Morgunblaðið - 04.11.1944, Page 14
11
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 4. nóv. 1944
.j í síðasta blaði var frá því
skýrt, er Miranda ákvað að
komast að því, hvað Nikulás
•hefðist að í hinu dularfulla
turnherbergi. Varð hún þess
áskynja, að hann reykti
þar ópíum, og var hann und-
ir áhrifum eiturlyfsins, þeg-
ar hún kom þangað upp. —
Hann kom ruddalega fram
við hana og vísaði henn loks
á dyr.
★
Hann tók lykilinn upp úr
vasa sínum og henti honum á
gólfið.
Hún beygði sig niður til þess
að taka hann upp, en rak um
leið upp sársaukavein, því að
hana verkjaði í úlnliðinn, sem
var blár og bólginn.
Nikulás lá hreyfingarlaus,
með lokuð augun.
JVfiranda opnaði dyrnar og
gekk hægt niður stigann, til
svefnherbergis síns.
,,Hvað er að, frú?“ hrópaði
Peggy óttaslegin, þegar hún
kom auga á húmóður sína. Hár
hennar var alt í óreiðu, kjóll
hennar rifinn og augun star-
andi. „Og þjer hafið meitt yð-
ur —hrópaði hún og starði
á úlnlið hennar. „Gerði hann
þetta —? Það er þá til þess að
drekka, sem hann lokar sig
þarna uppi“.
Miranda hristi höfuðið. Hún
gekk út að glugganum og stóð
þar andartak. „Peggy, jeg þarf
að finna Turner lækni. Veistu
hvort hann er ennþá í Hud-
son?“
„Já, frú. Hann er það. Ætlið
þjer að láta hann líta á úlnlið-
inn?“
Miranda leit á handlegg sinn.
„Já, auðvitað. Það þarf að
binda um hann. Jeg þori ekki
að fara til Hudson. Jeg verð
einhvern veginn að koma boð-
um til hans. Jeg veit ekki —“.
„Látið mig um það, frú“,
sagði Peggy. „Skrifið honum
brjef, og jeg skal sjá um, að
hann fái það fyrir miðnætti“.
„En hvernig geturðu það -?“
spurði Miranda og horfði van-
trúuð á Peggy. „Hvernig get-
urðu það, án þess að eiga á
hættu að —?“ í þessu húsi fór
ekkert fram hjá Nikulási, og
engar skipanir'voru gefnar án
samþykkis hans.
Peggu brosti og leit niður. —
„Það er piltur í þorpinu, Hans
Klapberg.sem ekki mundi telja
eftir sjer, að gera mjer greiða.
Og það er óhætt að treysta hon-
um“.
„Peggy — þú ert þó ekki ást-
fangin —?“, hrópaði Miranda
og gleymdi andartak öllum
áhyggjum sínum. En svo datt
henni í hug, að Peggy kynni að
vilja giftast og fara frá henni,
og sú hugsun fylti hana skelf-
ingu.
Peggy sá, hvað húsmóðir
hennar hugsaði. „Jeg mun
aldrei fara frá yður, fyr en þjer
óskið þess“, sagði hún alvarleg
á svip. „Aldrei".
En jeg get ekki haldið henni
hjer, ef hún hefir tækifæri til
þess að komast hjeðan og verða
hamingjusöm, hugsaði Mir-
anda. En jeg veit ekki, hvernig
jeg fer að komast af án hennar.
Það voru aðeins tvær mann-
eskjur í öllum heiminum, sem
hún var viss um, að elskuðu
hana — Abigail og Peggy.
„Nú skulið þjer skrifa brjef-
ið“, sagði Peggy glaðlega. „En
læknirinn má ekki koma hing-
að. Þjer verðið að hitta hann
einhvers staðar annars staðar“.
Hún sá, að Miranda var ekki
fær um að hugsa neitt sjálf. —<
„Hjá gömlu mylnunni við vík-
ina, í dögun. Segið honum það
í brjefinu“. Og guð gefi, að
hann koomi ekki niður áður.
Hún var bænheyrð. Það
heyrðist hvorki stuna nje hósti
frá turnherberginu alla nótt-
ina. Miranda lá ein og bylti sjer,
svefnlaus, í stóra Van Ryn
rúminu. Hún hafði stöðugan
verk í úlnliðnum. Klukkan
fimm klæddi hún sig. Morgun-
loftið var svalt og þær skulfu
báðar af kulda, hún og Peggy.
Peggy sagði, að alt væri
klappað og klárt, Jeff myndi
bíða hennar í mylnunni. Þær
læddust saman gegnum húsið,
en Peggy varð eftir til þess að
gæta dyranna.
★
Jeff kom á undan Miröndu
til mylnunnar. Hann tjóðraði
hest sinn og gekk inn í myln-
una. Þar settist hann á tóman
kassa og beið.
Jeff hafði átt skemtilega ævi
undanfarið. Hann hafði brenn-
andi áhuga á hinum nýju til-
raunum með ether, sem deyfi-
lyf. Hinn frægi uppskurður við
Massachusetts General, sem
hafði kynt almenningi lyfið,
var gerður meðan Jeff var í
Mexikó. Það var ekki fyr en
árið eftir, að hann fór til Bos-
ton til þess að kynna sjer þetta
nýja undralyf nánar.
