Morgunblaðið - 11.11.1944, Side 16
Laugardagur 11. nóv. 1944.
1G •
Séð aðsókn að
byggingasýn-
ingunni
BYGGINGAMÁLARÁÐ-
STEFNAN hjelt áfram í gær,
og fluttu þar erindi læknarnir
Jóhann Sæmundsson og Júlí-
us _Sigurjónsson, en síðar um
daginnn voru umræður. I gær-
kvöld flutti svo Axel Sveins-
son verkfræðingur erindi um
hitun húsa, og verða umræður
í kvöld.
Aðsókn að byggingasýning-
unni í Ilótel Ileklu var- mjög
góð í fyrradag, sóttu hana þá
hátt á fimta hundrað manns.
t dag munu fulltrúar á
byggingamál aþinginu skoða
ýmsar stórhyggingai' hjer í
bænum. — Þá flytja þeir Iíall-
dór Stefánsson forstj. og fleiri
erindi um brunatryggingar.
Skcmtifundur
Skaftfeilinga-
ijciagsins
SKAFTFELLINGAFJE-
LAGIÐ hjelt skemtifund að
Hótel Borg á fimtudagskvöld.
Var þar fjölmenni mikið, eða
ium 300 manns.
Hákon Bjarnason skógræktar
stjóri sýndi hina yndislegu skóg
armynd, Þú ert móður vor kær
og skýrði myndina. Jón Sigurðs
son frá Kaldaðarnesi las upp
nokkra kafla úr Ævisögu sjera
Jóns Steingrímssonar, við mik-
inn fögnuð áheyrenda. Jóhann
Hallgrímsson söng nokkur lög
með undirleik Jóns Isleifssonar.
Meðal gesta á fundinum var sr.
Jón Þorvaxðsson, prófastur í
Vík; hann ávarpaði fundinn og
flutti kveðju frá Skaftfelling-
um í hjeraði. Helgi Bergs vara-
formaður Skaftfellingafjelags-
ins þakkaði kveðjuna og árnaði
Skaftfellingum í hjeraði heilla
og blessunar. Að lokum var
stiginn dans til kl. IV2. — Fór
skemtun þessi prýðilega fram.
Fjársöfnunin til
Daca: 259 þús.
FJÁRSÖFNUNIN til Dana
nú komin upp í kr. 259.620.
50.
Af þessari fjarupphæð hefir
f>egar verið varið á einn eða
aunan hátt til danskra flótta-
1 mnna í Svíþjóð, krónur
157.292.48. — Þá hefir verið
varið til vörukaupa rúmlega
20 þus. krónum. Fyrir þessa
peninga hafa aðaJlega verið
keyptar prjónavörur af bestu
gerð og hefir íslensk ull sjeð
um þessi kaup, en þeim mun
verða haldið áfram.
Flest norsk leikhús
lokuð.
Frá Noregi berast fregnir
um, að flest norsk leikhús muni
verða lokuð í vetur sökum
skorts á eldiviði.
Nowodny fallinn.
London í gærkveldi: Þjóð-
verjar tilkynntu í dag, að sá
flugmaður þeirra, sem frægast-
ur var ’talinn, Nowodny, hafi
l ýlega fallið 1 loftorustu.
I fylkingarbrjósti
Best af öllum langfleygum orustuflugvjelum bandamanna er Mustangvelin ameríska
álitin, enda er hún altaf höfð til þess að fylgja sprengjuflugvjelum til Þýskalands. —
Ein af þessum flugvjelum sje.t hjer að ofan. Þær eru bæði hraðfleygar og vel vopnaðar.
Nýbyggingarráð undir-
býr nýsköpun atvinnu-
Jífsins
1
J
FYRSTA FRUMVARP hinnar nýju ríkisstjórnar er komið
fram á Alþingi. Er það um undirbúning á hinum miklu fram-
kvæmdum, sem fyrrihugaðar eru til eflingar atvinnulífi þjóð-
arinnar.
Frumvarpið er svohljóðandi:
1. gr. Af inneignum Lands-
banka Islands erlendis skal
jafngildi að minsta kosti 300
miljóna ísl. króna lagt á sjer-
stakan reikning og skal ein-
göngu verja fjárhæð þeirri til
kaupa á framleiðslutækjum og
til annarar nýsköpunar í at-
vinnulífi þjóðarinnar, samkv.
nánari ákvörðun nýþyggingar-
ráðs.
2. gr. Ríkisstjórnin skipar
fjögurra manna nefnd, er nefn
ist nýþyggingarráð.
