Morgunblaðið - 19.09.1944, Side 12
12
Þriðjudagur 19. september,
Árásá stúlku
SEXTÁN ÁRA GÖMUL
stúlka hefir kært til lögregl-
unnar vegna árásar, sem hún
varð fyrir í fyrrinótt. — Segir
stúlkan svo frá, að um mið-
nætti í fyrrinótt hafi hún ver-
ið á leið heim til sín vestur í
bæ. Er hún var stödd á Ásvalla
götunni segir hún að maður
hafi komið aftan að sjer og
dregið sig inn í húsagarð. Er
stúlkan ætlaði að hrópa á hjálp
segir hún, að árásarmaðurinn,
hafi stungið upp í hana klúti
og slegið hana höfuðhögg.
Stúlkan segir að maðurinn
hafi nauðgað sjer og síðan
horfið út í náttmyrkrið. Ekki
gat stúlkan gefið neina lýsing
á manninum og ekki segist
hún hafa þekkt hann, en held-
ur að maðurinn hafi verið er-
lendur.
Stúlkan komst heim tii sín
hjálparlaust, en var illa leikin,
er heím kom.
Biiið ú Syfta
Víqstöðvarnar á Ítalíu
SWITZERLAND
TRICSTE
'^MONTf.
■S^CENIZ (
^PASS-
'VENICE
LOMBARDÍ
s^sVNCREMONAj
POSSIBLE
LINE
OF ENEMY
DEFENSE
p»IACENZA
POLA
PARMAi
ADRIATIC
'genoa
RAVENNA
FRONTIER
GULF OF GENOA
GOTHIC
LINE
• FLORENCE
PtSA
k)l+a BRENNíR ''Z
™ý,vr,^,AUSTR,A
VV'l bernese ^W^-ueponune
• W ^SIMPLON,^^ J\
•' ITALIAN § <2 IAKE • DISTRICT
L Vv ■) k BRESCIA
nimunMT is-—^
' . JULIAN
ALPS 'W&' -
VENEZIA ^OLD
/FRONTIER ^
AREA
STRONGIY
FORTIFIEDI
U I _
/£*
Uppdráttur af Norður-Ítalíu, sem sýnir Gotnesku varnarlínu hjóðverja. Svörtu örvarnar
sýna hugsanlega framsókn bandamanna til ná undir sig allri Norður-Italíu, eftir að þeir
hafa brotist í gegnum Gotnesku varnarvirkin, en það hefir þegar tekist á austurströndinni,
hjá Rimini. Eftir að bandamenn cru komnir á Lombardy-sljettuna, er talið að Þjóðverjum
veitist vörnin crfiðari cn hingað til, því þá geta bandamenn farið að beita vjelahersveitum.
Olfusárbrú
ÞA.Ð hefir nú tekist að lyfta
CTókst að ná upp
aðalb^jjjfctrengnum sem losn
aði og fes^H^nn og hangir nú
brúin uppi á honum. Unnið er
að því, að festa hina tvo
strengina. Síðar verður svo
bætt við nýjum strengjum, til
þess að styrkja brúna.
Byrjað var að lyfta brúnni
á sunnudag. En þegar leið á
, daginn gerði versta veður, svo
að hætta varð við verkið áður
. en tekist hafði að lyfta brúnni
til fulls. Var svo haldið áfram
í gær og þá tókst að lyfta
brúnni. Er brúin nú mikið til
rjett, en rjettist betur þegar
hliðarstrengirnir hafa verið
festir.
Má telja, að þetta verk hafi
gengið prýðilega, miðað við að-
stæður.
Smiðir, sem vinna við brúna
ganga nú yfír hana, en aðrir fá
ekki að fara yfir.
Búist er við, að brúin geti
orðið gangfær undir næstu
helgi og að þá megi fara með
Ijettan flutning yfir hana, t. d.
handvagna.
Síðan verður haldið áfram
að styrkja brúna svo, að bílar
geti farið þar yfir.
Vjetbátar víð ferjuna»-
Ölfusá er nú svo vatnsmikil,
að ekki er viðlit að ferja neðan
við brúna.
Á sunnudag vár vjelbátur
■ sendur austur og var hann not-
aður í gær til þess að ferja fólk
yfir ána. Var ferjað úr svo-
nefndu Sýki, efst í Selfossþorpi
og farið fyrir ofan hólma, sem
þar er í ánni. Er ferjustaður
þarna sæmilegur. Tók vjelbát-
urinn 12 farþega i hverri ferð.
I gær var annar vjelbátur.
sendur austur, sem verður einn
ig notaður til að ferja á fólk.
Mjólkin.
Ekki var viðlit að flytja
mjólk yfir Ölfusá á sunnudag
og var þessvegna lítil mjólk
hjer í bænum í gær. En í gær
var aftur byrjað að flytja mjólk
yfir Ölfusá fyrir ofan Laugar-
dælahólma, en það var*seinlegt
og erfitt verk.