Hann hafði hugsað lítið um
Miröndu þennan tíma, en þó
hafði hann ekki giftst Faith
Volger. Hún hafði orðið leið á
biðinni og gifst ungum lögfræð-
ing, og virtist una sjer vel í
hjónabandinu.
Jeff var fastráðinn í því, að
enda ævi sína sem piparsveinn.
En þó var ekki svo að skilja, að
hann lifði neinu munkálífi. —
Hann hafði g’aman af að lyfta
sjer upp einstaka sinnum og fá
sjer einn lítinn, og hann hafði
lent í smá ástaræfintýrum
bæði í Boston og New York.
Þegar Jeff fjekk brjef Mir-
öndu í gærkvöldi, hafði hann
fyrst ætlað að neita að koma.
Honum fanst þessi beiðni henn-
ar, um leynilegt stefnumót,
I hlægileg. En hann gat aldrei
neitað neinum um hjáip, sem
þarfnaðist hans, og þess vegna
sat hann hjer, svangur og kaid-
ur, í alt annað en rómantískum
hugleiðingum.
Nú kom hann auga á Mir-
öndu. Hann stóð upp til þess
að heilsa henni. Hún rjetti hon-
um vinstri hönd sína. „Jeff —
þakka þjer fyrir að þú komst.
Jeg varð að hitta þig — tala við
þig. Það er'um Nikulás".
Já auðvitað, hugsaði Jeff. —
En hann heilsaði henni bros-
andi og leiddi hana að kass-
anum. Hann hafði nærri því
gleymt því, hve yndisleg hún
var.
„Hvað er að, Miranda? —
Segðu mjer það“, sagði hann
rólega, þegar hann sá, að hún
var í vandræðum með, hvað
hún ætti að segja.
Hann leit snögt á hana. Síð-
an gpkk hann að steinpalli, sem
var þar rjett hjá, og kveikti
dálítinn eld. Að því búnu sett-
ist hann aftur hjá henni.
„Þetta var gott“, sagði hún
þakklátlega og rjetti hendurnar
að eldinum.
„Heyrðu!“, hrópaði Jeff. —
„Hvað er að úlnliðnum á þjer?“
Hann tók eftir því, að hún roðn
aði og reyndi að draga að sjer
hendina. „Jeg efast um, að
nokkuð sje brotið“, sagði hann,
eftir að hafa athugað hann
vandlega. „Þú verður að leggja
við hann kalda bakstra og arn-
iku, þegar þú kemur heim. —
Hvernig skeði þetta, Miranda?“
Hún leit undan. Hún var svo
þreytt, að hún gat vart hugs-
að skýrt. Hún þráði það eitt,
að halla höfðinu upp að breiðri
öxl Jeffs, loka augunum og
hvíla sig.
En Jeff hjelt áfram að
spyrja hana. Hann vissi mæta
vel, að hún hafði ekki beðið
hann að finna sig, til þess að
láta hann líta á úlnliðinn, og
hann hafði sterkan grun um,
að Nikulás ætti einhvern þátt
í því, hvernig hann leit út.
„Hefirðu orðið eitthvað ósátt
við mann þinn?“, spurði hann
blíðlega. „Segðu mjer það,
væna mín. Þú baðst mig að
hjálpa þjer, og nú verðurðu að
treysta mjer. Hugsaðu aðeins
um mig, sem lægni, sem van-
ur er að heyra sitt af hverju“.
Hún kinkaði kolli. „Hann
hefir verið svo undarlegur í
seinni tíð — síðan uppþotið
var. Þú hefir sennilega ekki
heyrt það — hann særðist. En
það er ekki það —
„Heyrðu, væna mín“, sagði
Jeff þolinmóðlega, og brosti
lítið eitt. „Þú verður að byrja
á byrjuninni, Er maðurinn þinn
veikur? Eða er hann, ef til vill,
farinn að drekka helst til mik-
ið?“
„Nei“, svaraði hún. „Hann
reykir ópíum“.
„Reykir ópíum!“, endurtók
Jeff. Hann var svo hissa, að
hann langaði mest til þess að
skellihlæja. Hann hefði mátt
vita, að Nikulás ljeti sjer ekki
nægja venjulegt áfengi!
„Er það mjög alvarlegt?“,
spurði hún og horfði með kvíða
svip á andlit hans.
„Jeg er heldur fáfróður um
ópíum, Miranda. Sveitalæknar
hafa yfirleitt litla reynslu af
eiturlyfjum. — En leystu frá
skjóðunni, og segðu mjer alt.
Þá getur vel verið, að jeg geti
hjálpað þjer“.
_/^ Angnn je* hvíll
með gleraugum frá TÝL*.
Undrablómið egyptska
Æfintýr eftir H. De Vere Síackpoole.
