Morgunblaðið - 18.01.1946, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Föstud^gur 18. jan. 1946
Útvarpsfrjettir — Framsóknarum-
hyggja — Hrelíingar Alþýðu-
flokksins — Og hrundar borgir
FRANK SINATRA söngvaranum fræga brást heldur en
ekki bogalistin á dögunum. Eins og kunnugt er, hefir hann haft
mikil áhrif á æskuna í Ameríku, einkum hálfsokkastelpurnar
svonefndu. Því var það, að þegar 5000 nemendur í mentaskóla
einum gerðu „verkfall“ til þess að mótmæla því, að negraungl-
ingar væru meðal nemenda, var Frankie fenginn til að tala til
nemendanna í útvarpi og hvetja þá til að koma aftur í tíma. En
nemendur höfðu áskoranir hans að engu.
ÚTVARPSHLUSTENDUR eru
að velta því fyrir sjer þessa
daga, hvort komin sje kosn-
ingaskjálfti í frjettastofu út-
varpsins. Á hverjum degi er
nokkrum hluta frjettatímans
eytt til þess að koma þar að
ýmsum frásögnum austan
frá Volgubökkum, um hið
ágæta menningarástand sem
þróast undir verndarvæng
„hins austræna lýðræðis“. I
gær var m. a. sagt frá því,
að sovjetríkin ættu 55 milj-
ónir bóka í bókasöfnum sín-
um, íyrir utan það sem til
væri af barnabókum í barna
lesstofum, og í Lenin-bóka-
safninu væri einar 10 milj-
ónir binda. Ekki var sagt frá
því, hvort þessi æsifregn
hefði borist útvarpinu á öld
um ljósvakans samdægurs
ellegar hinn austræni Björn
útvarpsins hefði fundið hana
í einhverri kenslubók.
★
EYSTEINN JÓNSSON, sem
sektaði menn fyrir að fá sjer
fiskiskip, hefir skýrt frá því
í Tímanum, að Framsóknar-
menn vilji auka hjer heimil
isþægindin og gera heimilin
í bænum vistlegri. — Áhugi
Framsóknar gömlu í þeim
efnum lýsti sjer best í því,
þegar flokkurinn rauf þing
í ofboði til þess að reyna að
koma í veg fyrir að Reykja-
vík fengi möguleika til þess
að virkja Ljósafoss í Sogi.
Flokkur með slíkri fortíð
ætti að hafa vit á því, að gera
enga tilraun til áhrifa á bæj
armálefni Reykjavíkur.
★
JÓN AXEL PJETURSSON
kvartar yfir því í blaði sínu,
að Gísli Halldórsson verk-
fræðingur hafi snúist í lið
með Sjálfstæðismönnum,
bæði í hitaveitumálinu og
öðrum framfaramálum bæj-
Sigfúsar
arins. Sú var tíð, segir Jón,
að Gísli Halldórsson fylgdi
Alþýðuflokknum.
Já. Sú var tíð, að fylgis-
menn Alþýðuflokksins voru
fleiri, en þeir eru í dag. Þeim
hefir fækkað, Jón, einmitt
vegna þess, hve margir þeir,
sem áður voru í Alþýðu-
flokknum, fylgja nú Sjálf-
stæðismönnum að málum. —
Þetta veit Jón A. Pjetursson.
Hann ætti líka að vita, að
ekki þýðir að sakast um orð-
inn hlut.
★
ÞAÐ ER EITT, sem ræður því,
að jeg kýs með Sjálfstæðis-
mönnum nú, sagði einn aí
fyrrverandi fylgismönnum
Alþýðuflokksins hjer á dög-
unum. Og það er það, að ef
það einhverntíma ætti að
koma fyrir, að Alþýðuflokk-
urinn og kommúnistar héfðu
hjer meirihluta í bæjar-
stjórn, þá er fyrirsjáanlegt
að hinn fullkomnasti glund
roði kæmist í öll málefni bæj
arins. — Þá ættu kommún-
istar að verða ráðandi flokk
ur í bænum, en Alþýðuflokk
urinn þjónar þeirra.
Nei takk, sagði Alþýðu-
flokksmaðurinn. Jeg kýs
Sjálfstæðismenn. Jeg kýs
Bjarna Benediktsson. — Og
sama gera margir fyrrver-
andi andstæðingar Sjálfstæð
isflokksins.
★
NÚ SPRAKK SKÝJABORGIN
hjá Sigfúsi Sigurhjartarsyni.
Hann ber fram tillögu sína
um 500 íbúða-viðbótina í
september. Síðan hefir hún
legið í salti fyrir nefinu á
honum í bæjarráði. Þangað
til nú 10 dögum fyrir kosn-
ingar, að hann ber tillöguna
fram að nýju. Þetta kalla
menn að halda heldur illa á
spöðunum. í september átti
þetta áð verða mikill kosn-
ingaáróður fyrir kommún-
ista. Það mistókst. í gær á
bæjarstjórnarfundi tókst Sig
fúsi aftur á móti að sanna
það fyrir bæjarbúum að
hann hefir aldrei meint neitt
alvarlegt með þessari tillögu
sinni.
