AUL TME BOY5 /
!N TME POLICE , j
LINE-UP?
1—2) Floopsy: — Heyrðu, Blákjammi! Sveiaðu
þessum varðhundi. Jeg kann ekki við, að verið sje
að benda á mig. Blákjammi: — Svona, Puggy.
Stingdu hólknum á þig og hringaðu þig aftur niður
í körfuna þína.
3—4 Blákjammi:—Jæja, Floopsy, hvernig líð-
ur öllum strákunum, sem lögreglan er að reyna að
hæla í? Floopsy:— Það er nú annað en tómt gam-
an, Blákjammi! Jeg stakk af, þótt jeg vðeri búinn
að setja tryggingu í málinu. Blákjammi: — Uss-
uss. Svona, jeg skal blanda handa þjer einn jökul-
kaldan drákon. Hogan er hjerna. Það gleður hann
að sjá þig. Floopsy: — Hogan?