Morgunblaðið - 03.10.1945, Qupperneq 16
16
ilaniisókn á Skeíó-
arárhlaupinu ná- j
ivæmari en áðurlý æö til bvendarbrunna
Forsetaritaraskifft
N ATTURUFRÆÐIN GARNIR
þrír, sem fóru austur til að
rannsaka verksummerkin á
Skeiðarársandi eftir hlaupið,
komu að austan á mánudags-
kvöld. Það voru þeir Pálmi
Hannesson rektor, Guðmundur
Kjartansson og Steinþór Sig-
urðsson.
Þeir flugu austur yfir Skeið-
ará fyrir helgi, til Hornafjarð-
ar tveir þeirra, og síðan í flug-
vjel að Fagurhólsmýri. Þaðan
í Skaftafell. Fóru þaðan að
upptökum Skeiðarár, austan-
megin ár, og síðan yfir sandinn
á hestum á sunnudag. Þá var
áin orðin reið.
Aðalerindi þeirra var að gera
mælingar í þeim farveg-
um, sem hlaupið myndaði, svo
hægt sje að gera sjer nokkurn
veginn í hugarlund, hve mikið
vatnsmagn hefir brotist fram
úr jöklinum að þessu sinni Þeir
tóku sýnishorn af framburði
hlaupsins, og gerðu ýmsar
aðrar athuganir, er gætu leitt
til þess. að eitthvað vitnaðist
nýtt um upptök og eðli hlaup-
anna.
Jóhannes Askelsson og fje-
lagar hans athuguðu eftir föng
um breytingarnar á jöklinum
uppi í Grímsvatnadalnum og
þar' í grend, með það fyrir aug--
um m. a. að fá úr því skorið,
hvort sigið í jöklinum sam-
svarar því vatnsmagni, sem
fram hefir komið í hlaupinu.
En af myndum, sem teknar
hafa verið úr lofti, er hægt að
gtóka á þetta.
A myndum af jöklunum uppi
við Grímsvötn má ráða, að jök
ullinn hafi sigið þar um eina
100 metra, og umturnast mjög
og sprungið. við þetta sig. En
nánari fregnir af því, sem þar
hefir gerst, fást með Jóhann-
esi Askelssyni og fjelögum
bans. Ef óveður hafa ekki taf-
ið þá, ættu þeir að koma mjög
bráðlega til bygða.
Hlaup þetta í Skeiðará er
með minni hlaupum. En þess
er að vænta, að athuganir á
því hafi verið nákvæmari en
á öðrum hlaupum.
TvöfaMar aðrennslið til bæj-
arins næsfa haust.
j BÆJARRÁÐ fól Sigurði Thoroddsen verkfræðing á 3.1, vori
\ að gera athugun á því, hvernig haganlegast myndi vera að bæta
úr hinum .tilíinnanlega vatnsskorti hjer í bænum. En vatns-
veitan úr Gvendarbrunnum hefir, sem kunnugt er, reynst ófull-
nægjandi nú um skeið, enda þótt hún fiytji um 400 lítra á sól-
arhring' á hvert mannsbarn í bænum.
I ___________ _______
! Nú hefir Sigurður skilað áliti
í þeS>u máii, rneö kostnaðar-
áætiun. Hann leggur til, að ný
æð verði lögð upp í-Gvendar-
j brunna, er flytji 2í;0 litra á sek-
únd.u..— Núverandi veita úr
’ Gvendarbrunnum gefur 240 1.
á sekúndu. Svo með þeirri við-
bót, er Sigurður ráðgerir, verð-
ur vatnsmagn Gvendarbrunna-
veitunnar nokkru meira en tvö
faldað
j í sumar gerði Sigurður Thor-
oddsen kostnaðaráætlun yfir
verk þetta, og komst að þeirri
niðurstöðu, að gera mætti ráð lendingum er að góðú kunn
fyrir að þessi viðbót við vatns-,1 slað Cyt'iJ Jackson, sem nú
veituna myndi kosta krónur
2.650.000. Þá taldi hann, að píp-
ur og annað efni myndi kosta
iýr fuiitriii
British Council
C. íawiey
NVL'KOA cr kominn hing-
að fil landsins sendifulltrúi
frá bresku menningarstofnun-
in'ni Ih'itisli Council, sem Is-
nokkuð yfir IV2 milj. króna. En
nú hefir fengist tilboð um efni
þetta, og er vei-ðið ekki nema
kr. 1.172.000, svo þá verður á-
ætlunin um það bil V2 milj. kr.
lægri. En verkið ætti samtals
að kosta rúmlega 2 miljónir kr.,
eða nokkuð á þriðju miljón.
Sigurður Thoroddsen segir í
skýrslu sinni, að undirbúningi
undir verkið sje það langt kom
ið, að byrja megi á framkvæmd
um með vorinu. Yrði hin nýja
vatnsæð þá komin í notkun
næsta haust.
