Morgunblaðið - 25.11.1945, Side 1
16 síður og Lesbók
32. árgangur.
276. tbl. — Sunnudagur 25. nóvember 1945.
ísafoldarprentsmiðja h.f.
„Churchill hefði ekki
verið dreginn
fyrir dóm“
Segja verjendur hinna ákærðu
í Numberg
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun
blaðsins frá Reuter.
VERJENDUR hinua tuttugu Þjóðverja, sem ákærðir eru fyrir,
stríðsglæpi í Niirnberg, áttu fund með blaðamönnum banda-
manna í dag. Voru þeir þar spurðir af blaðamönnunum (en
verjendurnir eru ailir þýskir) hvort Þjóðverjar hefðu ákært
æðstu menn bandamanna fyrir stríðsglæpi, ef þeir hefðu unnið
stríðið. — Svöruðu lögfræðingarnir því til, að það vissu þeir
ekki gerla, en Churchill hefði að minsta kosti ekki verið dreginn
fyrir dóm, þar sem Þjóðverjar hefðu borið of mikla virðingu
fyrir hetjudáðum hans til þess.
I!
ákærður"
Krefjast frægra vitna.
Verjendurnir krefjast í nafni
ýmsra hinna ákærðu, að marg-
ir frægir Bretar verði leiddir
sem vitni í rjettarhöldunum.
Þannig krefst verjandi von
Ribbentrops, að Beaverbrook
lávarður og Lafði Astor verði
leidd Sem vitni. — Lögfræðing-
ur Rudolf Hess krefst vitnis-
burðar hertogans af Hamilton,
sem Hess ætlaði að finna, er
hann flaug til Skotlands 1941,
og ennfremur læknis þess, sem
fyrst stundaði Hess.
Giles Romilly meðal vitna.
Verjandi Keitels marskálks
krefst þess, að Giles Romilly,
frændi Churchills, verði lát-
inn bera vitni (en Giles Rom-
illy var tekinn höndum í Nor-
egi, hafði áður verið hjer á
íslandi). Ennfremur krefst verj
andi Keitels að frændi. Alex-
anders marskálks, nú lands-
stjóra í Kanada, en hann var
einnig fangi Þjóðverja, verði
kvaddur sem vitni. — Verj-
andi Hans Frank, fyrrum lands
stjóra í Póllandi, krafðist vitn-
isburðar allmargra Pólverja, og
er blaðamenn heyrðu það, ráku
þeir upp hlátur mikinn.
Rjettarhöld verða næst á
mánudag, þar sem verjendurn-
ir þurfa að fara gegnum mjög
mikið af skjölum.
Churchill
Verður kvaddur
sem vilni
drepnir í Þýska-
Úfgerðarfjelag
slofnað í Bol-
ungarvík
í BOLUNGARVÍK er nýstofn
að hlutafjelagið Víkingur, sem
ætlar að reka útgerð þaðan. Fje
lag þetta hefir nýverið keypt
vjelbátinn Vísi, frá Húsavík.
Kaupverð 85 þús. krónur. Bát-
urinn er þegar kominn til Bol-
ungarvíkur og mun hefja veiðar
innan skams. Framkvæmdarstj.
Víkings er Guðm. Jakobsson.
London í gærkveldl.
I GÆR var breskur hermað-
ur drepinn á hernámssvæði
Breta í Þýskalandi, og annar í
dag. Munu bresku hernaðaryfir
völdin gera gangskör að því, að
haft verði upp á vegendunum.
Ekki er vitað til þess, að nein
uppþot hafi orðið á þeim slóð-
um, sem hermenn þessir voru
drepnir á, og telja Bretar að
þarna sje um æsta nasista að
ræða, sem ráðist á hernáms-
menn. — Reuter.
Giles Romilly, frændi Churc-
hills, sem var hjer fyrir stríð.
ítalska stjórnin
biðst lausnar
Fólkfð heimlar að hún sitji áfram við völd
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Mbl
frá Reuter.
PARRI, forsætisráðherra ítala, hefir beðist lausnar fyrir sig
og stjórn sína, vegna þess að frjálslyndir og kaþólski lýðræðis-
flokkurinn hafa tekið ráðherra sína úr stjórnínni, vegna þess
að þeir telja Parri einræðissinnaðan í stjórnaraðíerð sinni. —
Víða um Ííalíu hafa af tilefni afsagnar Parri orðið verkföll og
kröfugöngur, og heimtar fólkið að stjórn hans sitji áfram.
Skiptar skoðanir.
Jafnaðarmenn og kommúnist
ar í stjórninni telja, að það
skifti engu máli, þótt hinir sex
ráðherrar kaþólska og frjáls-
lyndra færu úr stjórninni, hún
geti setið eftir sem áður. Parri
hinsvegar telur hættulegt að
sitja áfram, vegna þess að þá
kunni hugir manna, sem and-
stæðir eru stjórninni að hneygj
ast meira til hægri, og verði þá
allt erfiðara um að hegna fas-
istum í landinu.
