Morgunblaðið - 12.09.1945, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
IWEiðvikudagur. 12. sept. 1945
Forstjórar og stórkaupmenn
Iljer er vinnukraítur sem ykkur vantar. Danskur
maður, sem hefir mikla reynslu hvað viðvíkur verslun
og góða kunnáttu í ensku og þýsku, óskar eftir atvinnu
með góðum franitíðarmöguleikum.
Sendist afgr. blaðsins fyrir laugardag merkt:
„15—444“.
Herbergi — Sími
Gott herbergi á hitaveitusvæðinu með innbygðum
skáp, óskast til leigu 1. eða 15. okt. Sími fæst til af-
nota. Tilboð merkt „Skrifstofustjóri“ sendist blaðinu.
Sendisveinn
óskast.
^JJeifJverif. Cjarfai Cfíófaionar
NÝ
Stokkakeðja lVz“
m-Lloyd’s vottorði 1 liður fyrirliggjandi.
\Jerzítm, CJ. CJffincjóen Lf.
I
Reknetaslöngur
23 ónotaðar reknetaslöngur, kol-
tjargaðar (fyrir Faxaflóaveiði)
til sölu. Upplýsingar hjá
(JJúfUtii JJCaníefiiijni, CjrincJamb
ENSKIR ARINAR
(KAMÍNUR) ,
nýkomnir.
^yJrinliö
foniáon
yorn Jón
Umboðs og heildverslun
Laugaveg 39. — Sími 6003.
Ý
Stúlka — Sjerherbergi |
•:•
Góð stúlka óskast í heils- eða hálfsdags-
vist. Kaup eftir samkctóulagi.
Sími 5852 kl, 3—6. ' , |
1
í
♦:♦
ý
5*
2
2
Seplembermótið
Sókst yfirleitt vel
SÍÐASTA frjálsíþróttamót
ársins, Septembermótið svo-
nefnda, var háð s. 1. laugardag.
Þrátt fyrir illar aðstæður tókst
mótið yfirleitt sæmilega. Alls
var kept í 8 íþróttagreinum, og
urðu úrslit sem hjer segir:
í 80 m. hlaupi kvenna varð
fyrst Hallbera Leósdóttir frá
íþróttaráði Akraness á 11,9 sek.
Onnur varð Maddí Guðmunds-
dóttir úr Ármanni, á 12,3 sek.
íslandsmetið er 11,3 sek.
í 200 m. hlaupi varð fyrstur
Finnbjörn Þorvaldsson, ÍR.
Hljóp hann vegalengdina á 23,9
sek. Annar Brynjólfur Ingólfs-
son, KR. Tími hans: 24,0 sek.
I spjótkasti varð Jóel Sig-
urðsson, ÍR., hlutskarpastur.
Kastaði 52.73 m. Annar varð
Jón Hjartar, KR. Kastaði 50,14
metra.
Langstökkið vann Þorkell Jó-
hannesson, FH. Stökk 6,39 m.
Næstur Magnús Baldvinsson,
ÍR. Stökk 6,29 m.
I 800 m. hlaupi varð Brynj-
ólfur Ingólfsson hlutskarpastur.
Rann hann skeiðið á 2.03,3 mín.
Annar: Hörður Hafliðason, Á.,
á 2.03,5 mín. Kjartan, methaf-
inn í hlaupinu, var ekki með.
í hástökkinu sigraði Jón Ól-
afsson, KR. Stökk 1,75 metra.
Næstur varð Jón Hjartar úr
sama fjelagi. Stökk hann 1,70
metra.
Kringlukastið vann Bragi
Friðriksson, KR. Kastaði hann
38,88 m. Annar varð Ólafur
Guðmundsson, ÍR. Hann kast-
aði 37.37 m.
KR.-sveitin vann 4x100 m.
boðhlaup á 45,9 sek. Næst varð
sveit ÍR. á 46,0 sek. — Um mót-
ið sá ÍR. og gerði það með mestu
prýði.
---------------
r
Armenningar keptu
sem gestir í Hafnar-
iirði á sunnudag
Á STJNNUDAGINN var
keptu frjálsíþróttamenn Ár-
manns sem gestir á íþróttamóti,
sem Fimleikafjel. Hafnarfjarð-
ar stóð fyrir og háð var að
Hörðuvöllum við Háfnarfjörð.
