Morgunblaðið - 18.01.1946, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 18. jan. 1946
Sigfús bregður sjer enn
í skýjaborgina
Kommúnistar afhjúpa
sjálfir kosninga-
blekkingar sínar
Heillum horfn ir menn
ÞAÐ er nú nokkuð síðan að einum forustumanni Sósíalista-
/
flokksins varð að orði, eftir lestur Þjóðviljans: „Geðilt blað get-
ur ekki unnið kosningar".
í fyrradag kom sr. Sigfús, efsti maður á lista ISósíalistaflokks-
ins, til Sjálfstæðisflokksins, og bað um að flokki sínum yrði
eftirlátinn Sýningarskálinn til fundarhalds næstkomandi mið-
vikudag, en Sjálfstæðisflokkurinn haíði beðið um það kvöld
til fundarhalds fyrir áramót, er ósýnt var um það, hvort flokks-
húsið yrði tilbúið til afnota.
Var fúslega orðið við þessari beiðni og sr. Sigfús þakkaði
greiðann.
Daginn eftir segir Þjóðviljinn, að Sjálfstæðisflokkurinn kaupi
upp Sýningarskálann til þess að hindra aðra í fundahöldum.
Þessi boðskapur er ekki fluttur í „Kosningarabbi" blaðsins eða
minni háttar nöldurdálkum þess. Forystugrein blaðsins er valin
til þessa boðskapar, — vettvangur ritstjórnarinnar, — og sjálfur
sr. Sigfús ritstjóri. ■
Það er kanske ekki alveg óskylt mál í þessu sambandi, að fá
kvöld eru nú liðin síðan ungir Sjálfstæðismenn opnuðu dyr
Sjálfstæðishússins fyrir ungum sósíalistum og buðu þeim þar
til viðræðna á sameiginlegum fundi;,
En sleppum því!
Hvernig getur hitt skeð?
Svona blaðamenska er ekki aðeins „geðill“. Hún er heillum
horfin!
Með slíkum vopnaburði er hver maður, hvert blað, hver flokk-
ur dæmdur til að tapa.
Kjörskrárkærurnar
Þegar Sigfús Sigurhjart-
arson flutti snemma í haust
tiílögu sína um, að bæjar-
stjórnin skyldi á þessu ári,
sem nú er að hefjast, byggja
a. m. k. 500 íbúðir, án þess
að þar með yrði dregið úr
öðrum byggingarfram-
kvæmdum í bænum, sá al-
menningur þegar í stað, að
þar var um kosningabombu
að ræða. fbúðir Sigfúsar
voru þegar í stað kallaðar
„skýjaborgir“ og hafa geng-
ið undir því nafni meðal
fólks síðan.
í sjálfu sjer er ekkert ó-
vanalegt við það eða óeðli-
legt, að kommúnistar kasti
kosningabombum. — Það er
þeirra venja og hefir stund-
um gefist þeim vel. Það var
því ekki nema að vonum, að
Sigfús revndi að smíða
bombu í jafn viðkvæmu
máli og vandasömu, sem
húsnæðismálunum.
Bombunni kastað of snemma
Skyssan hjá honum var
sú, að hann kastaði bomb-
unni of snemma. — Menn
höfðu of langan tíma til um
hugsunar og áttuðu sig allir
á, að af óheilindum var
mælt. Ætlunin var ekki sú,
að byggja yfir þá, sem verst
eru staddir, heldur að^fla
kommúnistaflokknum fylg-
is með einskisverðum lof-
orðum meðal þeirra, sem
minst skyn bera á málin.
Sigfús fekk því ávítur hjá
sínum eigin mönnum fyrir
að hafa kastað bombunni of
snemma. Þess vegna hefir
hann unað því, að bæjar-
stjórn hefir látið tillögu hans
um kyrt liggja allt frá því
í septembermánuði þangað
til nú. En nú, þegar bæjar-
stjórnin í gær hjelt síðasta
fund sinn fvrir þessar bæj-
arstjórnarkosningar krafðist
Sigfús þess, að tillaga sín
væri tekin fyrir á ný.
Nú ætlaði Sigfús ekki
að verða of fljótur á sjer.
Ef einhver hefir áður ef-
ast um í hvaða tilgangi til-
lagan var flutt, kemst.slík-
ur efi ekki framar að.
