Morgunblaðið - 09.12.1944, Blaðsíða 1
31. árgangur.
252. tbl. — Laugardagur 9. desember 1944.
Isafoldarprentsmiðja h.f
HARÐIR BARDAGAR STAIMDA EIMIM í AÞEIMU
„VOPIMAÐUR SIÍRÍLL ER EKKI LVÐRÆDP6
Borgin orðin matvælalaus
✓ ——————
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
HARÐIR bardagar standa enn yfir í Aþenuborg. Bresk-
ir hermenn hafa náð Akropolis hæðinni á sitt vald, en
barist er við rætur hæðarinnar og í miðri borginni. —
Frjettaritari Reuters símar, að til liarðra átaka hafi
komið í dag skamt frá sendiherrabústaðnum breska,
en tekist hafi að lokum að hrekja skæruliða brott
úr hverfinu, þar sem sendiherrabústaðurinn er.
Hungursneyð yfirvofandi.
I Aþenuborg hefir ekkert
verið unnið undanfarna daga
og hefir ekki verið hægt að
koma matvælum til borgarinn-
ar. Þar voru ekki neinar mat-
vælabirgðir fyrir og þúsundir
manna hafa ekkert að borða.
Haldi bardagar á fram lengi
énn, má búast við hungursneyð
í borginni.
Alsheriarverkfallið.
Alsherjarverkfall stendur
enn yfir í nokkrum grískum
bæjum og borgum, þar á með-
al í Pyræus og Saloniki. Verk-
fallið hefir haft það í för með
sjer, að ekki hefir verið hægt
að skipa upp matvælum í
Saloniki.
Uppreisnarmenn á leið til
Aþenu.
Fregnir hafa borist til Aþenu
um sveitir Elas-manna, eða
skæruliða, sem eru á leið til
Aþenuborgar. Eru margar þess
ar sveitir vel vopnaðar. Hafa
auk vjelbyssna, fallbyssur með
75 mm. hlaupvídd. Einn grísk
ur hershöfðingi, sem berst með
Elas-mönnum er sagður vera á
leið til höfuðborgarinnar með
2000 manna lið.
Halifax lávarður ræðir við
Stettinius.
Halifax lávarður, ambassador
Breta í Washington átti langt
viðtal við Stettinius utanríkis-
ráðherra í dag. Að viðræðunum
loknum sagði Halifax, að Bret-
ar og Bandaríkjamenn væru
sömu skoðunar í mörgum aðal-
atriðum hvað snerti stefnu þess
a.ra þjóða í Evrópumálunum.
Fjórburafæðing
í Englandi
Manchester í gærkvpldi:
í W arrington-sjúkrahiisi
fæddust í dag fjorburar, alt
stúlkur. Móðirinn heitir Ethel)
Rrenda Green og er 23 áraí
göinul. Faðirinn er strætis-
vagnsstjóri. — Reuter.
Rússar
að umkringja
Budapest
London í gærkveldi:
Rússum hefir enn orðið
mikið ágengt í sókninni til
Budapest. Segja Þjóðverjar,
að Rússar sjeu að umkringja
borgina.
Rússar hafa sótt frarn beggja
vegna Balotonyatns. Segjast
Rússar hafa tekið um 70 staði
við vatnið í dag.
Vín víggirt.
Fregnir frá Svisslandi í dag
herma, að Þjóðverjar hafi
sent 3000 erlenda verkamennj
ásarnt þýskum konum og ungl
ingum til að vinna að því að
víggirða Vínarborg.
-segir Churchill
Aftökunni freslað
vegna lasleika
njósnarans
London í gærkveldi.
Svissneska útvarpið skýrði
frá því í kvöld, að tveir af
þremur njósnurum, sem dæmd,
ir höfðu verið til dauða og
sem svissneska þjóðarsamkom'
an hafði neitað um náðum,
hafi veri'ð teknir af lífi í dag.
Frestað var aftöku þriðja;
njósnarahs, Pluesch að nafni,
vegna þess, að hann var las-
inn. Reuter.
Auslurvígslöðvarnar
Kortið hjer að ofan sýnir hernaðaraðstöðuna á Austurvíg-
stöðvunum eins og hún er nú, nema hvað Rússar eru nú komnir
lengra inn í Suðvestur-Ungverjaland en hjer er sýnt.