Mál þetta verður lagt fyrir
bæjarstjórnarfund á morgun.
Sennilegt að bæjarstjórn feli
bæjarráði að sjá um að fram?
kvæmdum verði hraðað sem
mest.
ffnaHr|tyynii|i«|Afl
■ J * lk*at
fá aínoi af ieik-
Hmisal Ausiurbæj-
arskólans
Á SÍÐAST A Skólanefndar-
fundi Austurbæjarskólans var
lögð fram beiðni frá Knattsp.-
fjelögunum Fram, K.Ii. og Val
um afnot af leikfimissal skól-
aris á næsta vetri. Skólanefnd
vill fyrir sitt.leyti mæla með
því, að þcssum fjelögum verði
heimiluð not af leikfimissaln-
um á komandi vetri, ef þau
hindra á engan hátt afnot
skólans, enda fari þau eftir
íyrirmælum skólastjórans í
öllu, bæði að því er tíma og
umgengni snertir.
Skólanefnd vill vekja at-
hygli á því, að þess er ekki
að v-ænta, a'ð unnt verði að
lána leikfimissalinn framvegis.
Haraldur Sigurðsson
hyltur
HARALDUR SIGURÐSSON
píarióleikari hjelt fyrstu tón-
leika sína í Gamla Bíó í gær-
kvöldi fyrir fullu húsi og
feikna miklum fögnuði áheyr-
enda. Vilhjálmur Þ. Gíslason
skólastjóri mælti nokkur orð
til listamannsins áður en hljóm
leikarnir hófust og bauð hann
og könu hans velkomin til
landsins.
Eftir hvert lag bárust Har-
aldi blómvendir og fagnaðar-
látum áheyrenda ætlaði aldrei
að linna. Varð Haraldur að
leika aukalög og áheyrendur
fóru ekki úr húsinu, fyr en
komið var að kvikmyndasýn-
ingu klukkan 9.
Á eftir bauð Tónlistarfjelag-
ið til kaffidrykkju. i Oddfellow
húsinu. Þar töluðu þeir Ragn-
ar Jónsson formaður Tónlistar-
fjelagsins og Ólafur Þorgríms-
son hrm., varaformaður. Har-
aldur Sigurðsson mæltí einn-
ig nokkur orð og lýsti ánægju
sinni yfir að vera kominn
hingað.
starfar í London. Er hinn
nýi fulltrúj Mr. A. C. Cawley,
sem hefir stárfað á vegum
British Council síðan 19:19.
Blaðamenn hittu Mr. CaW-
ley að máli að Hótel Borg í
gær. Br hann einkar viðfeld-
inn maður og hæglátur, og
enginn vafi á því, að hann á
eftir að vinna sjer mikilla vin,
sælda þeirra, sem kynnast
honum.
1 fylgd með Mr. Cawley
kom hingað kona hans og
barn þeirra hjóna. ITann hefir
stundað nám við háskóla í
London og lauk þar M.A.
prófi í ensku. Eins og áður er
sagt rjeðist hann í þjónustu
British Council árið 1989 og
hefir starfað fyrir menningar-
stofnunina í Kúmeníu, Júgó-
slavíu og Egyptalandi. Kom
hann hingað til lands af eigin
ósk, en hann hafði altaf haft
mikla löngun til þess að koma
hingað og hefir fengið mikinn
áhuga á máli voru bók-
menntum og þjóð. Hann legg-
ur nú mikið kapp á að læra
íslensku.
. Mr. Cawley mun kenna
ensku við Iláskólann hjer. í>á
mun hann greiða götu þeirra
Islendi nga, sem hugsa sjer að
stunda nám í Bretlandi og
samveldislöndum Breta, og í
stuttu máli sagt veita öllum
er þess óska, upplýsingar og
fræðslu um hresku þjóðina og
menningu hennar. • Ilonum til
aðstoðar við starf hans hjer
yerður Miss AVhitaker, sem
komin er hingað til lands
fyrir skömmu. Mr. Cawley
verður til viðtals á skrifstofu
sinni, Laugaveg 84, á mánu-
dögum og föstudögum kl. 2,80
til 4,30. Síminn er 1040.
Gunnlaugur Þórðarson
NÚ UM mánaðamótin urðu
forsetaritaraskifti. Pjetur Egg-
erz ljet af starfi, en við því tók
Gunnlaugur Þórðai'son.
Pjetur Eggerz fer til Lond-
on. Hann verðuí' fyrsti sendi-
ráðsritari við islensku sendi-
sveitiná þár. — Hann varð rit-
ari ríkisstjóra, er það embætti
var stofnað. — Þegar forseta-
ritaraembættið var stofnað,
varð hann ritari forseta.
Pjetur fer að forfallalausu
loftleiðis tii Englands í dag.
