Morgunblaðið - 12.09.1945, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 12.09.1945, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLa«IÐ Miðvikudagur. 12. sept. Í945 — Æfiotýrið Framh. af bls. 6. beygja höfuð í auðmýkt og iotningu fyrir stefnum þeim og skoðunum, sem helst voru í tísku hverju sinni, þó að slíkt hefði eflaust getað minnkað tor leiðið. „Tíska og stefnur komu mjer ekki meira við en vindur- inn, sem blæs úr einni átt í dag og annari á morgun, og að breyta um stefnu í list minni í því skyni að þóknast öðrum og reyna að skapa verk í viður- kenndum stíl og anda var mjer jafnþvert um geð sem að brjót- ast inn í annars manns hús og stela þar. Jeg varð að vera eins og jeg var og engan veg öðru vísi, þótt leiðir til fjár og frama virtust mjer gersamlega lokað- ar og jeg eygði engar vonar- glætu í framtíðinni". Þessi orð eru vafalaust af fullum heilindum mælt, enda hefur listamaðurinn veitt þeim gildi með baráttu sinni og ævi- starfi. Fyrir bragðið hefur hann verið kallaður einrænn og sjer- lundaður. En vegna þess að Einar Jónsson gaf sig engum „isma“ á hönd, og skreytti sig aldrei með lánuðum fjöðr- um, hvort sem hann iðkaði list sína í Kaupmannahöfn, Róm, Berlín, New York eða Reykja- vík, hefur hann orðið slíkur, sem hann er: Svipmikill íslensk ur listamaður. Bækur Einars Jónssonar eru gefnar út með mikilli prýði, rfema hvað það lýtir þær nokk- uð, að fyrirsagnir eru prentað- ar á blaðrönd. Myndir af mörg- um listaverkum Einars eru í bókunum. Gils Guðmundsson. - Alþj. veltv. Framhald af bls. 8 að minsta kosti á pappírnum veit ir 16 miljónum Þjóðverja meiri ábyrgð um stjórn sína, en á nokkru öðru hernámssvæðinu. í hinu stjórnmálalega hernámi Þýskalands eru Bretar og Banda ríkjamenn enn talsvert margar mílur á eftir Rússum. (Time 10. sept.). Þjóðverjar fara heim LONDON: Um 300 Þjóðverj ar, sem kyrrsettir hafa verið í írlandi, eru nú lagðir af stað þaðan heimleiðis til Þýskalands aftur. Sreski njósnarhm, sem slapp frá Buchenwald London i gærkvöldi. (Reuter).. BRESKUR njósnari. sem handtekinn var í Þýskalandi áður en ófriðnum iauk og var fluttur í Buchenwald fanga- húðirnar bjargaði iíí'i sínu með því að bjóðast til að ger- ast „tilraunadýr'‘. Njósnarinn gat fengið tvo lækna til að skifta á sjer og líki af frönsk- um fanga og var lík Frakkans brent undir nafni hins breska n.jósara. Eftir nokkrar flótta- tilraunir tókst njósaranum að strjúka ásamt 10 öðrum föng- itm og komust þeir til víg- stöðva Bandaríkjamanna. I síðasta brjefi sínu til vin- ar síns, sem njósnarinn skrif- aði eftir að hann hafði verið dæmdur til dauða, segir njósn- arinn, að það verði ábyggi- lega annað stríð eftir 15 ár, ef Bretar sýni Þjóðverjum nokk- urra miskun. Er n.jósnarinn hefir í brjefi sínu lýst því hvernig hann var handtekinn, píndur og fluttur til Buchen- waldfangabúðanna, segir-hann í brjefi sínu: „Trúið aldrei einu orði um heiðarleik Þjóð- verja. Þeir eru verstu þjófar, lygarar, bullur og mannleysur, sem jeg hefi nokkru sinni kynst. Þeir hafa ánægju af að! kvelja fólk og hæla sjer af því. Þegar við komum til Buchemwald vorum við hengdj ir upp í loft, en síðan skornir niður. 