Hlutverk þess er að búa til
heildaráætlun, fyrst um sinn
miðaða við næstu fimm ár, um
nýsköpun íslensks þjóðarbú-
skapar. Skal þar áætlað, hver
atvinnutæki, samgöngutæki,
byggingar og annað þurfi til
sjávar og sveita, til þess að all-
ir Islendingar geti haft vinnu
við sem arðbærastan atvinnu-
rekstur svo og hvernig best
verði fyrir komið innflutningi
fáanlegra tækja og efnis á
næstu árum með það fyrir aug-
um að hagnýta sem best vinnu
afl þjóðarinnar og auðlindir
landsins.
Þá skal nýbyggingarráð gera
áætlanir um, hvar tækin skuli
staðsett og tillögur um bygging
ar og aðrár framkvæmdir í því
sambandL
Nýbyggingarráð hlutast til
um að shk tæki verði keypt ut-
an lands eða gerð innan lands
svo fljótt sem auðið er og hefir
milligöngu fyrir þá aðila, sem
þau vilja kaupa og þess óska.
Innflutningsleyfi og gjaldeyr
isleyfi til framangreindra ráð-
stafana á fje samkvæmt 1. gr.,
skulu veitt samkvæmt tillögum
nýbyggingarráðs.
Kostnaður við störf nýbygg
ingarráðs greiðist úr ríkissjóði.
3. gr. Ríkisstjórnin ákveður
með reglugerð nánar um starf
nýbyggingarráðs. Nýbyggingar
ráð hefir rjett til þess að ráða
sjerfræðinga og annað starfs-
fólk í þjónustu sína. Fela má
byggingarráði starf þeirra milli
þinganefnda, sem nú eru starf-
andi í skipulagsmálum atvinnu !
rekstrar eftir stríð, sjávarút-
vegsmálum og í raforkumálum,
ef ríkisstjórnin álítur það hent-
ugra, svo að starfið vinnist
fljótar og betur, og skulu þá
nefndir þessar lagðar niður
jafnóðum og nýbyggingarráð ^
tekur við störfum þeirra.
Gjaldskrárbreyfing-
ar Rafveilunnar
staðfeslar
Á FUNBI bæjarráðs Reykja-
víkur 10. þ. m. var lagt fram,
þrjef frá atvinnu- og sam-
göngumálaráðuneytinu, þar
sem tilkynt var, að ráðuneyt-
ið muni staðfesta hina nýju
gjaldskrá Rafmagnsveitunnar,
sem bæjarstjórn samþykti í
fyrra mánuði, með þeim breyt
i ingum:
|
aS verð samkv. heimilis-
taxta B 2 verði 14 aur-
ar hver kwstund, í
stað 16 aurar, og
að herbergjagjald samkv.
sama gjaldskrárlið
verði ákveðið 20 kt. á
ári, í stað 24 kr.
'Bæjarráð vísaði málinu til
bæjarstjórnar með tillögu um,
að þessar breytingar verði
samþyktar.
Níu hermenn dæmdir.
London í grækveldi: I dag
voru níu Bandaríkjahermenn,
svertingjar, dæmdir af herrjetti
í Bretlandi, allir fil þess að
verða reknir úr hernum með
skömm og vera í þrælkunar-
vinnu æfilangt. Höfðu þeir
framið ýmsa glæpi, meðal ann-
ars myrt tvo ameríska hermenn
og konu veitingamanns eins.
— Reuter.
Knaifspyrnufjelags
Reyfcjavíkur
KNATTSPYRNUFJELAG
Reykjavíkur hjelt aðalfund
sinn 26. okt. s. 1.
Formaður fjelagsins minntist
í fundarbyrjun með nokkrum
orðum tveggja látinna fjelaga,
þeirra: Antons B. Björnssonar,
íþróttakennara og Árna Einars
sonar versl.m. — Fundarstjóri
var kosinn Sigurjón Pjetursson
framkv.stj. — Stjórn fjelagsins
gaf mjög ítarlega skýrslu um
hið fjölþætta og mikla íþrótta-
starf fjelagsins á liðnu starfs-
ári. Árið hafði verið eitt af
viðburðaríkustu og sigursæl-
ustu árum í sögu fjelagsins. —
Stjórn fjelagsins var þakkað
framúrskarandi, starf með
miklu lófaklappi.
Gjaldkeri fjelagsins gaf
skýrslu um fjárhag fjelagsins,
sem var góður, þrátt fyrir að
bein útgjöld til íþróttastarfsem
innar námu tæpar 40 þús. kr.
Formaður fjelagsins, Erlend-
ur Pjetursson, var endurkosinn
í einu hljóði Hefir E. O. P. því
verið kosinn formaður í tíu
skipti. Meðstjórnendur voru
einnig endurkosnir, þeir: Bald
ur Jónsson, Haraldur Matthías
son, Olafur Þ. Guðmundsson og
Þorsteinn Einarsson. Fyrir eru
í stjórninni: Ásgeir Þórarins-
son, Brynja Guðmundsdóttir,
Einar Sæmundsson og Harald-
ur Guðmundsson.