Veður var óhagstætt, stormur
og rigning. Helstu úrslit urðu
sem hjer segir:
í 60 m. hlaupi varð hlutskarp
astur Sævar Magnússon, FK., á
7,4 sek. Annar Árni Kjartans-
son, Á., á 7,5 sek.
í Kringlukasti sigraði Krist-
inn Helgason, Á. Kastaði 32,75
m. Annar varð Sigurður Krist-
jánsson, FH. Kastaði 32,58 m.
í langstökki vann Þorkell Jó-
hannesson, FH., stökk 6,50 m.
Næstur varð Árni Kjartansson
Á. Stökk 6,19 m.
Halldór Sigurgeirssoh, Á.,
vann spjótkastið. Kastaði hann
41,46 m. Næstur varð Þórður
Guðjónsson, FH. Kastaði hann
40,85 m.
í 100 m. hlaupi sigraði Sævar
Magnússon úr FH. Hljóp skeið-
ið á 11,6 sek. Annar: Árni
Kjartansson, Á. Tími hans: 12,0
sek.
I hástökki vann Þorkell Jó-
honnesson, FH. Stökk 1,70 m.
h !ar Árni GunnlaugssOn,
Fíi. > ökk 1,65 m. •— Oliver j
Steir ' íinn kunni íþróttakappi i
FH var veikur - . • ; | , ;!
Hvíldarvika á Laugarvatni
DAGANA 27. ág,—3. sept.
dvöldu 60—70 konur að Laug-
arvatni á vegum Mæðrastyrks-
nefndar. Forstöðukonur þessar-
ar ,,hvíldarviku“ voru frú Jón-
ína Guðmundsdóttir, frú Guð-
rún Pjetursdóttir og frú Þur-
íður Friðriksdóttir. „Ein úr
hópnum“ hefir sent blaðinu eft-
irfarandi grein um hina
ánægjulegu daga þar eystra.
★
„Undir september sól,
skein mjer sumarið fyrst“.
ENNÞÁ hefir Mæðrastyrks-
nefndin boðið fjölmennum
hópi kvenna til hvíldarviku að
Laugarvatni.
Starfssvið þessarar stofnun-
ar er löngu orðið rómað og
viðurkent sem eitt af stærstu
átaka-sporum þjóðfjelaginu til
heiðurs og sóma.
Hver er sú kona, sem ekki
finnur sig knúða til að þakka
formanni þessarar nefndar og
öllum þeim konum, sem
standa í brjóstfylkingu fyrir
bættum kjörum og betri dög-
um, því ennþá sitja margir í
myrkrinu. Og hver getur skil-
ið hvað ein vika á Laugarvatni
getur orkað. Þar er alt svo frið
sælt og fagurt. Lokkandi, seið-
andi ljósálfar stilla sínar streng
mjúku gullhörpur til að gleðja
hvert einasta hjarta. Þess
vegna var það þessi staður,
sem Mæðrastyrksnefndin valdi
til hvíldar kvenna.
Þegar jeg er nú aftur komin
heim til mín og skríð inn í
skjaldbökuskel hversdagsleik-
ans, dylst mjer þó ekki, að jeg
er alt í einu orðin rík. Jeg hefi
eignast nýjan heim, sem eng-
inn getur bannað mjer að skygn
ast inn í. Þessi heimur er hvíld-
arvikan á Laugarvatni, og „for
sjón“ hans voru fararstjórar
okkar. Þessar ágætu konur,
sem alla vildu hugga og gleðja.
Jeg held, að sá eiginleiki sje
okkur konum í blóð borinn, að
vera ekki vanþakklátar, en
vilja í litlum stíl þakka fyrir
okkur.
En enginn himinn er svo
heiður, að hann eigi ekkert ský.
„Forsjón* þessa litla Laugar-
vatnsheims bannaði okkur, eða
rjettara sagt, bað okkur að láta
hvorki í ræðu nje riti birtast
þakklæti þeim til handa, en
andinn á sínar óskir og vonir,
og hugsanir okkar eiga þá
vængi, sem enginn getur stýft.
Jeg veit, að samstiltir strengir
hjartans sameinast í hljóðlátri
bæn og bera til ykkar það besta,
sem við eigum, geislabrot, sem
gengur aldrei til viðar, og eitt
er víst, að öll fórnarstörf fá sín
laun.
