Morgunblaðið - 04.11.1944, Síða 15

Morgunblaðið - 04.11.1944, Síða 15
Laugardagur 4. nóv. 1944 MORGUNBLAÐIÐ 1S Fimm mínúina krossgáta Lárjett: 1 snáðar — 6 ennþá —- 8 burt — 10 svik — 11 fugla- hljóð — 12 tveir eins — 13 kvað —; 14 skilningsgóð — 16 tekur. Lóðrjett: 2 tónn — 3 óvandvirk — 4 flan — 5 útskýra — 7 spræna -— 9 nam — 10 rekkjuvoð -—■ 14 á stundinni — 15 mentastofnun. Fjelagslíf ÆFINGAR I KVÖLD 1 fimleikasal Menta- skólans: Kl. 8—10: Isl. glíma. Fimleikaæf ingar f j ela gsins byrja á þriðjudaginn í Austur b æ j a rbar naskólanum. . Skemtifundur f j ela gsins verður n.k. miðvikudag í r! jarnareafé. Stjórn K.R. ÁRMENNINGAR þróttaæfingar fjelags ns í kvöld verða þann ig í íþróttabúsinu. 1 stóra salnum: Kl. 7-8 Ilandknattleikur, karla Kl. 8—9 Islensk glíma. t minni salnum: Kl. 7—8 Telpur, fimleikar. • Kl. 8-9 ITandknattl. drengir. Kl. 9—10 Hnefaleikar. Mætið vel og rjettstundis. Stjórn Ármanns. ÁRMENNINGAR! Stúlkur — Pilt.ar! Sjálfboða- vinna í -Tósepsdal um helgina. Farið í dag kl. 2 og kl. 8. Vinna HÚSEIGENDUR Get bætt við mig málaravinnu. Fritz Berntsen, málarameist- ari, Grettisgötu 42, Sími 2048. JÖLAHREIN GERNING AR eru byrjaðar. Fljót afgreiðsla. Vönduð vinna. Sími 5786. NOKKRIR MENN sem eru í millilandasiglingum geta fengið vandaða mánaðar- þjónustu. Sími 5731. Húsnæði STÚLKA með barn á öðru ári, óskar eftir herbergi og eldunarplássi gegn hjálp við sauma eða hús- hjálp. Tilboð scndist blaðinu nierkt 808. Tilkynning HJÁLPRÆÐISHERINN Samkoma í kvöld kl. 8,30. — Kvikmyndir frá Kína verða sýndar. Allir Aælkomnir. Kaup-Sala HATTAR og aðrar fatnaðarvörur. — Tvinni og ýmiskonar smávör- nr. Karlmannahattabúðin. Ilandunnar hattaviðgerðir á sama stað. Hafnarstræti 18. NÝTT GÓLFTEPPI 3,65 x 2,75, til sölu Hafnar- stræti 18. Rakarastofan. ULLARPEYSUR heilar og hnepptar, margir litir Ullarkjólatau, Satin-Náttkjól- ar og Undirfatasett. — Silki- ísgarns- og bómullarsokkar margar gerðir. Guðrún Þórðardóttir, Vesturgötu 28. KAUPUM FLÖSKUR og blómakörfur. ■—- Sækjum. Verslunin Venus. Sími 4714. NOKKRIR DÍVANAR olíuofn og beddi, til sölu í Ánanaustum. NOTUÐ HÚSGÖGN kevpt ávalt hæsta verði. — Sót.t, heini. — Staðgreiðsla. — 4ími 5691. — Fornverslunin TÍT-ottise'ötu 45 TVEIR ARMSTÓLAR og DÍVAN til sölu. Sími 2437. Tapað STÁLARMBANDSÚR karlmanns, hefir tapast. Finn andi vinsamlega tilkynni í síma 2001. Húnn af regnhlíf tapaðist s.l. þriðjudagskvöld. Vinsamlegast skilist á af- greiðslu Morgunblaðsins. 23. október tapaðist ofinn borðrenningur á Þórgötu eða Freyjugötu. Finnandi geri vinsamlega að- vart í síma 2832. LINDARPENNI Parker 51, merktur, hefir tap- ast á leið frá Verslunarskól- anum að Hringbraut 75. Finn- andi vinsamlegast beðinn að skila honum á Hringbraut 75. SÁ SEM FANN kvennúrið á dansleiknum á Ilótel Borg laugardaginn 31. september, er vinsamlega beð- inn að skila því á ITringbraut 209, 1. hæð, gegn fundarlaun- um. 6. október tapaðist KVENNARMBANDSÚR frá Ilringbraut 144 að Loka- stíg. Vinsamlega skiiist á Loka stíg 17 gegn fundarlaunum. GRÆN HATTASKJA tapaðist 14. f. m. á leiðinni frá Norðurmýri niður í Miðbæ. Finnandi vinsamlega geri að- vart í síma 1930. Fundið KVENNVESKI fúndið 22. október. Vitjist á Nýfendngötu 19TL — Tveggja ára þóf Framh. af