Morgunblaðið - 25.11.1945, Blaðsíða 12
\
12
MORGUNBLÁÐIÐ
Sunnudagnr 25. nóv. 1945.
Framh. af bls. 2.
í kirkjugarðinn báru fulltrú
ar frá Sjálfstæðisflokknum
kistuna.
Dómprófasturinn, sr. Friðrik
HalI§tííás§on,'- talaði' við“ gröf-
ina.
Að lokum ljek Lúðrasveit
Reykjavíkur þjóðsönginn.
Frá Alþingi barst silfurskjöld
ur. Blómsveigar bárust frá rík-
isstjórninni, bæjarstjórn Rvík-
ur, bæjarstjórn Akureyrar,
stúdentaráði háskólans, Sjálf-
stæðisflokknum, Fjelagi hjer-
aðsdómara, stjórnarskrárnefnd,
ráðgjafarnefndinni í stjórnar-
skrármálinu, frá Skaftafells-
sýslu, sýslunefnd Mýra- og
Borgarfjarðarsýslu, sýslunefnd
Eyjarfjarðarsýslu, Sjálfstæðis-
f jelagi Akureyrar, Stúdenta-
f jelagi Akureyrar, Útvegsbanka
íslands og Rotary-klúbbnum á
Akureyri.
Útförin var fjölmenn og
virðuleg.
- Alþj. vettv.
Framhald af bls. 8
stjórnmálaleg og hernaðarleg
nauðsyn. Þar sem stjórnendurnir
hafa tekið eftir græðgi rússn-
eskra hermanna í Berlín í að
eignast úr, hafa þeir ákveðið að
láta framleiða 400.000 úr á næsta
ári. Framleiðslunni á þeim er
stjórnað af yfirmanni skotgrafa-
fallbyssuframleiðslunnar.
(Time).
Guðm. Pjefursson
Framh. af bls. 5.
kvæmdastjóri, og Karítas sýslu
mannsfrú í Borgarnesi. — Guð
mundur hefir sjeð hamingju ná
til barna og barnabama.
Margir hugsa á þessum afmæl
isdegi um tryggan, traustan og
vinfastan mann, árnandi hon-
um mikillar farsældar.
Heill þjer nú og ætíð, kæri
frændi og vinur. B. J.
—Ilalía
Framh. af 1. síðn.
götunum safnaðist mannfjöldi
saman og fór mótmælagöngur.
I Róm fóru mörg þúsund manna
til stjórnarhallarinnar og hróp-
uðu: „Vjer heimtum að Parri
sitji áfram, við viljum ekki að
hann fari frá völdum“.
Siglúss
UNGFRÚ Elsa Sigfúss hjelt
fyrstu söngskemtun sína í
Gamla Bíó á fimtudagskvöld,
og var húsið fullskipað . eftir-
væntingarfullum áheyrendum.
Ef til vill hefðu margir óskað
þess, að hún hefði valið sjer önn
ur og listrænni verkefni, að
minnsta kosti að einhverju
leyti, og þá sjerstaklega að
heyra hana flytja eitthvað af
íslensku lögunum, sem mestan
þá'tt hafa átt í að skapa henni
vinsældir hjer. En að því mun
síðar koma, og mun þá koma í
ljós, að hún er jafnvíg á hvoru
tveggja, hinn ljetta „salon“stíl
og hina göfugri tónlist, því um
gáfur hennar og smekkvísi verð
ur ekki deilt.
Rödd ungfrú Elsu er djúp og
sjerkennileg, minnir helst á
hina mjúku tóna cellósins, og
býr yfir undraverðu seiðmagni
í látleysi sínu, svo að tónarnir
minna helst á mjúkan kvöld-
blæ.
Efnisskráin var að þessu
sinni nokkuð einhæf, að því
leyti, að valin voru aðeins ljett
lög, eða þau lög, sem söngkon-
an hefir að undanförnu mest
sungið í útvarp víða um Norð-
urlönd, með þeim árangri, að
hún er í hópi þeirra listamanna
sem vinsælastir eru þeirra sem
í hljóðnemann syngja. Hún not
aði þá einnig hljóðnemann á
þessum hljóml. og fór vel á,
enda í fullu samræmi við hin
ljettu lög og texta, sem, eins
og áður segir, voru túlkuð af
mikilli smekkvísi.