Leiktjöld liðinnar viku draga
upp margar myndir. Þar er um
auðugan garð að gresja. Jeg
kyntist því miður fæstum kon-
unum, en mjer fanst jeg vera
svo nálæg þeim í anda og á-
föngum. Eitt hlýtt handtak get-
ur yljað manni inn að hjarta-
rótum. Eitt kærleiksbros getur
bygt upp hrundar borgir. Svip-
leiftur sálarinnar getur vakið
mann til lífsins og gert mann
að nýjum og betri manni. Sterk
Ur persónuleiki getur kveikt bál
úr útbrunninni ösku og kent
manni að líta í kring um sig
með opnum augum, og sjá dýrð-
leg verðmæti þessa lífsþáttar,
sem við kvörtum svo oft undan.
Kvöldvökurnar okkar eiga
sinn lit og ljóma, þótt þær hafi
ekki verið stórbrotnar. Farar-
stjórarnir okkar drógu sjálfa
sig í hlje, og ljetu öll sín ljós
skína til að leysa okkur úr læð-
ingi, og lokka fram það litla,
sem við földum í fórum okkar.
Þær komu líka laglega ár sinni
fyrir borð, og slógu með snild
okkur af laginu, því að þeir,
sem kasta teningum hæfileik-
anna af mannúð og mildi, fá
altaf sigur. Mikið urðum við
hissa, þegar fjötrar andans
fjellu af okkur eins og hamur
af umskifting. Við vorum alt í
einu farnar að vaða elginn, og
öll feimni var farin, og við urð-
um ljettar og kátar sem ungl-
ingar á sínum eigin æskustöðv-
um, Frelsið logaði alt í kring-
um okkur, alt loftið var fult af
töfrum, það var sem við allar
værum ein sál og eitt hjarta,
sem eameinuðu þá einingu, sem
okkur allar hafði dreymt um.
Jeg var svo lánsöm að kynn-
ast mörgum leyndardómum,
sem jeg hafði ekki komið auga
á fyrr. Það er svo margt hægt
að lesa út úr leiktjöldum lífs-
ins, ekki síst þegar maður er
undir áhrifavaldi kvöldvökunn
ar á Laugarvatni.
Bragi sjálfur birtist þar eitt
kvöldið. Hann náði þar í eina
af „forsjóninni“, hún er sjálf-
sagt gömul og ný vinkona hans.
Hann slepti henni ekki fyr en
hún hafði offrað okkur mörg-
um hrynjandi hljómum úr
bragaveldi Bergmanns. Einhver
góður andi ýtti annari ,,forsjón“
fram á sjónarsviðið. Hvað hald
ið þið að hún hafi gert? Hjelt
yfir okkur þessa líka litlu lof-
ræðu og þakkaði okkur margt
og margt. Þá fanst okkur nú
skörin vera farin að færast upp
á bekkinn, og sólargangurinn
búinn að skipta um átt. Þriðja
„forsjónin“ var þögnin sjálf,
hún hefir ef til vill sagt mest.
Og jeg minnist einnig margra
glymjandi hlátra og gullvægra
,,brandara“,.dvergalista og gít-
arhljóma. Eitt kvöldið flaug til
okkar inn um glug'gann hvítur
svanur, hann hafði fagra rödd,
en ekkert skildi jeg af því sem
hann söng.
Jeg enda svo þessi þankabrot
með lítilli vísu, sem skrapp af
vörum einnar boðskonunnar,
þegar hún var að re-nna niður
síðustu lögginni úr kaffibollan-
um sínum:
Bráðum hjeðan burt jeg fer
bylgjur lífsins kalla,
alt það gull er gafst mjer hjer,
geymi jeg daga alla.
Heill þjer Mæðrastyrksnefnd.
Fylgi guð fararstjórunum okk-
ar, og ykkur öllum.
Ein úr hópnum.
Vatnið gaus inn ||
drykkjustofuna.
LONDON: — í gærkveldí
sprakk meginvatnsæð í götu
einni hjer í borg, og hittist svo
á, að vatnið gaus inn í drykkju
stofu eirtá. Varð þar uppi fót-
ur og l'it og fíýði hver sem bet-
ur gat. Karlmennirnir báru kon
ur sínar. Allir urðu rennblaut-