bls. 9 sept.). En þegar til kom, gálu Framsóknarmenn þá ekki mælt, og næsta dag (29. sept.) voru þeir horfnir frá þessu, en lögðu hinsvegar til að dr. Björn Þórð arson yrði látinn mynda stjórn og yrðu með honum tveir ráð- herrar frá hvorum flokki. Samningamenn Sjálfstæðis- manna lögðu þessa uppástungu fyrir þingflokkinn, en þar var henni hafnað með hverju ein- asta atkvæði. Var Framsókn strax tilkynt þetta. Framsókn neitar enn. ÞEGAR svo Ólafur Thors sneri sjer ti'l Framsóknarflokks ins að kvöldi 3. okt. og fór fram á að Framsókn yrði með í myndun tveggja flokka stjórn- ar, svaraði Framsókn með svo- hljóðandi brjefi: „Samningatilraunir um stjórn fjögurra flokka hafa nú staðið yfir samfleytt síðan í ágústmán- uði, og hafa þær áður verið gerð ar tvívegis. Flokkarnir virðast ennþá engu nær takmarkinu en í upphafi. Framsóknarflokkurinn telur, að við slíkt verði ekki lengur unað, og sje því rjett að reyna aðrar leiðir til stjórnarmyndun- ar. Framsóknarflokkurinn lítur svo á, að eðlilegast og ákjósan- legast væri, að mynduð yrði nú þriggja flokka ríkisstjórn, en telur, að athugu máli, að engar líkur sjeu til að það megi verða. Fyrir því gerir Framsóknar- flokkurinn það að tillögu sinni, að Framsóknarfl. og Sjálfstæð- isfl. standi saman um ríkis- stjórn, er þannig sje mynduð, að núverandi forsætisráðherra, dr. Birni Þórðarsyni, sje falið for- sæti í henni, ef hann er fáan- legur til þess, en flokkarnir til- nefni sína tvo ráðherrana hvor til viðbótar. Samið sje jafnframt um öflun tekna til að fjárlög fái staðist og til að tryggja framkvæmd dýrtíðarráðstafana skv. því frumvarpi, sem fyrir liggur frá meiri hl. fjárhagsnefndar Nd. Enn fremur verði samið um framgang nokkurra meiri hátt- ar umbótamála, sem fyrir liggja til úrlausnar, t. d. jarðræktar- frumvarpanna, sem flutt eru nú á þinginu af þingmönnum beggja flokkanna, raforkumál- gpna og eflingu Fiskimálasjóðs. Uppástunga Framsóknarflokks ins um forsætisráðherrann er á því bygð, að hlutlaus maður í ]>eirri stöðu henti best því sam- starfi, sem nú virðist geta verið fyrir hendi milli þessara beggja flokka". Hjer var tekið af skarið. Framsókn neitar að ganga til samstarfs með Sjálfstæðis- flokknum um stjórnarmyndun og hefir ekki aðra tillögu að gera en þá, að stjórn Björns Þórðarsonar verði endurnýjuð, sömu tillöguna sem Sjálfstæð- isflokkurinn hafði tveim dög- um áður hafnað einróma. Af þessu er ljóst, að Sjálf- stæðismenn gerðu alt sem í þeirra valdi stóð til þess að ná samstarfi við Framsóknar- flokkinn, en slegið var jafn- harðan á framrjetta hönd þeirra. Stóra homban. t FRAMSÓKNARMENN" hafa á fundum úti um land að und- anförnu sagt rríargt úm hina nýju stjórnarmyndun og ekki hirt um að þræða sannleik- ann, fremur en oft endranær. Tvent er það, sem Fram- sóknarmenn leggja höfuð- áherslu á í áróðri sínum. Annað er samstarfið við sósíalista. Framsóknarmenn hafa í tvö ár reynl að ná sam- starfi við sósíalista og væru reiðubúnir til slíks samstarfs enn, ef þeir ættu þess nokkurn kosl. Framsóknarmönnum gremst það því mjög að Sjálf- stæðismenn skyldu ná sam- starfi við sósíalista, sem þeir sjálfir þráðu svo mjög að ná, en tókst ekki. En aðalbomba Framsóknar- manna í sveitunum er hin gamla og útslitna plata, að nú