16 okkar var skipað aði mæta á ákveðnum stað. Við, sáum þá fjelaga okkar aldrei aftur og komumst að því síð- ar að þeir höfðu allir verið líf látnir án rjettarhalds. Lík þeirra voru brend og ekkert var eftir af þeiin nema aska. Jeg treysti ykkur til þess, að s.já um að hefndin verði mikil. Hún getur aldrei orðið of mik- il“. BEST AÐ AUGLYSA I MORGUNBLAÐINU Undarleg mótmæll UNDANFARIÐ hefir Tíminn .birt frjettir af því, að nokkrir bændur víða um land h'afi mót mælt.lögum ríkisstjórnarinnar um verðlagningu landbúnaðar- afurða o. fl., og nú síðast telur hann slík mótm'æli hafa verið samþykt á Laugarvatnsfund- inum. Alt á þetta að vera gert á þeim grundvelli, að með hin- um nýju lögum hafi þessi mál verið tekin úr höndum bænda. Vitað er að Tímamenn hafa staðið fyrir þessum mótmæl- um og því er vert að biðja bændur og aðra landsmenn að athuga hverjir það voru, sem rjeðu þessum málum, þegar nú verandi stjórn tók við og Tíma- menn höfðu stjórnað landbún- aðarmálum nærri óslitið í 17 ár. Þá rjeðu fjórar nefndir og þessir menn: 1. Mjólkursölunefnd: Svein- björn Högnason, Breiðabólstað. Egill Thorarsensen, Selfossi. Jón Hannesson, Deildartungu. Sigurður Guðnason, Reykjavík. Jónas Kristjónsson, Akureyri. Einar Ólafsson, Reykjavík. Jón Brynjólfsson, Reykjavík. 2. Mjólkurverðlagsnefnd: Páll Zophoníasson, Reykjavík. Guðmundur R. Oddsson, Rvík. Jón Hannesson, Deildartungu. Einar . Gíslason, Reykjavík. Egill Thorarensen, Selfossi. 3. Kjötverðlagsnefnd: Ingólf- ur JónsSon, Helli. Helgi Bergs, Rvík. JJón Árnason, Rvík. Þor- leifur Gunnarsson, Rvík. Her- mann Guðmundsson, Hafnarf. 4. Verðlagsnefnd garðávaxta: Steingrímur Steinþórsson, Rv. Kristjón Kristjónsson, Rvík. Þórarinn Kr. Guðmundsson, Rvík. Þess er vert að geta, að af þessum mönnum skipaði land- búnaðarráðhei-ra Sjálfstæðis- flokksins, Ólafur Thors, einn mann, Ingólf Jónsson á Hellu og hann fekk mikið ámæli meðal annars frá Tímamönn- um fyrir að verðleggja vörur bænda alt of hátt, eftir það hrakverð, sem áður var. Nú ráða þessum sömu málum fimm menn og þeir eru þessir: Bjarni Sigurðsson, Vigur. Guð- mundur Jónsson Hvanneyri. Ólafur Bjarnason, Brautarholti. Stefán Stefánsson, Fagraskógi og Sveinn JJónsson íjgilsstöð- um. Breytingin er sú, að valdið yfir þessum málum er fengið í hendur 5 valinkunnum bænd- um úr öllum landsfjórðungum, en tekið úr höndum 20 manna, sem flest eru Reykvíkingar og embættismenn. Þegar þessi voðalega!!! breyt ing er gerð, eftir 17 ára völd Tímamanna, þá rjúka þeirra forkólfar til og heima mótmæli bænda af því verið sje að taka valdið úr þeirra höndum, og sumir bændur rjetta upp hend- ina. Geta þeir samþykt meira öfugmæli? Geta þeir gefið sjálf um sjer stærri löðrung? í 17 ár hafa þeir þagað. I 11 ár hafa þeir búið við mjólkur og kjöt- lögin og ekki mótmælt. En þegar 5 bændum er í fyrsta sinn í sögu íslands fengið vald til að verðleggja vörur bænda, þá láta þeir ginna sig til mót- mæla. Hvað ætli komi næst? J. P. Scavenius látinn Khöfn í gær. í DAG andaðist að heimili sínu hjer í borg Erik Scavenius, fyrrum forsætisráðherra, 68 ára að aldri. Hann var forsæt- isráðherra þann 29. ágúst 1943, er stjórnin gat ekki setið leng- ur að völdum og lagði niður