Sigfús unir því að eigin
sögn, að „íhaldið liggi á
málinu“ mánuðum saman,
en ætlar nú að passa sig á
því að vera ekki of snemma
í tíðinni og velur þess vegna
allra síðasta fund bæjar-
stjórnar fyrir kosningar, til
þess að endurnýja skýja-
borga-tillöguna Hvort hann1
ætlast til þess að þessum 500
íbúðum verði komið upp á
þeim tíu dögum, sem eftir
eru tií kosninga, kom ekki
í ljós í ræðu hans í gær.
En með þessu öllu hefir
hann sannað, svo að ekki
verður um villst, að hjer er
um einskært kosninga-
skvaldur af hans hálfu að
ræða.
Meiri hluti bæjarstjórnar
ákvað hinsvegar í haust að
vísa þessu máli til annafar
umræðu. Var þaó gert að-
allega af tveimur ástæðum.
Vill Sigfús enn flytja
inn erlenda verkamenn?
Annarsvegar þurfti að
fara fram athugun á því,
hvort vinnuafl væri fyrir
hendi til að byggja þessar
500 íbúðir til viðbótar á ár-
inu 1946. Þegar Sigfús Sig-
urhjartarson sjálfur flutti
tillögu sína í haust, gat hann
ekki bent á annað vinnuafl,
en ef hingað væru fluttir
inn erlendir verkamenn og
þá helst frá Norðurlöndum.
Sú rannsókn, sem síðan hef-
ir farið fram, hefir sannað
þá skoðun Sigfúsar, að erf-
itt mundi vera, að óbreytt-
um atvikum, að fá innlenda
menn til svo mikilla viðbót-
arb^gginga á einu ári.
Með gögnum, sem aflað
hefir verið hjá fagfjelögun-
um, liggur það nú óhaggan-
lega fyrir, að ekki er nægt
vinnuafl fyrir hendi til að
vinna að þeim milli 800 og
1000 íbúða, sem nú eru í
smíðum eða í undirbúningi
hjer í bæ. Bæjarstjórnin get
ur borið um þetta vitni af
eigin raun, því að hinar
miklu byggingarfram-
kvæmdir hennar bæði við
Skúlagötu og fyrirhuguð
bygging við Miklubraut hafa
tafist vegna þess að ekki er
kostur á nægu vinnuafli.
Það er því svo ljóst sem
unt er, að Sigfús hafði rjett
fyrir sjer í haust, þegar
hann sagði, að ekki mundi
vera hægt að fá innlendan
vinnukraft til að byggja all-
ar þessar íbúðir á einu ári.
En hinsvegar hefir hann
brugðist hið versta við, þeg-
ar hann hefir verið mintur
á, að hann vildi flytja inn
hina erlendu verkamenn.
Hverríig hann ætlar þá að
leysa það vandamál að fá
nægan vinnukraft til að
koma upp þessurn íbúðum
á þeim tíma, sem hann
krefst, hefir hann ekki skýrt
ennþá.
Bæjarstjórnin vill
samvinnu allra aðila.
En samhliða þessari at-
hugun vildi bæjarstjórnin
láta taka upp samvinnu um
lausn málsins við ríkisstjórn.
Alþingi og Nýbyggingarráð.
En allir þessir aðilar höfðu
til athugunar og í undirbún-
ingi tillögur um úrlausn
þessara mála. Nú hefir rík-
isstjórnin, eða fjelagsmála-
ráðherra, borið fram sínar
tillögur og er frumvarpið
til meðferðar á Alþingi og
mun verða meðal hinna
fyrstu mála, sem til af-
greiðslu koma, þegar Al-
þingi hefur fundi sína á ný
1. febrúar. ■ : 1 ! :! '
í þessu frumvarpi, sem
upphaflega er samið sam-
kvæmt tillögu, er Bjarni
Benediktsson borgarstjóri
bar fram, er ráðgerður stór-
aukinn stuðningur við bygg
ingu verkamannabústaða,
aukin hlunnindi til sam-
vinnufjelaga, ákvæði um
byggingar af hálfu ríkis og
bæjar, að vísu ekki fullnægj
andi en þó í rjetta átt, og
fyrirmæli um ráðstöfun á
byggingarefni.