eigi að gera landið alt að einu kjördæmi. Ekkert orð er um þetta í málefnasamningnum, enda aldrei á það minst. Og til þess að fólkið í sveitunum viti, hve fjarri þetta er sannleikan- um, skal skýrt frá því, að í Alþýðuflokknum kom eitt sinn fram sú uppástunga, að setja ]ram þessa kröfu. En þá upp- lýstu meðmælendur samstarfs- ins, að ef Alþýðuflokkurinn setti fram slíka kröfu, væri það sama og að neita öllu samstarfi, því að Olafur Thors myndi aldrei ganga að henni. Fjell þá Alþýðuflokkurinn frá kröf- unni. Þannig er með þessa bombu Framsóknarmanna. Daniel Á. Danrelsson var á rík isráðsfundi 31. okt. skipaður hjeraðslæknir í Svarfdælahjer- aði frá 1. nóv. að telja. 308. dagur ársins. 6. vika vetrar. Árdegisflæði kl. 7.55. Síðdegisflæði kl. 20.17. Ljósatími ökutækja frá kl. 16.50 til kl. 7.30. Næturlæknir er í læknavarð- stofunni, sími 5030. Næturvörður er í Laugavegs Apóteki. Næturakstur annast Bs. ís- lands, sími 1540. Börn og unglingar, eða eldra fólk, óskast til að bera Morgun- blaðið til kaupenda víðsvegar um bæinn. Talið strax við af- greiðsluna, sími 1600. Messur á morgun: Dómkirkjan. Kl. 11 ferming, síra Friðrik Hallgrímsson. Kl. 17 messa, síra Bjarni Jónsson. Hallgrimsprestakall. í Austur- bæjarskólanum: kl. 11 barna- guðsþjónusta, síra Jakob Jóns- son, kl. 14 messa*. síra Jakob Jónsson. kl. 20.30 ungmennafje- lagsfundur í Verslunarmanna- heimilinu, Vonarstræti. Laugamesprestakall. I sam- komusal Laugarneskirkju: kl. 10 barnaguðsþjónusta, síra Garðar Svavarsson, kl. 14 messa, síra Garðar Svavarsson. Elliheimilið Grund: kl. 10.30 messa, síra Ragnar Benedikts- son. Fríkirkjan. Messað kl. 2, síra Árni Sigurðsson. Unglingafje- lagsfundur í kirkjunni á morg- un kl. 11. Framhaldssagan o. fl. Frjálslyndi söfnuðurinn. Mess að kl. 5 í Fríkirkjunni (Allra sálna messa), sr. Jón Auðuns. Reikningar til forseta eða stíl- aðir á skrifstofu forseta Islands verða framvegis greiddir á ' mánudögum og laugardögum frá klukkan 10—12, og ekki á öðr- um tímum. Forsetaritari. Jarðarför móður minnar og tengdamóður, MAGÐALENU HALLDÓRSSON, fer fram í Stykkishólmi, mánudaginn 6. nóv. n.k., og hefst með húskveðju að heimili hinnar látnu kl. 2 e. h. Fyrir hönd aðstandenda, Eufemia Georgsdóttir, Ragnar Halldórsson. Kærar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför föður okkar, EIRÍKS ÞORKELSSONAR. Fyrir hönd okkar systkinanna. Guðrún Eiríksdóttir. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð við frá- fall og jarðarför, SIGRÍÐAR ÞÓRÐARDÓTTUR. Fyrir okkar hönd, bróður og systra hinnar látnu. Vigdís Kristjánsdóttir, Árni Einarsson. Innilegustu hjartans þakkir vottum við þeim, nær og fjær, sem á allan hugsanlegan hátt sýndu hluttekningu og hjálpuðu okkur við andlát og jarð- arför elsku dóttur okkar og systur, SIGRÍÐAR LOVÍSU, er andaðist í Reykjavík 23. sept. Sjerstaklega þökk- um við heiðurshjónunum, frú Söru Þorsteinsdóttur og Sigurði Z. Guðmundssyni, Mímisveg 4, Reyl§javík, er voru henni sem bestu foreldrar meðan hún lifði hjá þeim og sýndu svo við andlát hennar og útför þá höfðingslund, sem vart mun finnast. Guð launi ykkur öllum fyrir okkur. Jónína Jóelsdóttir, Pálmi Karvelsson og systkini. Bolungarvík.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.