Verkfall í Milano.
I Milano gerðu verkamenn í
verksmiðjum 15 mínútna vinnu
hlje í dag í mótmælaskyni við
afsögn stjórnarinnar, en úti á
Framh. á 12. síðu.
Hússar ryðjast inn I
hreskar herbúðir
Berlín
Krefjasf að fá að leila þar að liðhlaup-
um úr rauða hernum
LONDON í gærkvöldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá
SEINT I KVÖLD ; uddust alt í einu margir vopnaðir rússnesk-
ir hermenn inn í borðsal einn í herbúðum breska hernámsliðs-
ins í Berlm. Vakti þetta ekki litla athygli hermanna þeirra, sem
sátu þar að borðum. Kröfðust Rússarnir allbyrstir að fá að
leita í öllum herbúðunum að liðhlaupum úr rauða hernum, sem
þeir hjeldu að hefðu leynst þar. Eftir að bresk herlögregla hafði
verið kölluð á vettvang, var leitin leyfð, en Rússarnir fundu
ekkert.
______________________________ Hefir óþægileg áhrif.
Frjettaritari sá, sem símaði
þessa fregn frá Berlín í kvöld,
sagði að þetta hefði haft mjög
óheppileg áhrif á hermennina
bresku í Berlín. Fyrst og fremst
það atriði, að Rússum skyldi
leyfð leit í breskum herbúðum
í borginni, þar sem allir vissu,
að Rússar myndu aldrei hleypa
Bretum inn í herbúðir sínar. —•
Þá tekur frjettaritarinn það
fram, að ekki hefði þessi atburð
ur haft betri áhrif á þá Þjóð-
verja, sem horfðu á það, er
Rússar ruddust inn í hinar
bresku herbúðir og síst hækkað
álit Bretanna í augum þeirra.
Minnismerki
rifil upp
LONDON: Eftir uppgjöf Þjóð
verja í sumar, settu Bretar upp
minnismerki úr trje á staðnum,
þar sem þýsku uppgjafarfull-
trúarnir hittu Montgomery mar
skálk. — Á minnismerkið var
letruð frásögn af atburðinum
og dagsetningin, þegar hann átti
sjer stað. — Nýlega sáu bresk
ir hermenn, að minnismerkið
stóð ekki þar, sem það átti að
vera. Hófu þeir leit að því, og
fundu það úti í runnum, þar
sem því hafði verið kastað, eftir
að það hafði verið rifið upp. -—-
Var það illa leikið, hafði verið
höggvið með hnífum og smurt
með tjöru. — Þvert yfir spjald
ið hafði verið málað: „Heil
Himmler“, en hann er grafinn
þarna nærri. — Bretar munu
bráðlega setja þarna annað
minnismerki úr steini.
Myrkur í London
í gærkveldi
London í gærkvöldi.
HJER í borg er myrkur í
kvöld á götunum, eins og var,
meðan stríðið stóð og borgin
var myrkvuð. I þetta skipti kem
ur myrkrið til af því, að starfs-
menn gasstöðva borgarinnar
hafa flestir gert verkfall, og hef
ir verið slökkt á götuljósunum
til þess, að húsmæður gætu haft
meira gas til þess að sjóða við.
Verkfallið kom af þyí, að gas-
stöðvarmönnum fanst þeir ekki
fá nægilegt kaup, og fóru að
draga af sjer við vinnuna, en
fengu ekki kauphækkun að held
ur. Þá hættu þeir vinnu. — For-
sprakkar fjelagsskapar þeirra
| hafa ^korað á þá að sýna þann
þegnskap að hverfa aftur til
vinnu, og hafa þeir samþykkt
að gera það á morgun.
Ýmsar getgátur.
Frjettaritarinn segir að
hvorki hann, nje Bretarnir í
herbúðunum hafi getað skilið,
að Rússarnir skuli hafa látið
sjer detta í hug, að liðhlaupar
þeirra myndu leita inn í bresk
ar herbúðir, því nóg sje af öðr
um felustöðum í þessari rústa-
borg, auk þess, sem breskir her-
menn hefðu aldrei farið að
skjóta skjólshúsi yfir slíka
menn.
Undirbúningsneind
á fund í London
London í gærkvöldi:
FIMM hundruð fulltrúar í und
irbúningsnefnd hinna samein-
uðu þjóða, eru nú saman komn-
ir hjer í London, og var fund-
ur þeirra settur í dag. Noel Bak
er, breskur ráðherra, ávarpaði
samkomuna og kvað það gleðja
sig mjög að starf skyldi nú ha£
ið til þess að stofnun hinna sarp
einuðu þjóða kæmist sem fyrst
á laggirnar. — Hann baðst þess,
að fundum yrði frestað til mánu
dags, vegna hinna mörgu skjala,
sem fundarmenn verða að yfir-
fara. Gromikow, sendiherra
Rússa, studdi málaleytan Bak-
ers og var samþykt að fresta
fundum til mánudags.
— Reuter.