Framkv.stjórn K.R.-hússins
var endurkosinn í einu hljóði:
Kristján L. Gestsson. Endur-
skoðendur: Eyjólfur ' L.eós og
Sigurjón Pjetursson.
Á fundinum var kosinn 5
manna laganefnd, sem á að at-
huga lög fjelagsins
Fundurinn var mjög fjöl-
mennur og hjá fundarmönnum
kom í Ijós mikill áhugi í að efla
K. R. á allan hátt í framtíðinni.
íþróttastarfsemi fjelagsins er
nú byrjuð af fullum krafti. —
Verður hún með líku sniði og
í fyrra, en takmarkast nú
meira vegna vöntunar á meira
húsnæði.
Finnar taka stórlán.
London: Stokkhólmsfregnir
herma, að Svíar hafi lánað
Finnum 9 miljónir sterlings-
punda, og verður fjenu varið
til endurreisnar í Finnlandi,
bæði á atvinnuvegum og bygg
ingum.’
Nýr skógræktar-
sjoður
BJÖRN JÓHANNESSON
bæjarfulltrúi í Hafnarfirði hef
ir afhent Skógræktarfjelagi ís-
lands 3.000,00 króna sjóð, sem
á að stuðla að því að hafnar
verði skógræktartilraunir í
Torfastaða-hreppum í Vestur-
Húnavatnssýslu.
Sjóðurinn er gefinn til minn
ingar um foreldra Björns, þau
hjónin Elinborgu E. Jóhannes-
dóttur og Jóhannes Sveinsson,
sem bjuggu um skeið í Litla-
Hvammi í Miðfirði og bundu
tryggð við þá sveit.
Stjórn Skógræktarfjelags ís-
lands hefir tekið að sjer stjórn
sjóðsins og trygt hefir verið að
framkvæmdir geti hafist á
næsta vori á dálitlu svæði, án
þess að skerða þurfi höfuðstól
sjóðsins.
Björn Jóhannesson á lof skil
ið fyrir þessa gjöf sína, og hug
mynd. Væntanlega verður hún
til þess að flýta fyrir skógrækt
artilraunum 1 Miðfirði og ýta
undir trjárækt þar um slóðir.
Húnavatnssýslurnar hafa
Drðið hart úti hvað eýðingu
skóga snertir og Húnvetningar
hafa orðið seinir til þess að
hefja skógrækt af skiljanlegum
ástæðum. Samt hafa verið gerð
ar sáningartilraunir með birki-
fræ á þrem stöðum í Vatnsdal
í austursýslunni með ágætum
árangri á tveim þeirra. í Langa
, dal hafa og verið gerðar nokkr
ar trjáræktunartilraunir með
mjög sæmilegum árangri. í
vestursýslunni eru trjágarðar
á Lækjamóti, Barkarstöðum og
fáeinum bæjum enn. Af þroska
þessara fáu trjáa, sem þar
vaxa, má draga þá ályktun að
víða væri auðvelt að fá björk
til að vaxa og ná góðum þroska
á skjólsælum stöðum.
Væri vel farið, ef að þessi
gjöf Björns gæti orðið til þess
að fleiri Húnvetningar sýndu
ást sína til átthaganna í orði
og verki með því að leggja skóg
ræktarmálunum liðsinni sitt.
Á því sviðj er mikið verk að
vinna í alveg skóglausu hjer-
aði, og þá verður manni á að
minnast orða skáldsins „hvað
má höndin ein og ein“, nema
að allir standi saman.
Stjórn Skógræktarfjelagsins
væntir þess að sem flestir Mið-
firðingar, leggi fram liðsinni
sitt til þess að framkvæmdir
geti orðið sem mestar. Tekur
hún á móti hverskonar gjöfum
og áheitum í sjóðinn.
Þakkir frá rússnesku
sendisveifinni
SENDIIIERRA Rússa og frú
Krassilnikow þakka innilega
öllum einstökum mörjnum og
fjelögum, er sendu kveðjur og
árnaðaróskir í tilefni af 27 ára
afmæli Sovjetríkjanna.
Falsaðar snyrtivörur.
London: Sakamálalögreglan
hefir komist að því, að snyrti-
vörur frægra framleiðslufyrir-
tækja hafa verið falsaðar í stór
unr stíl og reynst gersamlega
ónýtar. Leitar nú lögreglan
yörufalsara þessara, sem þegar
hafa grætt offjár, að því talið
er. ,,