. Walterskeppnin:
Valur : K. R.—5:1
MENN gerðu sjer ekki háar
vonir um að fá að sjá knatt-
spyrnuleik á sunnudag, þó að
eitthvað á fjórða þúsundið ark
aði út á völl til að sjá úrslit
Walterskepninnar á mílli Vals
og K. R., en þenna dag var há-
vaðarok, um 6—8 vindstig af
SA, og bjuggust fæstir við, að
leikurinn færi fram. Ástæða
þessa áhorfendafjölda í þessu
leiðindaveðri var án efa, að
forseti Sveinn Björnsson ætl-
aði að vera viðstaddur þenna
síðasta knattspyrnuleik ársins
og var þetta vitað fyrirfram.
Laust fyrir kl. 5 kom forseti
inn á völlinn og tóku á móti
honum nokkrir forystumenn
íþróttamála bæjarins og fylgdu
honum í áhorfendastúkuna, en
hún hafði verið lítillega lag-
færð í tilefni þessa.
Nokkurn veginn stundvíslega
hófst svo léikurinn og Ijek K.
R. undan vindi fyrri hálfleik-
inn, enda áttu KR-ingar alla
sókn þessa hálfleiks, en skor-
uðu ekki nema eitt mark þrátt
fyrir storminn. Það var mesta
furða, hvað leikmönnum tókst
að hemja knöttinn og var leik-
urinn alls ekki svo afleitur og
eiga hjer bæði liðin hrós skil-
ið fyrir að minsta kosti tilraun
ina til að leika knattspyrnu. í
síðari hálfleik snerist sóknin
að sjálfsögðu við, Valur sótti,
•en KR varðist, en Valsmenn
skoruðu 5 mörk í þessum hálf-
Ieik, en KR ekkert, og lauk því
leiknum með sigri Vals 5:1.
Eins og áður or sagt tókst
leikmönnum oft á tíðum að
halda knettinum vjð jörðina,
en þar gætti stormsins ekki
eins, og má segja, að leikurinn
í heild hafi verið fremur góð-
ur. KR-ingum tókst ekki að
brjóta Vals-vörnina nema í
þetta eina sinn, og var það
Hafliði, sem skoraði um miðjan
fyrri hálfleik. Valsvörnin stóð
sig með prýði í þetta sinn eins
og svo oft áður, sjerstaklega
þeir Sig. Ól. og Björn Ól., eh
á Hermann reyndi ekki svo
mjög, þó virtist hann ávalt
vera öruggur. KR-vörninni aft
ur fataðist oftar, aðalorsök
þessa tel jeg, að hún hafi hop-
að of mikið
t Framlína KR var yfirleitt
seinni á knöttinn en andstæð-
ingarnir og gerði það gæfumun
inn. Bestir voru þeir Hörður
Ósk. og Hafliði, en Jón Jóns.
hefir oft verið langtum betri.
I framlínu Vals bar mest á Al-
bert; sómdi hann sjer vel sem
miðframherji og skapaði oft
nokkuð góð tækifæri fyrir með
leikmenn sína; gerði hann eitt
mark með fallegu skoti frá
vítateig. Ellert gerði tvö mörk.
Honum hefir greinilega farið
aftur frá því í vor. Nýliðinn
Stefán Magn. á hægra kanti
gerði tvö mörk og virðist vera
efnilegur. Sveinn Helga. hefir
oft verið betri, en Gunnar Sig-
urjóns. ljek ágætan leik.
Dómari var Mr. JRae. Amer-
ísk hljómsveit ljek í leikbyrj-
ún og í hálfleik. Smekkleysa af
mótanefnd.
Heyrst hefir, að knattspyrnu
ráðið hafi áður en leikurinn
hófst, gert stjórnum og móta-
nefndum þessara tveggja fje-
laga að'vart um, að það gerði
leikinn ógildan, færi hann
fram. Mótanefndin mun ekki
hafa tekið þessa aðvörun til
greina, en hún er aðili fjelags-
stjórnanna í þessu tilfelli.
Nú er eftir að s.já, hvort
knattspyrnuráðið stendur við
þessa hótun sína, og fái forseti
I. S. I. einhverntíma seinna
meir að afhenda bikarinn í
annað sinn. Fáum við þá annan
leik og það ef til vill bráðlega.
Vp.