Gunnlaugur Þórðarson tók
embættispróf í lögum á s.l. vori
með fyrstu einkunn. — Hann
er sonur próf. Þórðar Sveins-
sonar læknis.
Lokaður fundur með
þingmönnum
Á FRAMHALDS þingsetn-
ingarfundi í gær voru rann-
sökuð kjörbrjef hinna þriggja
nýju þingmanna, sem nú taka
sæti á Alþingi. Voru kjörbrjef-
in samþykt í einu hljóði. Fleira
var ekki gert í gær. Sennilega
verða forsetakosningar í dag.
Að loknum þingfundi í gær
voru þingmenn boðaðir á lok-
aðan fund. Hafði forsætisráð-
herra óskað eftir þessum fundi.
Ekki veit blaðið, hvað þar gerð
ist, en fundurinn stóð stuttan
tíma.
Miðvikudagur 3. októer 1945.
Skildinganesskóli
gelur aukið vlð
nemendur
Á SÍHASTA fundi skóla-
nefndar Skildingarnesskóla
var rætt um, að þar sem nú
eru í Skildinganesskóla að-
eins 180 börn, en skólinn get-
ur með hægu móti tekið við
230 börrnun, vill skólanefnd
leggja til að næstliggjandi
götur á Melunum verði tiú
þegar taldar til skólahverfis-
ins. Felur nefndin formanni
sínum og skólastjóra að ræða
málið við skólanefnd og
skólastjóra Miðbæjarbarna-
skólans.
Nýi skólinn.
Form. skólanefndar skýrðí
frá gangi byggingarmálsins,
og var gerð eftirfarandi -sam-
þyklct:
„Skólanefnd telur æskilegt;
að þegar verði hafinn undir-
búningur að því að ganga
frá hæðum bússins að innan
jafnóðum og þær eru tilbúnar
til þess, og að lögð A-erði hið,
allra fyrsta heitavatnsæð 'að
húsinu og hafist handa um að
fínpússa neðstu hæðirrtar“.
Skólastjóri í leyfi.
Arngrímur Kristjánsson;
slcólastjóri skýrði frá dvöl
í Bretlandi og Norðurlöndum.
og fór fram á að leyfi sitt
stæði til 1. des 1945, til að
vinna úr gögnum sem hann
hefði safnað í utanför sinni.
Samþykktj, skólanefnd að
verða við þessum tilmælum.
Ung'barnavernd Líknar, Templ
arasundi 3. Stöðin verður fram-
vegis opin þriðjudaga, fimtudaga
og föstudaga kl. 3.15—4 síðd. —
Fyrir barnshafandi konur á mánu
dögum og miðvikudögum kl.
1—2 e. h.
Kosið i tveim
prestaköllum
ÞRIÐJA og 28. september
fóru fram prestskosningar i
Flaseyjarprestakalli í Breiða-
firði og Mælifellsprestakalli í
Skagafirði.
1 gær voru atkvæði talin
í skrifstofu biskups. — Um-
sækjandi Flateyjarprestakalls
cand. theol. Lárus Halldórs-
son fjekk öll greidd átkvæði,
82. Á kjörskrá vorii 168
manns. Kosning hans er ó-
lögmæt.
Sjera Ragnar Ilenediktsson
var eini umsækjandinn um
Mælifellsprestakall. — Á kjör
skrá voru 199 manns. — At-
kvæðisrjettar síns neyttu 47.
Umsækjandinn hlaut 31 at-
kvæði, 16 seðlar voru auðir.
Kosning hans er einnig' ólög-
mæt.
Kennsla hafin í
Mentaskóianum
á Akureyri
Akureyri, þrið.judag.
Frá frjettaritara vorum;
KENNSLA hófst í Menta-
skólanum í gær, en regluleg;
skólasetning gat ekki farið
fram s.l. sunnudag eins og
ráðgert var vegna þess, að
f'.l-ól o v 01 CiIoUb ttom pf n /I 1111 í
mvoiuim.iio'ai 1 * c*l ÖlUUUllI 1
Reykjavfk í erindum skólans.
Fer skólasetning því fram umi
næstu helgi.
Kennarabreytingar eru þess
ar helstar: Guðmundur Arn-
laugsson, cand. mag. tekur
við stærðfræðikennslu af Ing-
ólfi Aðalbjarnarsyni. Enn-
fremur er ráðinn kennari f
vetur Friðrik Þorvaldsson, er
stundað befir nám í Edinborg
um tveggja ára skeið, en Páll
Árdal, stúdent, sem kenndii
við skólann í fyrra. stundai*
nú nám í Edinborg.
Myrti tvo.
LONDON: — Rússi einn í
Þýskalandi, Kowziga að nafni,
hefir verið dæmdur til dauða
af breskum herrjetti og skot-
inn, fyrir það að drepa þýska
konu og breskan liðsforingja,
sem var að rannsaka umkvart-
anir Rússa. —