Fritz Weisshappel var söng-
konunni hin besta stoð með und
irleik sínum og ljek hann auk
þess „Elegie“ eftir Melartin.
Viðtökur voru hinar bestu.
En þó munu menn hlakka enn
meira til að heyra þessa ágætu
söngkonu flytja okkur hina æðri
tónlist, sem verða mun nú á
næstunni. P. í.
Brendu frönsk hús
LONDON: Þjóðernissinnar í
Indokína, sem enn eiga í bar-
dögum við Frakka, brendu ný-
lega öll frönsk hús í borginni
Longshuyen fyrir suðvestan
Saigon.
LISTERINE
TAHHKBEH
Nýju mjólkurvjel-
irnar verða keypfa
í Danmörku
MJÓLKURSAMSALAN hef-
ir ákveðið að . festa ’ kaup á
mjólkuryinsluvj.elum frá Dan-
mörku. Eftir því, sem Árni
Benediktsson forstjóri Mjólkur-
samsölunnar skýrði Mbl. frá,
mun vera búið að gera út um
kaupin.
Fyrstu vjelarnar eru væntan
legar til landsins. efíir þrjá mán
uði, en sámkvæmt samningi
eiga vjelarnar að vera komnar
eftir 10 mánuði.
Svíar keppa við
Svisslendinga
I DAG munu Svíar heyja
landskappleik í knattspyrnu við
Svisslendinga. Fer kappleikur-
inn fram í Sviss, og er sænska
landsliðið þegar komið þangað.
Victor Rae, breski dómarinn, er
hjer var í sumar og dæmdi
nokkra leiki verður dómari.
Frá Noregi berast þær fregn
ir, að knattspyrnufjel. Lyn, sem
vann Noregsbikarinn um dag-
inn, hafi tapað úrslitaleik í Nor
egsmeistarakeppninni. — Nor-
egsmeistari í ár varð Skeid, sem
vann Lyn með 3—2.
Verklýðsmá! rædd
á fundi Sfefnis
í Hafnarfirði
STEFNIR — fjelag ungra
Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði
— heldur fund í Sjálfstæðishús
inu annaðkvöld kl. 8.30.
Á fundinum mun Hermann
Guðmundsson flytja erindi um
verkalýðsmál. — Öllum Sjálf-
stæðismönnum í Hafnarfirði er
heimill aðgangur meðan hús-
rúm leyfir. Er ekki ósennilegt
ða marga muni fýsa að heyra
Hermann ræða þessi mál, þar
sem hann er þeim mjög kunnur.
Kauphöllin
er miðstöð verðbrjefa-
viðskiftanna. Sími 1710.
Kveðjuorð til
Sigurðar Eggerz
„Aldan er hnigin,
auð hýmir ströndin“.
Jeg var að koma lieim frá
jarðarför þinni, vinur minn.
Ekki hefði jeg trúað því, að
svona erfitt væri að fylgj a þjer
til grafar. Jeg bar þig inn í
kirkjuna í gærkveldi. Það
voru þung spor En sleppum
því. Það var ekki í þínum anda,
að þylja raunasögur. En mjer
varð ekki svefnsamt í nótt. Jeg
las „Sýnir“. í sannleika sagt
í fyrsta sinn, svo að jeg skildi
þær. Hvernig getur þú ætlast
til þess að maðúr meti það,
sem þú skrifar, á meðan þú
ert lifandi. Það. sem okkur
greindi á um, var það, að jeg
kunni ekki að meta til fulls
skáldskap þinn. Jeg skil nú,
hvers vegna. Þú skygðir á hann
sjálfur. Mjer þótti ekkert nógu
gott, sem þú skrifaðir, og lík-
lega hefði mjer heldur ekki
líkað það, sem aðrir skrifuðu
best. Hefði það verið eftir þig.
Þú sjálfur varst svo langtum
stærri. En jeg las líka leikritin
þín í nótt.
,Aldan er hnigin,
auð hýmir ströndin“.
En minningarnar um þig
sjálfan skyggja samt enn á alt,
sem eftir þig liggur. Þó er það
alt gott og meir en það, — því
grunntónninn í því öllu er hinn
sami: Hinn göfugi, hreinskilni,
háfleygi andi, sem berst fyrir
frelsinu •—■ frelsi í orði og frelsi
á borði. Með þó heldur tak-
markaðan jarðneskan sjóndeild
arhring — ísland — og það eitt.