Ollum þeim mönnum, sem
um þessi mál fjalla af al-
vöru' og er það raunveru-
legt áhugamál, en ekki kosn
ingahrekkur, að koma góðu
áleiðis í þeim og stuðla að
því, að braggaíbúðir og aðr-
ar heilsuspillandi vistarver-
ur verði lagðar niður sem
fyrst, hlýtur að vera ljóst,
að bæjarstjórninni er gagns
laust að taka frekari ákvarð
anir í málinu fyr en fyrir
diggur hverja meðferð Al-
þingi vei.tir þessu frum-
varpi. Vonir standa til þess,
að svo geti orðið fyrstu dag-
ana í febrúar, eða a. m. k.
einhvern tíma í febrúarmán
uði.
Kommúnistar „gleymdu“
að byggja.
Að öðru leyti er bæjar-
stjórnin nú með undirbún-
ingi lóða og á annan veg að
greiða fyrir auknum bygg-
ingum í bænum á allan þann
hátt, sem fiún getur orkað.
Að svo vöxnu máli er því
ekki um að villast, að ger-
samlega er þýðingarlaust að
samþykkja nú slíka tillögu,
sem ,,skýjaborgar“-tillögu
Sigfúsar Sigurhjartarsonar.
Ákefð hans í því áð fá hana
borna 'upp á síðasta fundi
bæjarstjórnar fyrir kosn-
ingar, sannar, að áhugi hans
fyrir málinu er eingöngu
tengdur við kosningar.
Enda mundi svo reynast,
ef Sigfús og fjelagar fengju
hjer meirihluta, að sýnu
lægra yrði risið á skýjaborg
unum eftir kosningarnar en
áður. Jafnvel þó að ekki
færi eins illa fyrir komm-
únistum hjer eins og á Siglu
firði, þar sem foringi þeirra
Áki Jakobsson var- bæjar-
stjóri heilt kjörtímabil, en
gleymdi alveg því höfuðatr-
iði ^að byggja nokkra nýja
íbúð fyrir siglfirska alþýðu.
Reykvíkingar skilja, hvað
vakir fyrir kommúnistum í
sambandi við neyð hinna
húsnæðislausu, og munu
gjalda þeim rjettmætá ráðn-
ingu fyrir skollaleikinn.
Kjósið D - listann
miuiiiiiiiiiiiiiuiiiiiininiiiiiiiiiiiiiiinniimiiiinniiinij
Á FUNDI bæjarstjórnar í
gær skýrði borgarstjóri frá
því, hVaða reglum bæjarráð
hefði- fylgt í úrskurði um
framkomnar kjörskrárkærur.
Að því er snerti fólk, sem
fluttist hingað frá útlöndum,
voru teknar til greina kærur
þeirra, er hjer áttu lögíheim-
ili áður en fóru utan (náms-
fólk), en ekki þeirra, sem
áttu lögheimili annarsstaðar
á landinu.
Aftur á móti voru ekki
teknar til greina kærur fólks,
sem nú flutti til landsins í
fyrsta sinn (t. d. konur).
Ekki heldur fólks, sem hafði
búsetu erlendis (fór ekki ut-
an til náms eða stuttrar dval
ar).
Að því er snerti fólk, er
fluttist til bæjarins utan af
landi; voru teknar til greina
kærur þeirra, sem órækar
skýrslur liggja fyrir um, að
tekið höfðu hjer búsetu fyr-
ir febrúar 1945 (er kiörskrá
var samin). Einnig voru
teknar til greina kærur
þeirra, sem skráðir voru á
manntal hjer 1944, enda þótt
getið væri í aths., að þeir
ættu lögheimili annarsstaðar,
ef sýnt var að þeir voru
raunverulega heimilisfastir
hjer (skattgreiðendur o. fl.).
Yfirleitt hefði bæjarráð
verið frjálslynt í úrskurðum
sínum um kjörskrárkærúr,
sagði borgarstjóri.
KJÓSIÐ D-LISTANN
Hvað fær Sjálfstæð-
isflokkurinn mörg
atkvæði ?
- Verðlaunagetraun -
GETIÐ UPP Á ÞVÍ, hvað Sjálfstæðisflokkurinn muni
fá mörg atkvæði við bæjarstjórnarkosningarnar.
Þrenn verðlaun verða veitt þeim fara næst umatkvæða-
magnið:
1. Verðlaun 2000.00 kr.
2. Verðlaun 1000.00 kr.
3. Verðlaun 500.00 kr.
Ritið uppástungu ykkar ásamt nafni og heimilisfangi
á úrklippu úr blaðinu og sendið Morgunblaðinu fyrir
kjördag, merkt: „Getraun“.
Sjálfstæðisflokkurinn fær ................ atkvæði.
Nafn .....................................
Heimilisfang ................................... * J