störf. Hann var einnig utanrík- isráðherra. Sumum þótti hann allmikill Þjóðverjavinur. Sænsk síidveiðiskip heim Stokkhólmi: Til Bohuslan eru nýkomin 7 skip sænsk, sem stundað hafa síldveiðar við Is- land í sumar, og höfðu öll full- fermi. Von er á 14 skipum í við bót bráðlega, sem einnig hafa verið á síldveiðum við ísland og aflað mjög vel. Tangier. LONDON: — Tilkynt hefir verið í Madrid, að alt spánskt herlið hafi verið farið frá Tan- gier í gærkvöldi seint, skv. á- kvörðunum Parísarráðstefn- unnar. Hringflug í sam- bandi vii flugsýn- Jngu RAF í SAMBANDI við flugsýn- ingu breska flughersins (RAF), ^sem skýrt var frá í Morgun- blaðinu í gær og haldin verð- ur n.k. laugardag hjer á flug- vellinum, mun Flugfjelag Is- lands og hafa tvær flugvjelar til hringflugs fyrir almenning. Flugsýningin hefst klukkan 14 á laugardag og stendur yfir til kl. 16.30. í sambandi við sýninguna verður ljósmynda- sýning, þar sem sýndar verða ýmsar ljósm.yndir frá landher, flugher og flota Breta. Þá verð ur sýnt í sjerstökum skála, hvernig flugmenn breska flug- hersins búa hjer. Meðal þess, sem sýnt verður á flugsýningunni, er hvernig farið er að kasta björgunarflek um til skipbrotsmanna, eða manna, sem neyðst hafa til að fara í fallhlífum úr flugvjel- um. Almenningur fær að g'anga um og skoða það, sem til sýnis verður, eftir vild, en ekki er ætlast til að fólk snerti á sýn- ingarmunum og ennfremur verður lagt ríkt á við þá, er á sýninguna koma, að fara ekki út fyrir hið afmarkaða syæði, sem ætlað verður áhorfendum, þar sem það gæti verið mjög hættulegt, ef fólk færi inn á rennibrautir flugvallarins. — Margt fannst Framh. af bls. 9 um við fundið margt og mik ið, enda var leitin vel und- irbúin og framkvæmd. Og henni er enn haldið áfram.* Jeg, að minsta kosti hefði aldrei látið mig dreyma um að þetta myndi ganga svona vel. Og ekki hefi jeg minst á Rússana. Maður getur gert sjer í hugarlund' hvað þeir hafa fundið, ekki síst, þeg- ar maður tekur með í reikn- inginn hina sjerstöku hæfni þeirra á því sviði, að fá leyndarmál upp úr mönn- um, sem þeir bera ekkert sjerstaklega hlýjan hug til. I 19 flHr Roberf Sform í 7 ‘V'KNOW, 7ME REAUUV Blö þílCK IN THl& CA<S-E . CCMES FF0A1 KNOvVlNO 7HAT UITTUE JANE /VlARöM AND HEP DADDV Aí?E , E-TIUU TOOETMEí? ! pT r IT WAöN'T VOllK FAUUT, WIUDA,,,Sf?AINV WOUUD HAVE í?£&0KTED TO OTHEK /rlEANE, |F HE HADN'T READ VOUR 30°k!__________^ j' i'Wgzjí PHIl„. PUEA6E DON'T ÓO, JU&T V6T.. I-r'M UNDONE... TC THlNK THAT Mi 800K &U66ESTE0 THO&E AWFUL CRlyiEö TO SRAIMV n KEVNAKD — 1) Wxlda: — Phil . . . farðu ekki strax. Mjer líður illa . . . Að hugsa sjer, að Brainy Reynard skyldi fá hugmyndina að þessum hræðilega glæp úr bók- inni minni . . . X-9: — Það var ekki þjer að kenna. Brainy hefði fundið önnur ráð, ef hann hefði ekki haft bókina þína. 2) X-9: — Það, sem mest er um vert í þessu máli, er að vita til þess, að Jane Marsh og pabbi hennar fá r>ú aftur að vera saman. 3) Wilda: — Phil, elskan . . . Manstu eftir stjörnu björtu nóttinni við vatnið, þegar þú—? X-9: — Jeg titra í hvert skifti, sem jeg hugsa til þess, Wilda . . . komdu svo lítið nær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.