★
EN SPAUGILEGAST var það,
þegar hann vakti upp tillögu
sína eftir 4 mánaða svefn í
handarkrika hans í bæjar-
ráði. Þá var engu líkara en
að hann treysti sjer ekki til
þess að fylgja henni fram
og hafa framsögu í málinu,
og þóttist verða „grút fornem
aður“ við borgarstjóra, fyrir
að hann skyldi ekki taka ó-
makið af þessum pólitíska
gerfismið skýjaborganna,
flutningsmanninum sjálfum.
★
ÁÐUR EN FUNDI LAUK var
kominn ákaflega mildur og
kristilegur tónn í ræðu Sig-
fúsar Sigurhjartarsonar. Tók
hann sig til að hæla borgar-
stjóranum, en gleymdi þá
ekki að þeir væru nokkuð
skyldir, báðir komnir af
Grími nokkrum á Fjöllum, er
uppi var fyrir 150 árum eðá
svo.
- SíSa S. U. S.
Framh. af bls. 6.
Við æskuna vil jeg segja:
Þú ættir síst að vera sporlöt.
Eldri kynslóðin hefir skilað okk
ur í hendur fagurri höfuðborg,
sem þróast hefir á undra-
skömmum tíma úr fátæku fiski
þorpi í framfarasinnaða atorku
borg. Okkar er að tryggja fram
hald þessarar þróunar.
Undir viljans merki skal
Sjálfstæðisflokkurinn vinna
sinn glæstasta sigur á höfuð-
borg íslands.
Fjártiagsáælion
Reykjavíkur
fyrir 1946
FJÁRHAGSÁÆTLUN Reykja
víkurbæjar og stofnana hans
var til fyrri umræðu á bæjar-
stjórnarfundi í gær.
Sagði borgírstjóri að sam-
komulag hefði orðið um það í
bæjarráði, að ganga ekki frá
fjárhagsáætluninni fyrri en eft
ir kosningar, en leggja frum-
varp að henni fyrir bæjarstjórn
í janúar, eins og nú hefði verið
gert.
Hann sagði, að litlar breyting
ar væru í frumvarpi þessu frá
fjárhagsáætlun fyrra árs, og
væri frumvarpið að mestu skrif
stofuvinna. Hækkun væri á út-
svörum frá því í fyrra er næmi
3—4 miljónum. Stafaði sú hækk
un af því að nú væri vísitala
reiknuð 285 en 270 í fyrra.
Talsverðar lcauphækkanir
hefðu átt sjer stað. Og' áætlað
var meira fje til ýmiskonar á-
haldakaupa en áður.
— Macteie Kíng
Framhald af bls. 9.
á að ráða, heldur sú stefna,
sem allar aðrar þjóðir geta
sætt sig við“.
Fyrir þetta varð Macken-
zie King einn af helstu leiðr
andi mönnum San Francis-
co ráðstefnunnar.
, ............................■■■■■■■.................................... 3
I X-9 . tk & & a Eflir Roberl Slorm i
........................................... :
TME JAP6 BUMPED 0FF
/MV KID BE0TMER...TM/1T
5M0ULD ölVE VOL) AW
IDEA OF MOW1 FÉEL
ABOUT DRAFT D0DQER$.
TMAT QETð ME WHERE
IT HURT5; JUUE...I
Wl$H, NOW, THAT I
HADN'T RATTED ON
, AM BOARD. >
NO GCOD, FRANKIE.. VCU ”
F0R6ET VOU'RE WANTED FOR
DRAFT EVA5I0N...I COULDN'T
41ARRV A 6UV WH0EE PICTURE
I5 UABLE TO POP UP ON
50,M£ P05T 0FFICE WALL! .-!
LI5TEN, JULIE...I THi
VCÚRE TERRIFIC! LEl
QET 4IARRIED...ILL
UNCOUPLE FRO/Vt
"DREAMER'5'' BUNCH
v AND------- r^s
Franki: Heyrðu nú, Júlía. Við skulum bara koma
okkur burtu hjeðan og giftast. — Júlía: Ekkert
þýðir það, Franki minn. Þú gleymir alveg að þú
ert liðhlaupi. Jeg get ekki giftst manni, sem þeir
geta sett myndina af út í sýningargluggana á lög-
reglustöðvunum hvenær sem er. Japanirnir drápu
bróðir minn. Það gæti gefið þjer hugmynd um
hvernig mjer er við liðhlaupa. — Franki: Þetta var
sárt, Júlía. Jeg vildi, áð jeg hefði ekki verið með
þessa pretti við herinn.