Harðir bardagar
í Siegfriedlínunni
London í gær. Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
ENN eru bardagar harðastir á Vesturvígstöðvunum í Saar-
dalnum. Hafa orðið' snarpir bardagar í Sigfriedlínuvirkjunum
á þessum slóðum í dag. Hersveitir Pattons hafa sótt fram og
eru nú komnar norður fyrir Dillingen, allstóra iðnaðarborg í
Saar. Sækja Bandaríkjamenn fram milli Sarlouis og Saar-
brucken, sem er stærsta borgin í Saarhjeraði. Eru Bandaríkja-
menn eina 5 km. frá þeirri borg.
Ráðist á rakettustöðvar.
London: Breskar Spitfii’e-
flugvjelar ráðast nú því nær
daglega á stöðvar þær í Hol-
landi, sem Þjóðverjar skjóta
rakettusprengjum sínum frá.
Hafa flugmennirnir meðal ann
ars varpað sprengjum á vagna,
sem rakettusprengjur eru flutt
ar á.
Skriðdrekagagnáhlaup.
Þjóðverjar hafa gert nokkur
gagnáhlaup í Saarhjeraði í
dag og teflt fram skriðdrekum,
en ekki hafa þau gágnáhlaup
borið neinn árangur. Syðst á
vesturvígstöðvunum sækja
Frakkar og Bandaríkjamenn
enn fram til Colmar og virðist,
sem Þjóðverjar sjeu að yfir-
gefa þá borg.
Á Dusseidorf og Köln víg- ^
1 stöðvunum hafa ekki orðið nein
ar verulegar breytingar í dag.
I
Miklar loftárásir.
i Miklar loftárásir eru gerðar
daglega á samgöngukerfi Þjóð
verja og í dag fóru flugvjelar
bandamanna í um 600 árásar-
ferðir á samgöngumiðstöðvar
|að baki víglínu Þjóðverja, alla
leið norður til Hanover. Ráðist
var á Duisburg í nótt
Breska stjórnin
fjekk traustyfir-
lýsingu mú
279:30 atkv.
London í gærkveldi:
Einkaskeyti til Morgnnblaðsins
frá Reuter.
HEITAR UMRÆÐUR urðu
í neðri deild breska þingsins
í dag um Grikklandsmálin.
Nokkrir þingmenn höfðu
borið fram tillögu þess efn-
is, að breskir hermenn yrðu
látnir hætta að berjast gegn
grískum skæruliðum. Chur-
chill varði stefnu stjórnar-
innar og kvaðst gera það að
fráfararatriði fyrir sig, ef
þingið samþykti tillögu
þessa. Stjórn Churchills
fjekk traustsyfirlýsingu
þingsins með 279 atkvæðum
gegn 30.
„Svika-lýðræðið“.
í ræðu sinni talaði Churchill
um ástandið í Grikklandi. Belg
íu og Italíu, þar sem skæruliðar
hafa vaðið uppi og ætlað að
hrifsa til sín völdin með vopna
valdi. ,,Andstæðingar stjórnar-
innar í þessu máli“, sagði Churc
hill, „segja. að breskum her-
mönnum hafi verið teflt fram
gegn vinum lýðræðisins. Það er
rjett að skæruliðar börðust
margir hraustlega gegn Þjóð-
verjum, en það kom líka fyrir
að skæruliðar notuðu vopnin
til þess að vega pólitíska and-
stæðinga sína.
„Það virðast vera skiptar
skoðanir um, hverjir sjeu vinir
lýðræðisins og hvað sje lýðræði.
Jeg lít svo á að lýðræði sje í
því fólgið, að hinn óbreytti mað
ur í þjóðfjelaginu, sem hefir
barist fyrir föðurland sitt fái
óáreittur og óttalaust, að ganga
að kjörborðinu og velja sjer
sína eigin ríkisstjórn. Jeg virði
og vinn fyrir þesskonar lýðræði.
,, Jeg vinn hinsvegar ekki fyr-
ir svika-lýðræðið, þá menn,
sem þykjast vera lýðræðissinn-
ar vegna þess að þeir teljast í
flokka, en ætla að hrifsa til sín
völdin með vopnavaldi.
„Það er fasisnii“.
„Jeg kalla ekki múgæsingu
og skríl-lög lýðræði. Þeir sem
Framh. á 2. síðu.