En svo að hinu leitinu á hærri
slóðum.
Lyrikken var þjer í blóð
borin. En hún fullnægði þjer
ekki, hún var þjer of lágvaxin.
Þú naust þín best, í mínum
augum, er þú last „Norðurljós“
eftir Einar Benediktsson, og þá
sá jeg þig standa upp í ríkis-
ráði Dana teinbeinan og tígu-
legan og krafðist rjettar þjóð-
ar þinnar, og lagðir að veði
embætti þitt, forsætisráðherra-
tignina. Pjetur Ottesen segir í
dag í sínum sönnu eftirmælum
um þig, að slíkt hafi hvorki
skeð fyr nje síðar í sögunni. 1
„Aldan er hnigin,
auð hýmir ströndin“.
Við vinir þínir eigum erfitt
með að átta okkur á því, að
þú komir hér ekki framar. Þeg
ar þú undanfarin ár kíírnst til
Reykjavíkur að norðan, fanst
mjer birta yfir bænum og vqc-—,,
ið fara í hönd. En það var ekki
mjer einum sem fanst þetta.
Við öll fögnuðum komu þinni.
Þú barst yl í bæinn.
I leikriti þínu ,,Það logar yfir
jöklunum“, lætur þú Árna
segja: „Þú ert svo glaður, það
er sólskin hvar sem þú ert. Jeg
held að guð hafi gert þig að
einum geislanna sinna“. Ef
þessi gullfagra lýsing á við
nokkurn mann á landi hjer,
þá er það höfundinn sjálfán,
Þinn charmi er svo mikill, að
þú hrífur alla með þjer, líka
liðinn. Þinn andi mótaði kveðju
athöfnina í dag. Þú lyftir mönn
um í æðra veldi, svo þeir verða
bjartsýnni og stærri. Menn
verða jafnvel gáfaðri í návist
þinni. En þó fyrst og fremst
betri menn.
,Aldan er hnigin“.
En ströndin hýmir ekki auð.
Minningarnar um þig, vinur
minn, lýsa hana. Veðúr-
blíðan, slík sem enginn man,
fylgdi þjer til grafar. En nú
tekur að kólna í lofti. En þá
njóta norðurljósin sín betur. Og
í þeim sjáum við þig best. Þín-
ar leiftrandi gáfur og þína
björtu og hreinu sál.
Sigurður Eggerz er dáinn.
Hin stóra alda er hnigin. En
æska þessa lands — stúdent-
arnir, sem stóðu vörð um
kistu hans í dag, hafa unnið
heilög heit, tekið höndum sam-
an, um það, að standa vörð um
hugsjónir Sig. Eggerz. íæssi
sólargeisli Guðs vermir og lýs-
ir okkur vinum hans, meðan
við dveljum hjer.
Megi ísland eignast marga
jafn glæsilega stjórnmálamenn
og hann; jafn góða drengi, og
megi þeir hverfa af sviði stjórn
málanna með jafn hreinan
skjöld og hann.
„Aldan er hnigin“.
Ný alda er risin.
Magnús Kjaran.
X-9
"DREA/dER" VOU
HAD NO RIQMT
TO PUNCH TMAT
AtAN, EVEN IF
ME
NOW, DON'T RUFFL.E VOUR
FEATHERS-, JUUE 1 iT'$ TME
ONLV WAV VOU CAN 6ET HELP-
THE$E DAV5...V0U RUN
I'LL CALL VOU T0M0RR0W.
Eftir Roberf Sform
? Cupr. iyl5. Kííjc ítalu.cs Svnilicatc-. Inc.. VC’orld riuhfs
Júlía — Glámur, þú máttir ekki berja þenna
mann, jafnvel þó að . . . Glámur: — Vertu nú ekki
að derra þig, Júlía mín, þetta er eina aðferðin til
þess að.fá menn í vinnu nú á dögum. Og farðu svo.
Jeg hringi í þig á morgun. Glámur: — þú ert slung-
inn, Frankie. Þú innritaðist í herinn undir fölsku
nafni, svo læturðu gera við andlitið á jsjer, og ferð
úr hernum. Frankie: — Hvað . . . hvað ætlarðu
að gera við mig? Glámur: — Það er undir þjer
sjálfum komið. Sem löghlýðinn borgari gæti jeg
látið taka þig fastan. En jeg ætla að gefa þjer til-
boð.-Frankie: — Hvað er það?
z