Landsbókasafnið
efnir til
bókasýningar
Á ÞESSU SUMRI eru liðin
100 ár frá því að fyrst var
prentuð bók 1 Reykjavík. Árið
1844 var aðeins ein prentsmiðja
í landinu, Viðeyjarprentsmiðja,
en hún var flutt til Reykjavík-
ur þá um sumarið. Þessa merki
lega afmælis er minst í Lands-
bókasafninu með þeim hætti,
að komið hefir verið þar fyrir
í lestrarsal safnsins nokkrum
sýningarkössum og er þar sýnt
meginið af því, sem prentað
var á íslensku árið 1844 í Rvík,
Viðey og Kaupmannahöfn. Til
samanburðar eru svo sýndar
Hólabækurnar frá 1744, enn-
fremur eina íslenska bókin sem
til er frá árinu 1644, en það
,er Þorláksbiblía, og loks elsta
prentuð bók á íslensku, Nýja
testamenti Odds Gottskálksson
ar frá 1540. Þá er og sýnt lít-
ið sýnishorn af íslenskri bóka-
gerð ársins 1944, þar á meðal
nokkrar prentminjar frá stofn-
un lýðveldisins. Sýningarkass-
ar þessir verða látnir standa í
lestrarsal safnsins nokkra
daga, en hann er opinn alía
virka daga kl. 1—7 síðdegis.
Hergöyn flutt
tii Varsjá
London í gærkveldi.
FLUGVIRKI Bandaríkja-
manna hafa nú flutt allmikið
af hergögnum til skæruliðanna
pólsku í Varsjá og fengið að
lenda á rússneskum flugvöllum
í fyrsta skifti eftir að Pólverj-
ar fóru að berjast í Varsjá. —
Fóru flugvirkin svo jafnskjótt
aftur heimleiðis til Bretlands,
er þau höfðu tekið eldsneyti.
— Reuter,
á markaðinn
LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA
skýrði frá þvi utan dagskrár í
Nd. í gær, að hann hefði lagt
svo fyrir kjötverðlagsnefnd, að
útsöluverð á dilkakjöti, er kæmi
á markaðinn þessa viku, skyldi
verða hið sama og áður var,
eða kr. 6.50 kg., og verðmis-
munurinn greiddur úr ríkis-
sjóði.
Ráðherrann skýrði enn frem-
ur frá því, að kjötverðlags-
nefnd hefði gert áætlun um,
hvert útsöluverðið á dilkakjöti
þyrfti að vera, ef hætt yrði að
greiða verðið niður á innlend-
um markaði, með framlagi úr
ríkissjóði. Ef ríkissjóður greið-
ir áfram uppbætur á kjöt, sem
selt er á erlendum markaði,
þyrfti útsöluverðið á innlenda
markaðnum að verða kr. 11.07
pr. kg. En ef engar uppbætur
yrðu greiddar á útflutta kjötið,
þyrfti útsöluverðið innanlands
að vera kr. 18-87 pr. kg. Hvort-
tveggja væri miðað við, -að
bændur fengju það verð, sem
byggist á samkomulagi 6-
manna-nefndar.
Hrossakjötið.
Landbúnaðarráðherrann gaf
ennfremur þær upplýsingar, að
ekki hefði tekist að fá neinn við
unandi markað erlendis fyrir
hrossakjöt. Markaður var fá-
anlegur fyrir niðursoðið hrossa
kjöt, en verðið var svo lágt, að
það var ekki einu sinni fyrir
kostnaði.
Sjóflugvjel
hvolfir
UM HÁDEGI í fyrradag
kom það óhapp fyrir, að sjó-
flugvjel Loftleiða h.f. hvolfdi á
Miklavatni í Fljótum.
Kristján Jóh. Kristjánsson,
framkvæmdastjóri fjelagsins,
skýrði blaðinu frá því gær, að
flugvjelin hafi verið að hefja
sig til flugs í ágætu veðri og
nær því logni. Rjett þegar hún
var að sleppa vatninu, skall
yfir í einni svipan ofstopa veð
ur. Skrúfaðist vjelin fyrst upp
í loftið, en hrapaði síðan og
hvolfdi i vatnið. Tveir flug-
menn voru í vjelinni. Tókst
þeim að komast út úr vjelinni
upp á flothylkin, en þar hjeld-
ust þeir við í tvo tíma þar til
flugvjelin rak á land. — Var
flugmönnunum ekki meint af
volkinu.
Ekki var vitað með vissu,
hve skemdir urðu miklar á
vjelinni, en ekki er hægt að
fljúga henni eins og hún er nú
á sig komin. Er ætlunin að
taka hana í sundur þarna fyrir
norðan og flytja hana síðan
suður. .
Veðurofsinn var valdur að
ýmsu meira tjóni þarna fyrir
norðan, ,t. d. fuku þök af hús-r
um, hey fauk og síldveiðibátar
mistu nótabáta sína.
London-; Ýmsir talsmenn
Frakka hafa lýst sig þess fýs-
andi, að Frakkar sendu her til
Kyrrahafsins, til þess að berj-
ast við Japana, ef Þjóðverjar
yrðu sigráðir á undan þeim.