Ágrip sögunnar: H. De Vere Stackpoole segir dóttur
sinni sögu, en hún er gjörn á að grípa fram í. Sagan.gr
um hollenskan túlípanaræktunarmann, van Dunk, sem
kemst í kynni við aldraðan vísindamann, van Houten,
er segir honum að í pýramida einum í Egyptalandi sje
afar merkilegur tulipani, með gyltum blómum og mynd-
um á hverju blaði af dóttur Ramesesar Egyptalands-
konungs. — Van Dunk hyggst nú selja allar eignir sínar
og leita að túlipana þessum og vill van Houten fara með
honum. Sáðu þeir mörg þúsund ára gamalli baun, og
ælluðu að hafa það til merkis, hvort þeir ættu að fara
til Egyptalands, ef baunin kæmi upp. Og það gefði hún.
7.
Þegar jurtin blómstraði, hjelt van Dunk öllum hinum
túlípanaræktunarmönnunum veitslu og sagði þeim frá
ferðalagi því, sem hann væri nú að leggja upp í og einnig
um hinn dásamlega túlípana, og þeir gerðu allir gys að
honum á eftir, eins og allir heimskir menn gera oft að
nýjum hugmyndum. Og þeir hlógu enn hærra daginn
eftir, þegar hann seldi húsið sitt og túlípanagarðinn og
kúna eftir hann van Gogh og lagði af stað til Egypta-
lands með honum van Houteen gamla.
Þeir voru nú lengi á leiðinni þangað, því þá voru nú
ekki til gufuskipin nje járnbrautirnar, — ja, þeir voru
þrjá mánuði á leiðinni, en að lokum komust þeir til Cairo.
Þar keyptu þeir úlfalda, sem hjet Fatima og rjeðu stóran
og mikinn Araba, sem hjet Ondurman, til þess-að stjórna
úlfaldanum og einn góðan veðurdag fóru þeir yfir Níl
á ferju og lögðu svo af stað yfir eyðimörkina áleiðis til
pýramidanna. Það var enginn af þeim pýramidunum sem
eru nærri Sfinxinum mikla, steinljóninu með manns-
höfuðið, þú veist, heldur einn af þrem öðrum pyramidum
lengra úti á eyðimörkinni, svo þeir vöru tvo daga á leið-
inni þangað og það var ekki fyrr en að kvöldi annars
dagsins, sem pýramidarnir sáust í fjarska yfir sólheita
sandana, stóðu þar eins og þrír Arabar í brúnum kuflum
og voru eitthvað svo ógnar einmana og vandræðalegir.
Nú slógu þeir í Fatima, og þegar tunglið var að koma
upp yfir sandauðnirnar, þá komust þeir á áfangastað.
Garðyrkjumaðurinn var í þeim pýramidanum, sem
stóð í miðjunni, að því er van Houten sagði, og fóru þeir
nú að leita eftir, hvort ekki væru dyr nokkrar eða gat
á pyramidanum, og bráðlega fundu þeir dyr, hálffaldar
af sandi. Þær voru ekki stórar, en hægt að skríða inn um
þær. Þá kveikti Ondurmann á blysi og fór fyrstur inn,
en hinir á eftir.
2)a
Hafliði Jónsson, yfirvjelstjóri
á e.s. Goðafoss, er sextugur í
dag. Hafliði er fæddur að Skóg-
um í Þorskafirði 4. nóv. 1884.
Hann nam járnsmíði á Patreks-
firði hjá Guðm. Jónssyni og tók
sveinsbrjef í þeirri iðn 1912. Hið
minna vjelstjórapróf tók hann
1913, en hið meira 1920. Hafliði
hefir siglt á skipum Ríkissjóðs
og Eimskipafjelags íslands svo
að segja óslitið í 27 ár. — Hinir
mörgu vinir hans og kunningjar
senda honum sínar bestu árnað-
aróskir.
85 ára er í dag Árni Magnús-
son, frá Bjarnastöðum á Álfta-
nesi. Árni hefir verið blindur
yfir tuttugu ár, en heldur óskert
um sálarkröftum og fylgist vel
með öllu. -— Árni dvelur nú á
Elliheimilinu Grund.
Hjúskapur. S.l. fimtudag voru
gefin saman í hjónaband 1 Vest-
mannaeyjum ungfrú Elín Sig-
urðardóttir og Sigtryggur Jóns-
son, starfsm. hjá Vinnufatagerð
Islands. — Þann sama dag áttu
foreldrar brúðarinnar, Sigurður
Sigurðsson múrarameistari, Eyj-
um og Kristín Benediktsdóttir,
silfurbrúðkaup. — Heimili ungu
hjónanna verður fyrst um sinn
á Rauðarárstíg 32.
Hjúskapur. í dag verða gefin
saman í hjónaband af sr. Árna
Sigurðssyni imgfrú Elísabet
Pjetursdóttir og Jóhannes H.
Jónsson. Heimili ungu hjónanna
verður að Sólbirgi við Laugarás-
veg.
Walterskepnin. Valur vann K.
R. í endurteknum úrslitaleik ]).
15. október. Sigraði með 3 mörk
um gegn tveim. Var leikurinn
að mörgu vel leikinn, þótt völl-
urinn væri erfiður.